Tíminn - 08.05.1991, Síða 4

Tíminn - 08.05.1991, Síða 4
4 Tíminn Viðræður milli Kúrda og araba hefjast að nýju í Bagdad: Hermenn SÞ taka viö í Suður-írak Hermenn Sameinuðu þjóðanna hafa nú tekið við stjórn hlutlausa svæðisins við landamæri Kúvæts og íraks af bandaríska hernum. Bandaríski herínn hóf í gær brottfor sína frá írak til Kúvæts og Iýk- ur henni að öllum líkindum í dag. Um fimm þúsund bandarískir hermenn verða eftir í Kúvæt um óákveðinn tíma en emírinn í Kúvæt hefur lagt ríka áherslu á að halda eftir hluta ijölþjóðahersins sem tók þátt í að hrekja íraska herínn frá Kúvæt. Afgangurinn fer til Saudi-Arabíu og þaðan munu margir fara til Þýskalands. Bandarísku hermennirnir í Suður- írak hafa staðið í ströngu við að að- stoða fórnarlömb stríðsins og upp- reisnarinnar gegn Saddam Hussein íraksforseta. Stjórnvöld í Saudi- Ar- abíu samþykktu að taka við íröskum flóttamönnum og er búið að setja upp flóttamannabúðir í Rafha í norðurhluta Saudi-Arabíu. Þeir ír- akar sem hafa viljað fara til búðanna hafa getað það og flugvélar banda- ríska hersins hafa flutt um 8.300 íraska flóttamenn til Rafha. Hermenn SÞ, sem munu taka við stjórn hlutlausa svæðisins, verða 1.440 alls. Yfirmaður þeirra er aust- urríski hershöfðinginn Gunther Greindl. Hlutlausa svæðið nær 10 km inn í írak og 5 km inn í Kúvæt og liggur eftir landamærum ríkj- anna. Viðræður eru hafnar að nýju milli leiðtoga Kúrda og íraskra stjórn- valda í Bagdad um sjálfstæðiskröfur Kúrda. Opinbera íraska dagblaðið Al-frak sagði í gær að viðræðurnar hefðu hafist á mánudag og að Massoud Barzeni, leiðtogi Lýðræð- isflokks Kúrdistans, hefði farið fyrir fjögurra manna nefnd Kúrdanna. Kúrdar vilja fá alþjóðlega tryggingu fyrir því að samningur sem þeir geri við írösk stjórnvöld verði efndur en Kúrdar hafa oft verið sviknir í sam- skiptum sínum við stjórnvöld í Bagdad. Kúrdar vilja einnig fá olíu- borgina Kirkuk í sinn hlut. Háttsett- ur íraskur embættismaður taldi ólíklegt að gengið yrði að kröfum Kúrda. Jalal Talabani, leiðtogi Þjóðernis- sambands Kúrdistans, sagði eftir að fyrstu lotu viðræðnanna lauk fyrir tveimur vikum að umræðurnar snerust um að hrinda í framkvæmd samningnum sem gerður var við Kúrda árið 1979. Stjórnvöld í Bagd- ad sviku þann samning en hann ger- ir m.a. ráð fyrir að Kúrdar taki fullan þátt í stjóm landsins, að Kúrdar fái allar stjórnunarstöður ríkisins í Kúrdistan, að kúrdiska verði opin- bert mál í Kúrdistan ásamt arabísku. Tálabani var ekki í samninganefnd Kúrdanna sem hóf viðræðurnar að nýju á mánudag. Reuter-SÞJ Mikill herafli stefnir nú til Króatíu frá næriiggjandi lýðveldum. Júgóslavneski herinn kallar út aukalið: Herflutningar til Króatíu Júgóslavneski herínn kallaði í gær út aukalið eftir að yfirmað- ur hersins, varnarmálaráðherr- ann Veljko Kadijevic, sagði að borgarastyrjöld værí hafin í landinu. Kadijevic sagði við Borisav Jovic forseta Júgóslavíu á mánudag að herínn mundi binda enda á þjóðemisátökin í landinu ef Forsetaráð Júgóslav- íu, æðsta stjómarstofnun landsins, gæti ekki gert það. Forsetaráðið hélt í gær langan fund um ástandið. Kadijevic mætti ekki á fundinn. Snemma í gær sáust skriðdrekar, bryn- drekar og hermenn yfirgefa höf- uðborgina Belgrad og taka stefnuna á Króatíu. Margir ungir karlmenn í Belgrad sögðust hafa fengið herkvaðningar- bréf. Fréttir bárust einnig frá lýð- veldinu Bosníu- Hersegóvínu um að herlið stefndi frá lýðveldinu til Króatíu. Júgóslavneska fréttastofan Tánjug skýrði frá því að nokkur þús- und manns í bænum Polog í Bosníu hefðu sett upp vegatálma til að reyna að hindra herflutningana. Vestrænir stjórnarerindrekar sögðu greinilegt að miklir herflutningar ættu sér stað. Að sögn Tanjug héldu þjóðernisátökin áfram í gær. Skot- bardagar brutust út á nokkrum stöðum í Króatíu og sprengja sprakk í kaffihúsi í eigu Serba í bænum Borovo Selo. Engar fréttir bárust um manntjón. Júgóslavneski herinn hefur lokað þremur brúm sem tengja austurhluta Króatíu við sjálf- stjórnarhéraðið Vojvodina í Serbíu. Forsetaráðið er skipað leiðtogum lýðveldanna og sjálfsstjórnarhérað- anna í Júgóslavíu. Það hefur vald til þess að setja neyðarlög á í Iandinu. Það hefur hins vegar verið óstarf- hæft þar sem fulltrúarnir átta skipt- ast í tvo jafnstóra hópa í flestum mikilvægum málum en meirihluta þarf til að einhver niðurstaða fáist. Breska utanríkisráðuneytið varaði í gær breska ríkisborgara við að fara til austur- og suðurhluta Króatíu og til borgarinnar Split í Vestur-Króa- tíu þar sem hermaður var skotinn til bana á mánudag þegar um 30.000 Króatar mótmæltu veru hersins í lýðveldinu. Talsmaður ráðuneytisins sagði að ástandið á þessum stöðum væri ótryggt og gæti breyst á skömmum tíma. Um hálf miiljón Breta fer að jafnaði til Júgóslavíu á ári hverju. Reuter-SÞJ Armenía, Sovétríkjunum: Rauði herim sakað- ur um grimmdarverk Forseti Armeníu, Levon Ter- Petrosjan, sagðist í gær hafa ör- uggar heimildir fyrir því að her- menn Azera og Rauða hersins framkvæmdu hræðileg grimmd- arverk á Armenum. Hann sagði að armenskir fangar væru skotnir og höfuðleðri hefði verið flett af arm- enskum líkum. Petrosjan sagði takmark stjómar- innar í Kreml væri að hræða íbúa Armeníu og bylta stjórn lýðveldis- ins. Hann sagði að sameinaðar hersveitir Azera og Rauða hersins héldu áfram árásum á einangruð armensk þorp og þyrlur og bryn- varin tæki væru notuð í árásun- um. Hann sagði að tugir manna hefðu látið lífið. Sovéska fulltrúaþingið hafnaði í gær ósk armensku fulltrúanna á þinginu um neyðarfund til að ræða átökin í Azerbajdazhan og Armeníu. Þingið studdi tilskipun Gorbatsjovs Sovétforseta til Rauða hersins um að afvopna aðskilnað- arsinna. Gorbatsjov varaði á mánudagskvöld við miklu blóð- baði ef ekki tækist að afvopna stríðandi fylkingar í Armeníu og Azerbajdazhan. Deilur Armena og Azera snúast um héraðið Nagomo-Karabak í Azerbajdazhan sem hefur nokkur sjálfstjómarréttindi. Armenar eru í miklum meirihluta í héraðinu og vilja aðskilnað frá Azerbajdazhan. Stjórnvöld í Kreml styðja stjóm- völd í Azerbajdazhan í að halda óbreyttu ástandi. Reuter-SÞJ Miðvikudagur 8. maí 1991 Fréttayfirlit Kaupmannahöfn - Utanríkis- ráðuneyti Danmerkur tilkynnti f gær að Danmörk ætlaði að veita sem svarar um 660 milljónum ís- ienskra króna til hjálparstarfsins I Noröur-írak, íran og Tyrkiandi en þeir höfðu áður lagt fram um 560 milijónir. Damascus - Farouq at-Shara utanrikisráðherra Sýrlands sagðí i gær að það væri undlr ísraelsmönnum komið hvort eitt- hvað yrði úr fyrirætlunum Bandarfkjamanna um að halda friðarráðstefnu um Palestinu- máliö og sökin væri ísraels- manna ef ekkertyrði af ráðstefn- unni. Kairó - James Baker utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna mun hitta Alexander Bessmertnykh utanrikisráðherra Sovétríkjanna í Kairó f Egyptalandi á sunnudag og munu þeir ræða um friðar- horfur í Miðausturiöndum, að sögn stjómarerindreka i Kairó. Bagdad - Saddam Hussein for- seti Iraks sagöi að sækja þyrfti til saka þá embættismenn sem brugðust þegar sjitar og Kúrdar gerðu uppreisn gegn stjóm iandsins. Hann lét þessi ummæll falla í gær þegar hann heimsótti fæðingarbæ sinn Takrít. Dhaka - Begum Khaleda 2ia forsætisráðherra Bangladesh endurtók ( gær óskir sínar um víðtæka alþjóðlega neyðarað- stoð handa þeim sem ilia urðu úti í náttúruhamförunum í Bangladesh í síðustu viku. Yfir 125.000 manns eru taldir af og hungursneyð vofir yfir fjómm milijónum manna en tiu milljónir manna em heimilislausar. Khartoum - Skæmliðar i Eþí- ópíu sökuðu í gær Bandaríkja- menn um að stöðva komflutning til Norður- Eþíópíu en þar er mik- il hungursneyð. Fulttrúar skæm- iiða sem vinna að hjálparstarfinu í Norður-Eþíópiu sögðu að Bandaríkjamenn vildu með þessu knýja skæmiiða til að taka upp friöarviðræður við stjómvöld i Khartoum og binda enda á borgarastyrjöldina í landinu. Maníla - Háttsettir stjómmála- menn á Filippseyjum skoruðu í gær á Corazon Áquino forseta landsins að hætta samningaviö- ræðum við bandarísk stjómvöld um bandarísku herstöðvamar á eyjunum og hefja viðræður um brottflutning bandaríska herliðs- ins. Aquino sagði að enn væri of snemmt að gefa samningavið- ræðumar upp á bátinn. Peking - Háttsettur bandarísk- ur embættismaður hvatti f gær stjómvöld í Kína til að leysa úr haldi friðsama stjómarmótmæl- endur, en forseti Kina sagði að þrýstlngur erlendis frá mundl ekki breyta stefnu kínveskra stjómvalda. Belgrad - Leiötogar Júgóslaviu komu saman til neyðarfundar i gær, eftlr að yfirmaður júgósiav- neska hersins, vamarmálaráö- herrann, hafði sagt að borgara- styrjöld væri hafin ( landinu. Vamarmálaráðherrann, Veljko Kadijevic, sagöi að hermennimir mundu skjóta á alla þá sem veittust að þeim. Palm Beach, Flórída - Lög- regian í Flórída sagði í gær að hún ætlaði að mæia með að William Kennedy Smith, ffændi öldunardeildarþingmannsins Edwards Kennedys, yrði kærður fýrir að nauðga konu á heimili Kennedyfjölskyidunnar 30. mars si. Lögreglan mun skiia niður- stöðum rannsókna sinna til sak- sóknaraembættis Flórídafylkis á fimmtudag eöa föstudag sem mun siðan ákveða frekari fram- vindu málsins. Reuter-SÞJ

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.