Tíminn

Dagsetning
  • fyrri mánuðurjanúar 1991næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    303112345
    6789101112
    13141516171819
    20212223242526
    272829303112
    3456789

Tíminn - 12.01.1991, Blaðsíða 6

Tíminn - 12.01.1991, Blaðsíða 6
14 HELGIN Laugardagur 12. janúar 1991 Laugardagur 12. janúar 1991 HELGIN W 15 Hin lukkulegu brúöhjón eftír vígsluna. Rod Stewart í hnapphelduna Þrátt fyrir 24 ára aldursmun eru brúðhjónin ekki í vafa um ævinlega hamingju í sambúðinni Nú um síöustu jól lyftist brúnin á Bretum, þegar poppgoðiö Rod Ste- wart var á ferðinni þar í landi að kynna fjölskyldu sinni hina nýju eig- inkonu sína, Rachel Hunter. Eink- um þurfti hann að leiða hana á fund móður sinnar Elsie, sem er 85 ára að aldri og gat ekki verið viðstödd sjálft brúðkaupið, sem fram fór í Be- verly Hills. Aldur móðurinnar þarf ekki aö koma á óvart, því sonurinn er nú 45 ára. Brúðurin er hins vegar aðeins 21 árs. Brúðkaupið sóttu einkum ættingjar brúðhjónanna og voru þeir miklu fleiri en fræga fólkið, kunningjar brúðgumans. Haft var eftir móður brúðarinnar, Janine Phillips, að þetta hefði verið „gamaldags brúkaup", þrátt fyrir að glys sviðsljósanna væri ekki langt undan — nærvera sjón- varpsmanna og fréttafólks. Gestir komnu til kirkjunnar í tveggja-hæða Lundúnastrætisvagni. Og brúðurin lét Rod bíða eftir sér í hálfa klukku- stund, sem vakti athygli. Hún var klædd mjög flegnum, hvítum satín- kjól með fimmtán metra slóða. Þegar Rod kom auga á hana hrópaði hann upp: „Hún er stórkostleg, stórfögur, dásamleg!" Fótbolti, áfengi og konur — í þesari röð — hafa verið talin helstu áhuga- mál Rod Stewart. En þótt hann eyddi kvöldinu fyrir brúðkaupið til þess að leika fyrir uppáhaldsfótboltalið sitt í Los Angeles, þá fór hann þaðan snemma til þess að vera viðstaddur kvöldverðarboð fjölskyldunnar. Hann ræddi þar að vísu um fátt annað en fótbolta, en Rachel mun hafa fyrir- gefið honum það. Don bróðir hans, en hann er sextug- ur, var svaramaður, og honum varð á orði: „Hann er ástfangnari af þessari stúlku en nokurri annarri. Þetta er líka í fyrsta sinni, sem honum finnst hann ekki þvingaður í sambandinu". Þótt Rod hafi verið kenndur við fjölda fagurra kvenna, þar á meðal Britt Ekland og Susan George, hefur hann aðeins einu sinni áður verið kvæntur. Sú var Alana Stewart, móð- ir Sean (10 ára) og Kemberley (11 ára), en hún var brúðarmær. Hjóna- bandið entist í sex ár. Fyrir ekki löngu sleit hann sambandi sínu við vinstúlku sína Kelly Emberg, en það hafði varað í fimm ár. Þau áttu saman dótturina Ruby, sem er tveggja ára. Rod er ekki í vafa um að hjónaband- ið muni endast til lífstíðar. „Ég áttaði mig á að þessari konu vildi ég eyða ævinni með. Ég bað hana að giftast mér fimm vikum eftir að við sáumst fyrst“. Rod er hreykinn af þeim miklu vin- sældum sem hann æ nýtur í Skot- landi og því lék sekkjapípuhljómsveit við athöfnina í kirkjunni. Brúðartertan var látin tákna upp- runa þeirra beggja. Hún var í laginu eins og þinghúsið í London — en efst á henni trónaði kiwi- ávöxtur, sem átti að minna á að Rachel er ætt- uð frá Nýja Sjálandi. Þau hyggjast vera samvistum eins mikið og tök eru á og mun Rachel fylgja bóndanum á hnatt- tónleika- ferð sem stendur fyrir dyrum. Jafn- framt mun hún starfa nokkuð sa»n fyrirsæta. Rod hyggst selja lúxushýsi sitt í London, en þar hefur hann not- ið lífsins með fyrri konu sinni og vin- stúlkum síðar. Þannig munu þau Rachel byrja hjúskapinn á spánnýju heimili. Éinn vina þeirra segir: „Rod ætlar nú að byrja nýtt líf — þess hef- ur Rachel líka krafist“. Rachel ásamt brúðarmeyjum sínum. Það var kátt á Hjalla í brúðkaupsveislunni og hin nýgrftu brugðu á leik. w- EG NYTI OLL TÆKIFÆRIN í LÍFINU - É6 MENNTA MIG - É6 STUNDA LÍKAMSRÆKT - ÉG FERÐAST 66 SPIIA í HAPPDRÆTTI HÁSKÓLANS í Happdrætti Háskóla íslands er hærra vinningshlutfall en í nokkru öðru happdrætti í heimi: 70% veltunnar eru greidd út í vinninga. Hæstu mögulegir vinningar í hverjum mánuði eru 18 milljónir og í desember er hæsti vinningur 45 milljónir. Allir vinningar eru að sjálfsögðu skattfrjálsir. HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS vænlegast til vinnings

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað: Helgin (12.01.1991)
https://timarit.is/issue/281039

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

Helgin (12.01.1991)

Aðgerðir: