Tíminn - 08.05.1991, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Miðvikudagur 8. maí 1991
KFTiMINNING
Sveinn Pálsson
menntaskólakennari
Fæddur 30. september 1922
Dálnn 18. apríl 1991
Ætt og uppvöxtur
Hann var borgarbarn, fæddur í
Reykjavík. Faðir hans var Páll
Sveinsson, yfirkennari við Mennta-
skólann í Reykjavík (1878-1951), og
Þuríður Káradóttir, kona Páls, móð-
ir hans. Hún var úr Mosfellssveit.
Langalangafi Sveins menntaskóla-
kennara var alnafni hans, hinn
kunni læknir og náttúrufræðingur
(1762-1840). Faðir Páls Sveinssonar
var sr. Sveinn Eiríksson, prestur að
Ásum í Skaftártungu, en móðir hans
var Sigríður, dóttir Sveins Pálsson-
ar, sem fyrr er getið. Sr. Sveinn
drukknaði í Kúðafljóti 19. júní
1907,63 ára að aldri.
Námsár, heima og erlendis
Eins og að líkum lætur var Sveinn
látinn ganga menntaveginn, sonur
sjálfs menntaskólakennarans.
Skólanám var honum engin þraut
né þvingun, því að allt nám var hon-
um leikur einn. Einkum voru
tungumálin honum mjög hugstæð.
Að sjálfsögðu stundaði hann nám
sitt í máladeild M.R. Latína var það
tungumál sem hann náði bestum
tökum á, svo og þýskan. Mér er til
efs að betri latínukennari hafi fyrir-
fundist hérlendis en hann meðan
hann stundaði kennslu við mennta-
skóla. Stúdentsprófi lauk Sveinn tví-
tugur, vorið 1943, með mjög hárri
einkunn eins og vænta mátti. í hópi
stúdenta frá M.R. þetta vor, auk
Sveins og enn eru á lífi, má nefna:
Bjöm Th. Bjömsson listfræðing,
Pál Líndal ráðuneytisstjóra, Jónas
Kristjánsson forstöðumann Árna-
stofnunar, Jóhannes Nordal Seðla-
bankastjóra, Benedikt Gröndal
sendiherra og Finnboga Guð-
mundsson landsbókavörð. Auk
margra annarra þekktra manna og
kvenna.
Ekki gat hjá því farið að Sveinn
hygði á framhaldsnám að stúdents-
prófi loknu. Til þess hafði hann og
alla burði. Hann las latínu, þýsku og
alþjóðalög í þremur borgum: Edin-
borg, Ziirich og Nijmegen í Hol-
landi. Hvers vegna hann las alþjóða-
lög er mér ókunnugt. Aldrei mun
hann hafa notað þá menntun,
hvorki hér né erlendis. Að námi
loknu var Sveinn orðinn hámennt-
aður maður, þá þrítugur að aldri.
Hlé varð dálítið á námi hans erlend-
is og stundaði hann þá kennslu hér
heima. Hann var það sem kalla má
klassískan menntamann, einn af fá-
um. Slæmt hefði það verið, ef slíkur
gáfumaður sem hann hefði orðið að
fara á mis við menntun, en það hafa
því miður margir hans líkar orðið að
þola. Sveinn hlaut að ganga
menntaveginn, að því studdi arfur,
gáfur, dugnaður og hagstæð búseta.
Kennsla, heima og erlendis
Eins og fyrr er frá greint kenndi
Sveinn með námi, aðallega latínu og
þýsku. En segja má að kennsla hans
hefjist fyrir alvöru, er hann fær
stöðu við Menntaskólann á Laugar-
vatni 1953. Þar kenndi hann í 6 ár
og þar naut hann sín best sem kenn-
ari hér heima, sagði hann mér. Aðal-
greinar hans voru að sjálfsögðu lat-
ína og þýska. Maður mér nauða-
kunnugur sagði mér að Sveinn hefði
verið frábær kennari í þessum
greinum, alveg pottþéttur, eins og
hann orðaði það. Fleiri orð þarf ekki
að segja til að koma því að sem eru
aðalatriðin. Frá Laugarvatni fór
Sveinn því miður allt of snemma og
nú varð lausara um hann en fyrr.
Hann kenndi á Núpi í Dýrafirði í
nokkur ár, einn vetur við gagn-
fræðaskólann í Vestmannaeyjum og
kom við aðeins á Reykjum í Hrúta-
firði. Kennsla við menntaskóla og
háskóla var Sveini vitanlega keppi-
kefli, þar naut hann sín best. Þetta
var kennslan hér heima, svona í að-
aldráttum. Eitthvað mun Sveinn
hafa kennt við M.R. Erlendis kenndi
Sveinn lengst í Sviss, við mennta-
skóla í Zúrich. Vafalaust hefur hann
þótt þar hinn liðtækasti kennari
eins og hér heima.
Persónulegar minningar
Um Svein á ég mjög persónulegar
minningar. Hann kenndi mér latínu
undir stúdentspróf máladeildar í
M.R. Það var sumarið 1966, sem ég
var að ljúka þessum námsferli, er
hófst haustið 1962. Ég las utan skóla
til stúdentsprófs, vegna þess að ég
var bundinn við störf, þá kennari og
skólastjóri í Þykkvabænum. Ein-
hvern veginn tókst mér að fá Svein
til að gera þetta fyrir mig. Sveinn
bjó hjá okkur hjónum í 11 daga. Þá
var ekki dregið af sér, hvorki af nem-
anda né kennara. Og það verð ég að
segja, að aldrei hef ég lært annað
eins á jafn skömmum tíma. Hvað
var það sem öðru fremur einkenndi
kennslu Sveins Pálssonar? Hann
kunni afar vel að greina á milli aðal-
atriða og aukaatriða. Hann var
hvergi í vafa. Minnisstæð er mér
notkun hans á ablatívus absalútus í
latínu. Að hugsa sér að allur þessi
lærdómur skuli nú horfinn undir
grænan svörð. Það er ótrúlegt og
um leið sárgrætilegt. Okkur fannst
Sveinn þægilegur maður í viðmóti.
Heilsufar og ytri hagir
Sveinn fæddist eins og að ofan seg-
ir fyrir 68 árum. Þann aldur lifa þeir
með mestu prýði sem aldrei kenna
sér meins, hvorki líkamlega né and-
lega. Sveinn var hins vegar aldrei
hraustur maður. Lungun voru
slöpp. Banamein hans var lungna-
bólga. Hann andaðist í Hamborg,
þar sem heimili hans og konu hans,
Helenu, svissneskrar ættar, stóð síð-
ustu árin. Sveinn var kominn á eftir-
laun fyrir alllöngu, vegna aldurs og
þó meir heilsubilunar. Ég hitti hann
snöggvast sumarið 1980, er hann
bjó við Garðastræti.
Kvonfang og heimili
Sveinn kvæntist 5. nóv. 1949 He-
lenu Jóhönnu Onnu úr Sviss. Faðir
hennar var kaupmaður, Kaiser að
nafni. Börn eignuðust þau hjón
fimm að tölu, og eru þau öll á lífi,
allt synir. Synirnir eru þessir: Páll,
býr í Englandi, fisksölumaður þar;
Kári Pétur, vinnur á pósthúsinu í
Reykjavík, uppeldissonur Páls
prests, bróður Sveins, og móður
hans; Frans Jósef, matreiðslumaður
í Svíþjóð; Gunnar Páll, rennismiður
í Svíþjóð; og Karl Ágúst, býr hjá
móður sinni í Þýskalandi.
Ritstörf
Sveinn þýddi talsvert úr erlendum
málum, ekki síst úr latínu. Þannig
snéri hann á íslensku riti miklu eftir
Odd Einarsson biskup í Skálholti,
beint úr latínu. Sýnir það færni
hans. Þá las hann víst ekki svo sjald-
an prófarkir fyrir kunningja sína.
Allt unnið af hrukkulausri ná-
kvæmni og samviskusemi. Hann las
yfir handrit, meira að segja handrit
sem verja skyldi til doktorsprófs.
Hefur vafalaust munað um aðstoð
hans þar. íslenskumaður var Sveinn
ágætur. Það fann ég er við vorum að
pæla gegnum latínuna. Hann var
andans maður af fyrstu gráðu.
Útför
Sveinn óskaði þess að fá að hvíla í
íslenskri mold. Þess vegna var hann
fluttur heim til greftrunar. Hvílir
hann nú við hlið móður sinnar og
hálfsystur, Sunnu Stefánsdóttur, í
kirkjugarðinum á Lágafelli í Mos-
fellssveit. Sunna lést rúmum mán-
uði á undan Sveini, hálfbróður sín-
um. Hún var dóttir Stefárts Stefáns-
sonar frá Eyvakoti á Eyrarbakka og
Þuríðar, sem fyrr er getið. Þau
skildu að lögum.
Nú er Páll einn eftir af þessu fólki.
Hann býr að Bergþórshvoli í Austur-
Landeyjum, kvæntur Eddu Karls-
dóttur leikara og leikstjóra. Honum,
svo og sonum Sveins sáluga, sendi
ég samúðarkveðjur við andlát elsk-
aðs bróður og föður. Ef Helena les
þessar línur votta ég henni að sjálf-
sögðu samúð mína við brottför elsk-
aðs eiginmanns. Sveinn Pálsson var
merkur maður, sem allir þeir, er
honum kynntust, hljóta að minnast
um langa tíð.
Auðunn Bragi Sveinsson
Rannveig Helgadóttir
Fædd 5. október 1897
Dáin 22. apríl 1991
Barn að aldri kom ég til sumardval-
ar að Hólmi í Landbroti, heimili
Rannveigar Helgadóttur og Valdi-
mars Runólfssonar. Eins og gengur
og gerist gerði heimþráin vart við
sig fyrstu dagana. Það samdist svo
um með okkur móður minni að
hún hefði samband við mig að viku
liðinni og heyrði hvernig mér liði.
Ekki veit ég hvað hún ætlaði til
bragðs að taka ef leiðindi rjátluðust
ekki af mér, en ég sættist á þetta.
Eftir umsaminn tíma hringdi hún í
mig og þurfti ekki að hafa áhyggjur
eftir það af líðan minni.
Hjá Veigu og Valdimar átti ég ynd-
isleg sumur. Þar var vel unnið og
glaðst að loknum góðum verkdegi,
vitandi að vinnan hafði tilgang. Þau
Aðalfundur
Aðalfundir Samvinnutryqginga g.t. og Líftryggingafélagsins
Andvöku verða haldnir í Ármúla 3, Reykjavík, miðvikudaginn
5. júní nk. og hefjast kl. 14:00.
Dagskrár:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Á aðalfundi Liftryggingafélagsins Andvöku verða bornar fram
tillögur um breytingar á samþykktum, félagsslit og yfirfærslu á
starfsemi félagsins til Liftryggingafélags
Islands h.f.
Stjómir fétaganna
SAMViNNU
TRYGGINGAR
ÁJIMOIA3 108REYKJAV1K SlMl(«1)805060
Tt'LL'FAX G05100
liftryggingakelagid
ANDVÁKA
/JtMVLA 1 108 flWVl-UVlK SlWl •OftOtlú
hjón gáfu sér tíma til að kenna
börnum og unglingum verklag og
gátu látið í ljósi viðurkenningu á vel
unnu verki.
Enn þann dag í dag tel ég þessa
sveit eina þá fallegustu á landinu og
fá sumur hafa liðið svo að ég hafi
ekki komið austur. Engjarnar í
Lækjunum, Hvammalágarnar,
Krákulækurinn með uppsprettun-
um, Eldmessutanginn, hólarnir, all-
ir þessir staðir vekja upp ljúfar
minningar.
Eftir að ég eignaðist eigin fjöl-
skyldu heimsótti ég Veigu og Valdi-
mar með börn og maka. Alltaf var
jafn gaman að koma og ræða við
þau, ganga síðan um landið niður
að Rásinni og að bakka Skaftár og
líta yfir til Systrastapa frá heima-
grafreitnum, þar sem þau hvíla nú
bæði, ásamt Valgerði og Bjarna og
foreldrum Valdimars.
Margs er að minnast sem ég kem
ekki á blað, enda tilgangur þessara
lína sá einn aö minnast þeirra hjóna
með miklu þakklæti. Samúðar-
kveðjur sendum við móðir mín til
sona þeirra hjóna og fjölskyldna
þeirra, og þá ekki síst til Sverris,
sem býr nú einn að Hólmi. Löngum
verkdegi er lokið og Valdimar og
Rannveig hafa nú bæði gengið til
hvílu. Guð blessi minningu þeirra.
Þórdís Þorgeirsdóttir
-------------------------------------------------------------\
Útför bróður mins
Ólafs Kjartanssonar
Seli, Grimsnesi
ferframfrá Skálholtsdómkirkju laugardaginn 11. mai kl. 14.00.
Jarðsett verður i Mosfellskirkjugaröi.
Fyrir hönd vandamanna,
Svelnn Kjartansson
’ Í V 'Í V V V '
* * t t. (VVVVVVV'tVÍVlt'ÍV * JvtlV V 4 V vv vv
Kvöld-, nætur- og holgidagavarsla apóteka I
Reykjavik 3. Ul 9. maf er f Borgarapóteki og
Reykjavlkurapótokl. Þaó apótek sem fyrr er
nefnt annast eitt vörsluna frá Id. 22.00 að kvöldl
til kl. 9.00 að morgnl vlrka daga en kl. 2Z00 á
sunnudögum. Upptýslngar um læknls- og lyfja-
þjónustu eru gefnar I slma 18888.
Neyðarvakt Tannlæknafélags Islands
er starfrækt um helgar og á stórhátiðum. Slm-
svari 681041.
Hafnarljörðun Hafnarfjarðar apótek og Norö-
urbæjar apótek eru opin á virkum dögum frá
kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laug-
ardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-
12.00. Upplýsingar I slmsvara nr. 51600.
Akureyri: Akureyrar apótek og Stjömu apótek
eru opin virka daga á opnunartlma búða. Apó-
tekin skiptast á sina vikuna hvort að sinna
kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er
opið I þvl apótekl sem sér um þessa vörslu, til
kl. 19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00-
12.00 og 20.00-21.00. Á öðrum timum er lyfja-
fræðingur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar I
síma 22445.
Apótek Keflavfkun Opið virka daga frá k. 9.00-
19.00. Laugardaga, helgidaga og almenna frl-
daga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opiö virka daga frá kl.
8.00-18.00. Lokað I hádeginu milli kl. 12.30-
14.00.
SeHoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30.
Opiö er á laugardögum og sunnudögum kl.
10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er oplö virka daga til
kl. 18.30. Opiö er á laugardögum kl. 10.00-
13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00.
Garðabær Apótekið er opið rúmhelga daga kl.
9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
Læknavakt fyrir Reykjavik, Seltjamames og
Kópavog er I Heilsuvemdarstöö Reykjavíkur alla
virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugardög-
um og helgidögum allan sótarhringinn.
Á Seþjamamesi er læknavakt á kvöidin kl.
20.00-21.00 og laugard. Id. 10.00-11.00. Lokað á
sunnudögum.
Vitjanabeiðnir, slmaráðleggingar og timapant-
anir I slma 21230. Borgarspitallnn vakt frá kl. 08-
17 alla virka daga fyrir fólk sem ekki-
hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (slmi
696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysadeild)
sinnir slösuðum og skyndiveikum allan sólar-
hringinn (slmi 81200). Nánari upplýsingar um
lyljabúöir og læknaþjónustu emgefnar I slm-
svara 18888.
Ónæmisaögeröir fyrir fulloröna gegn mænusótt
fara fram á HeAsuvemdaretöö Reykjavíkur á
þriðjudögum kl. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér
ónæmissklrteini.
Seiljamames: Opið er hjá Tannlæknastofunni
Eiðistorgi 15 virka daga kl. 08.00-17.00 og
20.00- 21.00, laugardaga kl. 10.00-11.00. Slmi
612070.
Garðabær Heilsugæslustöðin Garðaflöt 16-18
er opin 8.00-17.00, simi 656066. Læknavakt er I
síma 51100.
Hafnarflörður Heilsugæsla Hafnarfjarðar,
Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00-
17.00, slmi 53722. Læknavakt sfmi 51100.
Kópavogur Heilsugæslan er opin 8.00-18.00
virka daga. Slmi 40400.
Keflavfk: Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn á
Heilsugæslustöð Suðumesja. Simi: 14000.
Sálræn vandamál: Sálfræðistöðin: Ráögjöf I sál-
fræðilegum efnum. Slmi 687075.
Landspitalinn: Alladaga kl. 15 til 16 og kl. 19 til
kl. 20.00. Kvennadeildin: kl. 19.30-20.00.
Sængurkvennadeild: Alla daga vikunnar kl. 15-
16. Heimsóknartlmi fyrir feður kl. 19.30-20.30.
Bamaspftali Hrlngsins: Kl. 13-19 alla daga.
Öldrunarlækningadelld Landspitalans Hátúni
10B: Kl. 14-20 og eftir samkomulagi. - Landa-
kotsspítali: Alla virka kl. 15 til kl. 16 og kl. 18.30
til 19.00. Bamadeild 16-17. Heimsóknartlmi
annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. - Boig-
arepitalinn I Fossvogi: Mánudaga til föstudaga
kl. 18.30 tii 19.30 og eftir samkomulagi. Álaug-
ardögum og sunnudögum kl. 15-18.
Hafhartrúðir Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvita-
bandið, hjúkrunardeild: Heimsóknartimi frjáls
alla daga. Grensásdeild: Mánudaga ti föstu-
daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnu-
daga kl. 14- 19.30. - Heilsuvemdaretööin: Kl.
14 til kl. 19. - Fæöingarheimili Reykjavikur: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Neppsspitall: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl. 19.30.
- Flókadelld: Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. Kópa-
vogshæiið: Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á
helgidögum. - Vifilsstaöaspitali: Heimsóknar-
tlmi daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. - St
Jósepsspítali Hafnarflröi: Alla daga kl. 15-16
og 19-19.30.
Sunnuhiíð hjúkrunarheimili i Kópavogi: Heim-
sóknartimi kl. 14-20 og eftir samkomulagi.
Sjúkrahús Keflavfkuríæknishéraös og heilsu-
gæslustöðvar: Vaktþjónusta allan sólarhring-
inn. Simi 14000. Keflavik-sjúkrahúsiö: Heim-
sóknartlmi virka daga kl. 18.30-19.30. Um
helgarog á hátlðum: Kl. 15.00-16.00 og 19.00-
19.30. Akureyri- sjúkrahúsið: Heimsóknartlmi
alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-20.00. Á
bamadeild og hjúkrunardeild aldraöra Sel 1:
Kl. 14.00-19.00. Slysavarösstofusimi frá kl.
22.00- 8.00, slmi 22209. Sjúkrahús Akraness:
Heimsóknartími Sjúkrahúss Akraness er alla
daga kl. 15.30-16.00 og kl. 19.00-19.30.
Reykjavik: Settjamames: Lögreglan slmi
611166, slökkviliö og sjúkrabifreið simi 11100.
Kópavogun Lögreglan slmi 41200, slökkvilið
og sjúkrabifreið simi 11100.
Hafnarflörður. Lögreglan slmi 51166, slökkvilið
og sjúkrabifreið simi 51100.
Keflavik: Lögreglan slmi 15500, slökkvilið og
sjúkrabill slmi 12222, sjúkrahús 14000,11401
og 11138.
Vestmanneyjar Lögreglan, sími 11666,
slökkvilið simi 12222 og sjúkrahúsið simi
11955.
Akureyri: Lögreglan slmar 23222, 23223 og
23224, slökkviliö og sjúkrabifreið sími 22222.
Isaijötðu-: Lögreglan slmi 4222, slökkviliö slmi
3300, brunasfmi og sjúkrabifreið sfmi 3333.
’ ’ .t .V C V v V .’ * / J ’ / > . • , ’
•V«.V»
■J ...
V V, <f V