Tíminn - 09.02.1991, Síða 5
Laugardaguf 9. februa'r 1991
HELGIN
13
á stofndegi Rauða kross íslands 10.
desember. Birta skal í Lögbirtinga-
blaði og Stjórnartíðindum hverjir
heiðursmerkið hljóta. Heiðurs-
merkið (silfurmerki) var í fyrsta
sinn veitt í desember 1949 Guð-
mundi Thoroddsen prófessor, Birni
Ólafssyni ráðherra, Magnúsi Kjar-
an stórkaupmanni, Kristínu Thor-
oddsen vfirhjúkrunarkonu og
Birni E. Árnasyni aðalendurskoð-
anda.
Heiðurspeningur
til minningar
um herra Svein
Bjömsson forseta
Nokkru eftir lok síðari heimsstyrj-
aldar, þegar samgöngur höfðu haf-
ist á ný við Norðurlönd, ráðgerði
fyrsti forseti íslands opinbera
heimsókn þangað, en slíkar ferðir
hafa allir nýkjörnir forsetar lands-
ins farið síðan.
í þessu sambandi var á árinu 1949
hafinn undirbúningur að gerð
heiðurspenings eða minnispen-
ings, sem forseti gæti veitt í slíkum
ferðum þegar við þætti eiga.
Af heilsufarsástæðum varð ekki af
því að Sveinn Björnsson færi í slík-
ar heimsóknir til Norðurlanda, en
slegnir höfðu verið 25 minnispen-
ingar úr silfri. Öðrum megin á pen-
ingunum er skjaldarmerki lýðveld-
isins og skjaldberar, en hinum
megin mynd af forsetanum eftir
vangamynd úr gipsi, sem Salomon
í Kaupmannahöfn hafði gert. Um-
hverfis mynd forsetans stendur:
Sveinn Björnsson forseti íslands.
Peningurinn er 3 sm í þvermál og 2
mm á þykkt.
Heiðurspeningurinn er smíðaður
hjá A. Michelsen, hirðgullsmið í
Kaupmannahöfn, með aðstoð kon-
unglegu myntsláttunnar. Kostnað-
ur við gerð peningsins varð um
þrjú þúsund danskar krónur.
Þegar Sveinn Björnsson var fall-
inn frá var ákveðið að semja reglur
um heiðurspening til minningar
um hann og veita þá heiðurspen-
inga, sem rætt er um hér að fram-
an, nokkrum þeirra sem höfðu
unnið með honum og fyrir hann.
Reglur voru settar í forsetabréfi 26.
febrúar 1953.
Veiting heiðurspeningsins fór
fram í eitt skipti, 27. febrúar 1953.
Þriggja manna nefnd gerði tillögu
um veitingu peningsins. Sautján
menn hlutu peninginn.
Heiðursmerki
vegna endurreisnar
lýðveldisins
Sérstakt heiðursmerki var gert í
tilefni endurreisnar lýðveldis á ís-
landi 17. júní 1944. Var þar farin
sama slóð og í sambandi við Alþing-
ishátíðina 1930. Nú var hins vegar
ekki unnt að leita til Danmerkur
um smíði merkisins, þar sem
heimsstyrjöldin lokaði þeirri leið.
Var því leitað til Bandaríkjanna.
Stefán Jónsson, teiknari og arki-
tekt, teiknaði merkið. Á framhlið
þess er skjaldarmerki lýðveldisins
og skjaldberar og umhverfis letrað í
boga: Lýðveldi endurreist á íslandi
17. júní 1944. Undir skjaldarmerk-
inu er skrautflétta til að brúa bilið
sem myndaðist milli upphafs og
loka áletrunarinnar. Á bakhlið er
merki lýðveldishátíðarinnar, þ.e.
skjaldarmerkið án skjaldbera og yf-
ir því rísandi sól sem mislöngum
geislum stafar frá, en sleppt er
áletruninni sem var á lýðveldishá-
tíðarmerkinu: 17. júní 1944. Laufa-
NYTUM
DROPANN
BETUR
FERÐUMST
FLEIRI
SAMAN
sveigur lykur um skjöldinn upp að
efri brún hans, þar sem sólarmerk-
ið tekur við. Merkið er úr 10 karata
gulli, 23 mm í þvermál og borið í
litbandi, jaðrarnir bláir, 6 mm
breiðir hvor, þá hvítar rendur hvor-
um megin, 6 mm breiðar hvor, og í
miðju rauð rönd, 6 mm breið.
Smíði heiðursmerkisins fór fram
fyrir milligöngu ræðismannsskrif-
stofunnar í New York og Bjarna
Björnssonar, síðar forstjóra verk-
smiðjunnar Dúks hf. í Reykjavík, en
þá var hann starfsmaður fyrirtækis-
ins Sverris Bernhöft Ltd., 128-130
West 31st Street í New York. Smíð-
inni var lokið í tæka tíð, þótt verka-
tími væri naumur. En þegar merk-
in komu til íslands þá stóð á þeim
undir skjaldarmerkinu á bakhlið,
að vísu mjög lítið áberandi: Made in
US (þ.e. búið til í Bandaríkjunum).
Þótt þetta sé algeng áletrun á ýms-
um varningi, eins og kunnugt er,
þótti slíkt eiga miður vel við á heið-
ursmerki og jafnvel gefa til kynna
að lýðveldið væri „made in US“.
Einnig vantaði festingu fyrir band-
ið svo og bandið sjálft. Var þó fljót-
lega ráðin bót á öllu þessu, en búið
var að afhenda sum merkin áður en
menn áttuðu sig á áletruninni: Ma-
de in US. Voru flest merkin aftur-
kölluð og þessir stafir numdir
burtu.
Alls voru smíðuð 75 merki hjá
Franklin Mint. Munu þau öll hafa
kostað 730,25 Bandaríkjadali og
greiðslan farið til E.W. Bruno í New
York. En ekki er vitað hvað sá hét
sem smíðaði merkin.
f forsetabréfi dagsettu á Þingvöll-
um 8. júlí 1944 segir að merkið
megi aðeins veita í eitt skipti, árið
1944, alþingismönnum, sérstökum
sendimönnum erlendra ríkja og
öðrum er að dómi ríkisstjórnarinn-
ar séu sérstaklega verðir þess að
hljóta heiðursmerkið. Merkið er
eign þess sem því hefur verið
sæmdur.
Tveir alþingismenn höfnuðu
merkinu.
Þrír sendiherrar gátu ekki, vegna
gildandi reglna í heimalandi sínu,
veitt heiðursmerkinu viðtöku. Var
hér um að ræða sendiherra Banda-
ríkjanna, Louis Goethe Dreyfus jr„
fv. sendiherra Bandaríkjanna, Le-
land Burnette Morrs, og sendiherra
Sovétríkjanna, Alexei Nikolaevich
Krassilnikov.
Af íslands hálfu var leitað eftir því
við hlutaðeigandi embættismann í
utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna,
Mr. Stanley Woodward, hvort
sendiherra væri ekki heimilt að
Heiðursmerki Rauða kross fslands.
veita merkinu viðtöku, þar sem það
væri ekki venjulegt heiðursmerki
heldur minnispeningur sem veittur
væri einungis í eitt skipti vegna
stofnunar lýðveldis á íslandi. En
Mr. Woodward tjáði íslenska sendi-
ráðinu í Washington „að fulltrúum
Bandaríkjanna væri bannað að taka
við orðum og heiðursmerkjum
hvers kyns sem væru og tæki bann-
ið einnig tvímælalaust til minnis-
penings lýðveldisins."
Að því er Sovétsendiherrann varð-
aði, þá ritaði hann utanríkisráð-
herra vinsamlegt bréf 19. október
1944 þar sem hann segir það hafa
glatt sig og telji hann sér heiður að
því að forseti íslands skuli hafa
sæmt sig heiðursmerkinu. En hinn
24. s.m. kom annað bréf frá sendi-
herranum þar sem hann þakkar
enn fyrir veitingu heiðursmerkis-
ins, en skýrir frá því jafnframt að
það sé ríkjandi venja að fulltrúar
Sovétríkjanna erlendis taki ekki við
viðurkenningu frá erlendum ríkis-
stjórnum, svo að sér sé ekki mögu-
legt að veita minnispeningnum
viðtöku. Um leið segir hann ríkis-
stjórn Sovétríkjanna meta mikils
vinsemd forseta íslands og ríkis-
stjórnar í garð Sovétsendiherrans.
Veitt voru 75 heiðursmerki, tveir
íslendingar höfnuðu þeim og þrír
útlendingar máttu ekki veita þeim
viðtöku.
Eftir dr. Hannes Jónsson,
fv. sendiherra
EVRÓPUMARKAÐSHYGGJAN
HA6SMUNIR OGVALKOSTIR ÍSLANDS
Kynnið ykkur allar hliðar mikilvægasta milliríkjamáls okkar í traustu, óháðu og að-
gengilegu heimildarriti. Höfundur gerir sannsýna heildarúttekt á hagsmunum og
valkostum íslands í nýrri Evrópu og stærri heimi. Yfirgripsmikið efni sett fram á
lipru máli og svo skýran hátt, að allir megi skilja hvort gróði eða tap, frelsi eða fjötr-
arfýlgi aðild okkar að Efnahagssvæði Evrópu og EB. Ómissandi innlegg í Evrópu-
markaðsumræðuna. Fjöldi mynda og skýringarteikninga. Kilja í stóru broti, 118
bls. Verð kr. 1000,00. Fæst hjá flestum bóksölum og útgefanda.
Pöntunarsími (91) 75352. &
I BÓKASAFN FÉLAGSMÁLASTOFNUNARINNAR
Pósthólf 9168 - 109 Reykjavík - Sími 75352
N0TUM
STRÆTÚ
SVRIH
STRÆTISVAGNAR REYKJAVÍKUR
<
O
SKEMMTISKKEPP TJM HELGI TIL...
Söluskrifstofur Flugleiða:
Lækjargötu 2, Hótel Esju oq Kringlunni. Upplýsingar og farpantanir í síma 6 90 300.
Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskriftofum
HELGARFERÐ
LAUGARDAGUR TIL ÞRIÐJUTD AGS
HOSPITALITYINN
TVEIR í HERB. KR. 87.680 Á MANN
FLUGLEIÐIR
Þjónusta alla leið