Tíminn - 17.04.1991, Síða 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 17. apríl 1991
UTLOND
Söguleg heimsókn Sovétforseta til Japans:
Kúrileyjarnar eru
meginumræðuefnið
Mikhail Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, kom í gær í opinbera
heimsókn til Japans og er þar með fyrsti sovéski ieiðtoginn sem
þangaö kemur frá dögum Nikuiásar Rússakeisara. Samskipti ríkj-
anna hafa verið mjög stirð síðan seinni heimsstyrjöldinni lauk og
hafa þau ekki enn gert með sér formlegan fríðarsamning þrátt fyrir
öll þessi ár sem liðin eru. Það, sem helst hefur staðið bættum sam-
skiptum ríkjanna fyrír þrifum, er deila um yfirráð fjögurra eyja, sem
Sovétmenn hertóku af Japönum í lok seinni heimsstyijaldar.
Kúrileyjarnar fjórar eru tákn um
niðurlægingu Japana í kjölfar ósig-
ursins í stríðinu. Japönsk stjórnvöld
hafa gefið í skyn að þau muni veita
Sovétmönnum víðtæka efnahagsað-
stoð ef þeir fái eyjarnar aftur, en
annars ekki.
Gorbatsjov átti viðræður við Tos-
hiki Kaifu, forsætisráðherra Japans,
í gær. Þeir ætla að gera tilraun til að
leysa deiluna um eyjarnar og eyða
leifum kalda stríðsins, eins og Gor-
batsjov komst að orði. Þeir komust
að samkomulagi um að öllum frétt-
Sovétríkin-Ísrael:
Viðræður
Yitzhak Shamir, forsætisráðherra
ísraels, og Valentín Pavlov, forsæt-
isráðherra Sovétríkjanna, ræddust
við í sovéska sendiráðinu í Lundún-
um í gær. Shamir sagði Pavlov að
Sovétmenn yrðu að taka að nýju
upp fullt stjómmálasamband við
ísrael, ef þeir ætluðu að taka þátt í
svæðisbundinni friðarráðstefnu í
Miðausturlöndum sem hefði það að
markmiði að leysa Palestínumálið.
Shamir sagði þetta á fréttamanna-
fundi, sem hann boðaði til eftir
fundinn með Pavlov.
Stjórnvöld í Sovétríkjunum slitu
stjórnmálasambandi við ísrael eftir
sex daga stríðið árið 1967, en sam-
skipti ríkjanna hafa smám saman
verið að batna.
Shamir lýsti yfir ánægju sinni með
að James Baker, utanríkisráðherra
Bandríkjanna, ætlaði í sína þriðju
ferð til Miðausturlanda. ísraels-
menn hafa verið gagnrýndir fyrir að
halda áfram að leyfa Gyðingum að
setjast að á herteknu svæðunum nú
þegar möguleiki virðist vera á að
leysa Palestínumálið. Shamir sagði í
gær að það skipti engu máli, því
fjöldi Gyðinga á herteknu svæðun-
um yrði ekki látinn hafa áhrif á pól-
itískar ákvarðanir, ef einhverjar
yrðu. Reuter-SÞJ
um af viðræðunum um eyjarnar
yrði haldið leyndum þar til viðræð-
unum lýkur.
Fréttaskýrendur telja ekki miklar
líkur á að deilan leysist. Þeir telja að
Gorbatsjov sé of berskjaldaður
heima fýrir. Hann geti ekki gefið eyj-
arnar eftir á sama tíma og mörg lýð-
veldi Sovétríkjanna krefjast sjálf-
stæðis. Gorbatsjov sló líka á vonir
manna þegar hann lýsti yfir að hann
mundi ekki nota landsvæði til
samninga, þegar hann kom til borg-
arinnar Khabarovsk í Austur-Sovét-
ríkjunum á leið sinni til Japans.
Gorbatsjov kom inn á viðkvæmt
mál í gær í ræðu, sem hann flutti í
fjölmennri veislu sem haldin var í
tilefni heímsóknar hans. Hann bar
fjölskyldum japanskra stríðsfanga,
sem létust í Sovétríkjunum, samúð-
arkveðjur frá sovésku þjóðinni. Sov-
étmenn tóku um 600 þúsund jap-
anska stríðsfanga í seinni heims-
Gorbatsjov Sovétforseti og Raisa kona hans komu til Japans í gær.
styrjöldinni og um 60 þúsund þeirra
létust í Sovétríkjunum í þrælkunar-
vinnu. Hinir fengu að fara til Japans
árið 1956. Sovétmenn hafa ekki beð-
ist opinberlega afsökunar á þessum
atburðum né gefið nokkrar upplýs-
ingar um þá sem létust á sovéskri
grundu og hefur það að nokkru
valdið biturleika Japana í garð Sov-
étmanna. Gorbatsjov hafði með sér
skrá yfir alla stríðsfangana sem lét-
ust í Sovétríkjunum og búist er við
að hann riti undir samning við
Kaifu um að sovésk stjórnvöld líti
eftir gröfum stríðsfanganna.
Reuter-SÞJ
Júgóslavía:
YFIR 700 ÞUSUND
FARA í VERKFALL
Yfir 700 þúsund verkamenn í lýð-
veldinu Serbíu og 10 þúsund náma-
menn í Bosníu-Herzegóvínu og
kennarar í Slóveníu og sjálfstjórn-
arhéraðinu Vojvodinu fóru í verkfall
í gær. Þetta eru mestu mótmæli
verkamanna í Júgóslavíu síðan
seinni heimsstyijöldinni lauk. Auk
alls þessa hefur öll starfsemi Yu-
goslav Airlines legið niðri í fimm
daga vegna verkfalls flugvirkja.
Flestir verkamennirnir krefjast
þess að þeim séu greidd Iágmark-
smánaðarlaun sín á réttum tíma, en
þau eru um 3.000 dinarar eða
12.000 ísl. kr. Fyrirtæki í Júgóslavíu
eiga flest í gífurlegum erfiðleikum
og mörg eru nálægt gjaldþroti. Þeg-
ar verðbólgan náði hámarki fór hún
upp í 3.000%, en í ár mun hún ekki
vera nema 100%!
Ofan á þessa efnahagsörðugleika
bætast þjóðernisdeilur, sem hafa
magnast upp í landinu á síðustu
misserum og er ríkjasambandið nú á
barmi borgarastyrjaldar. Tveir menn
létust í Belgrad í Serbíu þegar mót-
mælendur stjórnarandstæðinga
tókust á við her og lögreglu og tugir
manna slösuðust. „Þetta er mjög al-
varlegt," sagði vestrænn stjórnarer-
indreki um verkfallið. „Hingað til
hafa verkamenn ekki tekið þátt í
mótmælunum í Serbíu," bætti hann
við.
Ekki var Ijóst hve lengi verkfallið
stæði. Reuter-SÞJ
Bandarískir her-
menn til N-íraks
Bandarísk stjómvöld hafa ákveðið
að senda hermenn frá Týrklandi inn
í Norður-írak til að dreifa þeim
hundruðum tonna af matvælum,
sem bandarískar, breskar og
franskar flugvélar og þyrlur hafa
verið að varpa til flóttamannanna.
Tálsmaður Hvíta hússins, Marlin
Fitzwater, sagði að hermennirnir
mundu ekki setja upp búðir í írak,
heldur yrðu stöðug skipti á þeim og
hlutverk þeirra væri eingöngu
mannúðlegs eðlis en ekki hernaðar-
legs. George Bush Bandaríkjaforseti
hefur heitið því að bandarískir her-
menn muni ekki skipta sér af borg-
aralegum óeirðum í írak. Um 100
þúsund bandarískir hermenn eru
enn eftir í suðurhluta íraks og fækk-
ar þeim um 3-5 þúsund á degi hverj-
um.
Talsmaður varnarmálaráðuneytis
Bandaríkjanna sagði að bandarískar
þyrlur og flugvélar hefðu varpað um
1.000 tonnum af matvælum og
franskar um 300 tonnum. Hann líkti
loftbrúnni við loftbrúna sem mynd-
uð var til Berlínar á sjötta áratugn-
um.
Reuter-SÞJ
Mengun sjávar:
Fi 'esti unál rgun
kjami orkul báts
Sovétmenn hafa ákveðið að fresta
björgun sovéska kjamorkukafbáts-
ins, Komsomolets, sem sökk í apríl
1989 út af strönd Noregs með 42
menn innanborðs.
Til stóð að hífa kafbátinn upp árið
1992, en stjórnvöld í Moskvu segjast
ekki hafa fjármagn til verksins, að
sögn hollensks björgunarhóps, sem
á að taka þátt í björguninni, og verð-
ur kafbáturinn í fýrsta lagi hífður
upp 1993. Kafbáturinn grefst smám
saman í hafsbotninn og seinkun ger-
ir björgunina erfiðari. Vísindamenn
telja að báturinn gæti farið að gefa
frá sér geislun í byrjun ársins 1994.
Kafbáturinn liggur á um 1700
metra dýpi skammt undan strönd
Noregs. Mesta dýpi, sem flaki hefur
verið lyft upp af, er 200 metrar, svo
björgun kafbátsins mun veröa ein-
stakt afrek ef hún tekst. Margir telja
þetta ógerlegt, en hættan á meng-
unarslysi hvetur menn áfram og þó
ekki síst nálægð kafbátsins við gjöful
fiskimið. Reuter-SÞJ
Fréttayfirlit
WASHINGTON - Bandarísk
stjómvöld hafa ákveðið að
senda hermenn nú á næstu
dögum til norðurhéraöa (raks
til aö aðstoða kúrdfsku flótta-
mennina, að sögn talsmanns
Hvíta hússins í gær.
ANKARA - Bandarískar þyrl-
ur héldu I gær uppi stöðugum
flutningum á hjálpargögnum
til um 500 þúsund kúrdískra
flóttamanna við landamæri
Tyrklands. Embættismaður
hjá Sameinuðu þjóðunum
sagði í gær aö aðeins gríðar-
mikil alþjóðleg hjálparaöstoð
gæti afstýrt hörmungum á ír-
önsku landamærunum.
TOKYO - Gorbatsjov Sovét-
forseti fór í opinbera heim-
sókn til Japans í gær. Honum
og Toshiki Kaifu, forsætisráð-
herra Japans, kom saman um
að reyna að leysa þann
ágreining, sem verið hefur á
milli stjórnvalda landanna allt
frá lokum seinni heimsstyrj-
aldar, og eyða þar með síð-
ustu leifum kalda stríðsins,
eins og Gorbatsjov tók til
orða.
DAMASKUS - Sýrlensk
stjómvöld lýstu í gær ánægju
sinni með að James Baker,
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, ætli að fara enn eina
ferð til Miðausturlanda til að
gera tilraun til að sætta Isra-
elsmenn og Araba.
LONDON - Yitzhak Shamir,
forsætisráðherra ísraels, og
Valentín Pavlov, forsætisráð-
herra Sovótríkjanna, ræddust
við í sovéska sendiráðinu í
London í gær. Shamir gerði
Pavlov grein fyrir því að Sov-
étmenn yrðu að taka að nýju
upp fullt stjómmálasamband
við ísraelsmenn ef þeir ætl-
uðu að taka þátt I friðarráð-
stefnu til að leysa Palestlnu-
málið. Sovétríkin slitu stjórn-
málasambandi við Israel í sex
daga stríðinu árið 1967.
STRASBOURG, Frakk-
landi - Boris Jeltsin, forseti
Rússlands, tilkynnti i gær að
rússneska lýöveldið ætlaði að
sækja um aðild að Samein-
uðu þjóðunum og öðrum al-
þjóðlegum samtökum.
HÖFÐABORG - Stjórnvöld [
Suður- Afrlku slepptu I gær 41
stuðningsmanni Afrfska þjóð-
arráðsins (ANC) úr fangelsi.
LONDON - Ríki Austur-Evr-
ópu munu llklega fá sem svar-
ar 123 milljöröum dollurum I
fjárhagsaðstoð á næstu tíu ár-
um frá vestrænum ríkisstjórn-
um og einkafyrirtækjum, að
sögn nýskipaðs yfirmanns
Viöreisnar- og þróunarbanka
Evrópu (EBRD) i gær.
LONDON - Breski kvik-
myndaleikstjórinn David Lean
iést í London I gær, 83 ára
gamall. Hann gerði margar
frægar myndir, s.s. „Brúin yfir
Kwaifljótið” og „Dr. Zhivago".
Myndir hans unnu samtals til
28 Óskarsverðiauna.
Reuter-SÞJ