Tíminn - 27.04.1991, Blaðsíða 6
T HELGIN
REYKJAVÍK
GARÐABÆR
,-HAFNARFJÖI
SORPA (Q
Uröunarstaöur
Áifsnesi
Móttöku- og flokkt
Gufunesi
PAVOGUR
KJALABNESHREPPJ
AHREPP
ELTJARNARNES
Laugardagur 27. apríl 1991
Laugardagur 27. apríl 1991
HELGIN
Á ferð
og flugi
Árni Hannes
Kristinsson
Franskt
meistara-
stykki!
Cyrano de Bergerac ★★★★
Aðalhlutverk: Gerard Depardleu (Green
Card), Anne Brochet (Buisson Ardent, La
Nuit Bengali), Vincent Perez (Home of Passi-
on), Jacques Weber, Roland Bertin (Diva).
Leikstjóri: Jean-Paul Rappeneau.
Franskt tal, íslenskur texti.
Sýnd í Regnboganum.
Það er erfitt er að spara orðin þegar
lýsa á nýjustu mynd Jean-Paul Rap-
peneau sem byggir á sögunni um
skáldið, elskhugann, ofitrmanninn og
snillinginn Cyrano de Bergerac, því
myndin er hreint út sagt stórkostleg.
Flestir þekkja söguna af Cyrano og
margir hafa séð eldri myndir byggðar
á sögunni um hann. Sjálfur segir
Rappeneau að myndin sé sín útgáfa á
þessari sögu, en ekki upprunaleg
söguútgáfa Rostands. Leikritið um
Cyrano hefur gengið í fjölmörg ár út
um alla Evrópu og flest öll ríki hafa
skapað sína eigin útgáfu af honum,
sem þau telja þá bestu.
Rappeneau hafði haft þessa hug-
mynd lengi í maganum að gera kvik-
mynd um ævi Cyranos, en langur
tími leið þar til hann hafði safnað að
sér nógu hæfu starfsliði til þess að
hefja tökur myndarinnar. í þetta sinn
ætlaði hann að gera mynd um goð-
sögnina, sem yrði ólík þeim fyrri út-
gáfum sem voru á boðstólum, og ætl-
aði ef vel til tækist, að skáka
leiksviðsútgáfum af sögunni sem
hingað til hafði þótt það besta.
En fyrir þá sem ekki þekkja sögu-
þráðinn þá er hann í stuttu máli saga
af manni sem verður ástfanginn af
frænku sinni (Roxane), en þorir ekki
vegna útlit síns að tjá henni ást sína.
Roxane verður ástfangin af ungum
manni að nafni Christian, sem Cyr-
ano hefur undir sínum verndarvæng,
og leiðir hann saman hana og þennan
unga mann í því skyni að koma á með
þeim ástum. En Christian, sem ekki
reynist vera sá andans maður sem
hún leitar að, þarfnast hjálpar Cyran-
os til þess að komast yfir hina ungu
mey og saman skapa Cyrano og hann
hinn fullkomna mann fyrir stúlkuna,
andlit og líkama Christians, en til-
finningar og anda Cyranos.
Franski leikarinn Gerard Depardieu
var valinn í hlutverk Cyranos og hef-
ur hann látið frá sér fara að það að
leika Cyrano sé sitt stærsta verkefni
til þessa og í leiðinni hið mikilfeng-
legasta. Depardieu sýnir meistara-
takta og þvílík túlkun á hlutverki hef-
ur ekki oft sést áður. Hann var
tilnefndur til Óskarsverðlauna í ár
fyrir bestan leik í aðalhlutverki, en
hlaut ekki hnossið og er það víst
vegna þess að hann var viðriðinn
nauðgunarmál sem vitni þegar hann
var 9 ára. Þetta þótti ekki viðeigandi í
landi tækifæranna og var hann því
ekki sá útvaldi, þrátt fyrir hreint út
sagt stórkostleg tilþrif.
Af öðrum leikurum má nefna Anne
Brochet, sem er ung og efnileg leik-
kona sem túlkar hina fögru Roxane á
mikilfenglegan hátt, og Roland Bert-
in sem er betur þekktur fyrir leik sinn
í kvikmynd Jean- Jacques Beneix, Di-
va.
Myndin er sú dýrasta sem Frakkar
hafa gert og talað var um að hún
hefði kostað ríflega einn milljarð ísl.
kr. og segir það nokkuð um það traust
sem Rappeneau hefur meðal franskra
fjárútlánsmanna.
Framhald á bls. 17
Flight of the IntruderA^l/2
Aðalhlutverk: Brad Johnson (Top Gun),
Willem Dafoe (The Triumph of the Spirit),
Danny Glover (Lethal Weapon, Predator 2).
Leikstjóri: John Milius.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd f Háskólabió.
Myndin gerist sjö árum eftir upphaf
Víetnamstríðsins um borð í flugmóð-
urskipi fyrir utan strönd Víetnams þar
sem Camparelli yfirforingi (Danny Glo-
ver) ræður ríkjum. Þama um borð er
margt ungra, fífldjarfra flugmanna sem
margir halda að það sé í þeirra höndum
að sigra stríðið. Einn af þessum ungu
flugmönnum tekur stórtæka ákvörðun
um að ráðast á Hanoi þrátt fyrir algert
árásarbann á þá borg. í því skyni fær
hann með sér forna stríðshetju (Willem
Dafoe), sem er öllum hnútum kunnug-
ur, til þess að fara í árásarleiðangur í
leyfisleysi yfir borgina.
Brad Johnson, sem fer með hlutverk
flugmannsins unga, er á kunnugum
slóðum hér, því ekki er langt síðan
hann lék svipað hlutverk í myndinni
Top Gun, sem fjallaði um svipað efni,
og sama má segja um leikstjóra mynd-
arinnar sem virðist hafa stríð og stríð-
stól til fyrirmyndar við gerð sinna kvik-
mynda, því síðasta mynd hans, The
Hunt for Red October, fjallaði einmitt
um kafbát og áhöfn hans í flota Banda-
ríkjahers. Skyldi hann hafa verið í
hemum?
Söguþráðurinn var langdreginn til að
byrja með, en er líða tók á myndina fór
hún að rísa upp úr meðalmennskunni
og bar þar hæst leikur Willems Dafoe í
hlutverki hins gamalreynda flugkappa.
Stríð verður ekki bara unnið á samn-
ingaborðinu, heldur líka með framtaki
einstaklingsins sem berst fyrir ættjörð
sína sé ég út sem boðskap myndarinnar
og eftir það er ég sannfærður um að
John Milius, leikstjóri myndarinnar,
hefur einhvemtímann verið í hernum.
f heild er þetta hin fínasta afþreying
með ágætis persónusköpun þar sem
Willem Dafoe fer á kostum. ÁHK.
GREEN CARD
Green Card^*l/2
Aðalhlutverk: Gerard Depardieu (Cyr-
ano de Bergerac), Andie Macdowell
(Sex, Lles and Videotapes), Bebe Neu-
wirth, Gregg Edelman, Danny Gutterm-
an.
Leikstjóri: Peter Weir (Dead Poets Soci-
ety).
Sýnd i Bióborginni.
Fallegar ástarsögur hafa í gegn-
um tíðina átt upp á pallborðið hjá
áhorfendum. Ástin er einn af
þessum hlutum sem alltaf kemur
til með að fylgja manninum,
hversu langt sem hann kemst á
þróunarbrautinni, en þó er hún
eins misjöfn eins og mannfólkið
er margt.
Peter Weir var fyrir löngu búinn
að skrifa handritið að Green Card,
en Gerard Depardieu komst ekki
vegna anna til þess að leika í
myndinni. Weir skrifaði söguna
löngu áður en hann hitti Depardi-
eu og hafði hann sérlega í huga
við handritsgerð.
Bronté Parrish (Andie Macdo-
well) er útskrifaður garðyrkjusér-
fræðingur sem giftist Frakkanum
Georges Fauré (Gerard Depardi-
eu) í því skyni að eignast íbúð
sem hún ætti ekki kost á annars.
Fauré er lífsreyndur innflytjandi
sem alls ekki passar inn í líf
Bronté, þarfnast dvalarleyfis í
Bandaríkjunum og verður að
gifta sig á pappírum til þess að að
óskum hans verði. Útlendingaeft-
irlitið fer að gramsa í hans málum
og verður það því nauðsyn ein að
Fauré flytji inn á Bronté. Augljóst
er að þetta á eftir að enda með
ósköpum.
Peter Weir er hér með sína fyrstu
gamanmynd og er þetta því dálít-
ið öðruvísi en við eigum að venj-
ast frá manni sem hefur sent frá
sér hverja dramamyndina á fætur
annari. Það sem vakti athygli
mína sérstaklega var mjög
smekkleg tónlist sem gaf mynd-
inni virðulegan blæ, og það átti
sinn þátt ásamt stórgóðum leik
Depardieu, sem eins og oft áður
fer létt í gegnum sitt hlutverk.
Hann virðist hreint og beint ekk-
ert hafa fyrir hlutunum og lífgar
mjög upp á myndina og sýnist
manni að Weir hafi skrifað nokk-
uð markvisst þegar hann skapaði
hlutverk Depardieu. ÁHK.
Gámastöövar
Gámastöðvar gegna mikilvægo
hlutverki í nýrri meöhöndlun úrgangs. Þærtaka
á móti rusli endurgjaldslaust. í Gufunesi verður
hins vegar tekið á móti stærri förmum frá
atvinnurekstri samkvæmt gjaldskrá. Stöðvarnar
verða allar komnar í notkun í lok júlí
á átta stöðum alls:
1 / Mosfellsbæ, nærri hesthúsabyggð
2 Viö Gylfaflöt
3 Á Ártúnshöföa, viö Sævarhöfða
4 í Seljahverfi, sunnan Breiðholtsbrautar
5 Viö Ánanaust, nálægt gatnamótum
Grandagarös og Mýrarvegar
6 Á Sléttuvegi, vestan Borgarspítala
7 í Fífuhvammslandi í Kópavogi
8 í Molduhrauni, á mótum Garðabæjar og
Hafnarfjarðar
Nýtt sumar
Wú í sumar mörkum við þáttaskil í umhverfismálum.
íbúar allra sveitarfélaganna á höfuöborgarsvæðinu
sameinast í stórátaki til bættrar meðhöndlunar úrgangs
og nýrra viðhorfa.
Opnir sorphaugar heyra nú sögunni til en fullkomin
móttöku- og flokkunarstöð úrgangs sniðin að íslenskum
aöstæðum - SORPA tekur til starfa.
/ið berum ábyrgð á úrgangi
W sem við framleiðum
íbúar höfuðborgarsvæðisins framleiða 125 þúsund
tonn af úrgangi á ári - um 860 kg á hvern. Þessu
gífurlega magni ber okkur að koma fyrir þannig að
ekki skaði lífríkið - framtíðin er í húfi.
Úrgangurinn er af misjafnri gerð og fær nú aðgreinda
meðhöndlun:
• Hluti úrgangsins verður endurnýttur
• Spilliefni verða meðhöndluð þannig að þau mengi
ekki lífríkið
• Húsasorp verður pressað í aöeins 10% af upphaf-
legu rúmmáli, vírbundið og urðað
Leiöbeiningarrit hafa veriö send á vinnustaöi
og heimili.
Þaö er áríðandi aö allir lesi þau vel og fylgist meö
auglýsingum um einstök atriöi.
Þeir sem ekki hafa fengiö leiöbeiningarnar eöa
óska frekari upplýsinga hafi samband viö
skrifstofu SORPU.
í umhverfisvemd
Kynntu þér hlutverk þitt
Úrgangur verður nú flokkaður bæði í heima-
húsum og á vinnustöðum og meðhöndlaður á
viðeigandi hátt. Mikilvægt er að allir kynni sér strax:
• Flokkun úrgangs og meðferð
• Sérstaka meðferð umhverfisspillandi efna
• Möguleika til endurnýtingar
• Ruslagámaþjónustu
Petta fer ekki í sorptunnuna
eöa holræsakerfiö ^
Endurnytingarefni:
Timbur - fer á gámastöðvar eða beint til SORPU
Garöaúrgangur - nýttur í heimagarði eða afhentur
á gámastöð
Prentpappír - afhentur krossbundinn á gámastöð
Drykkjarumbúðir - skilað eins og áður
Málmar - fara til endurnýtingaraðila
Spilliefni:
Það er lífsnauðsyn að allir skilji að spilliefni eyði-
leggja lífríkið og mega þess vegna alls ekki fara
út í holræsakerfið eða í sorptunnuna. Þeim ber
undantekningarlaust að skila á rétta staði, gámastöð
eða í efnamóttöku SORPU.
Algeng spilliefni eru t.d. rafhlöður, lyf, eitursýrur,
málning, lökk og leysiefni, olíuúrgangur, frostlögur,
hreinsiefni o.m.fl.
Önnur efni sem alls ekki mega fara með heimilissorpi
eru t.d. múrbrot, steinefni, vírar og tæki.
RPA
SORPEYÐING HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS bs.
Gufunesi, 112 Reykjavík, sími 676677
SORPA - er eitt mesta umhverfisátak á íslandi.
Petta geysistóra og mikilvæga verkefni kostar fé, vinnu
og skilning - nýjan skilning á þeirri ábyrgö okkar allra
að skila hreinu landi - betra landi til næstu kynslóöa.
KJALARNESHREPPUR
MOSFELLSBÆR i/REYKJAVIK ö SELTJARNARNES
KOPAVOGUR
BESSASTAÐAHREPPUR HGARÐABÆR ilHAFNARFJORÐUR