Tíminn - 19.01.1991, Síða 9
Laugardagur 19. janúar 1991
HELGIN
17
PLOTUR/DISKAR
'
Sléttuúlfarnir:
Líf og f jör
í Fagradal
Hver kannast ekki við lagið „Litli
kall“ eða „Akstur á undarlegum
vegi“? Þetta eru tvö vinsælustu
lögin af plötu Sléttuúlfanna, „Líf
og fjör í Fagradal", sem kom út í
síðasta mánuði. Þetta eru jafn-
framt þau tvö lög plötunnar sem
gerð voru myndbönd við.
Það eru gamalreyndir jaxlar úr
poppbransanum sem standa að
Sléttuúlfunum, þeir Björgvin
Halldórsson, Gunnar Þórðarson,
Pálmi Gunnarsson, Gunnlaugur
Briem og B.J. Cole. Að auki njóta
þeir aðstoðar góðra gesta á borð
við Sigríði Beinteins, Árna Sche-
ving, Friðrik Karlsson og fleiri.
Björgvin er sjálfur framleiðandi
plötunnar, en Skffan gefur hana
út.
„Líf og fjör í Fagradal" geymir
ellefu lög sem eru eins og gefur að
skilja skilgetnar afurðir þeirra
sem að gripnum standa. Út á spila-
mennsku, tæknivinnu og flutning
er ekkert að setja, enda um hóp at-
vinnumanna að ræða. Hvað varðar
frumleika og boðskap má í stuttu
máli segja að hvorugt sé til staðar,
enda sjálfsagt ekki til þess ætlast.
Platan skilar sínu hlutverki - sem
iðnaðarpopp - vel. Lögin renna án
nokkura erfiðleika inn um annað
og út um hitt.
Skagfirska söngsveitin
í Reykjavík tuttugu ára:
Nú „íslensk“
afmælisplata
Skagfirska söngsveitin í Reykja-
vík hefur nýverið sent frá sér sína
fimmtu plötu og ber hún nafnið
Ljómar heimur. Platan er gefin út
í tilefni tuttugu ára afmælis söng-
sveitarinnar, en Skagfirska söng-
sveitin hefur áður sent frá sér fjór-
ar hljómplötur.
ÓKEYPIS
HÖNNUN
auglýsingar
ÞEGAR ÞÚ
AUGLÝSIR í
Tímanum
AUGLÝSINGASÍMI
680001
Að þessu sinni er lögð megin-
áhersla á flutning íslenskrar tón-
listar og þá ekki síst eftir skagfirsk
tónskáld. Ljómar heimur hefur að
geyma alls átján lög og þar af ein-
ungis eitt eftir erlendan höfund.
Stjórnandi kórsins er Björgvin Þ.
Valdimarsson og hann er jafn-
framt höfundur sex þeirra laga
sem flutt eru á plötunni. Hér er á
ferðinni eigulegur gripur sem
undirstrikar þá sérstöðu sem
Skagfirska söngsveitin hefur með-
al íslenskra kóra. Konur eru í
meirihluta innan kórsins og
reyndar mætti finna söngnum það
helst til foráttu að tenórinn sé á
stundum ívið of veikur þegar á
heildina er litið.
Undirleikari Skagfirsku söng-
sveitarinnar er Vileta Smid.
-ÁG
Björk Guðmundsdóttir og
Tríó Guðmundar Ingólfssonar:
GLING
GLÓ
Fyrir síðustu jól sendu Björk
Guðmundsdóttir og Tríó Guð-
mundar Ingólfssonar frá sér plöt-
una Gling- Gló sem inniheldur
þrettán gömul dægurlög í nýjum
útsetningum. Þetta er í fýrsta
skipti sem djasstríó Guðmundar
fær til liðs við sig söngkonu og út-
koman er virkilega nýstárleg
blanda gamalla og nýrra tíma.
Líklega þekkja flestir Björk Guð-
mundsdóttur sem söngkonu í
hljómsveitum á borð við Tappa tí-
karrass, Kukl og nú síðast Sykur-
molunum, sem eru orðnir nokk-
urn veginn heimsfrægir. Þar hefur
hún beitt sinni sérstæðu rödd við
flutning súrrealístískra tónsmíða
og dæmigerðs dægurpopps við
góðar undirtektir. Hér fer hún
hins vegar inn á nýjar brautir og
þó ekki alveg ókunnar (hver kann-
ast ekki við „Kata rokkar" og
„Jólaköttinn"?)
Um hinn helminginn, Tríó Guð-
mundar Ingólfssonar, er það að
segja að þar eru á ferðinni tveir
hundvanir Guðmundar og efnileg-
ur og vaxandi bassaleikar, Þórður
Högnason. Menn sem kunna sitt
fag og skila sínu vel. Niðurstaðan
er djassblandin dægurlög á borð
við „Lugtar-Gvend“, „Bílavísur",
„Bellu símamær" og fleiri gamla
smelli, þar sem bæði spilarar og
söngkona njóta sín vel.
Ef finna ætti þessum góða grip
eitthvað til foráttu mætti þar heist
nefna flámælgi Bjargar sem sting-
ur í eyrun á köflum. - ÁG
■ 1S watta seodiorta E M, t ,5 wött sem (areími
i
£ .#
*
<$>
W
\mx
0$
LOKSINS í EINU TÆKI:
RAUNVERULEGUR
FARSÍMI OG TÆKNI-
LEGA FULLKOMINN
BÍLASÍMI!
í litlum farsímum eru mörg atriði sem skipta
stóru máli!
Mobira Talkman 510 er í senn einstaklega
fyrirferðarlítill farsími og tæknilega fullkominn
bílasími. Hann getur fallið nákvæmlega í hólfið
fyrir útvarpstæki (margir nýir bílar eru með tvö
slík hólf) og þegar þú ferð úr bílnum kippirðu
símanum með þér á augabragði. Þessi nýi sími
er á stærð við þykka bók, þyngdin er aðeins
rúm 2 kíló og Mobira ábyrgist gæðin alla leið í
gegn! Kynntu þér afdráttarlausa yfirburði
Mobira • og reiknaðu önnur dæmi til enda!
Ármúla 26,108 Reykjavík, sími 91-31500 og 91-36700
Tækin minnka- tæknin eykst!