Tíminn - 12.01.1991, Blaðsíða 8
16
HELGIN
Laugardagur 12. janúar 1991
INNLENDIR
ATBURÐIR
1991
SPÁ-
MAÐURINN
Þeir stjórnmálaflokkar sem vinna mest á í
alþingiskosningum I vor verða
Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur.
Mynduð verður ný Viðreisnarstjórn, þ.e. stjórn
Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks.
Á ársgrundvelli fer verðbólgan upp í tveggja
stafa tölu.
Samningar takast um byggingu nýs álvers.
Davíð Oddsson dregur sig í hlé sem borgarstjóri
vegna þrýstings um að taka að sér
ráðherraembætti.
Ekki koma fram neinar nýjar vísbendingar um
betra ástand loðnustofnsins.
Betur mun horfa á þessu ári um síldarsölu
en á því síðasta. Nýir markaðir koma inn,
auk þess sem Rússlandsmarkaður kemur inn aftur
að einhverju leyti.
Rjúpnaveiðistofninn vex lítillega frá síðasta ári.
Hagur íslensku fiskeldisstöðvanna batnar
á þessu ári.
Stór aukning verður á vatnsútflutningi.
Vel tekst til um markaðssetningu.
Viðræður við erlenda aðila um byggingu
vetnisverksmiðju lofa góðu.
KR-ingar verða
íslandsmeistarar. Pétur
Pétursson hampar hér
Reykjavíkur-
bikamum.
Fundur Alþjóða
hvalveiðiráðsj^s verður í
Reykjavík.
Það næst mjög góður árangur í Eurovision
söngvakeppninni í ár.
Einhver óróleiki verður á vinnumarkaðnum
í haust.
Nýtt flugfélag í millilandaflugi verður stofnað.
Sumarið á S-Vesturlandi verður mjög
votviðrasamt.
Gott sumar verður á Norður- og Austurlandi.
Pétur Guðmundsson kúluvarpari nær frábærum
árangri á árinu.
Stórbruni verður í Reykjavík.
Fundur verður haldinn í Alþjóðahvalráðinu
í Reykjavík. Mjög stormasamt verður ( kringum
þennan fund.
Banaslysum í umferðinni fjölgarfrá síðasta ári.
Fleiri farast í sjóslysum.
(slenskt sundfólk gerir það gott á árinu.
Hroðalegt morð verður framið, sem rakið verður til
eiturlyfja. Þetta vekur fólk til umhugsunar um
hversu alvarlegt vandamál fíkniefnaneyslan
er orðin.
Samdráttur verður í nýbyggingu íbúðarhúsnæðis.
Davíð segir skilið við
borgarmálefhin og snýr sér
að stórpólitíkinni.
fslenskir sundmenn gera
það gott Eðvarð
Eðvarðsson sundkappi.
(slandsmeistari í handbolta verður Víkingur.
(slenska landsliðið f handbolta stendur vel undir
þeim væntingum sem til þess eru gerðar.
Liðið stendur sig vel í þeim landsleikjum sem fram
fara á árinu.
KR verður fslandsmeistari í knattspyrnu og vinnur
einnig bikarkeppnina. Tvöfaldur sigur á þeim bæ.
Landsliðið í fótbolta gerir það gott á árinu.
Ákveðið verður að gera fólksbílafæran
veg yfir Sprengisand.
Nýtt met verður sett í fjölda erlendra
ferðamanna til landsins.
Ákveðið verður að stórauka aðstoð við
þróunarlönd.
Laxveiðar ganga treglega framan af sumri,
en lagast seinni hluta sumars. f heildina verður
um meðalár að ræða.
Rætt verður við Bandaríkjamenn um einhvers
konar fríverslunarbandalag.
Ákveðið verður að fara út í stóraukinn
líftækniiðnað hér á landi.
Hafís verður landfastur við norðurströndina.
Þekktur rithöfundur fellur frá.
Eldgos brýst út síðla sumars. Ekki veldur það tjóni.
Eignatjón hlýst af jarðskjálftum.
Verð á loödýraskinnum stígur.
Æðsta dómsvald mildar dóm eða sýknar þekktan
kaupsýslumann.
fslenskur óperusöngvari nær stórglæsilegum
árangri á erlendri grund.
Hafin verður framleiðsla á búnaði til mengunar-
varna fyrir stóriðjuverksmiðjur í samvinnu við er-
lend fyrirtæki. Mest af framleiðslunni verður
unnið erlendis en eitthvað hérlendis.
Rjúpnastofninn
hjamar við.
Aftur náum við
afbragðs árangri
í söngvakeppninni.
fslensk kvikmynd gerir það gott á erlendum
markaði.
Snjóflóð velur usla í sjávarþorpi.
Berjaspretta verður góð víðast hvar á landinu.
Mikill uppynging verður á Alþingi í kjölfar
kosninganna í vor.
Óvenju miklar deildar verða innan
læknastéttarinnar.
Veturinn verður víða harður það sem eftir er.