Tíminn - 08.05.1991, Blaðsíða 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
RÍKISSKIP
NUTIMA FLUTNINGAR
Hotnarhusinu v Tryggvogotu.
S 28822
Ókeypis auglýsingar
fyrir einstaklinga
POSTFAX
91-68-76-91
iel
'yif HOGG-
. DEYFAR
Verslió hjá fagmönnum
GSvarahlutir
^^Haamshðfða I-UUTWT|
rjniinn
MIÐVIKUDAGUR 8. MAl 1991
Eiður og Halldór togast á um Landgræðslu og Skógrækt:
NYBAKAÐIR RADHERRAR
KOMNIRIHAR SAMAN
Svo er að sjá sem að milli landbúnaðarráðherra og um-
hverfísráðherra ríki nokkur togstreita um verkaskipt-
ingu milli ráðuneytanna sem ráðherrarnir stýra. Eiður
Guðnason umhverfísráðherra segir að samkomulag hafí
verið gert milli stjómarflokkanna um að Skógræktin og
Landgræðslan verði færð til umhverfísráðuneytisins, en
Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra segir eðlilegt að
stofnanimar heyri undir landbúnaðarráðuneytið.
Eiður sagði að þegar formenn
Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks
sömdu um verkaskiptingu milli
flokkanna hafi það orðið að sam-
komulagi milli flokkanna að til
umhverfisráðuneytisins yrðu flutt
aukin verkefni og stofnanir sem
snerta umhverfismál með einum
eða öðrum hætti og yrðu undir
stjórn ráðuneytisins. Ákveðið hafi
verið að Skógrækt ríkisins, Land-
græðsla ríkisins og meginhlutinn
af starfsemi Hollustuverndar ríkis-
ins yrði færð til umhverfisráðu-
neytisins. „Mér dettur ekki annað í
hug en að við þetta samkomulag
verði staðið,“ sagði Eiður.
Halldór Blöndal segir hins vegar í
viðtali við DV: „Skógræktin er að
hluta til orðin búgrein. Ég tel
bæði faglegt og eðlilegt að þessar
tvær stofnanir heyri undir land-
búnaðarráðuneytið. Ég sé ekki al-
veg rökin fyrir annars konar skip-
an mála.“
Svo er að sjá sem Eiður verði að
berjast fyrir því að fá umhverfis-
ráðuneytinu aukin verkefni líkt og
Júlíus Sólnes þurfti að gera. Júlíus
varð undir í þeirri baráttu. Nú er
að sjá hvort Eiður hefur betur í
glímunni við Halldór.
-EÓ
Líf og flör var í fundarsalnum í
gær og stuðningsmenn beggja
liöa hvöttu sína menn til dáða.
Mælskukeppni
grunnskóla:
Árbæjar-
skóli
sigraði
Siguriið Árbæjarskóla. Tlmamynd: Ami Bjama
Úrslit í mælskukeppni grunn-
skóla Reykjavíkur réðust í gær,
þegar Arbæjarskóli sigraði Lauga-
lækjarskóla í úrslitakeppni þar
sem Laugalælqarskóli fullyrti að
fegurðin skapaði hamingjuna, en
Árbæjarskóli var því mótfallinn.
í liöi Árbæjarskóla voru Bima
Anna Björnsdóttir frummælandi,
Hulda Björg Herjólfsdóttir með-
mælandi, en hún var valin ræðu-
maður dagsins, Vilhjálmur Björn
Sveinsson stuðningsmaður og
Eggert Gíslason liðsstjóri.
Lið Árbæjarskóla hlaut 1449 stig
í keppninni.í liði Laugalækjar-
skóla voru Edda B. Andradóttir
frummælandi, Haukur Þ. Hansson
meðmælandi, Sigurrós Jóhanns-
dóttir stuðningsmaður og Bjarni
M. Gylfason liðsstjóri.
Lið Laugalækjarskóla fékk 1342
stig.
Sakadómur Reykjavíkur:
Lögreglumaöur
dæmdur í 3ja
mán. fangelsi
Sakadómur Reykjavíkur hefur
dæmt lögreglumann í þriggja mán-
aða fangelsi og 125.000 kr. sekt
fyrir hrottaskap við handtöku á
manni. Um er að ræða brot í opin-
beru starfi vegna líkamsmeiðinga á
22 ára gömlum manni.
Þann 27. desember síðastliðinn
hafði lögreglumaðurinn afskipti af
hópi manna á mótum Bergþórugötu
og Frakkastígs. Maðurinn, sem fyrir
varð, sinnti í engu fyrirmælum lög-
reglumanna og hugðist hverfa á
braut. Lögreglumaðurinn er ákærð-
ur fyrir að hafa hrakið manninn á
undan sér niður allan Frakkastíg.
Tekið hann kverkataki, svo hann
missti meðvitund, og dregið hann
þannig til baka. Þá á lögreglumaður-
inn að hafa látið hinn. handtekna
falla í götuna með þeim afleiðingum
að hann slasaðist alvarlega í andliti.
Dómurinn telur sannað að maður-
inn hafi hlotið sár sín af völdum lög-
reglumannsins.
Lögreglufélagið lítur málið alvar-
legum augum. Því þykir dómurinn
harður og ætlar lögreglumaðurinn
að áfrýja honum til Hæstaréttar.
-aá.
Ferðaskrifstofur:
Straumurinn er í sólina
og vei gengur
íslendingar ætla í sólina í ár elns
og fyrri ár. Þangað Uggur straum-
urinn. Ferðaskrifstofum gengur
vel aö bóka. Ætia menn þar að
pantanir verði ekld færri en í
fyrra. Mallorca, Spánn, ftalía,
Portúgal og Malta eru vinsælastir
áfangastaða.
Sölumenn á ferðaskrifstofum,
sem Tíminn hafði samband við,
voru sammála um að Flóabardag-
inn hefði ekki sett strik í reikning
þeirra. Bókanir væru engu færri
en í fyrra. Sú breyting heföi þó
orðið á að nú bærust pantanir
jafnt og þétt, ekki í hópum. Sum-
ir höfðu á orði að markaðurinn
hériendis væri að ná ákveðnu
jafnvægi. Eftirspum væri ámóta
mildl frá ári til árs, breyttist ekki
mikið. Þannig væri orðið hægara
að hafa tök á ölium rekstri. Þá
hafa ferðaskrifstofumar nú með
sér samstarf og samráð um Íeigu-
flug. Þannig má tryggja að sem
flestar vélar verði fullar og nýt-
ingin mest og best.
-aá.