Tíminn - 01.05.1991, Qupperneq 17
Miðvikudagur 1. maí 1991
Tíminn 17
OG
dælur
BILALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM
LANDIÐ.
MUNIb ÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar
BENSÍN EÐA DIESEL
Mjög gott verð
Rafst.: 600-5000 W
Dælur: 130-1800 l/mfn
Ingvar
Helgason hff.
Sævarhöfða 2
Slml 91-674000
Leggjum ekki af stað í ferðalag í
lélegum bíl eða illa útbúnum.
Nýsmurður bíll með hreinni olíu og
yfirfarinn t.d. á smurstöð er lík-
legur til þess aö komast heill á
leiðarenda.
UMFERÐAR
Ð
. "
Sumar
hjólbarðar
Hágæða hjólbarðar
HANKOOK frá KÓREU
Á lágu verði.
Mjög mjúkir
og sterkir.
Hraðar
hjólbarða-
skiptingar.
BARÐINN hf.
Skútuvogi 2, Reykjavík
Símar: 91-30501 og 84844.
LÖGTÖK
Að kröfu gjaldheimtustjórans í Reykjavík og að
undangengnum úrskurði verða lögtök látin fara
fram án frekari fyrirvara á kostnað gjaldenda, en
ábyrgð Gjaldheimtunnar, að átta dögum liðnum
frá birtingu auglýsingar þessarar, fyrir eftirtöldum
gjöldum:
Vanskilafé, álagi og sektum skv. 29. gr. laga nr.
45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, fyrir
1-3 greiðslutímabil með eindögum 15. hvers
mánaðarfrá febrúar 1991 til apríl 1991.
Reykjavík 29. apríl 1991,
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Notaðar ■ '
dráttarvélar og tæki
Case IH 685 XL árg. 1987
Case 1594 ca. m/ýtutönn árg. 1986
Case 1394 m/ámoksturst. árg. 1985
Case IH 785 XLA árg. 1989
Krone KR 125 rúlluvél árg. 1989
Auto-Roll pökkunarvél árg. 1989
Pöttinger Profi II heyvagn árg. 1989
Maragon heyvagn árg. 1984
Class heyvagn árg. 1976
Deutz Fahr heyvagn árg. 1985
Deutz Fahr baggabindivél árg. 1987
New Holland baggabindivél árg. 1985
Vélar og þjónusta hf.,
Járnhálsi 2.
Sími 91-83266
Fjölskylda Sophiu Loren mætti öll við afhendingu heiðursverðlaunanna sem hún var sæmd á
Óskarshátíðinni.
Sophia Loren:
r
STOLT MOÐIR VIÐ VERÐ-
LAUNAAFHENDINGU
Sophia Loren var sæmd sérstök-
um heiðursverðlaunum á Ósk-
arshátíðinni í Los Angeles í vor
og þótti fara vel á því. Sophia er
alltaf jafnglæsileg og sístarfandi
og þykir afskaplega vel að þessum
heiðri komin.
Það var ekki bara glæsibragur
Sophiu sjálfrar sem vakti athygli.
Allra augu beindust að henni —
og fjölskyldu hennar, sem hún er
ákaflega stolt af, eins og hún seg-
ir að sé ítalskra mæðra siður.
Carlo Ponti, eiginmann hennar,
könnuðust allir við. Og synirnir
Carlo og Eduardo reyndust vera
orðnir fullvaxta, glæsilegir ungir
menn, 22ja og 18 ára. En hver var
unga stúlkan sem var í fylgd með
þeim?
Fyrir nokkrum vikum hafði Sop-
hia sagt í viðtali við ítalskt blað að
eldri sonur hennar, Carlo, ætti
unnustu. Þá var hún ekki reiðu-
búin að segja meira en að unga
stúlkan væri ljóshærð, spænsk,
nemi í líffræði og héti Odile. Og
Sophia bætti við að Carlo væri
mjög ástfanginn og þetta væri
fyrsta ást þeirra beggja.
Það var sem sagt ekki fyrr en á
Óskarshátíðinni sem umheimur-
inn fékk nánari upplýsingar um
stúlkuna Odile Rodriguez de la
Fuente, sem er dóttir frægs og
dáðs spænsks sérfræðings í villtu
lífi í náttúrunni. Hann fórst í
flugslysi fyrir ellefu árum þegar
hann var í vísindaleiðangri.
Þetta var sem sagt mikið hátíð-
arkvöld hjá Sophiu Loren og til-
valið tækifæri að taka fjölskyldu-
mynd af heiðursverðlaunahafan-
um þar sem hún stendur mitt á
milli unga parsins, en til annarr-
ar hliðar stendur Carlo eldri
Ponti og hinnar yngri sonurinn
Eduardo.
laus Elton, með Linley
greifa, systursyni Elísabetar
drottningar.
Ofurstjarnan Elton John hélt
upp á 44 ára afmælið sitt um
daginn í fínustu veislusölum
Lundúnaborgar. Hann bauð 300
gestum í kampavínsveislu og
kvöldverð sem toppkokkurinn
Alison Price útbjó þar sem m.a.
var á boðstólum humar, fram
borinn í risastórum skeljum,
fjörutiu og fjögurra ára
formuðum úr ís.
En afmælisbarnið dreypti ekki
á öðru en sódavatni og appels-
ínusafa, enda hefur hann farið í
áfengismeðferð í Bandaríkjun-
um og er iðinn að sækja AA-
fundi.
Hann lét slíka smámuni þó
ekki á sig fá og hélt sínu striki
með íburðarmikið veisluhaldið,
þar sem gestum var m.a. vísað
til vegar með logandi kyndlum.
Það er líka áreiðanlegt að gest-
irnir komu ekki til að sitja í
myrkrinu, heldur til að sjá hver
annan. Þar var nefnilega saman
komið margt stórmennið og úr
flestum stéttum þjóðfélagsins.
Rod Stewart og nýja konan
hans, Rachel Hunter, voru
meðal gesta í afmælisveisl-
unni.
Dolph Lundgren gnæfir yfir
afmælisbarniö, sem nú hef-
ur sett upp gleraugun. Og
hatturinn er ekkert slor, þó
að hann sé ekki í sömu tísku
og íslenskir ráðherrahattar.
Elton John