Tíminn - 18.04.1991, Page 5
Fimmtudagur 18. apríl 1991
Tíminn 5
Fjórða alþjóðlega ráðstefnan um skynsamlega nýtingu sjávarspendýra í Reykjavík ósátt við vísindanefnd Alþj. hvalveiðiráðsins:
Vís indanefndin brást
ítrekað skyldu sinni
Mikll samstaða varð með hvalveiðiþjóðum á fjórðu alþjóðlegu ráð-
stefnunni um skynsamlega nýtingu sjávarspendýra, sem lauk í gær
í Reykjavík. Með henni hafa þær náð upp slíkum þrýstingi á Alþjóða-
hvalveiðiráðið að það á vart aðra kosti en heimila hvalveiðar á ný.
Annars er Norður- Atlantshafsnefndin svokallaða búin til að taka við
hlutverki þess.
Norðmenn lýsa yfir að þeir hefji
hrefnuveiðar að ári. Halldór Ás-
grímsson sjávarútvegsráðherra seg-
ir að þar með hafí Norðmenn dregið
línuna, sem aðrir munu fylgja.
Ráðstefnan í Reykjavík er framhald
af ráðstefnum, sem haldnar voru í
Reykjavík í janúar 1988, Þórshöfn í
aprfl 1989, og í Noregi í aprfl 1990.
Ákveðið hefur verið að halda næstu
ráðstefnu á Grænlandi að ári.
Á alþjóðlegum ráðstefnum um
skynsamlega nýtingu sjávarspen-
dýra mætast fulítrúar íslands, Fær-
eyja, Grænlands, Noregs, Sovétríkj-
anna og Japans. Nú voru þar einnig
áheyrnarfulltrúar frá Kanada og Al-
aska.
Á dagskrá ráðstefnunnar voru fjög-
ur meginmál. í fyrsta lagi var lagt
mat á ástand langreyðarstofnsins,
einstakir hvalastofnar afmarkaðir og
stjórnunaraðferðir endurskoðaðar.
Þessum málum hafa íslendingar
einmitt haldið á lofti, nú síðast á
aukafundi vísindanefndar Hvalveiði-
ráðsins í febrúar.
í annan stað samhæfðu þjóðirnar
afstöðu sína fyrir umhverfísráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna, sem
haldin verður 1992. Þar má enn
vænta mikillar andstöðu við veiðar
sjávarspendýra.
í þriðja lagi var nýting smáhvala
rædd. Fram kom að Hvalveiðiráðið
hefur ekki markað henni skýra
stefnu og því hefðu hvalveiðiþjóð-
irnar sjálfar skyldum að gegna í
þeim efhum.
í fjórða lagi ræddu menn hvort
stofna skyldi sérstaka svæðisbundna
alþjóðastofnun til að stjórna nýt-
ingu sameiginlegra sela- og hvala-
stofna í Norður-Atlantshafi. Það mál
kom til kasta Norður- Atlantshafs-
nefndarinnar, sem hvalveiðiþjóðir
stofnuðu með sér í fyrra. Nefndin
notaði tækifærið, sem ráðstefnan
gaf, og kom saman til fundar. Þar
ræddu menn m.a. hugsanlegar leið-
ir þjóðanna til að vernda og stjórna
veiðum á sameiginlegum stofnum
sjávarspendýra í Norður-Atlantshafi.
Auk þess reyndu menn að meta við-
brögð annarra þjóða við þeim. Það
má ljóst vera að Norður-Atlantshafs-
nefndin er tilbúin að taka við hlut-
verki Alþjóðahvalveiðiráðsins, ef
með þarf.
í tilkynningu frá þátttakendum í
fjórðu Alþjóðlegu ráðstefnunni um
skynsamlega nýtingu sjávarspen-
dýra segir m.a.: „Ráðstefnan fjallaði
einnig um og lýsti yfir áhyggjum yf-
ir að Vísindanefnd Hvalveiðiráðsins
hefði hvað eftir annað brugðist
skyldu sinni varðandi framsetningu
hagnýtra stjórnunarreglna á grund-
velli nýrrar þekkingar.
Ráðstefnan vekur sérstaka athygli á
nauðsyn þess að ákvæðum Alþjóða-
sáttmála um stjórn hvalveiða frá
1946 sé réttilega framfylgt, sérstak-
lega varðandi stjórn og umsjón
hvalveiða."
Nú hafa Norðmenn lýst því yfir að
þeir muni hefja hrefnuveiðar í vís-
indaskyni að ári. Við þá ákvörðun
sína munu þeir standa á ársfundi Al-
þjóðahvalveiðiráðsins í maí.
„Við höfum hingað til lagt línuna,
sem Norðmenn hafa fylgt. Nú hafa
þeir lagt línuna, sem við munum
fylgja," segir Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráðherra. „Ég er þess
fullviss að við munum heQa hval-
veiðar að nýju næsta sumar. Með
þjóðunum sem hér voru náðist mik-
il samstaða, og þær verða samstíga á
fundi Hvalveiðiráðsins í vor. Ef það
heimilar ekki hvalveiðar, verður
hver þjóð fyrir sig að taka ákvörðun
um úrsögn.
Fundur Norður-Atlantshafsnefnd-
arinnar var mjög árangursríkur.
Við höfum ekki leyst hvalamálið, en
náð mikilsverðum áfanga," segir
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra.
-aá.
Um þriðjungi færri atvinnulausir í mars en undanfarin tvö ár:
INNAN VK> 1% í
R-KJÖRDÆMUM
Um þríðjungi færrí voru at-
vinnulausir í mars heldur en í
sama mánuði tvö undanfarín ár.
Skráð atvinnuleysi svaraði til
þess að um 1.800 manns
(1,4%) hafi verið án vinnu allan
marsmánuð, sem er fækkun um
nær 400 manns frá febrúar.
Fyrst og fremst hefur vinnu-
Iausum fækkað á Suðurnesjum
þar sem aðeins 0,7% mannafl-
ans vantaði vinnu í mars (helm-
ingi færrí en í febrúar) og á
Reykjavíkursvæðinu, niður í
0,9% af mannafla. Reykjavík
var þó eini staðurínn þar sem
mun fleiri karlar voru á at-
vinnuleysisskrá (um 300) en
konur (um 200).
Raunar fækkaði atvinnulausum
einnig umtalsvert á Suðurlandi,
niður í 1,8%.
Nokkuð margar konur eru þó án
vinnu, 2,9%, en aðeins 1,2% karl-
anna.
Atvinnuleysi er ennþá töluvert, og
mest, á Norðurlandi vestra eða 4,3%
mannaflans. Eina af hverri 21 konu
og 25. hvern karl vantar vinnu. Og
þetta er líka eina landsvæðið þar
sem vinnulausum fjölgaði lítillega
(á Sauðárkróki og Siglufirði) á milli
febrúar og mars.
Á Austurlandi vantaði störf handa
3,3% mannaflans og á Norðurlandi
eystra 2,8%. Bitnaði þetta svipað á
konum og körlum í þessum lands-
hlutum.
Á Vesturlandi vantar fyrst og fremst
störf handa kvenþjóðinni. Um 2,9%
þeirra eru án vinnu, en aðeins 0,8%
karlanna.
Þótt atvinnumálin virðist ofarlega
í hugum Vestfirðinga í kosningabar-
áttunni, komust þeir vart á blað í at-
vinnuleysisskýrslum núna í mars-
mánuði, fremur en venjulega.
Atvinnuleysi í kjördæminu svaraði
aðeins til 9 manns án vinnu í mán-
uðinum, þar af voru 4 karlar á Þing-
eyri og 4 karlar og 1 kona á ísafirði.
Sem hlutfall af mannafla var þetta
0,2% atvinnuleysi. En það er álíka
hlutfall og á landsvísu um hásumar-
tímann á mestu þensluárum síðasta
áratugar.
- HEI
Staðgreiðsluverð með ryðvöm og skráningu:
SPORTS CAB bensín kr. 1.371.000 m/vsk. CREW CAB bensín kr. 1.433.000 m/vsk.
SPORTS CAB diesel kr. 1.409.000 m/vsk. CREW CAB diesel kr. 1.511.000 m/vsk.
ISUZU pallbílarnir hafa vakið sérstaka athygli fyrir fallega og nýtískulega hönnun. Þeir eru
sterkir og kraftmiklir, en samt mjúkir og þægilegir í akstri.
Berðu ISUZU pallbílana saman við bestu og vinsælustu jeppana á markaðnum í dag. Þeir
þola fyllilega þann samanburð, enda eru ISUZU RODEO jepparnir, sem nú fara sigurför um
Bandaríkin, smíðaðir á sömu forsendum.
Berðu líka verð, stærð og gæði pallbílanna saman við það sem aðrir bjóða. Komdu svo til
okkar og aktu bílunum til reynslu. Þú munt sannfærast um að þeir eru fremstir í sínum flokki.
ÞRIGGJA ÁRA ÁBYRGÐ!
ÁRLEG ÓKEYPIS SKOÐUN Á VEGUM FRAMLEIÐANDA
j)@iny)K)íM
lU Uís
HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91 -670000 og 674300