Tíminn - 01.05.1991, Blaðsíða 12
12 Tíminn
Miðvikudagur 1. maí 1991
MINNING Blylfl
Ólafur Sigfússon
Fæddur 29. september 1923
Dáinn 18. apríl 1991
Á morgun, 2. maí, verður jarð-
sunginn frá Háteigskirkju Ólafur
Sigfússon, fyrrverandi sveitarstjóri á
Hvolsvelli. Ólafur var fæddur í
Reykjavík 29. september 1923. For-
eldrar hans voru Sigfús Jónsson,
bóndi í Norðurkoti á Kjalarnesi, og
María Þórunn Árnadóttir í Reykja-
vík.
Ungur að árum missti Ólafur móð-
ur sína og ólst eftir það upp hjá
móðursystur sinni, Margréti Árna-
dóttur, og manni hennar, Helga
Pálssyni, í Ey í Vestur-Landeyjum.
Hann fór í Bændaskólann á Hólum
og lauk þaðan búfræðinámi 1945.
Eftir það fór hann til Danmerkur og
vann þar á búgarði í 1 ár. Árið 1948
hóf hann nám í málaraiðn í Reykja-
vík og lauk sveinsprófi í þeirri iðn-
grein 1952. Ólafur kvæntist eftirlif-
andi konu sinni, Guðrúnu Olgu
Stefánsdóttur hjúkrunarfræðingi, 4.
nóvember 1950. Eiga þau 3 syni:
Guðna Þór sem kvæntur er Her-
fyrrverandi sveitarstjóri
björtu Pétursdóttur; Stefán, sam-
býliskona hans er Ólafía Þórdís
Gunnarsdóttir; og Sigurð sem
kvæntur er Mjöll Gunnarsdóttur.
Ungu hjónin Ólafur og Olga tóku sig
upp frá Reykjavík 1952 og hófu bú-
skap á nýbýli sem þau byggðu að
Hjarðartúni í Hvolhreppi og þar
bjuggu þau allt til þess er Ólafur
veiktist fyrir tæpum 2 árum síðan.
Sveitin átti alltaf sterk ítök í Ólafi.
Það var mikil gæfa fyrir Ólaf að
eignast Olgu sem lífsförunaut. Hún
stóð ávallt fast við hlið Ólafs í blíðu
og stríðu og reyndist honum ómet-
anleg stoð í veikindum hans. Um-
hyggja hennar fyrir manni sínum og
dugnaður í hans eríiðu veikindum
eru aðdáunarverð.
Ég minnist margra góðra stunda á
þeirra fallega heimili í Hjarðartúni
þar sem listsköpun og snyrti-
mennska var óvenjulega mikil.
Heimilið og garðurinn vakti hrifn-
ingu þeirra er nutu þess að koma
þar.
Kynni mín af Ólafi urðu náin þegar
hann réðst 1970 sem aðalgjaldkeri
Kaupfélags Rangæinga, en því starfi
gegndi hann til 1974 ásamt oddvita-
starfi Hvolhrepps. Hann var kosinn í
hreppsnefnd Hvolhrepps 1962 og
var oddviti í Hvolhreppi 1966- 1974,
oddviti og sveitarstjóri 1974- 1982
og upp frá því sveitarstjóri allt til
þess er hann veiktist skyndilega við
skyldustörf haustið 1989. Á Ólaf
hlóðust mörg trúnaðarstörf fyrir
sveitarfélögin í héraðinu. Hann var
um tíma í stjórn Sambands sunn-
lenskra sveitarfélaga, í Héraðsnefnd
Rangæinga, stjórn Hitaveitu Ran-
gæinga á fyrstu árum hennar og í
fjöldamörgum öðrum trúnaðar-
störfum sem of langt mál er upp að
telja.
í öllum sínum störfum naut Ólafur
trausts og virðingar. Eins og gengur
í svona starfi er ekki alltaf logn. Ól-
afi tókst ævinlega að ná sátt um þau
mál sem honum voru hugleikin.
Hann gætti hagsmuna síns sveitar-
félags af mikilli alúð og stóð fastur á
sinni skoðun þó á móti blési.
Samstarf okkar Ólafs var alla tíð
með miklum ágætum og sakna ég
þeirra stunda þegar hlé var tekið frá
önn dagsins og við tókum upp létt-
ara hjal. Við Hvolhreppingar eigum
honum mikið að þakka og að leiðar-
lokum vil ég koma á framfæri sér-
stöku þakklæti frá þeim er störfuðu
náið með honum að hreppsmálum
nú hin síðari ár.
Ég vil þakka Ólafi hjartanlega fyrir
samfylgdina og votta ég og fjöl-
skylda mín Olgu, sonum þeirra og
ættingjum öllum okkar dýpstu sam-
úð. Ágúst Ingi Ólafsson
Benedikt Blöndal
Prófessor Ólafur Lárusson gat þess fræðin væri stundum nefnd list
f kennslustund í lagadeild, að lög- hins góða og sanngjama.
Afmælis- og minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða
minningargreinum í blaðinu, er bent á, að þær þurfa
að berast a.m.k. tveimur dögum fyrir birtingardag.
Þœr þurfa að vera vélritaðar.
Bróðir minn
Ólafur Kjartansson
frá Seli f Grímsnesi
andaðist á Ljósheimum, Selfossi, þann 29. apríl s.l.
Sveinn Kjartansson
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma
Vilborg Helgadóttir
frá Móeiöartivoli
verður jarðsungin frá Oddakirkju laugardaginn 4. maí 1991, kl. 14.
Ágúst Valmundsson
Sigurgeir Valmundsson
Guðrún Valmundsdóttir
Guðmunda Valmundsdóttir
Einar Valmundsson
Helgi Valmundsson
Páll Valmundsson
Sigríður Guðjónsdóttir
Vilborg Guðjónsdóttir
Isleifur Pálsson
Guðrún Jónsdóttir
Svanhvít Hannesdóttir
Klara Guðmundsdóttir
bamaböm og bamabamaböm
Systir mln
Sigurbjörg Jónasdóttir
frá LHladal
verður jarðsungin frá Blönduóskirkju laugardaginn 4. maí, kl. 14.
Fyrir hönd vandamanna,
Ásta Jónasdóttir
V------------------------------------------------------------
Þessi orð, sem sögð voru á löngu
liðnum dögum, komu í hug mér er
ég heyrði lát Benedikts Blöndal,
vegna þess hverjum mannkostum
hann var búinn, enda naut hann
mikillar virðingar. Lærdómur hans
var mikill. Hann var glæsilegur
maður í sjón og í raun.
Ég átti því láni að fagna að eiga
samvinnu við Benedikt Blöndal í
málafærslu- og dómarastörfum og
raunar njóta samvista við hann á
öðrum góðum stundum.
Það var afar gott að vera í návist
Benedikts. Varfærni og háttvísi
voru honum eiginleg í samskiptum
við aðra menn. Honum var í blóð
borið að hafa gát í nærveru sálar.
Hvort sem um alvarleg viðfangsefni
eða gamanmál var að tefla, kom í
Ijós mikill fróðleikur hans og einn-
ig tilfinning fyrir hinu broslega. Öll
hans tök á störfum þóttu mér sýna
að þar væri að verki í senn gáfaður
lærdómsmaður og listrænn smekk-
maður. Það var því óvenjulega mik-
ill fengur og raunar unun að því að
starfa með og ræða við Benedikt
um lagamál sem og önnur efni.
Ég átti því láni að fagna að vinna
með honum að verkefnum sem
tengdust sérstaklega landi okkar,
náttúru þess og sögu. Frá þeim
dögum á ég ómetanlegar minning-
ar.
Þegar Benedikt var málafærslu-
maður, var hann allra manna
traustastur í starfi og mjög valinn
til vandasamra mála.
Þjóðin hefir misst góðan son. Það
er sárt að sjá á eftir Benedikt Blön-
dal í blóma lífsins. Sárast er það
hans fólki, eiginkonu, börnum,
öldnum föður, systkinum og vanda-
fólki. Megi minningin um hann
verða þeim styrkur í sorginni.
Ég minnist og sakna hæstaréttar-
dómarans unga, Benedikts Blöndal,
og vil tileinka lífi hans áðurnefnd
orð, „list hins góða og sann-
gjama“.
Vilhjálmur Árnason
Kveðja frá Rauða krossi íslands.
Benedikt Blöndal hæstaréttar-
dómari er látinn, 56 ára að aldri.
Hans er hér minnst sem ötuls og
úrræðagóðs rauðakrossfélaga og
forystumanns Rauða kross íslands.
Benedikt sat í aðalstjórn RKÍ á ár-
unum 1973-1986, þar af formaður
árin 1982-1986.
Benedikt hélt áfram tryggð við
rauðakrossstarfið eftir að hann lét
af formennsku með þátttöku í aðal-
fundum félagsins.iurjn,uu^i j
Sjálfur kynntist ég Benedikt á
þeim árum er hann var formaður
RKÍ. Þá kom Benedikt á þeirri skip-
an, sem síðan hefur haldist, að
framkvæmdaráðið, sem í eiga sæti
auk formanns tveir stjórnarmenn,
kæmu saman ásamt framkvæmda-
stjóra í býti dags áður en hver héldi
til sinnar vinnu. Þessara morgun-
funda og Benedikts sérstaklega
minnist ég með ánægju, ekki hvað
síst vegna „utandagskrárumræðna"
um menn og málefni. í þeirri um-
rs^ðu kom vel í ljós víðtæk þekking
og reynsla Benedikts.
Það var ekki alltaf auðvelt fyrir
mikilsmetinn lögmann með um-
fangsmikla starfsemi á eigin stofu
auk annarra verkefna að gegna
jafnframt ábyrgðarstarfi sem sjálf-
boðaliði.
Einlægur áhugi Benedikts og trú á
hugsjónir Rauða krossins var hon-
um,næg hvatning.
í stjórnarstörfum leitaðist hann
við að sætta ólík sjónarmið og ná
fram samstöðu. Hann gat verið
fastur fyrir, en tók vel öllum rökum
og gat auðveldlega gert þau að sín-
um ef svo bar við. Ég gladdist því er
Benedikt var skipaður hæstaréttar-
dómari, annars vegar vegna þess að
ég vissi að til þess stóðu vonir hans
og hins vegar þar eð ég taldi tví-
mælalaust að reynsla hans og dóm-
greind kæmu þar að miklum not-
um. Sá tími er hans naut þar við
varð hins vegar mun skemmri en
nokkurn óraði fyrir. Rauðakross-
fólk syrgir góðan félaga og þakkar
vel unnin störf í þágu mannúðar.
Ekkju Benedikts, Guðrúnu Karls-
dóttur, og börnum þeirra, Karli,
Lárusi og Önnu, svo og öðrum ætt-
ingjum votta ég fyrir hönd Rauða
kross íslands innilega samúð og bið
góðan guð að styrkja þau í mikilli
sorg þeirra.
Guðjón Magnússon,
formaður Rauða kross íslands
Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla apótoka I
Reykjavik 26. apríl til 2. mai er f
Háaleitisapótoki og Vestuibæjarapótekl. Það
apótek sem fyrr er nefnt annast eitt vörsluna
frá kl. 22.00 að kvöldl tll kl. 9.00 að morgnl
virka daga en kl. 22.00 á sunnudögum. Upp-
lýsingar um læknls- og lyfjaþjónustu eru gefnar
I slma 18888.
Neyðarvakt Tannlæknafélags fslands
er starfrækl um helgar og á stórhátlðum. Slm-
svari 681041.
Hafnarflörðun Hafnarfjarðar apótek og Norð-
urbæjar apótek eru opin á virkum dögum frá
kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laug-
ardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-
12.00. Upplýsingar I slmsvara nr. 51600.
Akureyri: Akureyrar apótek og Stjömu apótek
eru opin virka daga á opnunartima búða. Apó-
tekin skiptast á slna vikuna hvort að sinna
kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er
opið I þvl apóteki sem sér um þessa vörslu, til
kl. 19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00-
12.00 og 20.00-21.00. Á öðrum tlmum er lyfja-
fræðlngur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar I
slma 22445.
Apótek Keffavfkur Opið virka daga frá k. 9.00-
19.00. Laugardaga, helgidaga og almenna frl-
daga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl.
8.00-18.00. Lokaö I hádeginu milli kl. 12.30-
14.00.
Selföss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30.
Opiö er á laugardögum og sunnudögum kl.
10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er oplð virka daga til
kl. 18.30. Oplö er á laugardögum kl. 10.00-
13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00.
Garðabæn Apótekið er opið rúmhelga daga kl.
9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
Læknavakt fyrír Reykjavík, Seltjamamos og
Kópavog er I Heilsuvemdarstöð Reykjavikur alla
virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugardög-
um og helgidögum allan sólarhringinn.
Á Settjamamesl er læknavakt á kvöldin kl.
20.00-21.00oglaugard. kl. 10.00-11.00. Lokaðá
sunnudögum.
Vitjanabeiðnir, simaráðleggingar og tlmapant-
anir I síma 21230. Borgaispitalinn vakt frá kl. 08-
17 alla virka daga fýrir fólk sem ekki-
hefur heimilislækni eða nær ekki tíl hans (slmi
696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysadeild)
sinnir slösuðum og skyndiveikum allan sólar-
hringinn (slmi 81200). Nánari upplýsingar um
lyfjabúðir og læknaþjónustu emgefnar I slm-
svara 18888.
Ónæmisaðgerðir fyrir fullorðna gegn mænusótt
fara fram á Hoilsuvomdarstöð Reykjavikur á
þriðjudögum kl. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér
ónæmissklrteini.
SeHjamames: Opið er hjá Tannlæknastofunni
Eiðistorgi 15 virka daga kl. 08.00-17.00 og
20.00- 21.00, laugandaga kl. 10.00-11.00. Slmi
612070.
Garðabæn Heilsugæslustöðin Garðaflöt 16-18
eropin 8.00-17.00, sími 656066. Læknavakt er I
slma 51100.
Hafnarfjöröun Heilsugæsla Hafnarfjarðar,
Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00-
17.00, sími 53722. Læknavakt slmi 51100.
Kópavogun Heilsugæslan er opin 8.00-18.00
virka daga. Slmi 40400.
Keflavfk: Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn á
Heilsugæslustöð Suðumesja. Slmi: 14000.
Sálræn vandamál: Sálfræðistööin: Ráðgjöf I sáL
fræðilegum efnum. Sími 687075.
Landspftallnn: Alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til
kl. 20.00. Kvennadeildin: kl. 19.30-20.00.
Sængurkvennadelld: Alla daga vikunnar kl. 15-
16. Heimsóknartimi fyrir feður kl. 19.30-20.30.
Bamaspltali Hringsins: Kl. 13-19 alla daga.
Öldmnariæknlngadelld Landspltalans Hátúni
10B: Kl. 14-20 og eftir samkomulagi. - Landa-
kotssprtall: Allavirka kl. 15 til kj. 16 og kl. 18.30
til 19.00. Bamadeild 16-17. Heimsóknartlmi
annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. - Borg-
arspltalinn I Fossvogl: Mánudaga til föstudaga
kl. 18.30 til 19.30 og eftir samkomulagi. Álaug-
ardögum og sunnudögum kl. 15-18.
Hafnarbúðlr Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvfta-
bandið, hjúkrunardeild: Heimsóknartimi frjáls
alla daga. Grensásdeild: Mánudaga ti föstu-
daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnu-
daga kl. 14- 19.30. - Hellsuvemdarstöðin: Kl.
14 til kl. 19. - Fæðingarheimili Reykjavlkur: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Kleppsspitall: Alla
dagakl. 15.30 tilkl. 16ogkl. 18.30 tilkl. 19.30.
- Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. Kópa-
vogshælið: Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á
helgidögum. - Vífilsstaðaspitali: Heimsóknar-
tlmi daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. - St
Jósepsspftall Hafnarfirði: Alla daga kl. 15-16
og 19-19.30.
Sunnuhlfð hjúkrunarheimili I Kópavogi: Heim-
sóknartlmi kl. 14-20 og eftir samkomulagl.
Sjúkrahús Keflavlkurfæknishéraös og heilsu-
gæslustöövar: Vaktþjónusta allan sólarhring-
inn. Slmi 14000. Keflavík-sjúkrahúslð: Heim-
sóknartími virka daga kl. 18.30-19.30. Um
helgar og á hátiöum: Kl. 15.00-16.00 og 19.00-
19.30. Akureyri- sjúkrahúsið: Heimsóknartimi
alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-20.00. Á
barnadeild og hjúkrunardeild aldraðra Sel 1:
Kl. 14.00-19.00. Slysavarösstofusími frá kl.
22.00- 8.00, simi 22209. Sjúkrahús Akraness:
Heimsóknartlmi Sjúkrahúss Akraness er alla
daga kl. 15.30-16.00 og kl. 19.00-19.30.
r. r_ r.hdidDniinnnrnss vwdiissnv.,wsssssssss
Reykjavfk: Scltjamames: Lögreglan slmi
611166, slökkviliö og sjúkrabifreið simi 11100.
Kópavogun Lögreglan simi 41200, slökkvilið
og sjúkrabifreiö slmi 11100.
Hafnarflörðun Lögreglan simi 51166, slökkvilið
og sjúkrabifreið sími 51100.
Keflavfk: Lögreglan slmi 15500, slökkviliö og
sjúkrablll slmi 12222, sjúkrahús 14000, 11401
og 11138.
Vestmanneyjar Lögreglan, slmi 11666,
slökkviliö slmi 12222 og sjúkrahúsiö slmi
11955.
Akureyri: Lögreglan sfmar 23222, 23223 og
23224, slökkviliö og sjúkrabffreiö simi 22222.
Isafjörðu': Lögreglan slmi 4222, slökkvilið slmi
3300, brunasími og ejýkrabifreið simi 33J3.
iDln.DT. Df.r r. v. •, r. r. r, r. r » r » i