Tíminn - 05.03.1991, Blaðsíða 14
14 Tíminn
t « •
ÞFiðjudagur £,>marq',1991
■Hl ÍÞRÓTTIR
Körfuknattleikur - Úrvalsdeild:
UTI
ÆVINTYRI
- Grindvíkingar 99% öruggir um sæti í úrslitakeppninni eftir sigur á Tindastól
Vinningstölur laugardaginn
2. mars '91
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 1 2.832.571
2. a21<gj 4 123.076
3. 4af5 114 7.449
4. 3af 5 4.168 475 kr.
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
6.153.861
*É3E?i
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
Það fór eins og margan grunaði, lið
Tindastóls frá Sauðárkróki, sem
lengst af var efst í úrvalsdeildinni,
komst ekki í úrslitakeppnina.
Ástæðan? Jú, Pétur Guðmundsson
meiddist og gat ekki leikið með lið-
inu um skeið. Tindastólsmenn
misstu endanlega af lestinni á
sunnudagskvöldið, þegar þeir biðu
lægri hlut fyrir Grindvíkingum 91-
75 fyrir fullu húsi áhorfenda í
Grindavík. Reyndar eiga Tindastóls-
menn enn möguleika, en hann er
aðeins tölfræðilegur. Nánar verður
sagt frá því síðar í greininni.
Leikurinn á sunnudagskvöld var
mjög fjörugur og áhorfendur, sem
troðfylltu húsið, voru vel með á nót-
unum. Tindastólsmenn höfðu mikið
af áhorfendum með sér, en stuðn-
ingsmenn heimamanna voru þó
fleiri og háværari.
Fyrri hálfleikur var eign Tindastóls-
manna. Þeir náðu strax forystunni
og rétt fyrir leikhlé munaði 16 stig-
um 33-49. í leikhléi var staðan 37-
49. Mestu munaði um góðan vamar-
leik Ivans Jonas, sem hélt Guðmundi
Bragasyni niðri og skoraði Guð-
mundur aðeins 2 stig í hálfleiknum.
Eins gekk Val Ingimundarsyni vel að
gæta Dans Krebbs og Valur skoraði
að auki 15 stig. Þá átti Haraldur
Leifsson mjög góðan leik, skoraði 19
stig og hirti mikið af fráköstum.
Hittni Grindvíkinga í hálfleiknum
var afar slök og óvenjulegt að sjá þá
fara svo illa með færin á heimavelli.
í síðari hálfleik leið ekki á löngu áð-
ur en áföllin fóru að dynja á Tinda-
stólsmönnum. Haraldur Leifsson
fékk sína 4. villu eftir 5 mín., en í
hans stað kom Pétur Guðmundsson
inná. Hann hafði ekki komið við
sögu áður í leiknum, enda slæmur í
hásinum. Nokkrum mín. síðar fékk
Ivan Jonas sína 4. villu og var þá
hvíldur. Fram að lokakafla leiksins
hélt Pétur Guðmundsson Tinda-
stólsmönnum algjörlega á floti, en
það dugði þó ekki til, Grindvíkingar
minnkuðu smátt og smátt muninn
og jöfnuðu 69-69 þegar 5 mín. voru
til leiksloka. Þegar tæpar 4 mín.
voru til leiksloka komst Grindavík í
fyrsta sinn yfir í leiknum 71-69 og
um leið fékk Jonas sína 5. villu.
Stuttu síðar fékk Sverrir Sverrisson
sömu örlög, er Steinþór Helgason
skoraði. í kjölfarið var dæmd tækni-
villa á Tindastólsmenn og Steinþór
skoraði úr báðum skotunum. Áður
en Tindastólsmenn vissu af var stað-
an orðin 80-69 UMFG í vil og stutt til
leiksloka. Þótt Dan Krebbs færi af
leikvelli með 5 villur þegar tæpar 3
mín. voru eftir breytti það engu,
Grindvíkingar unnu öruggan sigur
91- 75. Pressuvörn Grindvíkinga
undir lok síðari hálfleiks gerði gæfu-
muninn. Þeir fengu auðveldar kör-
fur eftir að Tindastólsmenn misstu
frá sér boltann og við mótlætið datt
botninn úr leik Tindastóls.
Steinþór Helgason lék mjög vel fyr-
ir Grindvíkinga í síðari hálfleik, sem
og þeir Guðmundur Bragason, Dan
Krebbs og Jóhannes Kristbjörnsson.
Rúnar Árnason barðist af krafti. Hjá
Tindastól voru áföllin mörg eins og
áður er rakið, en auk þess gekk ekk-
ert upp í sókninni hjá Val. Haraldur
skilaði sínu, sem og Pétur, en Ivan
náði ekki að halda sínu striki. Mikið
mæddi á Sverri og Einari og þegar
pressan var mest undir lokin sagði
þreytan til sín.
Erfiðan leik dæmdu þeir Kristinn Albertsson
og Kristinn Óskarsson mjög vel.
Stigin UMFG: Steinþór 28, Jóhannes 20,
Krebbs 19, Guðmundur 17 og Rúnar 7. UMFT:
Haraldur 27, Valur 15, Ivan 14, Pétur 12, Einar
4 og Sverrir 3.
„Enn er von“
„Þetta er ekki búið enn, við eigum enn von.
Við verðum að treysta á að Valur vinni Grind-
víkinga og við sigrum í þeim tveimur leikjum
sem við eigum eftir. Það var slæmt að tapa þess-
um leik, við réðum illa við pressuna og flýttum
okkur allt of mikið f sókninni. Það verða gífur-
leg vonbrigði fyrir okkur ef við komumst ekki í
úrslitakeppnina," sagði besti maður Tindastóls
í leiknum, Haraldur Leifsson, að leik loknum.
„Ekkert svar“
„Við lékum illa í fyrri hálfleik, en vamarleikur-
inn í síðari hálfleik var mjög góður. Leikur
þeirra hrundi alveg eftir að við fómm að pressa.
Þeir vom hreinlega eins og böm í höndunum á
okkur, áttu ekkert svar," sagði Gunnar Þorvarð-
arson, þjálfari Grindvfkinga, eftir leikinn.
Möguleikar Tindastóls
Eins og áður kom fram á Tindastóll enn von
um að komast f úrslitakeppnina. Staðan f inn-
byrðisviðureignum liðanna er jöfn 2-2 og sti-
gamunurinn er einnig jafn. Því kemur heild-
arstigamunur liðanna til sögunnar. Þar hafa
Grindvíkingar 40 stigum meira í plús.
Til að komast upp fyrir Grindavík þarf Tinda-
stóll að stóla á að Grindavík tapi fyrir Val. Vinni
Valur með 1 stigi þarf Tindastól að sigra Þór og
Keflavík með samtals 40 stiga mun.
Úrslitakeppnin
Úrslitakeppnin um íslandsmeistaratitilinn
hefst nú senn. Allar líkur em á að Njarðvíking-
ar leiki gegn Grindvíkingum og Keflvíkingar
gegn KR-ingum í undanúrslitum. Leikurinn í
Grindavík á sunnudagskvöld var góð upphitun
fyrir úrslitakeppnina, sem vonandi verður eins
skemmtileg í ár eins og undanfarin ár.
BL
„Bankakostnaður
Nýlega geröi Verðlagsstofnun könnun þarsem bornar voru
saman veröskrár banka og sparisjóöa frá 1. janúar síðastliðnum.
Samkvæmt könnuninni reyndust heildarútgjöld einstaklinga
vegna bankaviöskipta vera lægst í Landsbankanum.
Niöurstaöan kom okkur ekki á óvart. Aö þessari hagkvæmu
þjónustu geta viöskiptavinir okkar gengið á afgreiöslustööum
Landsbankans og Samvinnubankans um land allt.
Landsbanki
íslands
Bankl allra landsmanna