Tíminn - 05.03.1991, Blaðsíða 3

Tíminn - 05.03.1991, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 5. mars 1991 «1 I t I > Tíminn-3 Komið til móts við óskir neytenda -segir Júlíus Jónsson formaður Félags matvörukaupmanna. „Viðbrögð neytenda hafa verið mjög góð. Snyrtingin á kjötinu er mun meiri og allur frágangur á því er til fyrirmyndar. Sérpakkning í pokana skilar sér í mun betri geymslu á kjötinu" sagði Júlíus Jónasson formaður matvörukaup- manna um nýja lambakjötið á lágmarksverði. „Um leið og kjötið er nú fallegra sparar fólk verulega með því að kaupa lambakjöt á lágmarksverði, því það fullnýtir það sem í pökkun- um er, nú þegar grillrifin eru farin“ sagði Júlíus. Söluátakið var kynnt á fundi Félags matvörukaupmanna og Félags kjöt- verslanna og voru kaupmenn sam- mála um að með nýja lambakjötinu á lágmarksverði væri verið að koma til móts við óskir viðskiptavina. Allt kjötið úr pokanum nýtist -segir Gréta E. Pálsdóttir ritstjóri Húsfreyjunnar. íslendingar þekkja sitt lambakjöt, flest eigum við minningar frá þeim tíma þegar sunnudagssteikin var til skiptis læri og hryggur. í auknu framboði á síðustu árum hefur þótt vanta upp á að framleiðendur löguðu sig að breyttum aðstæðum á markaði. En nú býður samstarfs- hópur um sölu á lambakjöti upp á „lambakjöt á lágmarksverði" enn á ný og hefur gert átak í að laga vör- una að kröfum neytenda. Það eru einkum fjögur atriði sem máli skipta: •Ný niðurhlutun; við losnum við að kaupa bitana sem nýttust illa eða ekki, s.s. hækla og slög. • Breytt pökkun; hálfa skrokknum er pakkað í fjórar sérpakkningar í stóra pokanum. Auk þess eru góðar upplýsingar um innihaldið á ystu umbúðunum. • Eingöngu er boðið upp á nýtt kjöt, ákveðna þyngdarflokka úr tveimur bestu kjötflokkunum. •Verðið er 486 kr./kg. og þegar tekið er tillit til þess að allt kjötið úr pokanum nýtist er það fyllilega sambærilegt við verð á öðrum kjöt- tegundum. Framleiðendur hafa greinilega tekið sig vel á í sölumálum og það eru góðar fréttir fyrir okkur lambakjöts- aðdáendur. Það hillir undir betri tíð með lambasteik á sunnudagsborð- inu, og jafnvel hversdags. Gott lambakjöt á góðu verði -segir Sigurjón Gunnarsson matreiðslumeistari. „Það fyrsta sem maður tekur eftir er hversu jafnir og fallegir bitamir eru. Greinilegt er að snyrtimennsku og vandvirkni hefur v^fið gætt við vinnslu á kjötinu." sagði Sigurjón Gunnarsson matreiðslumeistari er hann skoðaði nýja lambakjötið á lágmarksverði. „Snyrting á kjötinu hefur augljós- lega verið stóraukin og þeir bitar sem erfitt var að nýta hafa verið íjarlægðir. Þetta er kjöt sem ég hika ekki við að kaupa og ég á örugglega eftir að fá mér fleiri en einn poka. Þetta er ekkert verð fyrir svona gott kjöt“ sagði Siguijón Nú býðst þér lambakjöt á lágmarksverði á sérstöku tilboði. Verðlækkunin kemur fyrst og fremst fram í stórauknum gæðum Nú er gengið mun lengra í að fjarlægja fitu og einstaka bita sem nýtast þér illa. í boöi er aðeins nýtt kjöt úr hæstu i gæðaflokkunum og þú getur vaiið um tvennskonar niðurhlutun. ■■ — Einstökum skrokkhlutum er w 4Bí»,- trm sérpakkað í fjóra minni \ ’ f plastpoka til að auðvelda þér évSm&k 'Jj &. meðhöndlun og frágang ií kjötsins þegar heim »j-t^a kemur au^ Þess sem geymsluþol kjötsins eykst. Þrátt fyrir þessi stórauknu gæði er kílóverðið aðeins 486 kr. í báðum gæðaflokkum. Meðalpoki vegur um 6 kg. og kostar því aðeins >• jL um 2900 kr. Úrvalsflokkur: a) 12-14 kótilettur b) 6-7 súpukjötsbitar c) heilt laeri d) 4-5 grill-sneiðar. Öllu kjötinu er sérpakkað í minni poka, eins og sést á myndinni Fyrsti flokkur A: a) 6-7 súpu- kjötsbitar b) hálfur hryggur c) heilt laeri d) 4-5 fram- hryggjarsneiðar. Öllu kjötinu er sérpakkað í minni poka, eins og sést á myndinni. - náttúrulega gott SAMSTARFSHÓPUR UM SÖLU LAMBAKJÖTS <2$

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.