Tíminn - 01.05.1991, Side 11
lOTÍminn
Miðvikudagur 1. maí 1991
Miðvikudagur 1. maí 1991
Tíminri 11
Ríkisstjórnarskipti í gær. Viðeyjarviðreisn tekin viö:
Stjórnarsáttmáli undirritaður
sófaborði Skúla landfógeta
Ríkisstjórn Alþýðuflokks og Sjálfstæðis-
flokks undir forsæti Davíðs Oddssonar hefur
tekið við stjórnartaumum af ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar. Ríkisstjórnar-
skiptin fóru fram á Bessastöðum í gær.
Klukkan 11 hélt forseti fslands ríkisráðsfund
með ráðuneyti Steingríms Hermannssonar,
en eftir hádegi tók ráðuneyti Davíðs Odds-
sonar við völdum. Stefnuyfirlýsing nýrrar
ríkisstjórnar var undirrituð í Viðey fyrr um
daginn. Hana undirrituðu Davíð Oddsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins, og Jón Bald-
vin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokks-
ins.
Ráðherrar í nýju stjórninni verða tíu, fimm
frá hvorum flokki. Ellefu voru ráðherrar í
fráfarandi ríkisstjórn, en þeir voru níu áður
en Borgaraflokkurinn gekk til liðs við ríkis-
stjórnina. Fjórir ráðherranna hafa ekki
gegnt ráðherraembætti áður. Ein kona er
ráðherra í nýju stjórninni, líkt og í síðustu
stjórn. Meðalaldur ráðherra er 49 ár.
Nýir ráðherrar taka völdin
Davíð Oddsson er forsætisráðherra hinnar
nýju stjórnar og hann er einnig ráðherra
Hagstofu íslands. Davíð er 43 ára gamall og
yngstur ráðherranna í stjórninni. Hann er
lögfræðingur að mennt. Hann hefur verið
borgarfulltrúi í Reykjavík síðan 1974 og
borgarstjóri síðan 1982. Davíð hefur ekki
gegnt ráðherraembætti áður og hefur auk
þess þá sérstöðu að hafa ekki setið á Alþingi
áður.
Friðrik Sophusson er fjármálaráðherra.
Friðrik er 47 ára, lögfræðingur að mennt.
Hann hefur verið alþingismaður Reykvík-
inga síðan 1978 og hefur verið varaformaður
Sjálfstæðisflokksins með hléi síðan 1981.
Hann var iðnaðarráðherra í ríkisstjórn Þor-
steins Pálssonar 1987-1988.
Þorsteinn Pálsson fer með sjávarútvegs-
mál og dóms- og kirkjumál í ríkisstjórninni.
Þorsteinn er 43 ára, lögfræðingur að mennt.
Hann hefur verið alþingismaður Sunnlend-
inga síðan 1983. Sama ár var hann kjörinn
formaður Sjálfstæðisflokksins, en var felldur
úr því embætti fyrr á þessu ári. Þorsteinn var
fjármálaráðherra í ríkisstjórn Steingríms
Hermannssonar 1985-1987 og forsætisráð-
herra 1987-1988.
Ólafur G. Einarsson er nýr menntamála-
ráðherra. Ólafur er 58 ára, lögfræðingur að
mennt. Hann hefur verið alþingismaður
Reyknesinga síðan 1971. Ólafur er formaður
þingflokks sjálfstæðismanna og situr í for-
sætisnefnd Norðurlandaráðs. Ólafur hefur
ekki gegnt ráðherraembætti áður.
Halldór Blöndal verður landbúnaðar- og
samgönguráðherra. Halldór er 52 ára, stúd-
ent frá M.A. og stundaði nám í lögfræði einn
vetur. Hann hefur verið alþingismaður fyrir
Norðurlandskjördæmi eystra síðan 1979 og
varaformaður þingflokks sjálfstæðismanna
síðan 1983. Halldór hefur ekki gegnt ráð-
herraembætti áður.
Jón Baldvin Hannibalsson verður áfram
utanríkisráðherra. Jón Baldvin er 52 ára,
hagfræðingur að mennt. Hann hefur verið
alþingismaður Reykvíkinga síðan 1982, en
var áður varaþingmaður fyrir Vestfirðinga.
Hann hefur verið formaður Alþýðuflokksins
síðan 1984. Jón Baldvin var fjármálaráðherra
í ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar 1987-1988
og utanríkisráðherra í ríkisstjórn Steingríms
Hermannssonar sem fór frá í gær.
þingflokknum eftir að formaður flokksins
hafði rætt í einrúmi við alla þingmenn
flokksins.
Jón Baldvin lagði til við þingflokk sinn að
Karl Steinar yrði félagsmálaráðherra og Jó-
hanna færi yfir í heilbrigðisráðuneytið.
Þessu hafnaði Jóhanna. Eiður reyndist síðan
sterkari í þingflokknum og þess vegna varð
hann ráðherra en ekki Karl Steinar. Suður-
nesjamenn og verkalýðsarmur Alþýðuflokks-
ins eru ekki ánægðir með að Karl Steinar
skuli ekki hafa orðið ráðherra og endur-
speglaðist það m.a. á flokksstjórnarfundin-
um.
Það kom nokkuð á óvart að Halldór Blön-
dal skyldi verða ráðherra, en lengi ríkti
nokkur óvissa um hver myndi verða fimmti
ráðherra Sjálfstæðisflokksins. Ljóst þótti
vera að hann yrði að koma af landsbyggð-
inni. Matthías Bjarnason hafnaði því að
verða ráðherra og þá komu Halldór og Pálmi
Jónsson helst til greina. Pálmi hafði það á
móti sér að hafa gengið í lið með félags-
hyggjuflokkunum 1980 þegar ríkisstjórn
Gunnars Thoroddsens var mynduð. Auk þess
munu forystumenn Sjálfstæðisflokksins
hafa óttast hörð átök um landbúnaðarmál í
ríkisstjórninni ef Pálmi kæmist í landbúnað-
arráðuneytið.
Þá skipti máli að Halldór Blöndal leiðir
lista sjálfstæðismanna í stærsta landsbyggð-
arkjördæminu. Nokkur óánægja er í þing-
flokki sjálfstæðismanna með ráðherralista
flokksins.
Einn greiddi atkvæði á móti tillögu for-
manns flokksins og tveir sátu hjá. Pálmi
Jónsson mun á þingflokksfundi í gær hafa
lýst yfir óánægju sinni með tillögu Davíðs.
Þá er sagt að Matthías Bjarnason sé ekki
fullkomlega sáttur við að Þorsteinn hafi
orðið sjávarútvegsráðherra, en Þorsteinn
styður núverandi kvótakerfi.
Eftir
Egil
Ólafsson
Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Jón Baldvin Hannlbalsson, formaður
Alþýðuflokksins, undirrita stefnuyfirtýsingu nýju ríkisstjómarinnar. Undirrítunin fór ffam i
Viðey. Foríngjamir sátu í sófa sem er úr búi Magnúsar Stephensens konferensráðs. Borð-
ið, sem notað var við undirskriftina, var í eigu Skúla Magnússonar landfógeta. Borðið er
geymt í Árbæjarsafni og var flutt sérstaklega út í Viðey vegna athafnarinnar í gær.
Jón Sigurðsson verður áfram iðnaðar- og
viðskiptaráðherra. Jón er fimmtugur, hag-
fræðingur að mennt. Hann var kjörinn al-
þingismaður Reykvíkinga 1987 og er nýkjör-
inn þingmaður Reyknesinga. Jón var dóms-
og kirkjumála- og viðskiptaráðherra og ráð-
herra Hagstofu íslands í ráðuneyti Þorsteins
Pálssonar og iðnaðar- og viðskiptaráðherra í
ríkisstjórninni sem var að fara frá völdum.
Jóhanna Sigurðardóttir verður áfram fé-
lagsmálaráðherra. Jóhanna er 48 ára. Hún
lauk prófi frá Verslunarskóla íslands. Jó-
hanna hefur verið alþingismaður Reykvík-
inga síðan 1978 og varaformaður Alþýðu-
flokksins síðan 1984. Hún hefur verið félags-
málaráðherra síðan 1987.
Sighvatur Björgvinsson er nýr heilbrigðis-
og tryggingaráðherra. Sighatur er 49 ára,
stúdent frá M.A. og stundaði um tíma nám í
viðskiptafræði við H.í. Hann var fyrst kjör-
inn á þing fyrir Vestfirðinga árið 1974 og er
nú formaður fjárveitinganefndar Alþingis.
Sighvatur var fjármálaráðherra í fjóra mán-
uði í starfsstjórn Benedikts Gröndals sem sat
um áramót 1979-1980.
Eiður Guðnason verður umhverfisráð-
herra. Eiður er 51 árs og lauk BA-prófi frá
H.í. í ensku og enskum bókmenntum. Hann
hefur verið alþingismaður Vestlendinga síð-
an 1978 og er nú formaður þingflokks AI-
þýðuflokksins. Eiður hefur ekki gegnt ráð-
herraembætti áður.
Af öðrum valdamiklum embættum má
nefna að Salome Þorkelsdóttir verður að öll-
um líkindum forseti Alþingis, en það emb-
ætti verður ígildi ráðherraembættis eftir að
nýtt þing hefur samþykkt lög sem gera Al-
þingi að einni málstofu. Karl Steinar Guðna-
son verður formaður fjárveitinganefndar.
Líklegt er talið að Björn Bjarnason verði for-
maður utanríkismálanefndar. Ekki er þó úti-
lokað að Eyjólfur Konráð Jónsson, núver-
andi varaformaður nefndarinnar, verði for-
maður.
Ekki var full eining um
ráðherralistann
Flokksráð Sjálfstæðisflokksins samþykkti
stefnuyfirlýsingu nýrrar stjórnar í fyrrakvöld
á stuttum fundi. Það sama gerði flokksstjórn
Alþýðuflokksins með 69 atkvæðum gegn
fjórum og ráðherralistann með 64 atkvæð-
um gegn 14. Um 200 manns hafa atkvæðis-
rétt í flokksstjórn Alþýðuflokksins. Ráð-
herralisti sjálfstæðismanna var samþykktur í
Markmiðum sínum hyggst ríkisstjórnin ná með eftirfarandi aðgerðum:
1. Með sáttargjörð um sanngjöm kjör,
þannig að áuknar þjóðartekjur skill sér í
bættum lífskjörum m.a. með aðgerðum f
skatta- og féiagsmálum, sem koma hlnum
tekjulægstu og bamafjölskyldum að
gagni.
2. Með mótun sjávarútvegsstefnu, sem
nær jafnt til veiða og vinnslu, hamlar gegn
ofvciði, eflir fiskmarkaði, treystir byggð og
stuðlar að hagræðingu. Og þar sem stjóm-
skipuleg staða sameignarákvæðis laga um
stjóm flskveiða er tryggð.
3. Með mótun landbúnaðarstefnu, er hafl
að leiðarljósi lægra verð til neytenda, bætta
samkeppnisstöðu bænda, lœgri ríkisútgjöld
og gróðurvernd. Þetta felur m.a. i sér breyt-
ingar á vinnslu- og dreifingarkerfi landbún-
aðarvara í framhaldl af endurskoöun bú-
vörusamnings.
4« Með þvf að Ijúka samningum um álver á
Keilisnesi og áæflun um frekari nýtingu
orkulinda landsins.
5« Með þvi að kanna vandlega hvemig
stuðla megi að auknum stöðugleika í eína-
hagshfinu með tengingu íslensku krónunn-
ar við evrópska myntkerfið.
6. Með uppskurði á ríkisflármálum í því
skyni að stöðva hallarekstur, skuldasöfnun
og útþcnslu og stuðia þannig að Íækkun
raunvaxta. Eitt meginverkefni ríkisstjóm-
arinnar á kjörtímabilinu verður að lækka
rfkisútgjöld, breyta rikisfyrirtækjum í
hfutafélög, hefja sölu þeirra, þar sem sam-
keppn) verður vfð komið, breyda þjónustu-
stofnunum í sjálfstæðar stofnanir, sem tald
í auknum mæli gjöld fyrir veltta þjónustu.
Verkefni í ríkisrekstri verðl boðin út
7« Með lækkun ríkisútgjalda verði búið í
án hækkunar skatthyrðar. Stefnt skal að
lækkun skatta, þegar teldst hefur að hemja
vöxt ríidsútgjalda umfram vöxt þjóðar-
tekna. Skattlagning fyrirtækja og neyslu
verði samnemd því sem gerist með sam-
keppnisþjóðunum. Samræmd verði skatt-
lagning eigna- og eignatekna.
8. Með því að treysta hvort tveggja í senn,
sjáifseignarstefnu í húsnæöismálum og
uppbyggingu félagslegra íbúða. Húsbréfa-
kerflð verði fest í sessi og jafnvægi kotnið á
hú8bréfamarkaðl með því að draga úr óhóf-
legri lánsfjárþörf rfkisins. Fjárhagsstaða
opinberu byggingasjóðanna verði styrkL
Húsaleigulög verði endurskoðuð, og fram-
boð aukiö á leiguhúsnæði og aðstoð veitt til
að draga úr húsnæðiskostnaði leigjenda.
Bankakerfið verði nýtt tii að færa þjónustu
við íbúðaricaupendur nær þeim í heima-
byggð. Fylgt verði eftir áætlun um bætta
húsnæðisaðstöðu og þjónustu við aidraða
og fatlaða.
9. Með aðgerðum í atvinnu- og samgöngu-
málum verði þjónustu- og vaxtarsvæði á
landsbyggðinni styrkt. Dregið verði úr mið-
stýringu og forræði eigin mála flutt í
heimabyggð. Unnið verður að sameiningu
sveitarfélaga í samstarfi við þau. Lífskjör
verði jöfnuð m.a. með lækkun húsnæðis-
kostnaöar þar sem hann er hæstur.
10 ■ Með því að styðja einstaklinga og fé-
Iög f baráttu gegn landeyðingu og fyrir
gróðurvernd. Lög verða sett um eignarhald
á orkulindum og almenningum og um af-
notarétt almennings. Ríldsstjómin mun
taka virkan þátt í alþjóðasamstarf) um
mengunarvamir og vemdun lífríkis sjávar.
11« Með því að alilr Iandsmenn njóti sam-
bærikgra lífeyrisréttinda og valfrelsis f líf-
eyrismálum, og iðgjaldagreiðslur hvetji til
cinstaklingsbundins spamaðar.
12. Með þvi að tryggja ölium tækifæri tii
menntunar viö sitt hæfi til þess að búa
æsku landsins undir fjölbreytt framtíðar-
störf. Dreglð verði úr mlðstýringu í skóia-
kerfinu og áhersla lögð á starfs- og endur-
menntun. Ríklsstjómin mun efla rann-
sóknir og vísindastarfsemi og greinar, sem
byggjast á hugviti og hátækni.
13. Með því að styrkja forvama- og
fræðslustarf í hellbrigðlsmálum, sem og
vamir gegn vímuefnum og umferðarslys-
ura. Rikisstjómin mun vínna að endur-
skipulagningu á starfsemi sjúkrahúsa og
lyfjadreifingu og auka sjálfstæði hellsu*
gæslu- og sjúkrastofnana.
14 ■ Með því að endurskoða núgildandi
kosningalög t þeim tilgangi að tryggja jafn-
tæði með kjósendum og auka áhrif þeirra á
það, hvetjir veljast til þingsetu.
15 . Með því að semja um þátttöku íslend-
Inga í Evrópska efnahagssvæðinu (EES), tll
þess að ttyggja hindrunarlausan aðgang
sjávarafuróa að EvrópumÖrkuðum. Ekld
kemur til greina að gefa eftir forræði yfir ís-
lenskri fiskveiðilögsögu í skiptum iyrir að-
gang að mörkuðum.
16. Með því að ísiendingar verði á for-
dómalausan hátt þátttakendur f hinni miklu
umsköpun í átt til frclsis, sem nú setur svip
sinn á þróun stjóramála í Evrópu. Öryggi
íslands verður áifram best borgið með þátt-
töku íslendinga í vamarsamtökum vest-
rænna lýöræðisríkja og vamarsamstarfi við
Bandariki Norður-Ameríku. Jafnframt iegg-
ur ríkisstjómin áherslu á þátttöku íslands í
norrænu samstarfi og f staríi Sameinuðu
þjóðanna og Ráðstefnunnar um öryggl og
samvinnu Evrópuþjóða.
í framhaldi af þessari stefnuyfirlýsingu
mun ríkisstjóm Sjálfstæðisfiokks og Al-
þýöuflokks láta undirbúa starfsáætlun þar
sem ítarleg grein verður gerð fyrir þeim
verkum sem ríkisstjómin ættar að jjúka á
kjörtímabilinu. Starfsáætlunin verðut lögð
fyrir Alþingi í haust
Wmm.!
Stefnuyfirlýsing
ríkisstjómar
Sjálfstæðisflokks og
Alþýðuflokks
Ríkisstjórnin hyggst rjúfa kyrrstöðu og
auka verðmætasköpun í atvinnulífinu, sem
skili sér í bættum lífskjörum.
Ríkisstjórnin vill tryggja stöðugleika í efna-
hagslífinu og sáttargjörð um sanngjörn kjör,
m.a. með aðgerðum í skatta- og félagsmál-
um.
Ríkisstjórnin stefnir að opnun og eflingu
íslensks samfélags m.a. með afnámi einok-
unar og hafta í atvinnulífi og viðskiptum,
með. aukinni samkeppni á markaði í þágu
neytenda og löggjöf gegn einokun og
hringamyndun.
Besta leiðin til að varðveita sjálfstæði þjóð-
arinnar er að örva efnahagslegar framfarir,
án verðbólgu og án ofnýtingar náttúruauð-
linda. Setja þarf almennar leikreglur um
samskipti fólks og fyrirtækja og ryðja mis-
munun úr vegi.
- '.
■