Tíminn - 18.04.1991, Side 17
Fimmtudagur 18. apríl 1991
Tíminn 17
ÍÞRÓTTAFÉLAG HEYRNARLAUSRA (DEAF SPORTCLUB).
Klapparstíg 28 ■ 101 Reykiavik. ísland - Sími: 91-13560 ■ Kennilala: 600580-0279
Dregið var í happdrætti Iþróttafélags heyrnar-
lausra 27. mars 1991. Vinningsnúmer eru þessi:
1. 3481 8. 4571
2. 2639 9. 1946
3. 1393 10. 1374
4. 5400 11. 2123
5. 5401 12. 1937
6. 6478 13. 768
7. 2009 14. 2058
Vinninga ber að vitja innan árs.
Vinningshafar hafi samband við íþróttafélag
heyrnarlausra, Klapparstíg 28 í Reykjavík. Sími
91- 13560.
Sumarhjólbarðar
Hágæða hjólbarðar
HANKOOK frá KÓREU
Á lágu verði.
Mjög mjúkir
og sterkir.
Hraðar
hjólbarðaskiptingar.
Barðinn h.f., Skútuvogi 2
Sími: 30501 og 84844
BÍLALEIGA
AKUREYRAR
Traustir hlekkir
I sveiganlegri keðju
hringinn í kringum landið
Bflaleiga meö útibú
allt í kringum landið,
gcra þér mögulegt að lcigja bíl
á cinum stað
og skila honum á öðruni.
Nvjustu
MITSUBISHI
bílarnir alltaf til taks
Reykjavík: 91-686915
Akureyri: 96-21715
Borgarnes: 93-71618
ísafjörður: 94-3574
Blönduós: 95-24350
Sauðárkrókur: 95-35828
Egilsstaðir: 97-11623
Vopnafjöröur: 97-31145
Höfn í Hornaf.: 97-81303
ÓDÝRIR
HELGARPAKKAR
OG
dælur
,_FRÁ
BENSÍN EÐA DIESEL
Mjög gott verð
Rafst.: 600-5000 W
Dælur: 130-1800 l/mín
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
Slmi 91-674000
K
JOHNNY CARSON
Johnny Carson er orðinn gam-
all í hettunni í „Tonight Show“.
En nú finnst stjómendum NBC
kominn tími til að hann taki
pokann sinn.
Einhver langlífasti sjónvarps-
þátturinn í Bandaríkjunum er
„Tonight Show“, sem NBC- sjón-
varpið sýnir um lágnættið.
Stjórnandi þáttarins hefur verið
um árabil Johnny Carson og að-
stoðarmaður hans Ed McMahon.
Nú berast þær fréttir að stjórn-
endur NBC vilji skipta um
stjórnanda og beri því við að þeir
fari halloka í samkeppninni um
athygli áhorfenda — og auglýs-
enda. Nýi stjórnandinn, sem hef-
ur orðið fyrir valinu, er Jay
Leno, sem Johnny þjálfaði tii að
vera staðgengill sinn þegar á
hefur þurft að halda.
Johnny er sagður bæði sár og
reiður, en forsvarsmenn NBC
segja að hann sé einfaldlega út-
brunninn. Nú sé komið að því að
endurnýja samninginn við hann
og þess vegna kjörið tækifæri til
að gera breytingar. En þeir vilja
líka að þær verði sem sársauka-
minnstar fyrir þessa gamalgrónu
sjónvarpsstjörnu. Gallinn er
bara sá að fréttirnar um breyt-
ingarnar iáku út áður en tími
vannst til að ræða þær við
Johnny.
Enn erfiðara verður fyrir að-
stoðarmanninn Ed McMahon að
aðlagast breytingunni. Hann
hefur fyrir löngu lýst því yfir að
fari Johnny fari hann sjálfur líka.
Og nú hefur hann orðið sér úti
um fleiri vandræði. Hann er
sagður farinn að drekka ótæpi-
lega og sumum finnst hegðun
hans að undanförnu ekki eins og
best væri á kosið. Þar ber hæst
trúlofunarslit hans við krabba-
memsveika konu og daður síðan
við unga stúlku.
Það virðast því dimmir dagar
framundan hjá þeim félögum
núna og margir sjónvarpsáhorf-
endur eiga áreiðanlega eftir að
sakna þessa fasta punkts úr til-
verunni, „Tonight Show“ með
þeim Johnny Carson og Ed
McMahon, sem hefur fýlgt þeim
inn í draumalandið í áratugi. Við
skulum vona að þeir verði ekki
svefnlausir!
Lúxusvilla þeirra Cheryl Ladd og Brians Russell hefúr verið til sölu í eitt ár á 3,4 milljónir dollara. Nú hef-
ur verðið verið lækkað niður í 2,8 milljónir, en enn er húsið óselt
Kvikmyndastjömumar
verðalíka gjaldþrota!
„Það er dapuriegt að sjá allt, sem maður hefúr þrælað fýrir, hverfa,"
segir Cheryl Ladd, sem nú þarf að segja skiiið við lúxusinn í Holly-
wood og setjast að uppi í sveit
Nú er ástandið svart hjá leikkon-
unni Cheryl Ladd og framleiðand-
anum Brian Russell, svo svart að
þau hafa ekki séð sér annað
vænna en að segja skilið við
Hollywood og flytja í sveitasæluna
í Washington-ríki.
Húsið þeirra er búið að vera til
sölu í eitt ár, en er enn óselt og
það bætir ekki úr skák í peninga-
málum þeirra hjóna, en það eru
einmitt þau sem hafa orðið þeim
þungbær. Þau eru búin að biðja
um að bú þeirra verði tekið til
gjaldþrotaskipta, þar sem þau lýsa
yftr 6 milljón dollara skuldum, á
móti eignum upp á 4,6 milljónir
dollara. í skjölunum kemur fram
að þau hafa m.a.s. orðið að selja
aðgangskortið sitt að fínum
sveitaklúbb á 22,500 dollara.
Verðið á húsinu þeirra hefur ver-
ið lækkað úr 3,4 milljónum doll-
ara í 2,8 miiljónir, en lækkunin
hefur ekki dugað til. Þó er húsinu
lýst þannig að það sé byggt í
„frönskum sveitasetursstfl, um-
kringt háum steinvegg og með
stóru h!iði“. Þar eru fimm svefn-
herbergi, vinnukonuíbúð, gesta-
hús, bókasafn og sundlaug, og út-
sýnið er stórkostlegt yfir borgina
og hafið. Cheryl er sögð sjá mjög
eftir húsinu.
Peningaháskinn hefur gengið
svo nærri hjónabandi þeirra, sem
hefur staðið í tíu ár, að Cheryl er
sögð hafa margsinnis yfirgefið
mann sinn, en aiitaf komið aftur.
Og nú eru þau hjónin komin að
þeirri niðurstöðu að ef þau eigi að
komast út úr vandræðunum verði
þau að flytjast burt frá glæsilífinu
f Hollywood og taka upp fábreytt-
ari lifnaðarhætti. Washington-
ríki varð fyrir valinu til búsetu.
Cheryl er nú að leika í sjónvarps-
myndinni „Changes", sem gerð er
eftir sögu Danielle Steele. Hún er
líka komin á skrá í aðalhlutverk í
prufuþátt að nýjum sjónvarps-
þáttum. Þar verður mótieikari
hennar John Ritter.