Tíminn - 08.05.1991, Page 9

Tíminn - 08.05.1991, Page 9
8 Tíminn Miðvikudagur 8. maí 1991 Tíminn 9 Miðvikudagur 8. maí 1991 Eftir Stefán Eiríksson Hugmyndin um heilsuhótel við Bláa lónið lifir góðu lífi og ætla hagsmunaaðilar í Grindavík og á Suðurnesjum að kanna málið vandlega í sumar: Mikil lyftistöng fyrir atvinnulíf á Suðurnesjum Listakonan Yoko Ono lýsti því yfir, þeg- ar hún var hér fyrir skömmu, að hún hefði áhuga á að ferðast eitthvað um landið, og minntist hún þá sérstaklega á Bláa lónið við Svartsengi. Bláa lónið virð- ist hafa mikið aðdráttarafl fyrir útlend- inga og hefur lækningamáttur þess gegn húðsjúkdómum vakið mikla athygli. Töluvert hefur verið rætt og ritað um það að bæta aðstöðu fyrir ferðamenn við lón- ið og í lokaverkefni Önnu Sofiu Krist- jánsdóttur við Arkitektaháskólann í Osló, kemur fram áhugaverð hugmynd að hót- eli og heilsubaðstöð nálægt Bláa lóninu, sem kæmi til með að þjóna ferðamönn- um sem og þeim sem fara í lónið í leit að lækningu. Heilsubaðstöð í kringum laugar og potta Anna Sofia er 29 ára gömul og útskrif- aðist frá Arkitektaháskólanum um síð- ustu jól. Heilsubaðstöðin eða hótelið er samkvæmt hugmynd Önnu ekki staðsett við sjálft lónið, heldur hinum megin við veginn sem liggur til Grindavíkur. Anna sagði að hún hefði valið að hafa lónið óbreytt, því virkjunin þurfi alltaf að losa sig við vatnið út í lónið og til þess að það stækki ekki séu boraðar holur ofaní jörð- ina til að tappa af því. Þegar búið væri að byggja hótelið sjálft væri hægt að dæla vatninu yfir veginn og í laugar og potta við hótelið. Anna sagði að þegar hún hefði verið að kynna sér aðstæður hefðu kunnugir bent henni á að það væri ekki ráðlegt að byggja við lónið sjálft. Þegar fólk væri á hóteli þá vildi það slappa af, og ef hótelið væri of nálægt lóninu þá væru lætin frá virkjuninni mikil. Seinna meir ætti jafnvel að byggja við virkjunina og því væri margt sem mælti með því að hafa hótelið í nokkurri fjarlægð. Samkvæmt hugmynd Önnu er hótelið staðsett undir Svartsengisfelli. Það er að hluta til grafið inn í hraunið og byggt eins og borg þannig að laugarnar eru all- ar í miðjunni. Vatninu er dælt, eins og áður sagði, frá lóninu og í pottana og laugarnar. Við hótelið er gert ráð fyrir að hafa fjóra stóra heita potta með mismun- andi hitastig, þrjá potta með leir úr lón- inu og tvær stórar sundlaugar sem bæði er hægt að hafa aðskildar og sameinaðar. „Ég hef reynt að taka tillit til þess hvern- ig veðráttan er og samkvæmt hugmynd- inni ertu alltaf í skjóli í laugunum og pottunum. Hótelið er byggt kringum laugarnar en er opið á mót suðvestri, þannig að sólin skín inn um leið og það er skjól fyrir vindinum," sagði Anna. Norrænt að ytra byrði en suðrænt að innan Anna sagðist vilja halda lóninu sjálfu óbreyttu og að sjálfsögðu gætu menn far- ið í sjálft lónið áfram, svo lengi sem það væri hægt. En það væri mikilvægt fyrir ferðamenn, sem vildu dveljast á þessum stað, sér til heilsubótar og lækningar eða Heilsustöð og íþróttasvæði undir plastkúlu Sóríasissjúklingar sækja talsvert í Bláa lónið. Ingólfur sagði að engar rannsókn- ir gæfu óyggjandi lækningamátt lónsins til kynna, en Landlæknisembættið hefði látið gera rannsókn á lækningamætti lónsins og samkvæmt þeirri niðurstöðu væru yfirgnæfandi líkur á því að þar gætu sóríasissjúklingar fengið bót meina sinna. Ingólfur sagði að það væri að mörgu að hyggja þegar staðsetning heilsustöðvar- innar væri valin. Hún mætti ekki vera of nálægt orkuverinu og einnig mætti hún ekki vera of langt í burtu. Einnig þyrfti að vera við heilsustöðina stórt íþrótta- svæði. „Ég sá skýrslu sem gerð var í Ungverjalandi fyrir nokkrum árum í sambandi við heilsustöðvar, og þar er reiknað með að svona heilsustöð þurfi hvorki meira né minna en 100 hektara, sem er nokkuð sem fólki hér hefur ekki dottið í hug. Heilsustöð þarf að hafa úti- sundlaugar, tennisvelli, hlaupabrautir o.s.frv. Það sem er frábrugðið hér, miðað við Ungverjaland, er fyrst og fremst veðráttan. Við megum ekki byggja þetta upp þannig að það sé eingöngu miðað við það ef veður leyfi. Við yrðum því að Anna við líkan af heilsubaðstöðinni við Svartsengi. byggja yfir heilsustöðina plastkúlu sem tæki yfir einn til tvo hektara," sagði Ing- ólfur. Ekki bara hugarórar Eins og áður sagði þá dregur lónið að sér gífurlegan fjölda ferðamanna. Að- spurður sagði Ingólfur að þeir hefðu alls ekki gert ráð fyrir því að þetta yrði ein- hver náttúruperla þegar þeir byrjuðu að dæla vatninu þarna út. „Við gerðum okkur náttúrlega enga grein fyrir því, þar sem þetta var eins og læragjáin f Reykjavík; þetta var afgangsvatn sem var hent út í hraunið. Síðan kemur það fram árið 1981 að sóríasissjúklingur fer að baða sig í þessu lóni og telur sig fá þarna góða lækningu. Þar með var þetta kom- ið af stað og fréttist á skammri stundu út um allt. Það þýddi að það voru ekki einungis sóríasissjúklingar sem flykkt- ust að því, heldur hver sem var. Það var orðið t.d. algengt að menn kæmu eftir dansleiki, jafnvel fullar rútur af fólki, sem henti af sér fötunum og fór út í. Þannig gat það ekki gengið, við urðum annað hvort að loka því alveg og verja það með mannheldri girðingu, eða byggja upp þannig aðstöðu að það yrði hægt að bjóða fólki upp á að hafa fata-' skipti og hafa gæslu. Því girtum við kringum lónið og byggðum þar baðhús og leigjum það síðan einstaklingi sem sér um reksturinn," sagði Ingólfur. Aðspurður sagði Ingólfur að menn væru að vakna fyrir þeim möguleika að byggja þarna upp heilsustöð. „Mörgum finnst það hlægilegt að þarna sé hægt að koma upp heilsustöð með 500-600 her- bergjum og atvinnu fyrir 1000-1500 manns. Ég held nú að eftir því sem menn íhugi þennan möguleika betur þá átti þeir sig á því að þetta eru ekki bara hugarórar, þetta getur gerst,“ sagði Ing- ólfur Aðalsteinsson. Upplyfting fyrir alla byggð á Suðurnesjum Halldór Ingvason, bæjarfulltrúi í Grindavík, sagði að þessi mál væru öll í athugun. Svæðið vestur og suður af nú- verandi lóni hefði mest verið athugað, en ekki væri búið að staðsetja neitt ná- kvæmlega. „Það stendur til núna að At- vinnuþróunarfélag Suðurnesja ýti þessu eitthvað áfram og einnig stendur til að stofna nefnd á vegum Grindavíkurbæjar og Sambands sveitarfélaga á Suðurnesj- um. Hún á að vinna með Atvinnuþróun- arfélaginu að frekari uppbyggingarhug- myndurn," sagði Halldór. Hann sagði að viljinn væri að minnsta kosti fyrir hendi og það yrði án efa unnið í því af krafti í sumar að fram komi einhverjar raun- hæfar tillögur. Halldór sagðist telja það líklegt, þar sem kostnaðurinn við að byggja upp hótel og heilsuræktaraðstöðu væri það mikill, að líklega yrði leitað til erlendra aðila um fjármögnun að einhverjum hluta. Aðspurður um hugmynd Önnu Sofiu sagði Halldór að hótelið væri stað- sett á mjög fallegum stað, en erfitt yrði að tengja t.d. skólplagnir við lagnir bæj- arins, þar sem það væri þetta langt frá bænum. Halldór sagði að svæðið vestan við Þorbjörn hentaði betur að því leyti. Einnig væri búið að mæla það svæði mjög vel, vind- og sólmæla og gera ýms- ar aðrar athuganir. Aðspurður sagði Halldór að það skipti ekki bara máli fyrir Grindvíkinga að byggja upp ferðamannaaðstöðu við Bláa lónið, heldur yrði þetta mikil upplyfting fyrir alla byggð á Suðurnesjunum. C. I Heilsubaðstöð Önnu Sofiu Kristjánsdóttur við Bláa lónið er byggð í kringum stórar laugar og potta og því mun þar vera gott skjól fyrir veðri og vindum, þó svo að sólin sleppi í gegn þegar hennar nýtur við. Ingólfur Aðalsteinsson, forstjórí Hita- veitu Suðumesja. Tlmamynd: Áml Bjama til gamans, að hafa veitingahús og góða gistiaðstöðu á staðnum. í hugmynd Önnu er gert ráð fyrir því að margir sóríasissjúklingar komi til með að nota sér heilsubaðstöðina og er aðbúnað- ur fyrir þá samkvæmt hugmyndinni mjög góður. Samfara böðum í vatninu og leirnum úr lóninu gætu þeir stundað m.a. ljósabekki og gengist undir sérstaka meðferð við sínum sjúkdómi. Anna sagðist ekki telja að þetta yrði kostnaðarsamt, hvorki bygging né rekst- ur hótelsins. Byggingin sjálf væri alls ekki flókin. Hún væri úr steinsteypu og ytri veggirnir væru hlaðnir með hraun- inu sem væri til staðar. Þakið væri úr bárujárni og að ytra útliti væri arkitekt- úrinn mjög íslenskur eða norrænn. Inni væri meira um gler og ljósa liti og þar væri meira suðrænni tónn. Hótelið er samkvæmt hugmyndinni með u.þ.b. 80 tveggja manna herbergjum. Beðið eftir mönnum með fulla vasa af peningum Ingólfur Aðalsteinsson, forstjóri Hita- staðsetningu og á ýmsum aðstæðum," sagði Ingólfur. Ingólfur sagði aðspurður að það væri vinsælt verkefni hjá arkitektum að hanna aðstöðu fyrir ferðamenn við lónið. Hann hefði heyrt af nokkrum arkitektum sem hefðu haft það sem lokaverkefni í sínu námi. Aðspurður sagði Ingólfur að það væri alfarið í höndum þeirra sem tækju að sér að byggja þarna upp að- stöðu, hvort þeir notuðu eitthvað af þessum tillögum eða efndu jafnvel til samkeppni. Ingólfur sagði að Hitaveitan myndi ekki standa að byggingu á hóteli fýrir ferða- menn á staðnum. Hún hefði ákveðnum skyldum að gegna samkvæmt lögum og gæti því ekki staðið í þannig fram- kvæmdum. „Ef þarna yrði komið upp heilsustöð, þá yrði hún vafalaust at- vinnuskapandi og við getum ímyndað okkur að þetta yrði fyrirtæki sem gæti skapað 1000 til 1500 manns atvinnu. Þá er ég ekki að tala um einhverja smástöð sem myndi taka á móti 10-20 manns, heldur um stöð sem myndi taka á móti rúmlega 1000 manns,“ sagði Ingólfur. veitu Suðurnesja, sagði aðspurður að hugmyndin um að bæta aðstöðu fyrir ferðamenn við lónið væri greinilega enn- þá lifandi, en menn væru ennþá að bíða eftir að einhver kæmi með fullan vasa af peningum og byrji. „Annars hef ég von um það að þetta sé kannski að komast í það horf að menn fari af stað, því At- vinnuþróunarfélag Suðurnesja hefur sett það núna á oddinn að vinna að því að ná í einhverja fjársterka aðila, bæði hér heima og erlendis, til þess að hefja fram- kvæmdir við þetta, en auðvitað þarf mikla undirbúningsvinnu áður en það verður, bæði rannsóknir hvað varðar

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.