Tíminn - 22.03.1991, Side 16

Tíminn - 22.03.1991, Side 16
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 & 686300 RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Holnarhusinu v Tryggvogotu. S 28822 Ókeypis auglýsingar fyrir einstaklinga PÓSTFAX 91-68-76-91 11 niinii FÖSTUDAGUR 22. MARS 1991 Forsetar Eystrasaltsríkjanna funda á morgun: Fundur Eystrasaltsríkja í Reykjavík í marsmánuði? Á fundi forseta Eystrasaltsríkjanna á morgun verður tekin af- staða til þess hvort halda eigi sameiginlegan fund Eystra- saltsríkjanna í Reykjavík þar sem mótaðar verða tillögur um sjálfstæði þeirra, sem síðan verða sendar Sovétmönnum. Eins og kunnugt er þá sóttu forsætis- og utanríkisráðherra Eistlands það fast að íslendingar tækju að sér sáttahlutverk í deilunni við Sovétríkin, þegar þeir voru í heimsókn hér fyrir skömmu. Sérfræðingur eistneska utanrík- þriðjudag og miðvikudag fundi isráðuneytisins í þjóðarrétti hélt á með utanríkisráðherra þar sem unnið var að gerð tillögu, sem leggja á fyrir sameiginlegan fund forseta Eystrasaltsríkjanna sem haldinn verður á morgun. í til- lögudrögunum er hlutverk íslend- inga sem sáttaaðila í málefnum Sovétríkjanna og Eystrasaltsríkj- anna skilgreint og gerð grein fyrir inntaki hugsanlegs samnings þeirra á milli er varðar ýmsa þætti sjálfstæðismálsins, s.s. efnahags- legt uppgjör, öryggismál og mann- réttindamál. Jón Baldvin Hanni- balsson utanríkisráðherra greindi frá þessum tillögudrögum á ríkis- stjórnarfundi í gærmorgun, en framhald málsins ræðst síðan á fundinum forsetanna. Jón Baldvin sagði í samtali við Tímann að ef sameiginleg niðurstaða næðist á þessum fundi þá mætti gera ráð fyrir því að einhvern tímann í næsta mánuði yrði fundur, trúlega í Reykjavík, um málið með þátt- töku sérfræðinga frá Eystrasalts- þjóðunum. Hann sagði að því væri enn haldið opnu að leita eftir þátt- töku annarra Norðurlanda í þessu máli og það yrði rætt í dag og á morgun á utanríkisráðherrafundi Norðurlanda. Aðspurður sagði Jón Baldvin að hugmyndin væri sú að fullmóta þessar tillögur á fundi í Reykjavík og koma þeim síðan á framfæri við sovésk stjórnvöld. —SE Passíusálmarn- ir í nýrri útgáfu Frá vinstri talið: Sr. Ragnar Fjalar Lárusson, Jóhannes Pálmason formaður sóknamefndar Hall- grímskirkju og sr. Karí Sigur- bjömsson. Tímamynd: Pjetur Út er komin hjá forlagi Hallgríms- kirkju ný útgáfa af Passíusálmun- um. Þetta er 79. útgáfa sálmanna á íslensku og annaðist dr. Sigurbjöm Einarsson biskup hana. Píslarsagan er prentuð á undan sálmunum og henni skipt í 50 kafla og er einn sálmur ortur út frá hverj- um kafla. Dr. Sigurbjörn hefur gert skýring- ar um torskilin orð sem koma fyrir í köflunum og ætti það að vera fólki hjálp við að skilja sálmana til fulln- ustu. Þá eru upphöf allra sálmanna skráð í þessari útgáfu til hægðar- auka ef finna skal einstök vers. Útgefendur segja þetta vera góða fermingargjöf. Þessi útgáfa Passíusálmanna er í fallegu bandi og kostar eintakið 2.500 krónur. -sbs. . Atvikið áttl sór þannig stað að maðurinn var að aka fram úr bíinum þegar hann rakst á hann. Ekki urðu mikfar skemmdir á ðkutækjun- Um, I ÍjBlfÍI fe|ffí||l|ÍI ■ ffeíf mrnámmmm j Tlmwnynd: pjatur Hjól atvinnulífsins snúast nú á Seyðisfirði: Frekari fyrirgreiðsla við atvinnulífið í biðstöðu Bæjaryfírvöldum á Seyðisfírði hafa enn ekki borist svör frá stjómvöld- um um hvemig verður staðið að frekari aðstoð við atvinnulífíð í bænum. „Málið er í biðstöðu,“ sagði Jónas Hallgrímsson, forseti bæjarstjómar á Seyðisfirði. Fyrir nokkru samþykkti ríkis- stjórnin að veita 20 miljónum króna til frekari aðstoðar við atvinnulíf á Seyðisfirði. Var Byggðastofnun falið að standa að útfæra þá aðstoð. Einn- ig var þess óskað að ríkið felldi niður gamla 10 miljóna króna skuld vegna Fiskvinnslunnar hf., sem varð gjald- þrota haustið 1989. Jónas sagði að fjármálaráðherra hefði tekið jákvætt í þá bón, en meira vissi hann ekki. Nóg hefur verið að gera hjá fisk- vinnslunni Dvergasteini á Seyðis- firði að undanförnu. Það fyrirtæki er stofnað á rústum Fiskiðjunnar hf. og Norðursíldar. Þar hafa verið 55 manns að störfum og nægur afli hef- ur borist að landi. Eftir að Fiskvinnslan hf. varð gjald- þrota lönduðu togarar Seyðfirðinga, Gullver og Otto Wathne, annars staðar. Þegar Dvergasteinn tók til starfa sl. haust var söltuð sfid fram eftir hausti, en frá áramótum hefur þar verið bolfiskur. Þá hefur Gullver byrjað að landa aftur í sinni heima- höfn. Sl. laugardag kom hann með 140 tonn að landi og kemur aftur á næstu dögum. Eins hefur verið samið um að togari Vopnfirðinga, Eyvindur Vopni, landi þar fljótlega. „Við höfum nægan afla til vinnslu fram yfir páska,“ sagði Svanbjörn Stefánsson, framkvæmdastjóri Dvergasteins. Engu að síður eru 50 manns á at- vinnuleysisskrá á Seyðisfirði, eða um 5% 1000 íbúa staðarins. Þar kemur m.a. til hvernig Ioðnuvertíð- in brást og eins að sl. haust var mun minni sfld söltuð á staðnum en oft áður. „Þegar slíkt gerist kippir veru- lega í atvinnulífi staðarins," sagði Jónas Hallgrímsson. -sbs. Nýr rektor á Bifröst Nú um páskana tekur Vésteinn Benediktsson viðskiptafræðingur við starfí rektors Samvinnuháskól- ans á Bifröst í Borgarfirði. Jafnframt tekur Jónas Guðmunds- son hagfræðingur við starfi aðstoð- arrektors, frá sama tíma.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.