Tíminn - 14.03.1991, Side 9
Fimmtudagur 14. mars 1991
Tíminn 9
AÐUTAN
Olof Palme ávann sér óvinsældir ýmissa erlendra stjómvalda, td. þeirra bandarísku með því að mót-
mæla Víetnamstríðinu.
Fimm árum eftir morðið á Olof Palme:
Enn ótal kenningar á
lofti en lögreglunni
verður ekkert ágengt
Hans Ölvebro lögreglustjórí stjómar nú rannsókninni. Hann segir ör-
uggt að morðingjann sé að finna í þeim 13.000 ábendingum sem
lögreglan er enn að vinna úr.
Fimm árum eftir morðið á Olof
Palme eru leikmenn önnum
kafnir við að leysa ráðgátuna og
koma fram með undarlegustu
kenningar. í þýska vikuritinu
Der Spiegel eru sumar þeirra
raktar nýlega.
Það er ekki oft sem Sten Andersson,
sænska utanríkisráðherranum,
verður orða vant En hann á bágt
með að koma orðum að tilfinning-
um sínum þegar talið berst að vini
hans og pólitískum samferðamanni
sem féll fyrir hendi óþekkts morð-
ingja fyrir rúmum fimm árum. „01-
of Palme hafði meiri þýðingu fyrir
mig en ég gerði mér nokkra grein
fyrir á meðan hann lifði,“ segir hann
vandræðalegur. En nákvæmlega
hvaða þýðingu Palme hafði fyrir lífs-
braut hans vill eða getur þessi fyrr-
verandi aðalritari sósíaldemókrata-
flokksins sænska ekki nánar útskýrt.
Fyrrverandi tennisfélagi Palmes,
Harry Schein, sem nú leikur tennis í
hverri viku við syni hans, Joakim, 32
ára, og Márten, 29 ára, á í svipuðum
erfiðleikum með að skýra nákvæm-
lega sínar tilfinningar. Hann segir
Palme hafa „auðgað líf‘ sitt Skýrar
getur þessi fyrrverandi bankastjóri,
sem fluttist til Svíþjóðar frá Austur-
ríki, ekki lýst vináttu þeirra. Og ekki
gengur fyrrverandi pólitískum and-
stæðingum Palmes betur að skýra
sín viðhorf. Carl Bildt, formaður
stjómarandstöðuflokks íhalds-
manna, viðurkennir að hann hafi
aldrei skilið hvað hafi rekið Palme
áfram né hvað hann hafi rekið
áfram.
Nú orðið má varla
nefna Palme né morð-
ið í Svíþjóð
Fimm árum eftir banvæna skotið,
sem hleypt var af á sænska forsætis-
ráðherrann síðasta febrúarkvöld árs-
ins 1986 í miðborg Stokkhólms, er
morðið mönnum jafnvel enn meiri
ráðgáta en Palme sjálfur lífs. Ew-
onne Winblad, aðalritstjóri sjón-
varpsfréttatímaritsins „Rapport",
finnur ekki aðra skýringu en þá, að
það sé orðið því sem næst bannorð
að ræða um Palme.
Fyrir því er mikilvæg ástæða. Eftir
umfangsmestu rannsóknina í
sænskri glæpasögu, sem meira en
300 lögreglumenn störfuðu að í
upphafi og 25 rannsóknarlögreglu-
menn eru enn uppteknir við, stend-
ur lögreglan uppi án nokkurra vís-
bendinga sem hönd er á festandi.
Lögreglan getur ekki bent á neinn
gerningsmann, ekki lagt fram morð-
vopnið — og jafnvel ekki sýnt fram á
minnstu ástæðu til morðsins.
í haust er leið sýknaði, vegna ófull-
nægjandi sannana, landsyfirréttur-
inn eiturlyfjasjúklinginn og smá-
glæpamanninn Christer Pettersson,
sem grunaður var Um morðið og
dæmdur sekur í héraðsrétti Stokk-
hólms í júlí 1989.
Eftir þau úrslit dundar saman-
skroppin morðdeildin vondauf við
svo sem ekki neitt. Bundinn var end-
ir á virka rannsókn í fyrrasumar.
Þeir starfsmenn sem enn eru við
vinnu grisja og skilgreina þær
13.000 upplýsingar og ábendingar
sem borist hafa. Hans Ölvebro, yfir-
maður rannsóknarinnar, er viss um
að morðingja Palmes sé að finna í
upplýsingabunkanum.
„Tortryggni mín
í garð lögreglunnar
er alger“
Og þar er rithöfundurinn Sven
Anér sannfærður um að nafn morð-
ingjans fær að hvíla í friði til eilífðar-
nóns. Anér, sem býr í Uppsölum, er
einn af tæplega tug leikmanna sem
fást við leynilögreglustörf og halda
enn áfram rannsóknum á eigin spýt-
ur. „Tortryggni mín í garð lögregl-
unnar er alger," segir hann til að
réttlæta rannsóknir sínar, sem hafa
tekið allan hans tíma í fjögur ár og
,þaft meiri kostnað en tekjur" í för
með sér, eins og hann kemst að orði.
En hann hefur heldur ekki komist
að því hver það var sem hleypti af
skotinu forðum. Anér segir: „Um
Palme spannst vefur haturs og árás-
argimi. Sænskir lögreglumenn,
liðsforingjar í sjóhemum, öfgasinn-
aðir hægrimenn og CIA höfðu allir
sama markmið."
Systkinin Kari og Pertti Poutiainen
em á „lögregluslóðinni", sem bygg-
ist á kenningu um að Palme hafi
orðið fórnarlamb „hornaboltasam-
bandsins", sérdeildar borgarlögreglu
Stokkhólms sem þekkt er fyrir
hrottaskap. Þau systkinin trúa því að
rangt hafi verið haft við í lögreglu-
rannsókninni.
Til sönnunar nefna þau að í meira
en eitt ár var upphaflega segulbands-
spólan, sem hafði að geyma öll fjar-
skipti við miðstöð Stokkhólmslög-
reglunnar um morðnóttina, spor-
laust horfið. Auk þess var lögreglu-
bíll númer 1180 á ferðinni, sem þó
Lisbet Palme var með manni
sínum þegar hann var drepinn.
Nú heldur ein kenningin því ffam
að hún hafi vitað hvað til stóð.
átti alls ekki að vera í notkun skv.
starfslista. Vegna „þeirra hópa sem
standa að baki morðinu" hefúr Kari
þá trú að morðingjamir verði aldrei
gripnir.
Meintir samsekir
lögreglumenn nafn-
greindir í bók
Sjónvarpsffamleiðandinn Lars
Krantz tekur undir meinta lögreglu-
slóð. Hann hefur m.a.s. nefrít með
nafni þá tvo lögreglumenn sem
hann álítur samseka. Hann hefur
ekki enn þann dag í dag horfið frá
þessum grun, en hefúr nú bætt fleiri
undirróðursmönnum á listann.
Krantz segir nú að morðið hafi eig-
inlega verið fjölskyldudrama. Álit
hans er að Lisbet kona Palmes hafi
a.m.k. verið með í ráðum.
Ekki virðist síður torráðin kenn-
ingin sem Sven Wernström rithöf-
undur setur fram. Samkvæmt henni
eiga sósíaldemókrataflokkurinn,
lögreglan og öryggisþjónustan Sápo
einhvern veginn að blandast inn í
málið. Um það leyti sem morðið var
framið var verið að kanna meint
skattsvik Palmes. Rétt fyrir morðið
voru skjölin varðandi málið eyði-
lögð.
Ahugamennirnir sem fást við þess-
ar rannsóknir útiloka ekki að vopna-
sala Bofors-verksmiðjunnar sænsku
til Indlands, sem friðarvinurinn
Palme kom sjálfur á, hafi orðið hon-
um til áfellis. Síðar kom í ljós að Bo-
fors greiddi fyrir þessum viðskiptum
með mútum. Því er haldið fram að
Gandhi, þáverandi forsætisráðherra
Indlands, hafi breitt yfir þessi við-
skipti og það hafi aftur átt sinn þátt í
kosningaósigri hans.
Hefði beðið Palmes pólitísk niður-
læging vegna þessa, hefði hann
dregið sósíaldemókrata með sér í
fallinu, álítur Wemström.
Og þá eru það
erlendu tengslin
Tveir sjálfvaldir einkaspæjarar sjá
alltaf skírskotanir sem benda til er-
lendra samtaka, sem eiga að standa
að baki morðsins. Ebbe Carlsson,
bókaútgáfuritstjóri og náinn vinur
Hans Holmér, hins afsetta lögreglu-
stjóra sem í fyrstu stjómaði rann-
sókninni, hefur ennþá þá trú, að
Verkamannaflokkur Kúrdistans,
PKK, sé viðriðinn banatilræðið.
Carlsson rak rannsóknir sínar með
samþykki þáverandi dómsmálaráð-
herra, Anna-Greta Leijon. Þegar í
ljós kom að hann lét smygla inn
ólöglegum hlerunartækjum, varð
ráðherrann að taka pokann sinn.
Carlsson hvetur til þess að opinberri
rannsókn verði haldið áfram. ,Ann-
ars heldur þetta graftarkýli áfram að
eitra allt pólitískt líf árum saman,“
segir hann.
Á nýja braut vill aftur á móti halda
Olle Alsén, þáverandi leiðarahöfund-
ur frjálslynda Stokkhólmsblaðsins
Dagens Nyheter. Samkvæmt upplýs-
ingum, sem hann á að hafa fengið
frá fyrrverandi CIA- manninum
Ibrahim Razin, sendi Licio Gelli, yf-
irmaður hinnar illræmdu ítölsku
ffímúrarastúku Propaganda Due,
P2, þrem dögum fyrir morðið sím-
skeyti til bandaríska stúkubróðurins
Philips Guarino. Þar stóð: Segðu
vini okkar að sænska tréð verði fellt
Hvers vegna ítalska stúkan ætti að
hafa haft áhuga á dauða Palmes get-
ur Alsén ekki svarað. Palme var
þekktasti stjórnmálamaður Svíþjóð-
ar. Iðulega var hann móðgandi með
afskiptum sínum og fór í taugamar á
ríkisstjórnum annarra landa. Þannig
tóku Richard Nixon Bandaríkjafor-
seti og Henry Kissinger utanríkis-
ráðherra illa upp gagnrýni hans á Ví-
etnamstríðið og samband hans við
Jassir Arafat, leiðtoga PLO, fór fyrir
brjóstið á ísraelsmönnum. En áhrif
Palmes á alþjóðavettvangi vom lítil.
Palme kom sér út úr
húsi hjá Bandaríkja-
mönnum og Nató
Hugsanlega ástæðu til að svo líti út
að erlendum samtökum fyndist
æskilegt að útrýma Palme álítur sig
vita Nathan Shachar, fréttaritari
Dagens Nyheter í Jerúsalem og son-
ur bókmenntaprófessorsins Knut
Ahnlund, sem er félagi í þeirri sömu
sænsku akademíu sem útdeilir nób-
elsverðlaununum.
Samkvæmt skilgreiningu Sha-
chars fylgdi Palme pólitískum áætl-
unum, sem hvorki Bandaríkjastjóm
í Washington né yfirstjórn Nató í
Briissel gátu sætt sig við. Sænski
forsætisráðherrann studdi sovésku
tillöguna um að koma upp kjama-
vopnalausu svæði í Norður- Evrópu,
sem í raun hefði líka náð til Nató-
landanna Danmerkur og Noregs.
Þennan leik hefði Palme leikið þar
sem hann hefði „fengið dæmalaust
góðar undirtektir hjá friðarhreyf-
ingunni11. Shachar þykir undarlegt
að þessi tvíleikur skuli aldrei hafa
verið athugaður „í þeim hugmynda-
auðugu sviðsetningum sem hægt er
að vinna úr ástæðu til morðsins".
Það finnst varla sá hópur sem ekki
hefur enn verið talinn til morðingja
Palmes. Það er ekki að undra að
Hans Ölvebro lögreglustjóri er bú-
inn að fá sig fullsaddan af öllum
leikmönnunum sem rannsaka og
tjá sig um Palme-málið. ,AHar yfir-
lýsingar þeirra em hreinn upp-
spuni," segir hann. En það verður
hann að búa við þar til lögreglan
getur sjálf dregið fram morðingj-
ann.