Tíminn - 14.03.1991, Side 20
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
RÍKISSKIP
NÚTIMA FLUTNINGAR
Holnartiusinu v Tryggvogotu,
S 28822
Ókeypis auglýsingar
^fym^rinstaklinga^
POSTFAX
91-68-76-91
p H ^T/O HÖGG- DEYFAR Verslið h]á fagmönnum
i varahlutir
^ Hamarsböfóa 1 - s. 67-67-44 J
TVÖFALDURI.vinningur |
Ií lllillll
FIMMTUDAGUR 14. MARS 1991
Málverk gefið í
minningu Olafs
Dóra Guðbjartsdóttir, eftirlifandi
kona Ólafs heitins Jóhannessonar
forsætisráðherra, afhenti Fram-
sóknarflokknum í gær málverk af
manni sínum til minningar um
hann. Málverkið, sem er eftir Sig-
urð Sigurðsson listmálara, verður í
framtíðinni uppi við í þingflokks-
herbergi framsóknarmanna, þar
sem fyrir eru málverk af mörgum
látnum forystumönnum flokksins.
Dóra Guðbjartsdóttir á milli þeirra
Steingríms Hermannssonar,
formanns Framsóknarflokksins,
og Páls Péturssonar
þingflokksformanns þegar hún
afhenti málverkið af manni
sínum, sem hangir milli hennar
og Steingríms. Tlmamynd: Pjetur
Ólafur Jóhannesson var fæddur að
Stóra-Holti í Fljótum í Skagafirði
árið 1913. Hann lauk lögfræðiprófi
árið 1939 og starfaði sem málflutn-
ingsmaður um skeið en stundaði
síðan framhaldsnám erlendis. Hann
var prófessor í lögfræði við Háskóla
íslands frá 1947 til 1971.
Ólafur hóf ungur afskipti af stjórn-
málum. Hann var kjörinn þingmað-
ur árið 1959 og átti þar sæti til
dauðadags. Hann var kjörinn vara-
formaður Framsóknarflokksins árið
1960 og var síðan formaður frá
1968-1979. Ólafur var forsætisráð-
herra 1971-1974 og aftur 1978-
1979. Dómsmála- og viðskiptaráð-
herra 1974-1978 og síðast utanríkis-
ráðherra 1980-1983. Ólafur Jóhann-
esson lést 20. maí 1984. -sbs.
Þinglausnir
Ótíklegt er talið að þinglausnir
verði á morgun eins og forsæt-
isráðherra stefndi að. Nokkur
tnikilvæg mál eru enn óafgreidd
og liklega dugar morgundagur-
inn ekki til afgreiða þau. Þar ber
hæst þingsályktunartillaga um
álver, frumvarp um ráðstafanir
vegna loðnubrests, lánsfjárlög
og vegaáætlun. í kvöld verða
eldhúsdagsumræður. Á morgun
verða þingfundir. Ef ekki tekst
að ljúka þingstörfum þá er iík-
legt að þinginu verði slitið á
mánudag eða þriðjudag. Engir
þingfundir verða á laugardag-
inn, en þá kemur miðstjórn
Framsóknarflokksins saman og
leggur h'numar fyrir kosningar.
A ríkisstjómarfundi í síðustu
viku lögðu ráðherrar fram óska-
lista sinn, þ.e. þau mál sem þelr
vildu að fengju afgreiðslu fyrir
þinglok. Á listanum vom rúm-
íega 50 mál. Ljóst er að langt
innan við helmingur af þessum
málum fá afgreiðslu fyrir þing-
lausnir.
-EÓ
Formaður Stéttarsambands bænda sagði á aukafulltrúafundi að fulltrúar í sjömanna-
nefnd hefðu viljað semja um innflutning á búvörum í næstu kjarasamningum:
Vildu innflutning og
litlar kauphækkanir
Aukafulltrúafundur Stéttarsam-
bands bænda hófst í Reykjavík í
gær. Verkefni fundarins er að taka
afstöðu til nýs búvörusamnings.
Greidd verða atkvæði um samning-
inn í dag. Fulltrúar á fundinum
geta ekki gert breytingar á sjálfum
samningstextanum, en þeir geta
ályktað um framkvæmd hans og
reynt að hafa áhrif á reglugerðir
sem settar verða til hliðar viö
samninginn. Reiknað er með mikl-
um umræðum um samninginn á
fundinum, en hann er lokaður
blaðamönnum.
f upphafi fundar gerði Haukur
Halldórsson, formaður Stéttarsam-
bandsins, ítarlega grein fyrir bú-
vörusamningnum. Hann sagði að
leitast hefði verið við að mynda sem
breiðasta samstöðu um samning-
inn. Hann sagði ljóst að ekki hefði
verið vilji fyrir því hjá þjóðinni og
ekki heldur pólitískur vilji á Alþingi
að halda áfram að greiða útfíutn-
ingsbætur. Um störf sjömanna-
nefndar sagði hann að í upphafi
nefndarstarfsins hefði verið vilji fyr-
ir því af hálfu sumra fulltrúa vinnu-
markaðarins í nefndinni að leyfa
1 0 ieldingalækur á Rangárvöllum:
ðt i n e r fji f-
JSC igh tal )i run in u
Mikið tjón varð á bænum Geldinga-
læk á Rangárvöllum þegar 200
kinda fjárhús og hlaða, með miklu
af heyi í, brunnu þar til kaldra kola
í fyrrakvöld. Tvö önnur fjárhús,
sem voru sambyggð hlöðunni,
skemmdust minna.
Að sögn Grétu Þorsteinsdóttur,
húsfreyju á Geldingalæk, varð fólk
fyrst vart við brunann upp úr klukk-
an sjö um kvöldið. Vindur stóð beint
á íbúðarhúsið og í fyrstu hélt fólk að
reykjarlyktin kæmi vegna sinuelds.
En síðan kom í Ijós að kviknað var í
hlöðunni og fjárhúsinu. Slökkvilið
frá Hellu og Hvolsvelli kom fljótlega
á vettvang og var að störfum fram
undir hádegi í gærmorgun. Elds-
upptök eru enn ekki Ijós, en Gréta
sagðist hallast að því að kviknað
hefði í út frá rafmagni.
Á Geldingalæk er búið með um 300
fjár og nokkuð af hrossum. Gréta
segir einhver ráð finnast með að
koma fénu í hús þar sem tvö fjárhús
af þremur séu lítið skemmd. Eins sé
tíðin góð og auð jörð og því hægt að
hafa féð úti við.
-sbs.
innflutning á búvörum og á þann
hátt sætta launþega við minni
launahækkanir í komandi kjara-
samningum. Hann sagði að fulltrú-
um bænda í nefndinni hefði tekist
að ýta þessum hugmyndum út af
borðinu.
Haukur sagðist telja að í gamla bú-
vörusamningnum hefði vantað
hvatann fyrir bændur að auka sölu á
kjöti. í nýja samningnum fengju
bændur aftur þennan hvata. Þeir
græddu á því ef sala ykist og að sama
skapi töpuðu þeir ef sala minnkaði.
Haukur sagði að þeir sem segðu að
það væri nánast jafnvægi milli
neyslu og framleiðslu sauðfjáraf-
urða horfðu framhjá mikilvægum
staðreyndum, sem er leigður réttur
og samningar um niðurskurð vegna
riðu. Hann sagði að þó nokkrir
bændur sem samið hafa um að
hætta búskap tímabundið vildu
hefja sauðfjárbúskap að nýju á
næsta ári. Hann sagði að í þessu
væri falin hætta sem yrði að takast á
við með uppkaupum á fullvirðis-
rétti.
Haukur sagði að ríkið tryggði
bændum laun í tæplega þrjú ár með
kaupum á fullvirðisrétti. Bændum,
sem draga úr búskap eða hætta hon-
um alveg í haust, gæfist því góður
tími til að huga að öðrum atvinnu-
tækifærum. Þá benti Haukur á að
miklu máli skipti hvernig bændur
sjálfir ynnu úr þeirri aðstoð sem
þeim væri veitt. Hann sagði líka
mikilvægt að búnaðarsamböndin,
og sérstaklega ráðunautar þeirra,
aðstoðuðu bændur við að ákveða
framtíð sína í greininni. Hann sagði
að ráðunautar væru þeir menn sem
best væru færir um að benda mönn-
um á hvort best væri fyrir þá að
hætta búskap eða hagræða hjá sér
með því að kaupa aukinn fram-
leiðslurétt.
í lok ræðu sinnar benti Haukur á
að framlenging gamla samningsins
til eins árs væri slæmur kostur. Þar
með væri verið að framlengja
óvissutímann án þess að takast á við
vandann. -EÓ
NOTAÐ OG NYTT
SJÁLFSTÆTT BLAÐ
Smáauglýsingablaðið Notað og
nýtt kemur út á morgun föstu-
dag og verður að vanda til sölu á
blaðsölustöðum. Notað og nýtt
verður frá og með morgundegin-
um sjálfstætt blað og fylgir ekki
Tímanum, sé hann keyptur í
lausasölu. Fastir áskrifendur
Tímans munu hins vegar sem
áður fá Notað og nýtt sent heim
með föstudagsblaðinu.