Tíminn - 06.04.1991, Blaðsíða 7
16
T HELGIN
HELGIN
17
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Byggingadeildar borg-
arverkfræðings, óskar eftir tilboðum í lóöarlögun við Klettagarða.
Helstu magntölur eru:
Malbik: 1850 m2
Hellulagnir: 330 m2
Trjábeð: 360 m2.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 9. apríl nk., gegn kr.
10.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 23. apríl 1991, kl.
14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríklrkjuvegi 3 - Sími 25800
jjj ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Reykjavíkurhafnar, ósk-
ar eftir tilboðum í lagnir og gatnagerð, Barkarvogi.
Verkið er fólgið í lagningu holræsalagna, gerö stoðveggjar og frá-
gangi götu til malbikunar.
Helstu magntölur eru:
Holræsalagnir: 255 Im.
Grúsarfylling: 920 m3.
Frágangur yfirborðs: ca. 1600 m2.
Steyptir stoðveggir: 88 m3.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 17. apríl 1991,
kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Sími 25800
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Skólaskrifstofu Reykja-
víkur, óskar eftir tilboðum í viðhaldsverk.
1. Árbæjarskóli
Endurbætur og viðhald á þökum.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3,
Reykjavík, gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 17. apríl 1991,
kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríklrkjuvegi 3 - Sími 25800
j|j ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Gatnamálastjórans í
Reykjavfk, óskar eftir tilboðum í gerö gangstétta ásamt ræktun
víðs vegar um borgina.
Flatarmál gangstétta u.þ.b. 14 þús. m2
Flatarmál ræktunar u.þ.b. 6 þús. m2.
Verkinu skal lokið fyrir 15. september 1991.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 9. apríl nk. gegn kr.
15.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuö á sama stað fimmtudaginn 18. apríl 1991,
kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Gatnamálastjórans I
Reykjavík, óskar eftir tilboðum í gerð gangstíga víðs vegar um
borgina.
Heildarflatarmál er u.þ.b. 16 þús. m2.
Verkinu skal lokið fyrir 15. september 1991.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 9. apríl nk. gegn kr.
15.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miövikudaginn 24. apríl 1991,
kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegí 3 - Sími 25800
Laugardagur 6. apríl 1991
Laugardagur 6. apríl 1991
með 8. apríl
,dsbanki tslands
ipum Landsbankans á Sanr
I framhaldi al
bankanumht
bosytt í Landsbanjkaútíbú sem opnar f<
idsbankinn býður viðsl
týðnýfaútíhú og «>ska
iptavim
Landsbanki
fslands
Banki allra landsmanna
Höfundun Henrik Ibsen
Þýöing: Einar Benediktsson skáld.
Leikgerð: Þórhildur Þorleifsdóttir og
Siguijón Jóhannsson
Leikstjóri: Þórhildur Þorleifsdóttir
Tónlist: Hjálmar H. Ragnars
Lýsing: Páll Ragnarsson
Dansan Hany Hadya.
Pétur Gautur er mættur á ný á
fjalir Þjóðleikhússins og hefur það
varla farið fram hjá neinum.
Leikritið var áður sýnt þar 1962-
63 og fór þá Gunnar Eyjólfsson
með hlutverk Gauts á mjög svo eft-
irminnilegan hátt.
Að þessu sinni skipta þeir Arnar
Jónsson og Ingvar Sigurðsson
hlutverkinu á milli sín.
En hver er þessi Pétur Gautur
sem enn höfðar til okkar þótt liðið
sé nokkuð á aðra öld frá því hann
fyrst kom fram á sjónarsviðið?
Pétur var alinn upp hjá móður
sinni, Ástu (Kristbjörg Kjeld). Af
föðurnum fara litlar sögur. í æsku
var Gautur, mikill draumóramað-
ur, sem að auki hafði óbilandi trú á
eigin ágæti.
Fljótlega þegar hann er vaxinn úr
grasi leggst hann í ferðalög og
hrekst víða um höf. Spor hans
marka jafnt eyðimerkur Sahara
sem vogskornar strendur og fjalls-
eggjar Noregs.
Hann þráir að drottna og ríkja og
fá viðurkenningu jafnt karla sem
kvenna. En til að sigra heiminn
þarf peninga. Pétur gerir sér grein
fyrir því og er óvandur að meðöl-
um.
Einn af draumum hans er að
Geðveikrahælið: Jóhann Sigurðarson, Amar Jónsson og Tinna Gunn-
laugsdóttir
verða keisari og sú ósk rætist
reyndar þegar hann er krýndur
keisari yfir vitfirrtum mönnum.
Þar kemur að líferni Péturs stefnir
honum í öngstræti hann snýr við
og áfram heldur leitin.
Inn í iíf hans kemur konan Sól-
veig, sem fýrirgefur og elskar án
skilyrða, en hann afneitar henni
jafnoft og nafni hans Kristi í hall-
argarðinum forðum.
Sólveig er samt sú sýn, sem aldrei
slokknar í huga hans þrátt fyrir að
Gautur gangi um dimma dali og
gljúfur þröng á lífsleiðinni.
Skilin milli draums og veruleika
eru oft ekki skýr á lífsgöngu Pét-
urs. Verkið er æði margslungið og
oft er ekki allt sem sýnist og ýmis
tákn lúra undir yfirborðinu.
Verkið er reyndar þess eðlis að ein
kvöldstund í leikhúsi nægir ekki til
að skynja það til hlítar.
En í veglegri leikskrá er m.a. að
finna ágæta umfjöllun um leikritið
og höfundinn eftir þau Árna Ibsen,
Dagnýju Kristjánsdóttur og Jón
Viðar Jónsson og skal hverjum
þeim sem hyggst sjá verkið ráðlagt
að kynna sér þau skrif áður.
Textinn í verkinu er í bundnu
máli en þó þannig fluttur að hið
Ijoðræna er ekki ríkjandi og tel ég
það kost.
Eins og áður sagði er aðalhlut-
verkið í höndum þeirra Arnars og
Ingvars, sem báðir eiga framúr-
skarandi leik.
Arnar er nær allan tímann á svið-
inu í hlutverki Péturs á efri árum,
ýmist í glæsilegri beinni túlkun
eða álengdar sem áhorfandi að eig-
in lífshlaupi og tekst þar ákaflega
vel að túlka með svipbrigðum ein-
um þær tilfinningar, sem með hon-
um bærast þegar löngu liðnir at-
burðir lífs hans renna hjá.
Ingvar sem hinn ungi Pétur legg-
ur sig allan í hlutverkið líkamlega
sem andlega ef svo má að orði
komast. Meira er víst ekki hægt að
fara fram á.
Fjölmargir aðrir leikarar koma
við sögu. Af þeim eru mér eftir-
minnilegastir þeir Pálmi Gestsson
og Jóhann Sigurðarson sem vitfirr-
ingar. Gervi og leikur sem seint líð-
ur úr minni. Sama má segja um Jó-
hann sem son Gauts, þetta ofvaxna
afstyrmi sem var ávöxtur holdlegra
fýsna Gauts og Hinnar græn-
klæddu.
Sigurður Sigurjónsson er ljóm-
andi góður sem Dofrinn.
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir á
sérstaklega viðfeldinn og einlægan
leik og söng í hlutverki Sólveigar
og Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir er
yndislega ógeðsleg sem Sú græn-
klædda.
Leikgerð þeirra Þórhildar og Sig-
urjóns er m.a. á þann veg að ekki er
fylgt venjulegri tímaröð frá vöggu
til grafar heldur hefst leikurinn í
seinni æviskeiðum og síðan er vef-
urinn rakin til baka og þaðan til
lokapunkts. Þessi aðferð heppnast
vel.
Leikmyndin er skynsamlega unn-
in, einföld en notadrjúg.
Tónlistin féll prýðilega að verkinu
einhvern veginn samgróin því
strax í upphafi.
Pétur Gautur er verk sem seint
líður úr minni. Það eru í því ákaf-
lega sterkar og vel unnar senur,
hreint kynngimagnaðar, s.s. eð-
veikrahælið, I höll Dofrans og þeg-
ar Gautur flettir lauknum í sund-
ur.
Leikurinn er mjög góður og text-
inn meitlaður. En leikritið er
nokkuð langt og krefst fullrar at-
hygli allan tímann og því er ekki að
neita að í seinni hlutanum koma
fyrir atriði þar sem undirritaður
þurfti að beita sig nokkrum aga til
að halda fullri athygli á sviðinu.
Hver er svo boðskapurinn í Pétri
Gaut? Kannski er hann m.a. sá að
þau markmið sem við setjum okk-
ur oft og tíðum eru ekki þær glitr-
andi hallir og gósenlíf sem við
höldum heldur hyllingar og hjóm
eitt þegar við náum að snerta.
Gísli Þorsteinsson.
Spámaöurínn í eyðimörkinni Pétur Gautur/Amar
Jónsson og Anitra/Edda Björgvinsdóttir
'h I L- - iA1-* U> ' U , 1
§pfr
A G R U H N \
c 0 i .. r
-t. "a'n'-aenJZr
f o Yi *
~ Hjorsey
———__ tx
A M f
Alft’ané
Bií
Jor
opnar Landsbanki Islands
rvog
i e>r°
útibú í miðbæ Keflavíkur.
r><fkatn\l
Utskál
RÉTUR
GAUTUR
meiri háttar
0ST4
HLBOÐ
stendur til 19. aprfl
á 1 kg stykkjum af brauðostinum góða.
Verð áður:
kr. 794/kílóið
Tilboðsverð:
kr.594/
kílóið
200 kr.
afsláttur pr. kg.