Tíminn - 18.04.1991, Blaðsíða 9

Tíminn - 18.04.1991, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 18. apríl 1991ur Tíminn 9 VETTVANGUR Þórir Aðalsteinsson: Bifrestingar í námsferð erlendis Nemendur útskriftarárgangs Sam- vinnuháskólans á Bifföst fóru í 10 daga ferö til Evrópu til að kynna sér það nýjasta í samningum EB og EFTA um sameiginlegan innri markað í lok ársins 1992. Komið var til fjögurra landa í þessari ferð og nokkur stórfyrirtæki heimsótt í leiðinni. Gildi námsferðar í nýja háskólanum á Bifröst er lögð rík áhersla á að fylgjast með því nýj- asta sem er að gerast í viðskiptalíf- inu, hvort heldur það er innanlands eða utan. Á vormisseri 1991 voru kennd fög á borð við alþjóðahagmál, utanríkisviðskipti, markaðarfræði, stefhumótun fyrirtækja og mikil áhersla var lögð á það sem er að ger- ast í Evrópu þessi misserin. Fyrr í vetur fór hópurinn í námsferð til Reykjavíkur, þar sem ótal fyrirtæki voru heimsótt, en námsferð okkar erlendis tengdist hinni hefðbundnu útskriftarferð nemenda á Bifröst. Þessi utanlandsferð var mjög vel heppnuð og veitti okkur m.a. góða innsýn í það sem er að gerast þessar vikumar í samningaviðræðum EFTAogEB. Evrópudómstóllinn í Lúxembúrg Fyrsta dag ferðarinnar var Evrópu- dómstóllinn í Lúxembúrg heimsótt- ur, en sú stofnun er ein af fjórum meginstofnunum EB. Hlýtt var á fyrirlestur Steen Hjelmblinks upp- lýsingafúlltrúa um stofnanir EB, hlutverk Evrópudómstólsins og ým- is praktísk atriði. Á eftir vom fyrir- spumir og umræður og barst þá tal- ið að samstarfi Norðurlandaþjóða. Eins og allir vita em Danir eina Norðurlandaþjóðin í EB og það kom ffam á fundinum að Norðurlanda- þjóðirnar hefðu verið sundraðar efnahagslega síðan 1973, en þá áttu þessar þjóðir kost á því að ganga í EB. Sumir gengu svo langt að halda því fram að um pólitískt slys hefði verið að ræða þegar hinar Norður- landaþjóðirnar gengu ekki í EB á þessum tíma, enda hefðu þessar frændþjóðir verið sundraðar efna- hagslega síðan. Aðspurður um það hvort Evrópudómstóllinn gæti þvingað lögum uppá íslendinga ef þjóðin gengi í EB, sagði Hjelmblink að þar væri alltaf um samningsat- riði að ræða. Hann lagði áherslu á að Iíklega myndu fámennar þjóðir í EB hafa hlutfallslega meiri áhrif á störf dómstólsins. Eftir fyrirlestur- inn var ekið í rútu áleiðis til Bmssel í Belgíu. Evrópubandalagið: Há- punktur námsferðar Föstudaginn 22. mars vom höfúð- stöðvar EB heimsóttar, en þær em í Brussel. Herra J. Lund, upplýsinga- fulltrúi á sviði samskipta milli þjóða og menningarmála, hélt fyrirlestur um framtíð hinna ýmsu stofnana í Evrópu. Hann talaði fyrir hönd framkvæmdanefndar EB. Fram kom að það er ekki ólíklegt að í framtíð- inni muni EB samanstanda af 24 ríkjum, þ.e. núverandi aðildarlönd- unum 12, EFTA-þjóðunum 6 og síð- an af 6 austantjaldsþjóðum til við- bótar. En eins og mál standa nú er það í forgangsröð hjá EB að ná samningum við EFTA um sameigin- legan innri markað í Evrópu. Ákvörðun þessara aðila um að stefna að þessu marki var tekin árið 1984 og alltaf hefur verið stefnt á að sam- eiginlegt evrópskt efnahagssvæði verði að veruleika fyrir árslok 1992. Sjálfstæði íslands ógnað ef við göngum í EB? Bifrestingum var umhugað um að vita hvort íslendingar þyrftu að af- sala sér sjálfsákvörðunarrétti í eigin málum ef landið gerðist aðili að Evr- ópubandalaginu. J. Lund svaraði okkur á þann veg að valddreifing væri á stefnuskrá EB. Það væri góð stefna að ákvarðanir væru teknar á þeim stöðum þar sem þær væru teknar bestar og það þýddi að þeir sem hefðu mesta þekkingu á málurn væru best til þess fallnir að taka ákvörðun um þau. Auðvitað myndi ísland eiga fúlltrúa á Evrópuþinginu eins og aðrar aðildarþjóðir ef til inn- Hópurinn aö leggja af stað í skoðunarferð um athafnasvæði Samskip h/f í Rotterdam. ar um stöðu mála. Hún sagði okkur að EB- þjóðimar færu fram á að EFTA-þjóðir legðu fjármuni í sjóð áður en samið væri um innri mark- að í Evrópu. Upphæðin, sem íslend- ingar þyrftu að láta af hendi rakna árlega, gæti numið 200 milljónum króna. Þessi krafa EB-þjóðanna byggir á því að EFTA-þjóðir eigi meira aflögu og sjóðnum sé ætlað að jafna lífskjör. Önnur krafa samn- ingamanna EB á hendur EFTA er að EFTA verði gert að stofhun. Þetta er stjórn. Ákvarðanataka er erfiðari við þessar aðstæður, en ljóst er að stjórnmálamennimir okkar þurfa að halda vel á spöðunum strax eftir kosningar. Annars sagði frúin það skoðun sína að íslendingar hefðu ekkert að gera í EB, á meðan það ástand varir að almenningur veit ekkert um hvað málið snýst. Hins vegar virðast sífellt fleiri rök hníga að því að samningaviðræður EB og EFTA séu aðeins milliskref EFTA- ríkjanna í þá átt að ganga í EB. Eftir Michael, fulltrúi Samskip h/f I Rotterdam, útskýrir stærð og umfang hafnarinnar í Rotterdam. göngu kæmi og þingið er mjög valdamikil stofnun. Mörgum finnst það skjóta skökku við að á sama tíma og kerfi miðstýringar hrynur í aust- urblokkinni sé unnið að því að koma upp miðstýringarapparati í Vestur- Evrópu. En J. Lund, ásamt öllum þeim talsmönnum EB sem við hitt- um í ferðinni, lagði áherslu á vald- dreifingu innan EB. Annars þurfa ís- lendingar ekki að hafa miklar áhyggjur vegna beinnar inngöngu í EB, því bandalagið tekur ekki á móti umsóknum um aðild í bili. Vegna fjölgunar aðildarþjóða á síðustu ár- um er nú unnið að því innan EB að ná tökum á stjórnun og skipulagi bandalagsins. Það kom þó skýrt fram í heimsókn okkar að talsmenn EB höfðu mikinn áhuga á að fá full- trúa Norður-Evrópu inn í bandalag- ið á næstunni, þ.e. Norðurlöndin. Yfirstandandi samn- ingaviðræður EFTA og EB Frú M. Van Rij, sérfræðingur í sam- skiptum EB og nokkurra smáþjóða, kom okkur Bifrestingum á óvart með mikilli þekkingu sinni á mál- efnum íslands. Frúin var nýkomin af fúndi samninganefndar EB og EFTA og færði okkur glænýjar upplýsing- skiljanleg krafa, þar sem EB hefur engan einn aðila til að semja við, heldur verður að semja við hverja og eina af hinum 6 EFTA-þjóðum sér- staklega. Staða íslands gagnvart EB Nú stendur aðallega á því að ná samkomulagi um fiskyeiðar EB- þjóða á íslandsmiðum. ísland mun örugglega slíta samningaviðræðum ef ekki næst samkomulag um fisk- veiðiheimildirnar. M. Van Rij fullyrti að ekki kæmi til greina að semja á þeim nótum að EB fengi aðgang að 30.000 tonna kvóta eða þá 10% af heildarkvóta á fiskimiðum EFTA- ríkjanna í N-Atlandshafi. EB myndi krefjast aðgangs að 70.000 tonna kvóta í það minnsta og væri það vegna þrýstings frá Spánverjum og Portúgölum. Fram kom að það ylti á ýmsu hvort samningur íslands við EB frá 1972 væri í hættu ef ísland næði ekki samkomulagi með EFTA- þjóðum við EB um sameiginlegt efnahagssvæði. Frú M. Van Rij benti á að fyrsti áfanginn í samningavið- ræðum EFTA og EB gæti náðst inn- an fárra mánaða, jafnvel strax nú í júní. Nú stendur yfir kosningabar- átta á íslandi og búast má við að það taki einhverjar vikur að mynda fyrirlesturinn var keyrt til Amster- dam í Hollandi. Fyrirtækjaheimsóknir í Hollandi Hópurinn naut lífsins í Amster- dam eina helgi, en strax mánudag- inn 25. mars var haldið til Rotter- dam á fund fulltrúa Samskip hf. Þar fengum við góðar útskýringar á umsvifum félagsins í Evrópu og skoðuðum höfnina, sem er samtals 47 kfiómetrar á lengd og þar vinna yfir milljón manns störf sem tengj- ast vöruflutningum. í tengslum við þessa heimsókn var litið inn hjá Europe Combined Terminals, ECT, sem er risafyrirtæki á sviði uppskip- unar, útskipunar og vöruflutninga. Samskip er í viðskiptum við ECT, en það fyrirtæki er það stærsta sinnar tegundar í Evrópu og þriðja stærsta í heimi. Shell í Haag Daginn eftir fór hópurinn svo í heimsókn í höfuðstöðvar Shell, en þær eru í Haag. Hlýtt var á fyrirlest- ur upplýsingafulltrúa fyrirtækisins, sem jafnframt á sæti í stjóm Skelj- ungs á íslandi. Fyrirlesturinn var al- mennt um starfsemi Shell og síðan voru hinar hefðbundnu fyrirspumir okkar Bifrestinga á eftir. Persónu- legar viðræður við forkólfa fyrirtæk- isins í matarboði eftir fundinn þóttu skila mestu í þessari heimsókn. UNESCO í París Menningar-, félags- og mennta- stoínun Sameinuðu þjóðanna í Par- ís var heimsótt miðvikudaginn 27. mars. Hópurinn var nýkominn til Parísar og hafði rétt náð að bóka sig inn á Hotel Cecilie við Sigurboga- torgið þegar Hannes Heimisson, sendiráðsfulltrúi í París, kom á okk- ar fund. Hann lagði Iífsreglumar fyr- ir hópinn varðandi hin ýmsu mál og sagði frá athyglisverðum stöðum sem við gætum skoðað. Hannes fylgdi okkur síðan í UNESCO, þar sem við hlýddum á erindi fulltrúa á sviði þróunar mjög lítilla ríkja innan UNESCO. Tilgangur UNESCO er að stuðla að friði í heiminum, enda er ástæða styrjaldarátaka yfirleitt mis- skilningur sem stalar af mismun- andi menningu þjóða. Fyrirspum barst frá íslendingunum um úrsögn Breta, Bandaríkjamanna og Singa- pore úr UNESCO, en það hefúr vald- ið stofnuninni miklum erfiðleikum. Þegar þessum fyrirlestri lauk var hópurinn kominn í hið eiginlega páskafrí. í upphafi skyldi endinn skoða Aðdraganda að námsferð má rekja til áhuga nemenda á að nýta út- skriftarferð sína til gagns ekki síður en til skemmtunar. Rektor Sam- vinnuháskólans, Jón Sigurðsson, sýndi mikinn áhuga á málinu og að- stoðaði stjóm ferðasjóðs nemenda með ráðum og dáð. Auk hans áttu Albert Guðmundsson sendiherra í París, Eggert Kjartansson hjá Hol- lenska verslunarráðinu, Guðjón Auðunsson lektor á Bifröst, Jónas Guðmundsson lektor á Bifröst, Hall- dór Þorsteinsson hjá SÍS, Vilhjálmur Egilsson hjá Verslunarráðinu og Þórður Guðjónsson sendiráðsritari í Bmssel þátt í því hve útskriftarferð okkar var vel heppnuð. Frábær árangur stjómar ferðasjóðs Mest mæddi þó á fimm manna stjóm ferðasjóðs nemenda sem tókst á undraverðan hátt að hnýta alla hnúta rétt og sameina nám, skemmtanir og afslöppun. Rétt er að geta þess að þeir fyrirlestrar, sem við sátum í Evrópu þessa daga, komu í stað hefðbundinna fyrir- lestra á Bifröst. Og það er skoðun mín að þeir hafi nýst nemendum mörgum sinnum betur! Þórir Aðalsteinsson, formaður Skólafélags Samvinnuskólans á Bifröst, Borgarfirði i *t w d »»u mn»Ti m— — ww

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.