Tíminn - 08.05.1991, Side 2

Tíminn - 08.05.1991, Side 2
2 Tíminn Hafa EES-samningarnir í för með sér að leyfður verði frjáls innflutningur á tómötum og agúrkum? Samið er um tómata og gúrkur í EES-viðræðum íslenskir garðyrkjubændur óttast að hagsmunum þeirra verði fóm- að í samningum um Evrópskt efnahagssvæði (EES) sem nú standa yfir. í viðræðunum hefur Evrópubandalagið lagt fram Iista yfir 72 landbúnaðarafurðir og óskað eftir að EFTA-Iöndin heimili tollfijáls- an innflutning á þeim. Á Iistanum eru vömr eins og tómatar og ag- úrkur, en íslenskir garðyrkjubændur framleiða mikið af þeim. Jón Baldvin Hannibalsson utanrík- isráðherra hefur viðrað þá hugmynd að leyfa EB-þjóðum að flytja inn landbúnaðarvörur til íslands ef það mætti verða til þess að EB felldi nið- ur tolla af íslenskum sjávarafurðum sem seldar eru á mörkuðum EB- landa. Flestar þjóðir í EB og EFTA eru hins vegar mjög tregar til að auka frelsi í viðskiptum með land- búnaðarvörur. EB hefur aftur á móti lagt fram lista yfir 72 vörur sem bandalagið vill að verði seldar milli landa tollfrjálst. Þar er fyrst og fremst um að ræða grænmeti og ávexti, vör- ur sem íslendingar framleiða ekki og hafa því verið fluttar inn í áratugi. Á listanum eru einnig vörur eins og tómatar og agúrkur, en þessar tvær vörur framleiða íslenskir garðyrkju- bændur í miklu magni. Ekki hafa verið fluttir til landsins tómatar og agúrkur þann tíma sem íslenskir tómatar og agúrkur fást á markaðin- um hér heima. Ekki er fullkomlega ljóst hvort gerð verður breyting á þessu ef listi EB verður tekinn inn í EES-samninginn. Umræddur listi felur það í sér að vörurnar sem á honum eru verða seldar tollfrjálst milli landa. Jón Pét- ursson, garðyrkjubóndi í Reykholts- dal í Borgarfirði, sagði í samtali við Tímann að ef erlendir tómatar verði fluttir inn til Iandsins tollfrjálst þýði það að innlend framleiðsla standi ekki jafhfætis í samkeppni við er- lenda framleiðslu. Hann sagði að í flestum löndum Evrópu njóti garð- yrkjubændur mikilla ríkisstyrkja. Framleiðsla þeirra sé í reynd niður- greidd. Hann nefndi sem dæmi að garðyrkjubændur í Noregi fá um 30 krónur í styrk frá norskum stjóm- völdum fyrir hvert kfló af tómötum sem selt er á 50 krónur kflóið. Jón sagði að í flestum Evrópulöndum væri litið á garðyrkju sem hefðbund- inn landbúnað og garðyrkjubændur nytu þar styrkja og niðurgreiðslna líkt og sauðfjárbændur og kúabænd- ur gera hér á landi. Jón sagði að á fs- landi nytu garðyrkjubændur engra styrkja og væru algerlega háðir markaðinum. Jón sagði að íslenskir garðyrkju- bændur gætu staðist samkeppni ef þeir stæðu jafnfætis garðyrkjubænd- um í öðmm löndum, en það gerðu þeir ekki ef tollar yrðu algerlega felld- ir niður og erlenda framleiðslan yrði áfram styrkt og niðurgreidd í fram- leiðslulandinu. Jón sagðist hafa spurt að því fyrir kosningar hvort íslensk- um garðyrkjubændum yrði fórnað f samningunum um Evrópskt efna- hagssvæði. Hann sagðist ekki hafa fengið skýr svör. Jón sagðist hins veg- ar treysta því að ný ríkisstjórn vildi gæta hagsmuna íslenskra garðyrkju- bænda sem og annarra bænda. Það væri hins vegar ástæða fyrir garð- yrkjubændur að fylgjast vel með því sem gerist í samningaviðræðunum um EES. Það væri vitað að í samn- ingum þyrftu menn stundum að fóma vissum hlutum til að ná fram því sem að væri stefnt. - EÓ Djasshátíðin RÚREK verður haldin í Reykiavík í lok maí og byrjun júní. Frá vinstrí taiið: Guðmundur Emils- son, tónlistarstjórí RÚV, Ámi Scheving, FIH, Pétur Grétarsson, framkvæmdastjórí RÚREK, Sigurður Flosa- son, FlH, og Fríðrík Theódórsson, FlH. I baksýn eru ungir djassleikarar. Timamynd: Ámi Bjama. Djasshátíð í Reykjavík: Fjöldi tónleika og úrvals listamenn Ökupróf ríkisins: Yfirmanni sagt upp Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð- herra hefur leyst Guðjón Andrés- son, forstöðumann Ökuprófa ríkis- ins, frá störfum, meðan verk hans eru hjá Rannsóknarlögreglunni. Föstum ráðningarsamningi við Guðjón er líka sagt upp. Lýkur þar með endurskoðun Þorsteins á emb- ættisfærslum Óla Þ. Guðbjartssonar, fyrrverandi dómsmálaráðherra. -aá. Þroskaheftur mað> ur sem varð konu að bana: Dæmdur ósakhæfur Sakadómur Reykjavikur hefur dæmt 29 ára gamlan þroskaheft- an mann, sem 14. febrúar síðast- liðinn varð konu að bana í Reykja- vflc, ósakhæfan. Hann skal vistað- ur á þar til gerðu hæll um óákveft- inn tíma. í dómnum er tekið fram að maðurinn þurfí mjög á læknis- aðstoð að halda. -aá. Ekki skatt á minni mengun Samkvæmt viðauka við reglugerð um mengunarvamir eiga allir fólks- bflar af árgerðinni 1992 að vera út- búnir sérstökum mengunarvama- búnaði. Þetta myndi hafa það í för með sér að bflar myndu hækka í verði, lík- lega um 10%. Nú eru að fara af stað viðræður milli umhverfisráðuneyt- isins og fjármálaráðuneytisins um að breyta skattlagningu á nýjar bif- reiðar þannig að ríkissjóður græði ekki á þessari breytingu á bflunum, en það myndi hann gera að óbreytt- um forsendum. „Ríkisstjórnin er sammála um að ríkissjóður eigi ekki að græða á þessum búnaði heldur að við öll græðum á þessum með hreinna lofti,“ sagði Eiður Guðna- son umhverfísráðherra. -EÓ Það verður mikið um að vera í Reykjavík dagana 26. maí til 2. júní en þá verður haldin vegleg djasshá- tíð sem ber heitiö RÚREK ‘91. Það em djassdeild Félags íslenskra hljómlistarmanna og Rfldsútvarpið sem standa að hátíðinni, með stuðningi frá Reykjavíkurborg. Alls verða um 50 uppákomur, víös vegar um borgina meðan á hátíðinni stendur. Hátíðin hefst með opnunarhátið í Borgarleikhúsinu sunnudaginn 26. maí, en síðan rúllar boltinn með fjölda tónleika utanhúss og innan í heila viku. Tilgangurinn er að kynna djasstóniist sem hluta af menningu þjóðarinnar. Öll kvöld verður boðið upp á lifandi tónlist í veitingahúsun- um Djúpinu, Duus húsi, Kringlu- kránni, Púlsinum, Tveimur vinum og á Hótel Borg. Auk þess verða tón- leikar utandyra ef verður leyfir. Tónlistamennirnir sem koma fram á hátíðinni eru frá öllum Norður- löndunum, en hátíðin er styrkt af Nordjass sem er sameiginlegt bandalag djasstónlistarmanna í þessum löndum. Af erlendum gestum má nefna New Jungel TVio frá Danmörku en forsprakki tríósins er Pierre Dörege. Einnig kemur hingað Karin Krog sem er ein virtasta djasssöngkona Norðurlanda. Auk þessa leika síðan allir fremstu íslensku djassleikar- arnir. Guðmundur Emilsson, tónlistar- stjóri Ríkisútvarpsins, sagði að mik- ið yrði útvarpað á báðum rásum RÚV dagana sem hátíðin yrði auk þess sem upptökur yrðu sendar er- lendum útvarpsstöðvum. Hann sagðist vona að þessi hátíð gæti orð- ið árleg og sagði hana vera hluta af menningarviðleitni Ríkisútvarpsins gagnvart listum í landinu. -sbs. Grunnskólinn á Raufarhöfn sýnir: I teiti hjá prinsessu „Leikstjórinn okkar, Guðfinna Margrét Óskarsdóttir, samdi leik- ritið, „í teiti hjá prinsessunni á bauninni". Hún hannaði líka bún- inga og sviðsmynd. Það eru krakkar úr Grunnskóla Raufarhafnar sem sjá um leikinn, með aðstoð Leikfélagsins. Þetta er mjög skemmtilegt og viðamikið verk. Þar er fléttað saman þáttum úr gömlu ævintýrum eins og Öskubusku, Hans og Grétu og Rauðhettu. Við frumsýnum á fimmtudagskvöldið hér á Raufar- höfn. Síðan verða sýningar á föstu- dag, laugardag og sunnudag, allar hér í bænum. Við ætlum ekki að fara um með sýninguna, hún er bara of viðamikil til þess. Það má segja að meirihluti bæjarbúa taki á einhvern máta þátt í henni," segir Sigurveig Björnsdóttir, formaður Leikfélags Raufarhafnar. -aá. Miðvikudagu 8. maí 1991 Sigurvegamir á Vetrarmóti Geysis 1991. Magnús Hreins- son á hryssunni Kleópötru. Vetrarmóti Geysis lokið: Hry?surnar sigruðu Tvær hryssur frá Árbakka í Landsveit, í eigu bræðranna Anders og Lars Hansen, urðu efstar að stígum á Vetrarmóti hestamannafélagsins Geysis í Rangárvallasýslu sem er nýlok- ið. Hryssan Kleópatra sigraði og var með 34 stig og Sverta með 33 stig. Knapi á Kleópötru var Magnús Hreinsson og Jasja van Veen á Svertu. Hryssa varð einnig í þriðja sæti töltkeppninnar, Diljá frá Skarði, og hlaut hún 29 stig. Eigandi hennar er Fjóla Runólfsdóttir f Skarði en knapar í vetur hafa ver- ið Kristinn Guðnason og Borg- hildur Kristinsdóttir. Veglegir eignarbikarar voru veittir þremur efstu hrossunum í stigakeppninni og eigendur efsta hrossins hlutu að auki folald í verðlaun. Folald var einnig í verðlaun í barnaflokki en þar sigraði í stigakeppninni Sigríður Theódóra Kristinsdóttir í Skarði á Landi. Vetrarmót Geysis var nú haldið annan veturinn í röð en þetta er eina hestamótið sem haldið er með þessu sniði, þ.e. að hross safni stigum frá einu móti til annars ,og stigahæsta hrossið á öllum mótum vetrarins stendur uppi sem sigurvegari. Að sögn Kristins Guðnasonar, formanns Geysis, hefur verið ákveðið að halda vetrarmót með líku sniði á næsta ári. Kvenprest- ar sækja á Sextáa guðfræðingar, vígðir sem óvígðir, sækja um sex prestsembætti sem biskup aug- lýstí lausar Ö1 umsóknar. Af þessum sextán manna hópi eru fjórar konur. Konuraar sem sækja um eru Inglleif Malmberg sem er um- sækjandi að Norfiarðarpresta- kalli. Guðrún Edda Gunnars- dóttir sældr um Langholts- prestakafl í Reykjavík, Irma Sjöfn Óskarsdóttír um stöðu að- stoðarprests í Seljaprestakafli í Reykjavík og loks sr. Ragnheið- ur Eria Bjarnadótör á Raufar- höfn um stöðu farprests í Kjal- arnesprófastdæmi. Að sögn Þorbjöras Hlyns Áraa- sonar biskupsiitara eru 20 kon- ur hér á landl vígðar tfl prests en þar af eru 16 konur í þjónustu. Hefur þessi tala farið hækkandi undanfarín ár. Starfandl prestar eru um 130 talsins. í guðfærðideild Háskóla ís- lands eru fleiri kariar en konur við nám, þótt þar sé meira jafh- vægi milli kynjanna en meöal vfgðra guðfræðinga. Á haust- misseri stunduðu 38 kariar þar nám og 24 konur. -sbs.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.