Tíminn - 10.04.1991, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 10. apríl 1991
UTLOND
Fréttayfirlit
Nikósía - Mörg vestræn rfki
styðja þá hugmynd að Samein-
uðu þjóðimar komi á föt öruggu
afdrepi handa íröskum Kúrdum
í Norður-írak en Saadoun
Hammadí, forsætisráðherra ír-
aks, segir að þessi hugmynd
sé komin frá bandarfsku ieyni-
þjónustunni CIA og sé hluti af
samsæri hennar gegn stjóm-
völdum f Irak.
Belgrad - Alexander Bessm-
ertnykh, utanríkisráðherra
Sovétríkjanna, sagði að sov-
ésk stjómvöld vonuðust til að
þjáningum Kúrda lyki sem
skjótast en vildi ekki tjá sig um
þá hugmynd að Sþ. komi upp
flóttamannabúöum í Norður-ír-
ak.
Lúxemborg - Jacques Poos,
utanríkisráðherra Lúxemborg-
ar, sem nú er í forsæti Evrópu-
bandalagsins, sagði að velta
þyrftf Saddam Hussein iraks-
forseta úr sessi ef koma ætti í
veg fyrir slátrun kúrdisku þjóð-
arinnar í frak. Hann sagði að
Sþ. þyrftu að samþykja ályktun
sem leyföi fjölþjóðahemum,
sem enn er í suðurhluta fraks,
að beita sér gegn þessari slátr-
un.
Genf - Embættismenn Sam-
eínuðu þjóðanna í Genf sögðu
aö vel yffr ein milljón kúrdiskra
flóttamanna væru nú í fran og
Tyrklandi og meiri alþjóðleg
neyðaraðstoð væri nauðsyn-
leg.
Riyadh - U.þ.b. 214 þúsund
bandarískir hermenn hafa nú
fengið að fara heim frá Persa-
flóa en 3-5 þúsund hermenn fá
að fara heim daglega. U.þ.b.
326 þúsund hermenn eru enn
eftir.
Moskva - Lýðveldið Georgía
í Sovétríkjunum lýsti formlega
yfir sjálfstæði í gær en sagði
sig þó ekki úr sovéska ríkja-
sambandinu. Sjálfstæðisyflr-
lýsingin er svipuð sjálfstæðis-
yfiríýsingum Eystrasaltslýð-
veldanna Eistlands og Lett-
lands en þau ætla að vinna
smátt og smátt að fullu sjálf-
stæði. Litháen hefur hins vegar
lýst yfir fullu sjálfstæði.
Jerúsalem - Bandaríkin og
fsrael hafa komist að sam-
komulagi um nokkur atriði er
varða svæðisbundna ráð-
stefnu um frið í Miðausturiönd-
um, að sögn David Levy utan-
ríkisráðherra fsraels.
Istanbúl, Tyrklandi - A.m.k.
36 grískir túrístar, þar af fimm
böm, létu lífið í Istanbúl þegar
rúta sem þeir voru í varð alelda
á skömmum tíma.
Clermont-Ferrand, Frakk-
landi - Tíu manns létu lifið
þegar Mirage orrustuþota
franska flughersins og þyria
franska sjóhersins rákust sam-
an yfir miðhluta Frakkiands.
Bonn - Þýskur sljómmála-
maöur lagði til að utanríkisráð-
herra Þýskalands, Hans-Diet-
rich Genscher, yrði skipaöur
næsti aðalframkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna en hann
sagði að það mundi sýna
traust heimsins á sameinuðu
Þýskalandi.
Jóhannesarborg - Ailt að
600 manns hafa látið lifið í
stjómmáiaóeirðum í Suður-Afr-
íku það sem af er þessu árl og
tala látinna frá því blökkumenn
hófu baráttu sína fyrír alvöru
áríð 1984 nálgast 10.000.
Reuter-SÞJ
Vopnahléssamningar taka gildi:
Griðasvæði undir
vemd Sþ. í írak?
Sú hugmynd að Sameinuðu þjóðimar komi upp ömggum griðastað
fyrir kúrdiska flóttamenn í norðurhluta íraks fékk góðan hljómgmnn
hjá Öryggisráði Sþ. í gær. Hugmyndin er upphaflega bresk og hlaut
hún meirihlutastuðning hjá Evrópubandalaginu. írösk stjómvöld
hafa fordæmt hugmyndina og þau segjast ætla að gera allt sem í
þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir að hún nái fram að ganga.
Sovétrfldn hafa neitunarvald í Öryggisráðinu. Utanrfldsráðherra
þeirra vildi ekki segja hvort þau væm fylgjandi slíkri hugmynd.
„Eg er ánægður með þann mikla
stuðning sem hugmyndin fékk hjá
ráðinu, en ég lagði ekki áherslu á að
ákvarðanir yrðu teknar á þessu stigi
málsins," sagði David Hannay, fulltrúi
Breta hjá Öryggisráðinu. Hann sagði
að framhaldið mundi að miklu leyti
ráðast af því hve mikið aðildarþjóðim-
ar væru tilbúnar að leggja fram til
neyðarhjálpar og af þeirri skýrslu sem
verið væri að vinna að um ástandið í ír-
ak.
írösk stjómvöld fordæmdu í gær
þessa hugmynd og sögðust ætla að
beita öllum ráðum til að hindra að hún
næði fram að ganga. Saadoun Hamm-
adí forsætisráðherra íraks sagði að
írösk stjómvöld hefðu gert allt sem
hægt væri að gera og vísaði þá til yfir-
lýsingar Saddams í seinustu viku um
að allir Kúrdar fengju sakaruppgjöf ef
þeir snem til síns heima. Hann sagði
að „mikill fjöldi" Kúrda hefði snúið
heim síðan Saddam bauð sakarupp-
gjöf. Hann sagði að Öryggisráð Sþ. ætti
frekar að aflétta óréttlátu viðskipa-
banni en að vera stöðugt að samþykja
nýjar ályktanir gegn írak. Hammadí
varaði einnig Týrki og írani við að
blanda sér í innanríkismál íraks og
hagnýta sér tímabundnar aðstæður.
Alexander Bessmertnykh utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna sagði í gær að
sovésk stjómvöld vonuðust til að þján-
ingum Kúrda í írak tæki að linna en
hann vildi ekki tjá sig um hvort þau
styddu hugmynd Breta. ,Akvörðun
okkar veltur á texta ályktunarinnar og
því hvað hinar þjóðimar sem hafa neit-
unarvald ákveða að gera“, sagði hann.
Baker í ísrael:
ISRAELSMENN
GEFA EFTIR
Á fundum sem James Baker utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna átti í
gær með Yitzhak Shamir forsætis-
ráðherra ísraels, David Levy utan-
ríkisráðherra ísraels og Moshe Arens
varnarmálaráðherra ísraels kom
fram að ísraelsmenn fallast á að
haldin verði friðarráðstefna sem tek-
ur eingöngu til Palestínumálsins.
Áður vildu þeir eingöngu friðarráð-
stefnu sem tæki á öllum deilumál-
um Miðausturlanda.
Baker átti einnig fund með sex leið-
togum Palestínumanna á herteknu
svæðunum og höfnuðu þeir ekki
þeim möguleika að halda svæðis-
bundna friðarráðstefnu en sögðu að
Frelsissamtök Palestínumanna
(PLO) yrðu að taka ákvörðun um
hvort Palestínumenn tækju þátt í
slíkri ráðstefnu.
Menn voru sammála um að viðræð-
um hefði miðað áfram en vöruðu við
of mikilli bjartsýni. Ýmis mikilvæg
atriði eru eftir, s.s. uppsetning fund-
arins, staðsetning, tímasetning og
þátttakendur.
David Levy utanríkisráðherra ísra-
els sagði eftir fund sinn með Baker
að nokkuð breið samstaða væri um
að Bandaríkjamenn stjórnuðu slíkri
ráðstefnu milli ísraelsmanna og ar-
aba og að Sovétmenn fengju að taka
þátt í henni. Hann sagði ekki hverjir
fulltrúar araba ættu að vera en Pal-
estínumenn setja sem skilyrði að
PLO sitji slíka ráðstefnu. Því hafa
ísraelsmenn hafnað.
Talsmaður Yitzhaks Shamirs sagði
að Baker myndi hitta Shamir aftur í
dag áður en hann fer til Egypta-
lands. Hann sagði að fundurinn í
gær hefði verið mjög gagnlegur.
Baker mun síðan fara til Sýrlands
frá Egyptalandi og síðan mun hann
hitta utanríkisráðherra Jórdaníu í
Genf á föstudag.
Reuter-SÞJ
Öryggisráðið vann í gær að því að
ganga frá skilmálunum sem það setti
fyrir varanlegu vopnhléi Persaflóa-
stríðsins. Búist var við að varanlegt
vopnahlé gæti tekið gildi kl. 19:30 í
gær að ísl. tíma. Meðal skilmálanna er
að Sameinuðu þjóðimar sendi 1.440
hermenn til að sjá um gæslu á hlut-
lausu svæði sem á að vera við sameig-
inleg landamæri íraks og Kúvæts. Að
írakar eyðileggi öll gereyðingarvopn
sín og að þeir greiði ákveðna prósentu-
tölu af olíutekjum sínum í stríðsskaða-
bætur.
írakar hafa mótmælt mörgum atrið-
um vopnahlésskilmálanna en sjá sig
tilneydda til að samþykkja þá.
Reuter-SÞJ
Sameinuöu þjóðimar munu senda 1.440 hermenn til Persaflóa til að sjá
um gæslu á hlutlausu svæði milli íraks og Kúvæts.
Tyrkland:
36 GRIKKIR
LÁTA LÍFIÐ
Þrjátíu og sex grískir túristar, þar
af fimm börn, létust í Istanbúl í
Tyrklandi í gær þegar rúta sem þeir
voru í varð alelda á skömmum
tíma.
Atburðurinn átti sér stað þegar
túristarnir voru að leggja upp í
skoðunarferð um Istanbúl. Sextíu
og fimm manns höfðu komið sér
fyrir í rútunni þegar eldur gaus
upp í henni en rútan var tveggja
hæða og skrásett í Grikklandi. Bú-
ið var að loka dyrum rútunnar og
komust farþegarnir ekki út.
Menn voru ekki sammála um upp-
tök eldsins. Bílstjóri rútunnar
sagði að um íkveikju hefði verið að
ræða og brennuvargur hefði komið
inn í rútuna og farið rakleiðis upp á
aðra hæð rútunnar og kveikt þar í
með bensíni. Yfirmaður slökkvi-
liðsins, sem réð niðurlögum elds-
ins, sagði að ekki hefði verið um
íkveikju að ræða og upptök eldsins
hefðu verið í eldhúsinu á neðri
hæð rútunnar. Reuter-SÞJ
Sovétríkin:
Georgía lýsir
Þing Georgíu lýsti formlega yfir
sjálfstæði lýðveldisins í gær en yfir-
lýsingin felur ekki f sér úrsögn úr
sovéska ríkjasambandinu. Yfirlýs-
ingin gerir ekki ráð fyrir fullu sjálf-
stæði eins og gert er ráð fyrir í sjálf-
stæðisyfirlýsingu Litháens heldur
ætla Georgíubúar að vinna að fullu
sjálfstæði í áföngum eins og sjálf-
stæðisyfirlýsingar Lettlands og Lit-
háens gera ráð fyrir. Eystrasaltsrík-
in lýstu yfir sjálfstæði í fyrra.
Mikill fögnuður greip um sig með-
al íbúa Tibilisi, höfuðborgar lýðveld-
isins, eftir að þingið hafði samþykkt
sjálfstæðisyfirlýsinguna. Fólk faðm-
aðist á götum úti og ökuþórar þeyttu
horn sín. í gær voru nákvæmlega
tvö ár síðan sovéski herinn kæfði
niður mótmæli sjálfstæðissinna
með þeim afleiðingum að tuttugu
manns létust.
Sjálfstæðisyfirlýsing lýðveldisins er
nokkurt áfall fyrir Gorbatsjov Sovét-
forseta. Gorbatsjov hefur legið undir
gagnrýni frá harðlínumönnum inn-
an kommúnistaflokksins fyrir að
setja ekki neyðarlög á í héraðinu
Suður-Ossetíu í Georgíu en þúsund-
ir hafa látist í átökum milli Ossetíu-
yfir sjálfstæði
búa og annarra Georgíubúa en Os-
setíubúar vilja ekki sjálfstæði iýð-
veldisins. Sovéski herinn hefur
styrkt sveitir sínar í Suður-Ossetíu
og hefur forseti Georgíu hótað alls-
herjarverkfalli í Iýðveldinu ef herinn
fer ekki í burtu. Menn telja að
spennan sem hefur verið í lýðveld-
inu hafi flýtt fyrir sjálfstæðisyfirlýs-
ingunni. Yfir 90% þeirra sem
greiddu atkvæði í nýafstaðinni þjóð-
aratkvæðagreiðslu í Georgíu sögð-
ust fylgjandi sjálfstæði lýðveldisins.
Gorbatsjov vill að teknar verði upp
víðtækar viðræður við þau lýðveldi
sem vilja sjálfstæði sem geti tekið
allt að fimm ár og síðan verði það í
höndum sovéska þingsins að taka
lokaákvörðun um hvort þau eigi að
fá sjálfstæði en Eystrasaltslýðveldin
hafa hafnað þessu og nú Georgía.
í Georgíu búa um fimm milljónir
manna. Lýðveldið nær frá Kákasus-
fjöllum til Svartahafsins og er mikil-
vægt landbúnaðarhérað. Lítill iðn-
aður er stundaður í lýðveldinu en
sovéski iðnaðurinn nýtur góðs af
hafnaraðstöðu lýðveldisins við
Svartahaf og góðu járnbrautarkerfi.
Reuter-SÞJ