Tíminn - 18.04.1991, Page 7
Fimmtudagur 18. apríl 1991
. .minn 7
Dr. Þór Jakobsson:
Er gaman að vera gamall?
- aldraðir í velferðarríkinu
Grein þessa skrifa ég í lítilli von um skjót áhrif.
Samt vil ég leggja lóð mitt á vogarskálaranar og
hvet fólk í svipuðum sporum að taka ekki öllu
með þegjandi þögninni - eins og þeirra eigin
skjólstæðingar. Fólkið sem ég á við eru aðstand-
endur aldraðra. Skjólstæðingamir geta ekki leng-
ur borið hönd fyrir höfuð sér. Þeir eru leiksoppar
skilningsleysis og miskunnarleysis þjóðféiags
sem bersýnilega er orðið of flókið fyrir þá sem
ráðið hafa ferðinni.
Þetta er mergurinn málsins.
Ráðamenn ráða hreint og beint
ekki við verkefni sitt. Eg trúi
ekki að þeir yppti öxlum yfir
vandræðum gamla fólksins í
Reykjavík og nágrenni. Senni-
iega hafa þeir ekki brennandi
áhuga á málaflokknum en von-
andi hefðu þeir reynt að stemma
stigu við hinni skammarlegu
þróun sem orðin er, ef þeir hefðu
haft vit á að sjá hana fyrir.
Það trúir því enginn fyrr en
hann tekur á hve illa er komið
málum í þessum efnum í vel-
ferðarríkinu marglofaða. Aldr-
aður eldist og veikist og verður
smám saman eða skyndilega
hjálparþurfi. Tíðni gagnkvæmra
símtala og heimsókna hins aldr-
aða og aðstandenda vex að sama
skapi. Börn og tengdabörn
hjálpa með glöðu geði og gera
hvað þau geta til að Iétta undir.
Jafnvel barnabörn hlaupa undir
bagga, annars önnum kafin við
lexíur sínar eða heimili og at-
vinnu - og taka að sér vakt hjá
ömmu eða afa.
En mánuðir líða og Elli kerling
tekur að leggjast með æ meiri
þunga á aldraðan föður eða móð-
ur og bæði í senn þegar því er að
skipta. Gamla fólkið er ekki
lengur einfært um húshald og
viðhald eigin heilsu. Heimilis-
hjálp hins opinbera, sem er
góðra gjalda verð, kemur að góð-
um notum. Þar er gott fólk í
vinnu, illa launað. En tíminn líð-
ur enn og hinn aldraði kýs í sam-
ráði við aðstandandendur að láta
gott heita. Hann neyðist til að
flytja.
Þá hefst ballið. Aðstandendur
taka að þreifa fyrir sér hjá því op-
inbera og árétta fyrri umsóknir
um vist á dvalarheimili sem
samdar höfðu verið af forsjálni
Þá hefet ballið. Að-
standendur taka að
þreifa fyrir sér hjá því
opinbera og árétta fym
umsóknir um vist á
dvalarheimili sem
samdar höfðu verið af
forsjálni meðan allt lék í
lyndl. Þærreynast
einskis virði, því gamli
maðurinn er dæmdur
eftir hellsufarinu en ekki
forsjálninni.
meðan allt lék í lyndi. Þær reyn-
ast einskis virði, því gamli mað-
urinn er dæmdur eftir heilsufar-
inu en ekki forsjálninni.
Það er sök sér. Hins vegar er
skelfilegt að uppgötva að for-
sjálni virðist í engu eiga upp á
pallborðið hjá stjórnmálamönn-
um í þessum efnum. Þeim virð-
ist fyrirmunað að leggja saman
og sjá fyrir fjölda þeirra sem að
öllum líkindum sem að öllum
líkindum munu verða orðnir 75
ára gamlir eftir tiltekin ár. Það
þarf enga mannfjöldafræðinga til
að reikna slíkt út í litlu landi. Við
erum ekki í Indlandi.
Þar kemur að mjög brýnt verð-
ur að fá inni á heimili fyrir hinn
aldraða. Hefst þá píslarganga
öldungsins milli Pontíusar og
Pílatusar. Hún tekur margfalt
lengri tíma en sú frægasta í sög-
unni og auk þess eru þeir marg-
faldir pontíusarnir og pílatus-
arnir sem ganga verður fyrir til
skiptis. Lífsreyndur öldungurinn
tekur smánargöngunni án þess
að mögla, sem oftast endar með
tímanum á golgatahæð velferð-
arríkisins, og leysist þar með úr
vandræðunum.
Hins vegar sljákkar smám sam-
an í hofgírugum dætrum og son-
um sem botna því minna í dá-
semdum kerfisins sem þeir kom-
ast í kynni við fleira gott fólk -
lækna, hjúkrunarfræðinga, fé-
lagsráðgjafa, félagsráðgjafa,
deildarstjóra, forstjóra, stjórnir
og starfsfólk dvalarheimila, um-
önnunarheimila, hjúkrunar-
heimila, sjúkrahúsa og heimilis-
hjálpar. - Ágætis fólk en virðist
máttlaust.
Ég læt staðar numið. Tugir
manna, sumir segja hundrið,
munu vera á biðlistum hjá dval-
arheimilunum. Og auðvitað
verða þúsundir fyrir barðinu á
vandanum, þvf heimilishald,
vinnutími og margt fleira í dag-
legu lífi aðstandenda mótast af
aðstæðunum: ótal snúningar,
heimsóknir, gistingar og vökur
reyna á þolrifin.
Og þeim sem máttin hafa, völd-
in og peningana hefur yfirsést.
Nu ættu þeir að kynna sér málin
betur og leggja metnað sinn í að
ráða fram úr þessum vanda á
næstu árum.
Kristín Ottósdóttir hárgreiðslumeistari:
Viðhorf heimastjómarmanns til heilbrigðismála
Hreinlæti á nærri öllum sviðum mannlegs lífs er undirstaða þess
að hindra útbreiðslu sjúkdóma og kemur í veg fyrir eyðileggingu
matvæla. Persónulegt hreinlæti hvers og eins er mjög mikilvægt,
bæði fyrir heilsu hans sjálfs og þeirra sem hann umgengst.
Skortur á hreinlæti etur orsakað illa lyktandi einstakling sem er
til óþæginda fyrir aðra.
Óhreinlæti í sambandi við matar-
gerð getur orsakað mikla skemmd á
heilsu með matareitrun og gífurlegt
tjón á verðmætum. Allir vita hve
mikið tjón getur orðið á heilsu
manna ef hreinlæti skortir á sjúkra-
stofnunum.
Heilsuvemd hverrar manneskju
byrjar strax við frjóvgun eggs í móð-
urkviði. Heilbrigði hvers einstak-
lings veltur að verulegu leyti á
hvernig næringu móður á með-
göngutíma er háttað. Komið hefur í
Ijós nýlega að tiltölulega lítil neysla
áfengis, tóbaks eða lyfia getur haft
verulega slsem áhrif á þroska ein-
staklings alveg frá upphafi. Andleg
uppbygging hvers einstaklings byrjar
strax við fæðingu, en ég hef heyrt því
haldið fram að hún byrji nokkuð fyrr.
Það uppeldi og viðmót sem einstak-
lingur hlýtur í uppvexti hefur úrslita-
áhrif á andlega heilsu hvers einstak-
lings og þau áhrif sem hver verður
fyrir í uppvexti geta varað alla ævi. Ég
hef rætt við fólk sem starfar við fé-
lagslega þjónustu og eftir því sem
það segir eru t.d. þeir unglingar sem
lenda á glapstigum svo til eingöngu
þeir sem hafa farið á mis við þá að-
hlynningu og hlýju sem þeim er
nauðsynleg. Yfirgnæfandi meirihluti
þeirra kemur frá heimilum í upp-
lausn, sérstaklega vegna diykkju-
skapar eða eiturlyfjavandamála
heima fyrir.
Ákveðin lágmarkshreyfing er hverj-
um manni nauðsynleg til að halda
góðri heilsu. En í þessu sem öllu
Höfundur er í 4. sæti á
H-listanum í Reykjavík
öðru er skammt öfganna á milli.
Mikið er um það að æfingar gangi of
langt og gæti það orðið til þess að
eyðileggja meira en það sem ætlað er
að bæta.
Nýjustu rannsóknir í sambandi við
hreyfingu benda til þess að tíma-
lengd á dag við hvers konar rösklega
hreyfingu sé um það bil hálftími. En
þessara rannsóknir benda til þess að
verulega mikil hreyfing umfram
þennan tíma efi ekki neina viðbót við
þau æskilegu áhrif sem hreyfingin
hefur.
Næring hvers einstaklings hefúr
mikil áhrif á heilsu og vellíðan hvers
manns. Þrátt fyrir verulega miklu
meiri þekkingu í næringarfræði en
nokkum tíma áður virðist hættan í
sambandi við ýmis aukefni í matvæl-
um hafa aukist en ekki minnkað. Gíf-
urlegt magn alls konar aukefna er nú
notað í sambandi við framleiðslu og
ræktun matvæla, sum þessara efna
eru lítið og jafnvel ekki rannsökuð
með tilliti til þeirra áhrifa sem þau
geta haft á þá sem neyta þeirra. í dag
er það nánast útilokað jafnvel fyrir
sérfræðinga að komast hjá því að
neyta óæskilegra efria í matvælum.
Svo mikil breyting hefur orðið á í
sambandi við fyrirbyggjandi aðgerðir
vegna sjúkdóma að telja verður það
algjöra byltingu. Með sama áfram-
haldi á aðgerðum til þess að hindra
sjúkdóma virðist líklegast virðist lík-
legast að flestir sjúkdómar sem hrjáð
hafa mannkynið frá örófi alda verði
nánast horfnir hjá næstu kynslóð-
um. En nýir sjúkdómar virðast
spretta upp jafhóðum og þeir gömlu
hverfa og virðast þeir vera enn flókn-
ari en þeir sem fyrir voru. Það er eins
og nýir sjúkdómar geti alltaf ögrað
þeirri tækniþekkingu sem við búum
við hverju sinni.
Umhverfisvernd verður æ mikil-
vægari eftir því sem lengra líður.
Gífurleg framleiðsla á alls konar eit-
urefnum á sér stað úti um allan
heim. Milljónum tonna af efnaúr-
gangi er ausið út í náttúruna á
hverri klukkustund allt árið um
kring. Einnig og ekki síst er gífurleg
hætta frá kjamorkuverum en úr-
gangur frá þeim getur tekið árþús-
undir að verða óskaðlegur. Fram-
leiðsla á flúorkolefnum er um það
bil að eyða ósonlagi jarðarinnar
með afleiðingum sem eru sennilega
þær að mögulega getur það eytt öllu
lífi á jörðinni.
Byggja verður gífurlega öfluga sam-
stöðu sem flestra manna og þjóða
veraldarinnar til að snúa við þeirri
hættulegu þróun sem á sér stað.