Tíminn - 09.02.1991, Blaðsíða 12
Laugardagur 9. febrúar 1991
20 Tíminn
UNGIR HOFUNDAR
Sjónvarpsstöðvar og menningarmálastofnanir í Evr-
ópu standa sameiginlega að verðlaunasamkeppni í
því skyni að hvetja unga höfunda til að skrifa handrit
að sjónvarpsleikritum eða leiknum sjónvarpsþáttum.
Keppt er um starfsverðlaun er veitt verða síðari hluta
þessa árs. Verðlaunahafar koma síðan til greina er
Evrópuverðlaunin verða veitt ári síðar.
Starfsverðlaunin eru að upphæð 25.000 svissneskir
frankar og verða veitt í nóvember 1991.
Sjónvarpið hefur heimild til að tilnefna allt að 3 hand-
rit, sem valin verða af sérstakri dómnefnd.
Umsækjendur skulu ekki vera eldri en þrjátíu og fimm
ára á árinu sem samkeppnin til starfsverðlauna fer
fram.
Umsækjendur mega ekki hafa samið nema eitt hand-
rit í fullri lengd (50 mínútur) fyrir sjónvarp eða kvik-
mynd þegar handriti er skilað.
Umsækjendur leggi fram 5-10 síðna efnisútdrátt að
frumsömdu handriti með námkvæmri lýsingu á inni-
haldi verksins, markmiði og persónum. Einnig skal
fylgja sýnishorn af handriti (2 síður) og æviágrip höf-
undar.
Hugmyndum skal skila til innlendrar dagskrárdeildar
Sjónvarpsins, Laugavegi 176, 105 Reykjavík, þar
sem reglur samkeppninnar liggja ennfremur frammi.
Umsóknarfrestur er til 15. maí
SJONVARPIÐ
Utboö
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Vatnsveitu
Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í renniloka.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 14.
mars 1991, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Sími 25800
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Bygginga-
deildar borgarverkfræðings, óskar eftir tilboðum í
málun á gæsluvallarhúsnæði Reykjavíkurborgar.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 26.
febrúar kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Óskilahross
( Þverárhlíðarhreppi er í óskilum dökkrauð
hryssa, ómörkuð. Hryssan er um það bil 2-3ja
vetra, fremur gæf. Hryssan verður seld laugar-
daginn 23. febrúar nk., hafi réttur eigandi ekki
gefið sig fram fyrir þann tíma. Uppl. í síma 93-
51263.
Hreppstjórí Þverárhlíðarhrepps.
Frá Fósturskóla íslands
Dreift og sveigjanlegt fóstrunám hefst 12. ágúst
nk.
Nánari upplýsingar veittar í síma 91-83866 og
97-11773 kl. 13-14.
Skólastjórí.
Myrkir músíkdagar:
„Tónlistarlegur
lykill framtíðar"
Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld og Öm Óskarsson, framkvæmdastjóri
Myrkra músíkdaga. Tímamynd: Pjetur
Tónlistarhátíðin „Myrkir músík-
dagar“ hefst í dag og stendur til
næsta laugardags, þess 16.
febrúar. Níu tónleikar verða
haldnir og einn fyrirlestur. Myrk-
ir músíkdagar voru fyrst haldnir
árið 1980 og u.þ.b. annað hvert
ár síðan. Fjöldi tónlistarfólks
tekur þátt í hátíðinni að þessu
sinni og á meðal þess eru þekktir
erlendir flytjendur, sem flestir
koma frá Frakklandi.
Hátíðin er unnin í samstarfi við
menningarmálaráðuneyti Frakk-
lands og er einn fyrsti prófsteinn
á samning um menningarsam-
starf milli íslands og Frakklands,
sem gerður var fyrir nokkrum ár-
um og staðfestur við komu Mitt-
errands Frakklandsforseta á síð-
asta ári, að sögn Arnar Óskarsson-
ar framkvæmdastjóra hátíðarinn-
ar.
Hjálmar H. Ragnarsson, formað-
ur Tónskáldafélags íslands, sagði
að markmið þessarar hátíðar sé
að gefa áhorfendum tækifæri til
að kynnast tónsmíði nútímahöf-
unda, ekki síst íslenskra. „Við
vonum að þessi hátíð geti verið
ljós í myrkri skammdegis og
þeirra atburða sem hafa blasað við
okkur undanfarið, að hún geri
fólki kleift að leita inn á við og
orðið þannig lykill að framtíðinni
á einhvern hátt.“
Dagskrá hátíðarinnar hefst með
tónleikum Reykjavíkurkvartetts-
ins í dag kl. 17:00 í Áskirkju.
Kvartettinn flytur verk eftir fjög-
ur íslensk tónskáld. Á dagskránni
er frumflutningur verksins Sjö
smámunir fyrir strengjakvartett
eftir Atla Heimi Sveinsson, verk
eftir Karólínu Eiríksdóttur sem
kallast Sex lög fyrir strengjakvar-
tett, Hasselby- kvartett eftir Þork-
el Sigurbjörnsson og strengja-
kvartettinn Vita et Mors eftir Jón
Leifs. Þetta eru fyrstu tónleikar
kvartettsins, sem er að hluta til
studdur af Reykjavíkurborg.
Dagskrá Myrkra músíkdaga næstu viku:
ÍSLENSK OG ERLEND
NÚTÍMATÓNLIST
Edda Erlendsdóttir píanóleikari verður með tónleika í íslensku
óperunni, sunnudaginn 10. febrúar kl. 17:00. Hún flytur þar verk
eftir Jón Leifs, Hjálmar H. Ragnarsson, Miklos Maros, Franz Liszt,
Atla Ingólfsson, Pierre Boulez og Alban Berg.
Hópur ungra íslenskra hljóðfæra-
leikara, sem flestir búa.qgsjarfa-er-'
lendis, heldur tónleika í íslensku
óperunni mánudaginn 11. febrúar,
ki. 20:00. Hópurinn kallar sig
Caput og stjórnandi á þessum tón-
leikum er Rolf Gupta. Flutt verða
verk eftir Rolf Gupta, franska tón-
skáldið Iannis Xenakis, finnska
tónskáldið Kaija Saariaho auk
verka eftir íslensku tónskáldin Jón-
as Tómasson og Lárus H. Gríms-
son.
Manuela Wiesler flautuleikari
heldur tónleika í íslensku óperunni
þriðjudaginn 12. febrúar kl. 20:00.
Hún flytur verk eftir Magnús Bl. Jó-
hannsson, André Jolivet, Þorkel
Sigurbjörnsson, Kjartan Ólafsson
og Kaija Saariaho.
Strengjasveitin Le sextour á cor-
des de Lille, frá Lille í Frakklandi,
heldur tónleika á miðvikudags-
kvöldið 13. febrúar kl. 20:00. Sveit-
in frumflytur þar verk eftir Hjálmar
H. Ragnarsson, auk þess sem þau
flytja verk eftir Luis de Pablo, Arn-
oíd Schönberg og Thien Dao.
Kammersveit Reykjavíkur undir
stjórn Paul Zukofsky heldur tón-
leika í Langholtskirkju fimmtudag-
inn 14. febrúar kl. 20:00. Flutt
verða fjögur verk eftir Jón Nordal,
en hann er íslenska tónskáldið sem
minnst er sérstaklega á Myrkum
músíkdögum að þessu sinni.
Atli Heimir Sveinsson heldur fyr-
irlestur í Norræna húsinu, föstu-
daginn 15. febrúar kl. 17:00. Þar
ætlar hann að fjalla um óperusmíði
og sérstaklega um sjónvarpsóperu
sína, Vikivaka, sem verður síðan
sýnd í lok fyrirlestursins.
Að kvöldi föstudagsins, kl. 20:00,
verða slagverkstónleikar Svíans Ro-
gers Carlsson á Kjarvalsstöðum. Að
sögn Hjálmars H. Ragnarssonar má
þar búast við óvenjulegum tónlist-
arviðburði, því Roger spilar á 70
mismunandi slagverkshljóðfæri.
Laugardaginn 16. febrúar verða
fjölmennustu tónleikar hátíðarinn-
ar í Háskólabíói kl. 14:00. Þar flytja
Sinfóníuhljómsveit íslands,
strengjasveitin Le sextour á cordes
de Lille, kór Menntaskólans við
Hamrahlíð og einsöngvarar Ljóða-
sinfóníu eftir Hróðmar I. Sigur-
björnsson. Auk þess verða flutt verk
eftir Iannis Xenakis og Thien Dao.
Einn þekktasti semballeikari
heims, Elisabeth Chojnacka, verð-
ur með síðustu tónleika þessarar
miklu tónlistarhátíðar. Þeir verða í
íslensku óperunni laugardaginn
16. febrúar kl. 17:00. Hún flytur þar
verk eftir frönsku tónskáldin Iannis
Xenakis, Maurice Ohana, Francois
B. Mache og Luc Ferrari.
—GEÓ
íslensku bók-
menntaverðlaun-
in árið 1990
íslensku bókmenntaverðlaunin fyr-
ir árið 1990 verða afhent af forseta
íslands, frú Vigdísi Finnbogadótt-
ur, við hátíðlega athöfn í Listasafni
íslands mánudaginn 11. febrúar kl.
17:00.
Dómnefndir tilnefndu sem kunn-
ugt er fimmtán bækur, átta úr flokki
fagurbókmennta, sjö úr flokki hand-
bóka, fræðirita og frásagna. Bæk-
urnar voru: í flokki fagurbók-
mennta: Einn dag enn eftir Kristján
Árnason, Fótatak tímans eftir Krist-
ínu Loftsdóttur, Hversdagshöllin
eftir Pétur Gunnarsson, Meðan
nóttin líður eftir Fríðu Á. Sigurðar-
dóttur, Nautnastuldur eftir Rúnar
Helga Vignisson, Síðasta orðið eftir
Steinunni Sigurðardóttur, Svefn-
hjólið eftir Gyrði Elíasson og Vegur-
inn upp á fjallið eftir Jakobínu Sig-
urðardóttur.
í flokki handbóka, fræðirita, frá-
sagna o.fl. voru tilnefndar: Hraun-
hellar á íslandi eftir Björn Hróars-
son, íslensk samtíð 1991 eftir Vil-
helm G. Kristinsson, íslenska al-
fræðiorðabókin í ritstjórn Dóru Haf-
steinsdóttur og Sigríðar Harðar-
dóttur, íslenska kynlífsbókin eftir
Óttar Guðmundsson, íslenskar fjör-
ur eftir Agnar Ingólfsson, Perlur í
náttúru íslands eftir Guðmund P.
Ólafsson og Skálholt II - - Kirkjur
eftir Hörð Ágústsson.
í lokadómnefnd íslensku bók-
menntaverðlaunanna 1990 sitja:
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir,
tilnefnd af Félagi íslenskra bókaút-
gefanda; Helga Kress bókmennta-
fræðingur, tilnefnd af Háskóla ís-
lands fyrir hönd forseta íslands
Snorri Jónsson, tilnefndur af ASÍ
Dóra Thoroddsen, tilnefnd af BSRB,
og Pálmi Gíslason, tilnefndur af
Ungmennafélagi íslands.
Við verðlaunaafhendinguna syngur
Hamrahlíðakórinn nokkur lög og
Thor Vilhjálmsson rithöfundur flyt-
urræðu. (Fréttatilkynning)