Tíminn - 04.05.1991, Page 11

Tíminn - 04.05.1991, Page 11
Laugardagur 4. maí 1991 HELGIN 19 T ■—--------------------------------------------—— ------------------------ SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL út úr húsinu. Það var aðeins ein leið út úr íbúðinni, dyrnar fram á gang- inn — nema því aðeins að hann hefði stokkið fram af svölunum, sem þótti ólíklegt þar sem fallið var rúmir sex metrar. Fyrir neðan sval- irnar voru girðingar og grjót og það virtist útilokað að nokkur hefði get- að stokkið þar niður án þess að stórslasast. Rannsóknin var nú komin í þrot. Lögreglumennirnir ákváðu því að staldra við og bíða hvort tækni- deildin hefði náð í eitthvað á vett- vangi sem vísað gæti þeim leiðina. Ekkert kom í ljós. Lögreglan tók því aftur við að rannsaka fortíð JoAnn Clemons í þeirri von að fá bitastæðar upplýs- ingar. Vinir hennar og ættingjar voru vandlega yfirheyrðir. Nágrannar JoAnn og samstarfs- menn á barnaheimilinu þar sem hún vann lýstu henni sem viðkunn- anlegri og þægilegri manneskju. Flestir dáðust að því hvað hún vann mikið til þess að geta séð dóttur sinni fyrir þeim þörfum sem ung- lingar hafa. Flestir sögðu líka að þeim mæðgunum hefði komið frá- bærlega vel saman. Móðir og dóttir Flestir — en ekki allir. Konan sem bjó í íbúðinni við hliðina á þeim mæðgum skýrði frá því að þær hefðu iðulega rifist með þvílíkum látum að það hefði haldið fyrir henni vöku um nætur. Lögreglan komst líka að því að það var ekki um neinn afbrýðisaman elskhuga að ræða. Ef JoAnn hafði verið með einhverjum karlmanni vissu hvorki nágrannar hennar né samstarfsmenn neitt um það. „Hún helgaði sig alfarið uppeldi Kurt Michaels greip til róttækra ráða til að vemda vinkonu sína fyrír þeim misþyrmingum sem hann sagði móður hennar berta hana. dóttur sinnar," sagði eitt vitnið. „Hún reyndi hvað hún gat til að hjálpa dóttur sinni í gegnum erfið- leikana." „Hvaða erfiðleikar voru það?“ spurði einn lögreglumaðurinn. „Fíkniefni. Christina var komin á kaf í fíkniefnaneyslu," var svarið. Richard Bass rannsóknarlögreglu- maður fór nú að velta fyrir sér þeim möguleika hvort Christina hefði sjálf ráðist á móður sína og drepið hana og rifið föt hennar til þess að láta líta út fyrir að nauðgari hefði verið að verki. En hann var fljótur að útiloka þá hugmynd. Það þyrfti mjög sterkan mann, viti sínu fjær, til að leika konuna svo illa sem raun bar vitni. En eftir því sem Bass heyrði meira um ósamkomulagið milli mæðgn- anna þeim mun meiri efasemdum fylltist hann. Honum fannst óskýrt hvarf Christinu eftir morðið einnig mjög grunsamlegt. Þegar lögreglan Ioks náði og gat yfirheyrt Christinu sagðist hún enga hugmynd hafa um það hver hefði getað myrt móður hennar. Nei, móðir hennar hafði aldrei minnst á að dularfullur maður veitti henni eftirför eða angrað hana á nokkurn hátt. Nei, þeim höfðu ekki borist símhringingar frá ein- hverjum vitfirringum. Já, allt hafði verið f sómanum milli þeirra mæðgna. En við nánari yfirheyrslur gerði Christina nokkrar athugasemdir sem urðu til þess, ásamt fleiri sönn- unargögnum sem síðar komu í ljós, að handtökuskipun var gefin út á tvo menn. Daginn eftir voru Christ- ina og mennirnir sett í varðhald og sökuð um morð. Mennirnir tveir voru Kurt Michaels, 24 ára, og Darren Popik sem var nokkrum ár- um eldri. „Vemdarengillinn“ Fjórum dögum eftir að Kurt Mi- chaels var handtekinn játaði hann í viðurvist hraðritara. Aðalinntak frá- sagnar hans var að hann hefði myrt JoAnn Clemons með aðstoð Darren Popik af því að JoAnn hefði mis- þyrmt dóttur sinni bæði kynferðis- lega og andlega svo árum skipti. Aðspurður hvers vegna Christina hefði ekki flutt burt, sagði hann ástæðuna ofur einfalda. Það var ódýrara fyrir hana að búa hjá móður sinni en nokkurs staðar annars staðar. Um leið og Kurt Michaels hafði ját- að á sig morðið hélt lögreglan til unglingaheimilisins þar sem Christina var í haldi. Þeir spurðu hana um það hvort móðir hennar hefði misnotað hana kynferðislega og um barsmíðarnar sem Kurt hafði sagt að hún hefði fengið ef hún neit- aði kynferðislegum tilmælum móð- ur sinnar. Svörin sem þeir fengu voru bæði loðin og teygjanleg. Þegar málið kom fyrir dóm í maí 1990 var réttarsalurinn troðinn út úr dyrum. Lögfræðingur sem ríkið hafði útvegað Kurt Michaels lagði til að hann bæri við geðveiki, en skjólstæðingur hans var ekki hrif- inn af þeirri uppástungu. Michaels ákvað þá að verja sig sjálfur, en dómarinn krafðist þess að hann fengi tvo réttarskipaða lögfræðinga til að vera í forsvari fyrir sig. Micha- els taldi það hinn mesta óþarfa, þar sem hann væri fullfær um að leysa þennan „smávanda“ sjálfur. Meðan á réttarhöldunum stóð lýsti dómarinn því yfir að hann væri því feginn að fjölmiðlarnir hefði ekki náð í söguna um kynferðislegu mis- notkunina. En hún hlaut að koma fram í dagsins ljós. Kurt Michaels lýsti JoAnn Clem- ons sem kynferðisglæpamanni. Hann sagðist hafa stungið hana til bana af því að hann hefði vorkennt Christinu vinkonu sinni. Hann sneri sér að kviðdómnum, en í hon- um voru sex konur og sex karl- menn, og lýsti því yfir að hann hefði viljað leysa Christinu undan því kynferðislega ofbeldi sem móðir hennar hefði beitt hana. Hann sagði líka að Christina hefði grátbeðið sig um að myrða móður hennar. Svo hann fékk tvo félaga sína, Darren Popik og annan til — sem keyrði — til að aðstoða sig við verkið. Ríkissaksóknari hélt því fram að Kurt Michaeis væri „andstyggilegur lygari" sem væri aðeins að reyna að bjarga eigin skinni. Ákæran á hend- ur Kurt var morð að yfirlögðu ráði í ábataskyni. Ef hann yrði fundinn sekur myndi dómurinn hljóða upp á aftöku í gasklefanum í San Quentin. í opnunarræðu sinni kvaðst sak- sóknari reiðubúinn að færa sönnur á að Michaels og Popik hefðu myrt konuna á meðan Christina — en ekki þriðji karlmaðurinn — beið úti í bfl. Skoðunarferð á vettvang 29. maí 1990 var farið með kvið- dómendur í skoðunarferð í íbúð Jo- Ann Clemons. Þeir tróðu sér inn í litla svefnherbergið þar sem JoAnn hafði verið stungin til bana á grimmdarlegan hátt. Nokkrir kvið- dómenda litu niður af svölunum, en Kurt Michaels kvaðst hafa stokkið þar niður þegar hann heyrði lög- regluna berja á dyrnar. Gaylor rannsóknarlögreglumaður lýsti því hvernig lögreglan teldi að morðið hefði átt sér stað, sam- kvæmt rannsóknum sem gerðar voru á vettvangi. Hann stóð á svöl- unum og benti á bifreiðastæðið sem tilheyrði fjölbýlishúsinu. „Þarna beið Christina í bílnum.“ Hann skýrði frá því að íbúar hússins hefðu séð konu í bfl þar morðkvöldið, en Michaels „vildi telja ykkur trú um að það hefði verið þriðji karlmaður- inn.“ Gaylor lýsti því fyrir kviðdómend- um hvernig Darren Popik, Christ- ina Clemons og Kurt Michaels hefði beðið á bifreiðastæðinu eftir því að JoAnn slökkti ljósin og legðist til svefns. Eftir að slökkt hafði verið í íbúðinni héldu mennirnir tveir upp í íbúðina og opnuðu með lykli sem Christina hafði látið þeim í té. JoAnn Clemons var ekki mikil hús- móðir. Eitt vitnanna hafði lýst því yfir að yfirleitt hefði íbúð hennar litið út eins og fellibylur hefði farið þar um. Þegar innbrotsþjófarnir voru að fálma sig áfram í myrkrinu hrasaði Popik um eitthvað af drasl- inu á gólfinu og féll endilangur á borð. JoAnn vaknaði samstundis við hávaðann og byrjaði að æpa. Þá var það að Popik réðst á hana og byrjaði að slá hana í andlitið til þess að þagga niður í henni. En Popik komst fljótlega að því að JoAnn var ekki manneskja sem gafst upp bar- áttulaust. Hún klóraði hann í fram- an og sparkaði í hann. Mótstaða hennar reytti Popik til reiði svo hann barði JoAnn aftur og aftur með krepptum hnefa og braut bæði kjálka hennar og nef. Hann rak einnig fingurna upp í munn hennar og niður í kok. Þá var það sem Kurt Michaels réðst líka á hana. „Hann réðst á hana af dýrslegu hatri," sagði Gaylor. Árásarmaður- inn stakk hana sex sinnum og það eina sem stöðvaði hann var að hníf- urinn brotnaði í brjósti hennar. Þá skar hann hana á háls. Felldir á nafn- spjöldum Ríkissaksóknari kom einnig með tvö nafnspjöld sem lögreglan hafði fundið eftir morðið. Þau fundust í veiðikassa sem Christina Clemons og elskhugi hennar, Kurt Michaels, áttu. Saksóknari benti á að þessi kort væru mikilvæg sönnunargögn í málinu. Christina Clemens hefði skrökvað því, þótt eiðsvarin væri, að hún hefði sett kortin í kassann mörgum mánuðum áður en morðið var framið. En hann sýndi fram á að útilokað hefði verið að kortin hefði lent þar fyrr en í endaðan ágúst 1988. „Það er símanúmer aftan á öðru kortinu og það var ekki skrifað þar fyrr en sex vikum áður en JoÁnn Clemons var rnyrt. Það var garð- yrkjumaður sem hafði unnið fyrir barnaheimilið þar sem hún starfaði sem hafði skrifað númerið sitt á kortið ef svo kynni að fara að hún þyrfti á þjónustu hans að halda. Og það gerði hann aðeins sex vikum fyrir morðið." Kurt Michaels mótmælti þessu harðlega og sagði þetta vera „mál- inu allsendis óviðkomandi". En allir í réttarsalnum vissu að saksóknari var að sanna að kortin hefði verið tekin í íbúðinni þegar morðin voru framin. Ríkissaksóknari komst enn nær takmarki sínu þegar hann lagði fram blóðug föt sem fundust höfðu hjá bæði Darren Popik og Kurt Mi- chaels. Hann benti einnig á að al- kunna væri að Kurt Michaels væri fíkniefnaneytandi og að Christina Clemons bæði neytti fíkniefna og seldi þau. Réttarskipaðir verjendur Kurt Mi- chaels kvöddu ekki til nein vitni. Þess í stað reyndu þeir að gera lítið úr vitnum ríkissaksóknara og gera framburð þeirra tortryggilegan. Mánudaginn 4. júní lauk réttar- höldunum og dómarinn tók sér góðan tíma til að gera kviðdómend- um grein fyrir skyldum þeirra. Ef þeir kæmust að þeirri niðurstöðu að Kurt Michaels væri sekur um morð að yfirlögðu ráði, yrðu þeir einnig að ákveða hvort dæma skyldi hann til ævilangrar fangelsisvistar án möguleika á náðun eða lífláts. Þungir dómar Það tók kviðdóminn tvo daga að komast að niðurstöðu. Kurt Micha- els var sekur fundinn fyrir að hafa myrt JoAnn Michaels. Kviðdómend- ur komust einnig að þeirri niður- stöðu að morðið hefði verið framið að yfirlögðu ráði og að sakborning- ur ætti sér engar málsbætur. Og dauðadómur var kveðinn yfir Kurt Michaels. Christina Clemons játaði á sig að- ild að manndrápi. Hún var dæmd af unglingadómstóli Kaliforníufylkis og er ekki gert ráð fyrir að hún sleppi fyrr en í fyrsta lagi þegar hún verður 25 ára gömul. Darren Popik var dæmdur til ævi- langrar fangelsisvistar án mögu- leika á náðun. Ættingi Kurt Michaels skýrði frá því eftir réttarhöldin að Michaels hefði skýrt honum frá því að Darren Popik hefði myrt JoAnn Clemens en ekki hann. „Hann telur það dreng- skaparatriði að taka á sig sökina. Hann vill heldur láta dæma sig til dauða fyrir morð heldur en að kjafta frá glæpum félaga síns." Eftir að hafa sannað þannig karl- mennsku sfna var Kurt Michaels fluttur á dauðadeild San Quentin fangelsisins og bíður þar þess að af- tökudagurinn renni upp.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.