Tíminn - 01.05.1991, Blaðsíða 2

Tíminn - 01.05.1991, Blaðsíða 2
2 Tíminn Miðvikudagur 1. maí 1991 Skýrsla um Lánasjóð íslenskra námsmanna: Lánasjóðurinn stendur undir öllum skuldbindingum sínum Ríkisendurskoðun hefur birt skýrslu um stöðu Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Hún var unnin að beiðni stjórnar sjóðsins. Spurt var hvort afskriftarhlutföll, sem notuð hafa verið á ársreikningum sjóðsins, endurspegli þær takmarkanir sem settar hafa verið á end- urgreiðslur námslána. Og hvort bókfæra eigi skuldabréfaeign sjóðs- ins með hliðsjón af því að bréfín bera enga vexti. Síðari spurningin snýst í raun um það eitt hvernig færa skuli fé til bók- ar. Ríkisendurskoðun telur ekki rétt að færa til núvirðis skuldabréfaeign sjóðsins, þar sem slíkt samræmist ekki þeim reikningsskilavenjum sem viðhafðar hafa verið hjá ríkis- stofnunum. Fyrri spurningin snertir frekar fjárhagsstöðu sjóðsins, eðli hans og tilgang. Helsta niðurstaða Ríkisend- urskoðunar er að sjóðurinn getur staðið undir öllum núverandi skuld- bindingum sínum með eigin fé. Af- skriftarhlutföll sem notuð hafa ver- ið endurspegla nokkuð vel afföll af eldri lánum. Hins vegar þurfa að eiga sér stað nokkrar breytingar á afskriftum nýrra lána. Er þá rétt að segja aðeins frá sjóðn- um sjálfum. Allir þeir sem stunda nám á háskólastigi geta fengið lán hjá LÍN. Þau eru verðtryggð, en bera enga vexti, enda ætluð til fram- færslu, ekki fjárfestinga. Lánið greiðist á 40 árum. Annars vegar eru fastar greiðslur, hins vegar hlutfall af tekjum. Þar sem einhverjir lán- þega verða óvinnufærir og aðrir falla frá, fær sjóðurinn aldrei allar skuldir greiddar. Þegar núgildandi lög um sjóðinn voru sett, var gengið út frá að 90% af lánum yrðu endur- greidd. Ljóst má vera að mörg ár tekur að byggja sjóðinn þannig upp að hann geti sjálfur staðið undir 90% af öllum útlánum. Það verður ekki fyrr en endurgreidd eru 90% af lánum. Tvennt kemur í veg fyrir það nú. Lán voru til langs tíma óverð- tryggð, og því ekki greidd til baka nema að hluta til. Lánþegum hefur fjölgað. Þess vegna kemst Ríkisendurskoð- un að þeirri niðurstöðu að breyta þurfi afskriftarreglum nýrra lána. Á síðustu árum hefur framlag ríkisins til sjóðsins minnkað. Hann hefur þurft að fjármagna útlán sín með er- lendum lánum. Þau bera vitaskuld vexti. Það gera útlán sjóðsins hins vegar ekki. Þannig er kostnaður rfk- issjóðs við námslánakerfið um 66% af veittum lánum miðað við að eigið fé sjóðsins á hverjum tíma nægi til að standa við skuldbindingar vegna lána. Er þá gert ráð fyrir að vextir af lánum, sem sjóðurinn taki, séu 6%. Ef ríkið stæði við skuldbindingar sínar, héldu forsendur sjóðsins. Hann þyrfti ekki að taka lán, og þyrfti ekki að borga vexti. f skýrslu sinni kannar Ríkisendur- skoðun fjárhagsstöðu Lánasjóðsins nú og næstu 40 ár. Til grundvallar liggur að tekjur hérlendis muni vaxa að meðaltali um 1% á ári. Að munur á tekjum karla og kvenna haldist óbreyttur. Að styðjast megi við könnun Þjóðhagsstofnunar „Tekjuþróun og tekjudreifing á ár- inu 1989“ við mat á tekjum greið- enda. Forsendur Ríkisendurskoðunar eru allar gagnrýnisverðar. Engin sérstök rök hníga til þess að tekjur hækki hér um 1% á ári. Ef þær hækka meira batnar staða sjóðsins. Enn síður hníga rök til þess að munur á tekjum karla og kvenna Steingrímur Hermannsson segir að ríkisstjórn hans skili góðu búi: Grunnur til góðra verka „Ég vona að þessari ríkisstjóm, sem nú er að taka við, takist að byggja á þeim góða grundvelli sem hún tekur við og leiða þjóðina á framfarabraut, því allar aðstæður eru nú betrí til þess en þær hafa veríð um mjög Ianga tíð.“ Þetta sagði Stein- grímur Hermannsson, fráfarandi forsætisráðherra, að loknum síðasta fundi fráfarandi ríkisstjómar með forseta íslands. Steingrímur sagðist ekki óttast að- gerðaleysi eftir að hann hyrfi úr stjórnarráðinu. Hann sagði að það væru vissulega viðbrigði fyrir fram- sóknarmenn að vera í stjómarand- stöðu, en sú andstaða yrði mjög mál- efnaleg. Hann sagðist óska nýrri stjórn góðs og sagðist alls ekki ætla að fylgja henni úr hlaði með bölbæn- um. —SE Jón Baldvin, fyrrverandi og núverandi utanríkisráðherra, brennir frá Bessastööum í Citroénbragga eftir að hafa set- ið tvo ríkisráðsfundi í gær. Timamynd: Pjetur haldist óbreyttur næstu 40 ár. í könnun sinni gekk Þjóðhagsstofnun út frá meðaltekjum allra fslendinga. Almennt má búast við að tekjur há- skólamanna séu yfir meðaltali. Af þessu má ráða að stærri hluti lána verði endurgreiddur en Ríkisendur- skoðun ætlar. Að fenginni gagnrýni em niður- stöður Ríkisendurskoðunar þessar: Lánasjóðurinn getur staðið undir öllum núverandi skuldbindingum með eigin fé. Ef honum hefði verið lokað í árslok 1990 gæti hann staðið við allar sínar skuldbindingar án frekari fjárframlaga úr ríkissjóði. Það að auki gæti hann endurgreitt ríkissjóði rúma 9 milljarða af eigin fé. Ljóst er að á næstu ámm þarf sióðurinn mikil framlög frá ríkinu. Ástæður þess hafa áður verið raktar. Annars lendir hann í vítahring sti- gaukinna lána og vaxtagjalda. Ef út- lán sjóðsins em alfarið fjármögnuð af ríkinu, lækkar kostnaður til þess að verða að lokum 800 milljónir á ári. Fjárhæðin svarar til kostnaðar við rekstur sjóðsins og afföll veittra lána. Eflaust verða einhverjir til þess að veifa þessari skýrslu og heimta vexti á námslán. Miðað við núgildandi endurgreiðslureglur bætir það hag sjóðsins lítið. Með því væri líka gengið á svig við megintilgang hans, að tryggja jafnrétti til náms. Efnalitlum yrði gert erfitt fyrir og settur upp enskur einkaskólasvipur aðalsmanna. Nemendum yrði Ííka án afláts stýrt í þau fög sem hverju sinni em kölluð arðbær. -aá. arandstöðu „Mér líst ifia á þessa ríkisstjóm. 1 verkefnaskránni er hvergi Fyrir því eru ýmsar ástæöur. í minnst á konur. Ekki er að sjá að fyrsta lagi er þessi verkefnaskrá bæta eigi kjör þeirra sérstaklega. hennar ansi óljós. Fyrir kosningar Mér þykir vitaskuld slæmt að í auglýsti Jón Baldvin mildð eftir stjórninni skuli aðeins sitja ein stefnu Sjálfstæðisflokksins. Af kona. Það virðist vera svo að eftlr verkefnaskránni fæ ég ekki séð að því sem ofer dregur í valdakerf- hann hafí fundið hana. Hún er inu, þeim mun færri verða kon- engu skýrari en stefnuskrá Sjálf- urnar. Á sama tima og konur í stæðisflokksins. Noregi eru formenn þriggja í öðru lagi er afskaplega lítið sagt stjórnmálaflokka og fjölmennar i hvernig bæta skuli kjör hinna rítdsstjóm, sitjum víð í sama fer- kegst launuðu, eins og menn þó inu. lofuðu. Það er ekkert útfært, t.d.« Það má búast við harðrt stjómar- húsaleigubótum eða færanlegum andstÖðu. Við ætlum að veita persónuafslætti milli hjóna. Um þessari ríkisstjóm verðugt að- hann talaði Alþýðuflokkurinn þó hald," segir Ingibjörg Sólrún mikið fyrir kosningar. Gísladóttir Kvennaiistakona. -aá. Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins, um ríkisstjórnina: VIÐREISN VALDAKERFIS SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Viðbrögð Ólafs Ragnars Grímsson- ar, formanns Alþýðubandalagsins, við nýju ríkisstjóminni eru hörð. Hann sagði í samtali við Tímann í gær að stefnuyfíriýsing ríkisstjómar- innar værí ekkert annað en haldlaus orðaleikur í líkingu við þá stefnu Sjálfstæðisflokksins, sem Davíð Oddsson boðaöi fyrir kosningar. Ólafur sagði að munurinn væri að- eins sá að nú væri Alþýðuflokkurinn genginn í lið með Sjálfstæðisflokkn- um, en formaður Alþýðuflokksins hafi einmitt hrópað hæst um þessa orðaleiki Sjálfstæðisflokksins. „Nú sest hann í ríkisstjóm sem virðist mynduð um slíka orðaleiki," sagði Ól- afur. Hann sagði að Sjálfstæðisflokkurinn væri með öll sterku tökin í þessari ríkisstjóm. „Hann er með efnahags- málaráðuneytið, hann er með fjár- málaráðuneytið, hann er atvinnu- vegamálaráðuneytin sem skipta sköp- um. Þetta er í reynd ríkisstjóm Sjálf- stæðisflokksins sem ekki ætlar að gera hér nein stórvirki, en bara gæta hagsmuna valdablokkarinnar sem hefur verið bakhjarlinn í Sjálfstæðis- flokknum í áratugi," sagði Ólafur. Ólafur sagði, að svarið við því hvað Alþýðuflokkinum gengi til með því að fara í þetta samstarf, væri honum ráð- gáta. „Ég skil ekki hvemig Jón Bald- vin Hannibalsson getur afneitað öllu því sem hann stóð fyrir í íslenskri pól- itík. Hann stóð fyrir sameiningu jafn- aðarmanna, hann stóð fyrir barátt- unni gegn fjölskyldunum fjórtán, hann stóð fyrir því að koma hér á stöðugleika í efnahagslífinu. Alþýðu- flokkurinn er ekki bara búinn að selja sál sína í þessari ríkisstjóm, hann fær ekki neitt út úr þessu, hvorki mál- efnasamningnum né ráðuneytaskipt- ingunni. Að vísu fær hann stóla fyrir Sighvat og Eið, en em menn bara í pólitík til að fá stóla fyrir Sighvat og Eið,“ sagði Ólafur. Ólafur sagði að nú væri runninn upp nýr veruleiki í íslenskum stjómmál- um. Annars vegar væri þessi hags- munagæsla fjármagnsaflanna og fjöl- skyldnanna fjórtán; viðreisn valda- kerfis Sjálfstæðisflokksins, og hins vegar væri breiðfylking jafnaðar- manna og félagshyggjufólks í land- inu, launamanna, listamanna og landsbyggðarfólks, sem síðustu daga hafi sýnt ótrúlega sterkan vilja til þess að snúast gegn þessari ríkisstjóm. Ólafur sagði að það væri háðsmerki og sýndi best fyrirlitningu Davíðs Oddssonar á Jóni Baldvin, að hann skuli gera grín að honum með því að láta hann undirrita eiðstafinn á gamla ættarveldisborðinu úti í Viðey, tákni valdakerfisins á fyrri öld, þegar Steph- ensen-Finsen ættin drottnaði á ís- landi. „Það er ekki nóg að Jón Baldvin afhendi fjölskyldunum fjórtán öll völdin, heldur er hann neyddur til að taka þátt í leikriti þar sem efniviður- inn er að gera grín að honum sjálf- um,“ sagði Ólafur. Aðspurður sagði Ólafur að það væri ekki tómleikatilfinning að yfirgefa ráðherrastólinn, því hann væri byrj- aður í stjómarandstöðunni. „Þessi ríkisstjórn fær enga hveitibrauðs- daga, andstaðan gegn henni byrjar strax og hún heldur áfram þar til hún hefur verið hrakin frá völdum," sagði Ólafur Ragnar Grímsson. —SE

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.