Tíminn - 17.04.1991, Síða 5
Miðvikudagur 17. apríl 1991
Tíminn 5
Tómas Árnason hefur adrar skoðanir um sölu ríkisbankanna en hinir seðiabankastjóramir:
Gæti stuðlað að hægri
hengingu strjálbýlis?
„Sú hugmynd að breyta ríkisviðskiptabönkunum í hlutafélög ein-
göngu til þess að geta afnumið ríkisábyrgð á skuldbindingum þeirra
innan lands og utan, virðist ekki vera raunhæf," segir m.a. í grein-
argerð bankastjómar Seðlabankans um breytingu ríkisbankanna í
hlutafélög.
Jafnframt sé vafasamt að afnám ríkisábyrgðar á þessum bönkum
myndi í reynd firra ríkið ábyrgð á erlendum skuldbindingum þeirra
ef í harðbakka slægi.
Þessi og önnur rök leiða til þeirrar
almennu niðurstöðu bankastjórnar-
innar að breyting ríkisbankanna í
hlutafélög skipti þvt aðeins verulegu
máli að það vaki fyrir mönnum að
einkavæða bankana. Og fyrir því eru
líka sögð mörg rök, að einkavæðing
sé æskileg, enda sé almennt að
henni stefnt á Vesturlöndum þar
sem ríkisbankar séu ennþá fyrir
hendi.
Þar sem bankastjórnin taldi ljóst
að álitsgerð um þetta efni yrði að
byggja á víðtækum og traustum
upplýsingum um reynslu annarra
þjóða, réð Seðlabankinn sér til að-
stoðar ráðgjafarfyrirtækið Spicer &
Oppenheim í London, og til þeirra
vísar bankastjórnin líka um ábyrgð á
þeim skoðunum sem fram koma í
skýrslu til viðskiptaráðherra um
þetta mál. Athugun S. & 0. leiddi
m.a. í ljós afar takmarkaðan áhuga
erlendra banka á fjárfestingu í ís-
lenskum bönkum.
Seðlabankinn
fullfær...
Tómas Arnason seðlabankastjóri
skilaði séráliti um greinargerð
bankastjórnarinnar, þar sem hann
lýsti sig ósammála ýmsu sem fram
kemur í skýrslunni. Raunar segist
Tómas m.a. hafa verið andvígur því
að kaupa ráðgjöf Spicer & Oppen-
heim, þar sem hann teldi Seðla-
bankann fúllfæran um að tíunda
kosti þess og galla að breyta ríkis-
bönkunum í hlutafélög.
Tómas segist sammála skýrsluhöf-
undum um það að bættum stjórnar-
háttum og rekstrarhagkvæmni rík-
isviðskiptabankanna sé best að ná
fram með lagabreytingum. En í
skýrslunni er m.a. lagt til að völd
bankaráða viðskiptabanka verði
verulega takmörkuð (enda séu þau
meiri hér en annars staðar þekkist),
og hins vegar að einn bankastjór-
anna verði formaður bankastjórnar
og beri þar með víðtækari ábyrgð en
aðrir.
Hins vegar sagðist Tómas andvíg-
ur einkavæðingu ríkisbankanna og
telja slíka breytingu óráðlega og
ótímabæra.
Hann vekur athygli á þeim miklu
breytingum, sem orðið hafa á ís-
lenska fjármagnskerfinu á fáum ár-
um, ásamt gjörbreyttri peninga-
málastefnu. Kynni að vera ráðlegt að
melta þær margþættu lagabreyting-
ar, sem gerðar hafa verið á síðustu
árum, og sjá fram úr reynslunni af
þeim.
Verkefnisstjóri
Fósturbarnanna
Guðrún Sveinsdóttir kennari hefur
verið ráðinn verkefnisstjóri Fóstur-
bamanna, umhverfisverkefnis Ung-
mennafélags íslands. Verkefni
þetta hefst fyrstu helgina í júní og
stendur næstu þrjú árin.
Að því er stefnt að hvert og eitt
ungmennafélag í landinu taki að sér
fósturbarn í náttúru landsins. Barn-
ið getur verið t.d. fjara eða vegkafli
sem hreinsaður er reglulega, land til
uppgræðslu, hefting foks eöa hvað
annað sem kemur landinu til góða.
Ungmennafélögin í landinu, 245 að
tölu með 45000 félaga, taka þátt í
verkefninu. Auk þess verður hópum
utan hreyfingarinnar gefinn kostur
á að taka þátt í verkefninu. Guðrún
verkefnisstjóri er frá Hvannstóði í
Borgarfirði og er næstyngst 10
systkina. Hún er kennari að mennt
og hefur starfað við það fag, en nú
síðast unnið sem fóstra. -sbs.
Guðrún Sveinsdóttir, verkefnis-
stjóri „Fósturbamanna".
Tímamynd: Ami Bjama
Bankamenn meö sérkröfur
Bankamenn eru mótfallnir því að
taka þátt í þjóðarsátt í sömu mynd.
Kjarasamningar, sem byggjast eigi
á framlagi allra, verði að gera það í
raun, en ekki eingöngu á kostnað
launþega.
Kjaranefnd Sambands íslenskra
bankamanna segir í ályktun, sem
hún hefur sent frá sér, að banka-
menn séu langþreyttir á iélegum
launum. Bent er á að bankastörf séu
ábyrgðarstörf og launin verði því að
vera í samræmi við það. Bent er á að
síðasti kjarasamningur SÍB var sam-
þykktur með naumum meirihluta.
„I næstu kjaraviðræðum verður ekki
hjá því komist að taka þátt í sérkröf-
um bankamanna. Þetta þarf þó ekki
að þýða að horfið sé frá ábyrgri
kjarastefnu stéttarfélaga með stöð-
ugleika í efnahagsmálum að leiðar-
ljósi,“ segir í ályktun SÍB.
Hæg henging
strjálbýlisins?
Um þá hvatningu S. & O. að styrkja
eiginfjárstöðu Landsbankans með
því að létta af honum „þeim útlán-
um sem frekar tilheyra hlutverki
þróunarbanka“ sagði Tómas: „Hér
er viðhaft þjálfað orðalag um þjón-
ustu Landsbankans, aðallega við
sjávarútveginn og raunar einnig
dreifbýlið." Varar hann við einhliða
álagi á framleiðslustarfsemina, sem
gæti orðið til þess að draga úr gjald-
eyrisöflun þjóðarinnar og valdið
vandræðum í framkvæmd frjálsra
gjaldeyrisviðskipta. „Ég óttast einn-
ig, að slík stefna, nema að ýtrustu
varkárni verði gætt, stuðli að hægri
hengingu strjálbýlli hluta landsins."
Tómas varar því við að rasað verði
um ráð fram. Búa verði þannig um
hnútana að þessi höfuðatvinnuveg-
ur þjóðarinnar búi við þá fjármagns-
þjónustu, sem hann þarf til að geta
þjónað hlutverki sínu.
Með tilvísun til frétta af gjaldþrot-
um öflugra einkabanka víða um
lönd, auk þess sem íslenskir bankar
hafi orðið gjaldþrota, segir Tómas:
„Vafasamt er hvort þrír hlutafélaga-
bankar verða nægilega sterkir með
sinni takmörkuðu ábyrgð til að
tryggja örugglega sparifé lands-
manna.“ Hann tekur því undir með
skýrsluhöfundum um að forðast
beri stökkbreytingar sem valdið
gætu óróa og vantrausti á markaðn-
um.
Einnig pólitík
í einkabönkum
Þau rök að einkavæðing banka
dragi úr pólitískum áhrifum á út-
lánastarfsemi dregur Tómas í efa.
„Ég álít að í íslensku þjóðfélagi
kunningsskapar og pólitískra
flokkadrátta sé alveg eins mikil
hætta á pólitískum áhrifum í einka-
bönkum. Þar verða aðrir aðilar með
sína pólitísku hagsmuni sem deila
og drottna engu síður en nú tíðk-
ast.“
„Viðskiptasjónarmið hverra?" spyr
Tómas varðandi þau rök að lána-
starfsemi einkabanka ákvarðist fyrst
og fremst af viðskiptasjónarmiðum
og arðsemi, í stað pólitískra sjónar-
miða. Bendir hann á að ríkisbank-
arnir hafi nú frelsi í vaxtaákvörðun-
um. „Hins vegar þarf að breyta þeim
ákvæðum, að bankaráðin séu að vas-
ast í vaxtaákvörðunum."
Verðmætasköpun...?
Um þau rök að einkavæðing bank-
anna muni auka framboð hlutabréfa
á markaðnum og þátttöku almenn-
ings í rekstri fyrirtækja, segir Tóm-
as: „Hafa þarf hugfast að aukin þátt-
taka almennings í atvinnulífinu
þyrfti að beinast að verðmætasköp-
un og gjaldeyrisaukandi starfsemi."
Mest ríði einmitt á því að auka þátt-
töku almennings í því atvinnulífi,
sem verði að tryggja jöfnuð í við-
skiptum við útlönd. Verði bankarnir
eingöngu reknir með hagsmuni eig-
enda fyrir augum, gæti starfsemin
orðið svo ábatasöm að almenningur
vildi heldur kaupa hlutabréf í bönk-
um en venjulegu atvinnulífi. Einnig
sé hætta á því að bankarnir hækki
vaxtatöku á kostnað atvinnulífsins
og dragi þannig úr æskilegri upp-
byggingu og framförum. „Það eru
því margar hliðar á þessu máli,“ seg-
ir Tómas Árnason. - HEI
SUBARU LEGACY AÐ VERÐMÆTI KR. 1.454.000.-
42493
NISSAN PRIMERA AÐ VERÐMÆTI KR. 1.219.000.-
52691 86156
SUBARU JUSTY AÐ VERÐMÆTI KR. 808.000.-
62053 121987 127381
VÖRUÚTTEKTIR AÐ VERÐMÆTI KR. 200.000.-
8955
9628
10998
15653
37710 71064 97276 164129
39396 77233 98509 170573
54300 81709 131918 172644
55481 85151 161775 184160
VÖRUÚTTEKTIR AÐ VERÐMÆTI KR. lOO.OOO.-
7098 21288 46670 60867 76335 100658 100229 126716 145818 161567
8122 22887 48375 64166 76915 101191 111498 129990 148052 167233
10368 26806 48442 66183 79212 102104 117362 135667 148504 168503
11864 33682 51023 67841 82317 102529 121282 136040 150177 169217
16084 33722 54798 69222 82783 106539 122407 142946 151197 178543
20553 45904 58865 72888 97509 107778 122532 143434 156067 180743
VÖRUÚTTEKTIR AO VERDMÆTI KR. 50.000.-
1343 20362 43964 61810 79263 98889 115457 129457 145488 162233
3960 27119 44438 62827 79487 99262 115927 129609 145895 162726
4641 29060 44725 63596 00480 100759 116546 129767 146985 163247
6506 30926 47265 64407 81214 101259 119185 130136 148133 164420
6716 33088 49364 65153 01269 103132 121128 130708 148146 164803
6864 33331 50310 65814 83432 103231 122566 131277 148253 168741
11747 34093 50827 66509 83874 104044 123387 131291 148306 172520
11751 34428 51003 68041 84277 104886 123556 131293 149376 173507
12966 34564 51153 68303 85522 104998 124514 134539 151980 174488
13334 35031 51194 69306 87016 105465 124586 134548 153735 177762
13775 40075 53133 71016 87677 107499 124631 137646 154407 177784
14094 40800 55323 71751 B8618 107917 124883 138105 155772 178035
15655 41176 55667 73480 89156 108903 124906 139006 156815 179266
15723 41470 56191 73705 91194 110385 126501 140076 157592 180196
17797 41926 57324 75146 92064 111282 127134 140213 158706 181570
19152 42938 60015 76812 93216 112514 127497 142137 158808
19014 43643 60735 79210 97713 114759 128178 145046 162104
Vinninga ber aö vitja á skrifstofu félagssins innan árs frá drætti.