Tíminn - 04.05.1991, Side 6
14
HELGIN
Laugardagur4. maí 1991
En vel skrifað leikrit er ekki nóg til að
skilaboðin nái til áhorfenda.
Þeir sem túlka verða að vera vandan-
um vaxnir.
Á litla sviðnu þessa dagan er valinn
maður í hverju rúmi.
Erlingur Gíslason hefur oft verið góð-
ur en hér er hann í essinu sínu sem
hinn smáborgaralegi sísmjaðrandi
ráðherra menntamála.
Bríet nær ljómandi góðum tökum á
dagskrárgerðarmanninum, sem sam-
ið hefur sig að þeim leikreglum sem
gilt hafá í gegnum tíðina en þarf nú að
velja á milli siðleysisins og sannleik-
ans.
Óli hljóð í höndum Baltasar Kor-
máks er ákaflega hress og sannfær-
andi og tækin leika í höndunum á
honum.
Erla Ruth sem Irena nær sérdeilis vel
að lýsa taugaóstyrk ungu konunnar,
sem er að koma í útvarpsviðtal í fyrsta
sinn á ævinni.
Hljóð, eða öllu heldur hljóðmynd,
gegnir veigamiklu hlutverki í leiknum
og þar heldur Vigfús Ingvarsson um
þræðina þannig að allt smellur saman
sem hlýtur að vera vandaverk.
Leikmyndin með sínum gegnsæju
vinnuborðum gerir það að verkum að
áhorfendur sjá óhindrað inn í heim
tækninnar með sínum snúrum og
leiðslum og á gólfið hafa verið málað-
ar rákir, bláar og hvítar, sem bylgjast
um sviðið. Hér eru greinilega komnar
hinar einu og sönnu öldur ljósvak-
ansl. Þessi sýning ber þessi merki að
hér hefur samhentur hópur leikstjóra,
leikara og tæknimanna verið að verki
og skapað eftirminnilega sýningu sem
nær mjög vel til áhorfenda á máli sem
allir skilja. Gísli Þorsteinsson
Ráðherrann
klipptur
Höfundun Emst Bmun Olsen
Þýðing: Einar Már Cuðmundsson
Leikstjóm: Sigrún Valbergsdóttir
Hijóðmynd: Vigfús Ingvarsson
Leikmynd og búningan Messúma Tómas-
dóttir
Lýsing: Ásmundur Kaiisson.
Sýningarstaðun Þjóðleikhúsið, litla svið-
ið.
Leikarar. Baitasar Kormákur, Bríet Héð-
insdóttir, Erla Ruth Haröardóttir, Eriing-
ur Gíslason.
Við erum stödd í hljóðstofu ríkisút-
varpsins í Danmörku. Ósköp saklaus
þáttur „Dagskrárstjóri í eina klukk-
stund“ í umsjá menntaálaráðherra er
að komast á lokastig, aðeins er eftir
lokahnykkurinn.
Ráðherra ákveður að ljúka þættinum
með spjalli við unga menntakonu
cand. mag. Irenu Kristansen, sem ný-
lega hefur skrifað athyglisverða grein
um frelsi o.fl.
Að sjálfsögðu er ekki ætlun hans að
koma þesari ungu menntakonu á
framfæri heldur að nota hana sem
eins konar leikmun til að matreiða
sínar eigin skoðanir.
Eftir nokkurn undirbúning rennur
viðtalið af stað en þótt ráðherrann sé
þungavigtarmaður á þessu sviði með
pólitíska frasa á hraðbergi og áralanga
þjálfun í útúrsnúningum þá tekst
ungu konunni að þvæla honum inn í
öngstræti þar sem ráðherranum verð-
ur fótaskortur á tungunni og fjúka þar
nokkur orð sem eftir á að hyggja
hefðu betur verið ósögð að hans mati.
Sagt hefur verið að sögð orð verði
aldrei aftur tekin. í hljóðstofunni má
hins vegar klippa, bæta og breyta.
Spjallinu lýkur og Irena hin unga er
send heim en nú er komið að þætti
dagskrágerðarfólksins og ráðherrans.
Tími skæranna er runninn upp.
í þessu verki sem er prýðilega vel
skrifað er fjallað um togstreituna milli
þess að vera heill í starfi og hugsun og
þess að falla fyrir efnislegum gæðum
svo sem völdum, stöðuhækkunum
eða jafnvel standa frammi fyrir því að
missa vinnuna ef amast er við siðleys-
inu.
6.MAÍ
veróur Samvinnubankinn
aó Landsbanka
á fíórum stöóum á landinu
BorgarJjöróur eystri j
Egilsstaöir
1 framhaldi af kaupum Landsbankans á Samvinnubank-
anum verðtir Samvinnubankinn fonnlega að Landsbanka
á eftirtöldúaí íjórum stöðum þann 6. maí n.k. Útibúin á
Egilsstöðum og Stöðvarfirði opna undir merkjum Lands-
Vbarikans ásamt afgreiðslunni á Borgarfirði eystra á þeim
stöðum sém Samvinnubankinn var til húsa áður. Á
s Ureiödalsvík sameinast afgreiðsla Samvinnubankans
C# ifk * Landsbankaafgreiðslunni að Selnesi 38. Lands-
JJ -Mk bankinn býður viðskiptavini velkomna á öllum
Breiödalsvík > tfi * þessum stöðum og óskar starfsfólki velfamaðar
undir nýju merki.
* _ *
x ♦ + » +
Afgreiðslutími og símanúmer Landsbankans á stöðunum
fjómm verða eftirfarandi: Egilsstaðir kl. 9:15-16:00, sími
f 97-11233. Stöðvarfjörður kl. 9:15-12:00 og 13:00-16:00,
sími 97-58900. Borgarfjörður mán., mið. og fös. kl. 13:00-
15:00, sími 97-29965. Breiðdalsvík kl. 9:15-12:30
... ; og 13:30-16:00,
sími 97-56700.
Landsbanki
fslands
Bankl allra landsmanna