Tíminn - 18.04.1991, Page 10
10 Tíminn
Fimmtudagur 18. apríl 1991
Biskupinn á
faraldsfæti
Ólafur Skúlason biskup og Ebba
Siguröardóttir kona hans veröa viö-
stödd þegar George Caret veröur
settur inn í embætti erkibiskups í
Kantaraborg á föstudaginn. Á sum-
ardaginn fyrsta vísiterar biskup ís-
lenska söfnuðinn í London.
Mikill fjöldi biskupa, víöa að úr
heiminum verður viðstaddur þegar
hinn nýi biskup anglíkönsku kirkj-
unnar í Kantaraborg verður settur í
embætti.
Hr. Ólafur Skúlason mun síðan
sitja fund með nýja erkibiskupnum
sem höfuðbiskupum Norðurlanda
hefur verið boðið til. Kirkjur á
Norðurlöndum og enska bikupa-
kirkjan eiga um þessar mundir við-
ræður um trúmál, skipulag og aukið
samstarf.
Á sumardaginn fyrsta vísiterar hr.
Ólafur íslenska söftiuðinn í London
og predikar við guðsþjónustu hans.
Selkórinn úr Reykjavík, sem nú er á
ferðalagi í Englandi, syngur við
guðsþjónustuna. Séra Valgeir
Astráðsson þjónar fyrir altari ásamt
Jón A. Baldvinssyni sendiráðspresti.
Frá London halda biskupshjónin til
Þrándheims í Noregi þar sem Finn
Wagle verður vígður Niðarósabisk-
up.
Guömundur Bjamason og hans fólk kynnir niöurstöður heilbrígðisdag-
anna. Tímamynd: Ámi Bjama.
meirí háttar
osm
T1LB0Ð
stendur tíl 19. apiíl
á 1 kg stykkjum af brauðostinum góða.
Verð áður:
kr. 794/kílóið
Tilboðsverð:
O
o
1U1U1U
200 kr.
afsláttur pr. kg.
Q
O
o
*
D
<
C O
o
d
X(—1 F\
C 0 Q
1 O
O I o
o \/ l Q
Afrakstur heilbrigðisdaga í skólum landsins:
Nemendur meö-
vitaðri um
nauðsyn hollrar
næringar
„Þetta virðist hafa haft töluverð áhrif á nemendur á breytni til holl-
ari lífsvenja. Þeir hafa meiri áhuga á að borða hollan mat og á að
hreyfa sig og gera meira af hvoru tveggja.“
Þetta sagði Þórólfur Þórlindsson
hjá Rannsóknastofnun uppeldis- og
menntamála um fyrstu niðurstöður
úr könnun sem var gerð vegna svo-
kallaðra heilbrigðisdaga í fimm
skólum í landinu. Fyrr í vetur sagði
Tíminn frá þessum dögum. Þeir eru
þáttur í þeirri manneldis- og neyslu-
stefnu sem unnið hefur verið að í
heilbrigðisráðuneytinu í tíð Guð-
mundar Bjarnasonar. í vikunni var
farið yfir útkomuna úr helstu þátt-
um þessara daga með skóiastjórum
skólanna sem tóku þátt í verkefn-
inu. Allir skólastjórarnir sögðu að
nemendurnir hefðu verið spenntir
fyrir verkefninu.
Skólarnir fimm sem tóku þátt í
heilbrigðisdögunum eru Öldusels-
skóli í Reykjavík, Lækjarskóli í
Hafnarfirði, Grunnskólinn í Borgar-
nesi og Barnaskólinn og Gagnfræða-
skólinn á Selfossi. Meðan dagarnir
stóðu yfir var í starfi þeirra lögð
áhersla á nauðsyn þess að borða
kjarngóðan morgunmat og á hreyf-
ingu og útiveru. „Ég held að við ger-
um marga hluti í þjóðfélaginu sem
eru ekki nándar nærri eins nauðsyn-
legir eins og þetta. Vegna þess að
heilsan er ekki einkamál hvers og
eins,“ sagði Guðmundur Sigurðs-
son, skólastjóri í Borgarnesi.
Þórólfur Þórlindsson segir að ekki
sé hægt að segja til um hvort heil-
brigðisdagarnir hafi varanleg áhrif.
„Það hafa verið hugmyndir um að
fylgja þessu eftir með könnun eftir
nokkra mánuði. Þá til þess að vita
hvort áhrifin séu horfm. Það fer
mikið eftir því hverjar aðstæður
krakkanna heima fyrir eru." -sbs.
Akureyri:
Gunnlaugur Garðars-
son kjörinn prestur
í Glerárprestakalli
Séra Gunnlaugur Garðarsson, aö-
stoðarprestur í Garðabæ, var á
sunnudag kjörinn prestur í Glerár-
prestakalli á Akureyri. Átján kjör-
menn tóku þátt í atkvæðagreiðsl-
unni og þurfti réttkjörinn prestur
að fá a.m.k. 50% atkvæða.
Aðrir umsækjendur voru séra
Flosi Magnússon, prófastur á Bíldu-
dal, og séra Svayar Alfreð Jónsson,
sóknarprestur í Ólafsfirði.
Að sögn Inga Þórs Jóhannssonar,
formanns sóknarnefndar, hlaut séra
Gunnlaugur Garðarsson lögmæta
kosningu, og mun hann væntanlega
taka við starfi sóknarprests í Glerár-
prestakalli 1. júní nk.
Séra Gunnlaugur Garðarsson lauk
stúdentsprófi frá MR 1977. Hann
lauk guðfræðiprófi frá Háskóla ís-
lands árið 1984, og stundaði jafn-
framt nám í sálarfræði og heim-
speki. Hann var vígður í september
1984, og þjónaði sem sóknarprestur
í Þingeyrarprestakalli til ársins
1986. Séra Gunnlaugur stundaði
framhaldsnám í guðfræði við
Vancouver School of Theology
1986- 88, og hefur síðan þjónað sem
aðstoðarprestur í Garðaprestakalli.
Eiginkona hans er Sigríður Hall-
dórsdóttir, lektor í hjúkrunarfræði
við Háskóla íslands.
hiá-akureyri.
1