Tíminn - 14.03.1991, Side 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 14. mars' 1991
Vaka tapar í kosningum í H.I.:
RUMLEGA 8% FYLGIS-
AUKNING HJÁ RÖSKVU
Röskva, samtök félagshyggjufólks í Háskóla íslands, sigraði í kosn-
ingum til Stúdentaráðs, sem fram fóru í fyrradag. Hún jók fylgi sitt
um 8% frá síðustu kosningum, hlaut 1504 atkvæði og 7 fulltrúa.
Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, hlaut 1498 atkvæði og 6
fuiltrúa. í kosningum til Háskólaráðs fékk hvor fylking einn mann.
5046 voru á lq'örskrá og greiddu 62,3% þeirra atkvæði, sem er mun
meiri kjörsókn en undanfarin ár.
Stúdentaráðsliðar eru 30, þar af 4
fulltrúar stúdenta í Háskólaráði.
Kosið er um helming þeirra á hverju
ári. Frá síðustu kosningum á Vaka 8
ráðsliða og Röskva 7. Nú bætast við
8 Röskvumenn og 7 Vökumenn,
þannig að fylkingarnar hafa jafn-
marga fulltrúa í Stúdentaráði.
Sama staða kom upp fyrir þremur
árum í kjölfar kosningasigurs Vöku.
Eftir nokkurra vikna samningavið-
ræður fékk hún stjórn Stúdenta-
ráðs, en Röskva lánasjóðsfulltrúa og
stjórnarmann í Félagsstofnun stúd-
enta. Ljóst er að Röskva gerir nú
kröfu um að fá stjórn Stúdentaráðs.
„Úrslitin koma mér á óvart, ég átti
ekki von á að stúdentar höfnuðu því
góða starfi sem Stúdentaráð hefur
haldið uppi. En ég hef engar skýr-
ingar á tapinu," segir Hermann Her-
mannsson, sem var í efsta sæti á
lista Vöku.
„Ég er fyrst og fremst stoltur yfir
því að Háskólastúdentar skuli hafa
tekið þeirri áskorun að meta málefni
okkar og stefnu fordómalaust. Und-
anfarin ár hefur stúdentapólitíkin
einkennst dálítið af skítkasti og titt-
lingaskít, sem gerði það að verkum
að fólk missti áhugann á henni.
Þessi mikla kjörsókn í gær er
ánægjuleg staðfesting á því að í
skólanum hefur orðið sú vakning
sem við vildum einmitt fá fram.
Ég held að á lista okkar hafi verið
mjög skemmtileg blanda af fólki úr
ólíkum áttum, með mismunandi
Tungnamennimir sem standa að leiksýningunni Grípið í tómt
Gripið í tómt í Biskupstungum
Á laugardagskvöldið ætlar Ungmennafélag Biskups-
tungna að frumflytja nýjan íslenskan gamanleik,
með grafalvarlegu ívafi, sem ber nafnið „Gripið í
tómt“. Höfundur er Pétur Eggerz, sem jafnframt
leikstýrir.
Fjórtán Tungnamenn taka þátt í sýningunni. Aðal-
hlutverkið er í höndum Brynjars Sigurðssonar sem
fer með hlutverk Leynráðs Ljóstrans.
Lagahöfundur er Ingvi Þór Kormáksson en Iög hans
eru sérstaklega samin fyrir þetta leikrit. Texta samdi
höfundur leikritsins, Pétur Eggerz. Útsetningu og
upptöku laga annaðist Sigurður Rúnar Jónsson.
Tungnamenn frumsýna leikritið í Aratungu á laugar-
dagskvöldið en síðan verður það sýnt víðsvegar á Suð-
urlandi og í Kópavogi. Leiksýning þessi er liður í M-
hátíð á Suðurlandi, en hún hefst um helgina. -sbs.
viðhorf, sem getur unnið saman og
bjó til mjög góða stefnu.
Mér sýnist líka að hugmynd okkar
um opinn og lifandi Háskóla, hafi
lagst vel í fólk, eins og kjörsóknin
sýnir kannski best,“ segir Skúli
Helgason efsti maður á lista Röskvu.
Úrslit Stúdentaráðskosninganna
eru athyglisverð vegna þess að nú er
aðeins rúmur mánuður í alþingis-
kosningar. Vaka er nátengd Sam-
bandi ungra sjálfstæðismanna og
menn spyrja sig nú hvort hægri-
bylgjan, sem gengið hefur yfir, sé í
rénun og ungt fólk á leið á miðjuna,
til félagshyggjunnar.
300 til 400 hús í
Reykjavík án hita-
vatnsinntakssía
í svari Gunnars H. Kristinssonar
hitaveitustjóra við fyrirspum
þriggja fulltrúa minnihlutans í
borgarstjóm, sem lögð var fram á
fundi Borgarráðs í febrúar sl., kem-
ur fram að í 300-400 húsum í
Reykjavík em ekki síur við hita-
vatnsinntak þeirra, en Hitaveita
Reykjavíkur ber ábyrgð á þess kon-
ar búnaði. Síur eiga að stöðva að
óhreinindi svo sem sandur, ryðkom
og fleira, og útfellingar berist í
heitavatnsmæla og stjómtæki
húsa, þótt það sé ekki algild regla.
Ofangreind fyrirspurn var lögð
fram af þeim Sigrúnu Magnúsdótt-
ur, borgarfulltrúa Framsóknar-
flokksins, Kristínu Á. Ólafsdóttur,
borgarfulltrúa Nýs vettvangs, og
Sigurjóni Péturssyni, borgarfulltrúa
Allþýðubandalagsins, í framhaldi af
svari borgarlögmanns vegna bóta-
skyldu Hitaveitu Reykjavíkur vegna
útfellinga og óhreininda sem borist
höfðu inn í hitaveituinntakskerfi
margra húsa og valdið þar skemmd-
um.
Að sögn Sigrúnar Magnúsdóttur
kom fram í svari borgarlögmanns að
síur við hitaveituinntak húsa til-
heyrðu Hitaveitunni og bæri hún
ábyrgð á þeim en ekki húsráðandi.
í fyrirspurninni segir m.a.: Borga-
lögmaður (segir í svari sínu) „hugs-
anlega gæti galli á síum eða van-
ræksla af hálfu Hitaveitunnar í sam-
bandi við hreinsun eða viðhald á
þeim leitt til útfellinga í hitakerfi
húsa eða tjóns af þeirri ástæðu."
„Því er spurt; eru síur í öllum hús-
um borgarinnar við hitavatnsinn-
tak, ef ekki í hvaða götum eða borg-
arhlutum eru ekki síur? Er það ekki
rétt skilið að Hitaveita Reykjavíkur
beri ábyrgð á því aö síur séu við hita-
vatnsinntak allra húsa?“
f svari hitaveitustjóra kemur fram,
eins og áður sagði, að við 300-400
hús í borginni eru ekki inntakssíur
og mun það vera sökum þess að fyr-
ir 1960 voru ekki settar síur við inn-
tök húsa „en þá höfðu verið tengd
um 4400 hús við veituna, þarna er
um að ræða hverfi innan Hring-
brautar, Norðurmýri, Hlíðahverfi
sunnan Miklubrautar, Melahverfi
nyrst og Túnahverfi. Frá 1960 hafa
verið síur verið settar á öll hús þeg-
ar þau hafa verið tengd. Settar hafa
verið síur í eldri hús eftir því sem til-
efni hefur gefist til og munu nú vera
300-400 hús sem enn hafa ekki síur,
í ofannefndum hverfum," segir m.a.
í svarinu.
Auk þess kemur fram í svari hita-
veitustjóra að síur eru hluti af veitu-
kerfi Hitaveitunnar „og ber henni
því viðhaldsskylda á þeim á sama
hátt og mælum t.d.“ En í svari þessu
kemur einnig fram að síur geti ekki
hindrað að útfelling myndist í teng-
ingum eða hitakerfum húsa „ef skil-
yrði til þess eru fyrir hendi, þ.e. að
yfírmettun nái alla leið inn í húsin,
dæmi hafa lítil fundist um það enn-
þá, en það er hins vegar engan veg-
inn fulírannsakað."
—GEÓ
Menningarhátíð -
sem stendur til hausts
Akureyri
Innbrot hjá Sjálfsbjörg
Brotist var inn í Bjarg við Bugöu-
síðu á Akureyri aðfaranótt mið-
vikudags. Þar eru m.a. til húsa
Sjálfsbjörg, Plastiöjan Bjarg og
Ako-pokinn. Að sögn varðstjóra í
lögreglunni á Akureyri, brutu
innbrotsþjófamir upp nokkrar
hurðir og eru þær taldar ónýtar,
þá voru nokkrar skemmdir unnar
á innanstokksmunum og talið er
að um 60 þúsund krónur í pen-
ingum hafi horfið. Innbrotið er
óupplýst, og sömuleiðis innbrot-
in sem framin vom um helgina í
Baraaskóla Akureyrar og skipa-
smíðastöðina Vör. hiá-akureyri.
Ríkissaksóknari birti lögreglumanni ákæru í gær:
Ákærður fyrir ofbeldi
Rfidssaksóknari birti í gær fyrrum
lögreglumanni, eins og það er orð-
að, ákæm vegna meints ofbeldis við
handtöku ungs pilts á Bergþóm-
götu milli jóla og nýárs.
Manninum er gefið að sök að hafa
tekið unga piltinn hálstaki með
þeim afleiðingum að hann missti
meðvitund, dregið hann í átt að lög-
reglubíl og sleppt honum síðan
þannig að hann féll með andlitið í
gangstéttina. Pilturinn slasaðist
talsvert, m.a. brotnuðu í honum sjö
tennur. Lögreglumaðurinn var
leystur frá störfum fljótlega eftir að
rannsókn málsins hófst og er hann
nú á hálfum launum.
—SE
M-hátíð á Suðurlandi hefst formlega
á laugardaginn. Hátíðahöldin hefjast
í húsi Fjölbrautaskóla Suðurlands á
Suðurlandi með fjölbreyttri setning-
arhátíð, en hátíðin verður haldin
víðsvegar í héraöinu og stendur til
hausts. Það er
menntamálaráöuneytið stendur að
hátíðahöldunum í samvinnu við
sveitarstjómir á Suðurlandi undir yf-
irskriftinni: „mál - menning - mennt-
un“.
Menningarhátíðir, sem þessi, hafa
verið haldnar á vegum menntamála-
ráðuneytisins víða um land. Þær hóf-
ust á Akureyri 1986 og á síðasta ári
var haldin vegleg M- hátíð á Vestur-
landi. Tilgangur þeirra er meðal ann-
ars sá að varpa ljósi á menningarstarf-
semi í hverjum fjórðungi og vera
hvatning til athafna í þeim efnum. Öll
sveitarfélög á Suðurlandi, auk hér-
aðsnefnda, tilnefndu fulltrúa í nefnd
sem hefur staðið að undirbúningi
þeirrar M-hátíðar sem nú stendur fyr-
ir dyrum.
Hátíðahöldin á Suðurlandi hefjast í
Fjölbrautaskóla Suðurlands á laugar-
daginn kl. 13.30 með ávörpum
menntamálaráðherra og séra Heimis
Steinssonar þjóðgarðsvarðar á Þing-
völlum. Þá verður þar upplestur,
söngur, hljóðfæraleikur og margt
fleira.
Hátíðardagskrár M-hátíðarinnar
verða í héraðinu sem hér segir: í
Hveragerði 13. apríl og 1.-3. maí,
Vestmannaeyjum 26.-27. apríl, Vill-
ingaholts-, Gaulverjabæjar- og
Hraungerðishreppum 1.-3. maí,
Kirkjubæjarklaustri 23.-24. mars, 11.
ágúst og 23.-25. ágúst, uppsveitum
Árnessýslu 12., 14., 26. apríl og 3.
maí, Hvolsvelli 18. maí, Þorlákshöfn
19.-20. október, Stokkseyri 17. maí,
Eyrarbakka 30. mars, Hellu 25. aprfl
og í Vík í Mýrdal verður hátíðin í
haust.
23. mars verður síðan opnuð í Lista-
safni Árnessýlu á Selfossi sýning á
þjóðsagnamyndum Ásgríms Jónsson-
ar listmálara á vegum Listasafns ís-
Iands. 28. mars verður síðan opnuð
sýning í Ámesi í Gnúpverjahreppi á
verkum Jóhanns Briem listmálara.
Báðir voru þeir Ásgrímur og Jóhann
Ámesingar að uppmna. -sbs.