Tíminn - 01.05.1991, Síða 20
AUGLÝSINGASÉMAR: 080001 &
RÍKISSKIP
NUTIMA FLUTNINGAR
Hatnarhusinu v Tryggvagotu.
3 28822
Ókeypis auglýsingar
fyrir einstaklinga
POSTFAX
91-68-76-91
HÖGG-
DEYFAR
Verslið hjá fagmönnum
varahlutir
M.
lamarsbofða I - s. 67-57-44
H niinu
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ1991
1. maí--- baráttudagur verkalýösins, er í dag:
Baráttusamkomur launa-
fólks í tilefni dagsins
Um allan heim verða samkomur vegna hins alþjóðlega baráttu-
dags verkalýðsins, 1. maí. Tíminn athugaði hvað væri helst um
að vera á hátíðarsamkomum hér heima í dag.
I Reykjavík standa Fulitrúaráð
verkalýðsfélaganna í Reykjavík,
BSRB og Iðnnemasamband ís-
lands sameiginlega að hátíðahöld-
um. Kröfuganga fer frá Hlemmi
kl. 14.00 og þaðan verður gengið
niður Laugaveg og á Lækjartorg
þar sem verður útifundur. Aðal-
ræðumenn verða þeir Ögmundur
Jónasson, formaður BSRB, og Sig-
urður Rúnar Magnússon hafnar-
verkamaður.
Samtök kvenna á vinnumarkaði
gangast fyrir sérstökum hátíða-
höldum á þessum baráttudegi.
Konurnar ganga aftan við göngu
Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í
Reykjavík sem fer frá Hlemmi. Á
Hallærisplaninu verður síðan efnt
til útifundar þar sem konur flytja
ávörp.
Öllum herstöðvaandstæðingum
er síðan boðið í morgunkaffi í
Hlaðvarpanum að Vesturgötu 3b í
Reykjavík og opnar húsið klukkan
10:30. „Gefst þar ágætt tækifæri
fyrir alla þá sem vilja leggja lið
baráttunni fyrir herlausu Islandi
að hittast og samstilla kraftana...,“
segir í tilkynningu.
í Keflavík verður hátíðar- og bar-
áttufundur í Stapa og hefst hann
klukkan 14. Þar verður Iúðrablást-
ur og skemmtiatriði, en aðalræðu-
maður dagsins er Lára V. Júlíus-
dóttir, framkvæmdastjóri ASÍ.
Meðal skemmtiatriða má nefna
lúðrablástur og fjöldasöng. Eldri
baráttumenn í verkalýðshreyfing-
unni verða heiðraðir.
í Borgamesi eru hátíðahöldin í
Hótel Borgarnesi og hefjast klukk-
an 13:30. Ræðumaður dagsins er
Hansína Stefánsdóttir, formaður
Verslunarmannafélags Árnessýslu,
en einnig flytja fulltrúar stéttarfé-
laganna í Borgarnesi ávörp. Fjöl-
breytt skemmtiatriði verða á dag-
skrá.
Á Akureyri er nú haldið uppá 60
ára afmæli 1. maí kröfugangna þar
í bæ. Klukkan 14 verður lagt upp í
göngu frá Alþýðuhúsinu, en að
henni lokinni er komið aftur sam-
an í húsinu þar sem verður sam-
koma. Aðalræðumaður dagsins er
Guðmundur Þ. Jónsson, formaður
Iðju, Landssambands iðnverka-
fólks. Fleiri ávörp verða flutt og
fjöldi skemmtiatriða á boðstólum.
Á Selfossi verður hátíðarsam-
koma í Hótel Selfossi á vegum
verkalýðsfélaganna þar og hefst
hún klukkan 14. Ræðumaður
dagsins verður Þór Vigfússon,
skólameistari Fjölbrautaskóla
Suðurlands. Meðal annarra
skemmtiatriða er kórsöngur og
leikur bjöllukórs. Ókeypis kaffi-
veitingar verða á boðstólum.
-sbs.
Steingrímur Hermannsson, fýrrverandi forsætisráðherra, afhendir Davíð Oddssyni, núver-
andi fbrsætisráðherra, lyklavöldin að forsætisráðuneytinu í gær. Tímamynd: Pjetur
Hækkun Bandaríkjadollars þýðir meiri útflutning SH á
fiski vestur yfir haf. Friðrik Pálsson forstjóri:
AUKNINGIN
ER VERULEG
„Ég get ekki sagt til um hversu
mikil aukningin til Bandaríkjanna
hefur orðið, en hún er veruleg,"
sagði Friðrik Pálsson, forstjóri
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna,
aðspurður í samtali við Tímann í
gær um hvort söluaukning hefði
ekki orðið á fiskafurðum vestanhafs
vegna hækkunar dollarans að und-
anforau.
Síðan í febrúar hefur Bandaríkja-
dalur hækkað um 20%. „Ég get ekki
sagt til um að hve miklu leyti þessi
breyting er komin til vegna hækk-
unar dollarans. En það hefur orðið
veruleg breyting á samsetningu
framleiðslunnar yfir á Bandaríkja-
markað. Núna er þetta í líkingu við
það sem var áður en dollarinn fór að
lækka fyrir nokkrum misserum,"
sagði Friðrik. Hann sagði að þessi
gengishækkun hefði verið að gerast
á tiltölulega fáum vikum, þannig að
engar tölur væru fyrirliggjandi um
hver söluaukningin væri. „Einnig
höfum við verið með töluverðan
áróður í gangi vestanhafs, því við
vildum ekki missa niður markaðs-
hlutdeildina í Bandaríkjunum meira
en orðið var. En síðan kærum við
okkur ekki um að þessi uppsveifla til
Bandaríkjanna verði alltof mikil.
Stöðugleiki er mikilvægur, því í Evr-
ópu og víðar væru mikilvægir mark-
aðir sem hafa gripið inní þegar
Bandaríkjamarkaðurinn hefur verið
óhagstæður,“ sagði Friðrik Pálsson.
-sbs.
Kaupfélag Þingeyinga:
Góð afkoma á síðasta ári
Mikiö tjón í
bruna á Akranesi:
Grunur um
íkveikju
Eldur kviknaði í fokheldu húsi í
Jörundarholti á Akranesi um
hádegisbilið sl. mánudag. Húsið
er talið ónýtt og er tjónið því
mildð.
Lögreglan vinnur að rannsókn
málsins og talið er að um
íkveikju sé að ræða.
—SE
Rúmlega 59 milijón króna hagnað-
ur varð af rekstri Kaupfélags Þing-
eyinga á síðasta ári. Fjármuna-
myndun var 62,4 milljónir. Þetta
kom fram á aðalfundi félagsins sem
haldinn var si. laugardag.
í máli þeirra Egiis Olgeirssonar
stjórnarformanns og Hreiðars
Karissonar kaupfélagsstjóra kom
fram að áframhald varð á batnandi
afkomu félagsins eftir verulegar
breytingar á rekstri síðari hluta árs
1989. Þannig varð hagnaðurinn
59,1 millj. á síðasta ári, en var tæp-
lega 11 millj. á árinu 1989.
Þeir Egill og Hreiðar sögðu hins
vegar að starfsemin á síðasta ári
hefði einkennst af varnarbaráttu og
þannig hefðu allar fjárfestingar ver-
ið í lágmarki og fyllsta sparnaðar
gætt.
Einnig hefði stöðugleiki í efna-
hagslífinu haft mikið að segja.
Samþykkt var að veita 500 þús.
króna úr Menningarsjóði K.Þ., þar
af 250 þús. til viðbyggingar Safna-
húss Húsavíkur. Það framlag er
tengt minningu Hjördísar Tryggva-
dóttur Kvaran.
Ari Teitsson, Hrísum, og Baldvin
Baldursson, Rangá, áttu að ganga úr
stjórn. Ari var endurkjörinn, en
Baldvin gaf ekki kost á sér á nýjan
leik. Halldóra Jónsdóttir, Grímshús-
um, var kjörin í hans stað.
-sbs.
Árekstur
Árekstur varð á Klettaborgar-
vegi á Akureyri, skammt sunn-
an við gömlu brúna yflr Glerá
um hádegisbilið í gær.
Tveir bflar voru að mætast á
veginum. Annar náði að stoppa,
en bfllinn sem á móti kom rakst
utan í hann og fór síðan út af
veglnum og valt eina veltu.
Sá bfll skemmdist mikið, en
engin slys urðu á fófld, sem
hiýtur að teljast mikil mildi.
—SE
Akureyri: