Tíminn - 27.04.1991, Blaðsíða 8
16 T HELGIN
Laugardagur 27. apríl 1990
í TÍMANS RÁS wm
ATLI :«j. ]
MAGNÚSSON: w
Hinn fagri samhljómur
Mikil stassjón og merkileg er
Seðlabanki íslands. Hann er
sagður hafa í upphafi verið ein
einasta skúffa í skrifborði á
einhverri stofnun, en tók síð-
an að þenjast út smám saman,
uns hann nú er orðinn að því
áhrifaafli, sem snertir hvert
heimili og hvern einstakling.
Saga hans er þannig ekki ólík
því er segir frá í sálminum „í
fornöld á jörðu“: Frækornið
smáa varð að miklu tré er á
endanum breiddi lim sitt yfir
lönd og höf „á lifenda bústað
og dáinna gröf'. Já, guðsríki
spratt upp af svo smáu, eins
og Seðlabankinn varð til úr
einni skúffu. Og líkt og við
skynjum ekki alltaf guðsríki,
sem þó er í öllum hlutum, er
þessi banki oss sínálægur og
stjórnar athöfnum okkar á
næstum yfirskilvitlegan hátt.
Hann á það líka sameiginlegt
með trénu í sálminum að
vindar og haglél hafa um hann nætt, án
þess að hann haggaðist. Svo var reyndar
frá upphafi, eins og þegar afstýra átti að
þessi ábúðarmikla höll risi á Arnarhóln-
um. En sem betur fór stóðu að honum
kraftar sem voru öllum andstæðingum
ofurefli og ekkert mun fá honum haggað
á veglegri undirstöðu hans héðan af, sem
minnir á Atlantshafsmúrinn, sem þýskir
reistu á stríðsárunum.
Ekki er þó víst að öllum yrði greitt um
svör ef þeir ættu að skilgreina það sem
fram fer innan hinna miklu veggja hans.
Þó vita menn að þar er iðkuð mikil reikni-
speki og að það er undir því komið hvem-
ig til tekst með margföldunina og deiling-
una þar, samlagninguna og frádráttinn,
hve miklu þjóðin hefur úr að moða —
hvort herða þarf sultarólina eða hvort
kaupa má margréttað í hvert mál. Til
þessa þarf heil ókjör af blýöntum, sem að
sögn standa stutt við, því starfsmennirnir
naga þá í ákafa, er þeir leggjast sem dýpst
við að reikna. Sumir halda líklega einnig
að í'bankanum sé rekin prentsmiðja, sem
þrykki seðla nótt sem nýtan dag. En þótt
sú sé ekki bókstaflega raunin, þá er bank-
inn eigi að síður forleggjari peningaprent-
unar og á sér stóra lagera af
þessu eftirsótta prenti og á því
þarf ekki að halda útsölur eft-
ir jólin.
Liggja ætti í augum uppi að
það þarf að fara vel um alla út-
reikningana, peningana og þá
sem um allt þetta véla. Því
mun afar fagurt um að litast í
Seðlabankanum, enda meiri
líkur á því að menn komist að
jákvæðum niðurstöðum, þeg-
ar umhverfi þeirra er aðlað-
andi. I bankanum þarf að
halda móttökur og þá er
sömuleiðs áríðandi að gest-
irnir kunni vel við sig og fái
þannig aukið traust á stofn-
uninni og því er hún stendur
fyrir. Til að stuðla að þessu var
á dögunum keyptur dýrindis
flygill í móttökusal bankans,
er kostaði litlar tvær og hálfa
milljón. Einhverjir voru víst
að finna að þessu, þar sem
ágætir flyglar fást á aðeins
hálfa milljón og forkunnargott hljóðfæri á
milljón minna en bankaflygillinn kostaði.
En það gat ekki dugað. Flygillinn varð að
vera af þeim „standard", sem menn sjá á
sviði mestu hljómleikasala heimsins, boð-
legur færustu einleikurum. Því ætti að
nást hinn göfugasti samhljómur er krist-
alglösin klingja hvert við annað í veislum
stofnunarinnar framvegis. Og þegar
menn fara að syngja „Ó, Jósep, Jósep“ í
veislulokin eða „Hann Árni er látinn í
Leiru“, þá mun það ekki verða flyglinum
að kenna ef einhver fer út af laginu. Já,
fínt skal það vera.
Gettu nú
Hér fyrir viku var spurt um
brú yfir vatnsfall og var
þetta Þjórsá við Búrfell.
Hér sjáum við sögufræg-
an stað suður undir Eyja-
fjöllum. Hver er hann?
V3 1*1 — É- L* > «r ar cn 3 pc s
Ui *— < 'Z. c* B R
Jl SC -> <x iC jE cr 3 U. E
sD Á V) h- <c r4 3 R E
u. r4 r~3 vQ E H 3 u
O <c — c/? l HH BE E H
.1 Æ ra
lO _ E 0 U- H P □
— 0- jr H H V3 i <c H 5 Q E5 Q QQ DE □ □ m H H E3 E "5 >
< 0 — S <5 — P E
J 3 s *4 3 r i E ko! N
«r 0 72- 21 E u. 3 U E
— u. T 1 J ■ 1 uj 1 3^ a i E H E i1 H H u ■ l- H H 0 H H B 19 H HB BB E
c^> £0 3 co t- B 5
CO t- — y m 0 <1
U4 h * 0? m 0
□ JJZ
KROSSGÁTA