Tíminn - 16.05.1991, Side 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 16. maí 1991
_ Óvenjulegar aðgerðir byggingamanna í Árnessýslu:
Ófaglærðum
ýtt í skóla
Félag byggingariðnaðarmanna í Árnessýslu mun í sumar leita uppi
ófaglærða menn sem starfa sem byggingaiðnaðarmenn á félags-
svæðinu. Ýtt verður á þessa menn að þeir afli sér réttinda með því
að ljúka iðnnámi. Þetta er gert í samvinnu við Fjölbrautaskóla Suð-
urlands sem býður mönnum að ljúka námi með vinnu í kvöldskóla.
Svipaða hluti hefur Trésmíðafélag Reykjavíkur verið að gera á und-
anfömum árum.
„Við gerðum átak í þessu í hitteðíyrra
sem skilaði veruiegum árangri. Nú för-
um við af stað með hliðstætt átak í
samvinnu við Fjölbrautaskóla Suður-
lands,“ sagði Ánnann Ægir Magnús-
son, formaður Félags byggingamanna í
Ámessýslu, í samtali við Tímann.
.Ástæðan er að margir hafa byrjað nám
en ekki lokið því. Einnig eru margir
fúskarar í faginu.
Fjölbrautaskólinn hefur tekið upp þá
nýjung að bjóða mönnum nám í
kvöldskóla og það hefúr gefið góða
raun. Þetta nám hefur verið vel sótt
enda færi Fjölbrautaskólinn ekki aftur
af stað með svona nám ef áhugi væri
ekki fyrir hendi," sagði Ármann Ægir.
Hann sagði langflesta nemana, sem
hér um ræðir, vera í húsasmíði, en
einnig kæmu þeir úr öðrum bygginga-
iðngreinum s.s. málun og pípulögn-
um.
Reyklausi dagurinn er 31. maí:
Barist fyrir reyk-
I ^PH H H HH H H u^H aJjj HHH H HH I iC JL H
idiJwUi diiurui noiuiiii
Reyklausi dagurinn í ár verður
fostudaginn 31. nwí. Reyklaus
dagur er orðinn áriegur viðburður
hér á landi og er þetta í sjöunda
sinn sem hann er haldinn.
Að þessu sinni var ákveðið að
láta hann bera upp á Alþjóða tób-
aksvamardaginn sem er 31. maf
ár hvert. Alþjóða heílbrigðisstofn-
unin ákveður hvaða mál skuii sett
á oddinn hverju sinni og nú er
það baráttan fyrir reyklausu and-
rúmsiofti í húsakynnum og farar-
tækjum fyrir almenning.
Þeir sem failast á þetta en em þó
enn ekki lausir við tóbakið fá nú
tækifæri til að styðja góðan mál-
stað með því að halda tóbakslaus-
an dag 31. maí. Best værí að stíga
þá skrefið til fulls og hætta að
nota tóbak. Þeim sem það vilja
gera er bent á að Krabbameinsfé-
lag Reykjavíkur hefur gefið út tvo
bæklinga sem hafa má til stuðn-
ings ef svo ber undir. Þeir heita
Út úr kófinu og Ekki fórn heldur
frelsun. í þeím báðum er að finna
gagnlegar ábendingar um hvemig
hægt er að búa sig undir að hætta
reykingum.
Tóbaksvamaraefnd væntir þess
að sem flestir reyldngamenn nýti
sér reyklausan dag, sjólfum sér
og umhverfi sínu til heilla og ósk-
ar þeim góðs árangurs.
-fréttatilk.
„Við höfum verið að gera svona hluti
lengi," sagði Grétar Þorsteinsson, for-
maður TVésmíðafélags Reykjavíkur.
„Við höfúm unnið skipulega að þessu
síðastliðin fimm til sex ár og á þeim
tíma hafa tugir manna lokið námi.
Menn sem höfðu Ient á einhverjum
blindgötum, voru búnir með samn-
ingstíma sinn og mismunandi mikið af
skólanum, en vantaði eitthvað upp á.“
Grétar sagði á hverju ári kæmu upp
nokkur tilfelli af þessu tagi. Hann sagði
það þó ekki vera meira en eðlilegt gæti
talisL „Ég held að okkur takist að halda
þokkalega utan um þetta."
-sbs.
Heimsókn tignarmanna
frá Mexíkó til íslands:
Ráöherrann
hættur.
Kemur
ekki hingað
í Tímanum í gær var greint frá því
að sjávarútvegsráðherra Mexíkó
kæmi til íslands á sunnudag til að
kynna sér ísl. sjávarútveg og fisk-
vinnslu.
Það verður hins vegar ekki ráð-
herrann, Maria de Los Angeles Mo-
veo sem kemur, því að hún hefur
sagt af sér ráðherradómi og tekið við
starfi sem sérlegur talsmaður Mexí-
kóforseta í þingi landsins.
—sá
Alþýðuflokkur tók G-samtökin yfir til að koma Össuri á þing:
Ný framtíð blasir viö
Á fundi 1. maí var formlega ákveðið
að stofna samtök undir nafninu Ný
framtíð. Markmið þeirra eru svo
ólík sem að standa vörð um heimil-
ið, homstein samfélagsins, efla
mannréttindi, vinna að manneskju-
legra samfélagi og bættu siðferði,
með markvissri og rökstuddri
gagnrýni á samfélagið. Efla þá trú
manna að kærleikurinn sé lykillinn
að lífshamingjunni.
Formaður undirbúningsstjórnar er
Guðbjörn Jónsson. Hann var áður
starfsmaður G-samtaka gjaldþrota
einstaklinga. Þaðan var hann rekinn
vegna ágreinings við nýja stjórn.
Guðbjörn hafði með sér félagaskrá
samtakanna. Það hafa þau kært.
Kristján Einarsson, nýkjörinn for-
maður G-samtakanna, segir: „Ef
Guðbjörn vill stofna samtök, þá
stofnar hann samtök. Hann hlýtur
þá líka að vinna þar með öðrum
hætti en hann gerði hér. Ágreining-
ur okkar við hann hefur aðeins eflt
okkar félag. Félagsmenn þekkja alla
málavexti og flýja félagið ekki. Þeim
hefur ekki fækkað við þetta uppgjör,
þeim hefúr fjölgað. Guðbjörn fær
varla félaga úr okkar hópi.“
Guðbjörn Jónsson, í Nýrri framtíð,
segir: „Ég hef nú ekki fengið aðrar
fréttir af kæru G-samtakanna en
þær sem lesa má í blöðunum. í Al-
þýðublaðinu sagði síðast frá því að
Jón Magnússon lögmaður hefði
kært mig fýrir að fara með póst-
hólfslykilinn og félagaskrána. Það er
nú svolítið skondið. Það var aldrei
lykill að þessu pósthólfi. Félagtalið
setti ég inn í tölvuna mína í fýrravor.
Allir stjórnarmenn fengu eintak af
því. Það var nú allur glæpurinn.
Enda var félagaskráin mikið notuð
við prófkjör Alþýðuflokksins í vor.
Það er vitaskuld alveg ólöglegt.
Ágreiningurinn milli mín og
stjórnar kemur fýrst upp þegar Guð-
mundur Örn Ingólfsson, sem þekkt-
ur er af ágætu starfi með SÁÁ, kem-
ur inn í G-samtökin og predikar af-
skaplega mikla uppbyggingu þeirra,
á grundvelli þess sem ég hafði unn-
ið. Síðan veit ég ekki fýrr til en ný-
kjörnir stjórnarmenn, kosnir til að
tryggja framgang félagsins á þeirri
braut sem ég hafði markað, upphefja
áróður gegn öllu starfi mínu.
Þetta gerist allt í senn. Guðmundur
Örn var áróðursmeistari Össurs
Skarphéinssonar í prófkjörinu. Síð-
an var félagaskrá G- samtakanna
notuð í prófkjöri Alþýðuflpkksins til
þess að koma Össuri í þriðja sætið.
Alþýðuflokkurinn tók G-samtökin
beinlínis yfir. Enda var það viðrað
við mig að þegar Össuri hefði verið
komið á þing yrði ég tilnefndur í
hinar og þessar nefndir fýrir flokk-
inn.
Guðmundur Örn er Iíka góður vin-
ur Jóns Magnússonar lögfræðings.
Ég hef gagnrýnt lögfræðinga mikið
fýrir óvönduð vinnubrögð. Starf
mitt kostaði þá um 30 milljónir á
síðasta ári. Það er vitaskuld gott fýr-
ir lögfræðinga að hafa sér vilhalla
menn við stjórnvölinn í G- samtök-
unum.
Hvað sem öll þessu líður höldum
við ótrauð áfram. Við stefnum að
fyrsta aðalfundi Nýrrar framtíðar
um miðjan ágúst. Nú þegar eru fé-
lagsmenn orðnir 100. Flestir úr G-
samtökunum," segir Guðbjörn
Jónsson.
-aá.
Borgarbörnum gefst tækifæri til aö fylgjast með sauðburði í
kynningarferð Náttúruverndarfélags Suðvesturlands á laugar-
daginn.
Kynning á íslensku sauðkindinni:
Fylgst með
sauðburði
Laugardaginn 18. maí verður Náttúrvemdarfélag Suðvestur-
Iands með kynningu á íslensku sauðkindinni. Farið verður í
heimsókn á sauðfjárbú í Grafningnum og fylgst með sauðburði.
í síðari hluta maímánaðar stendur sauðburður sem hæst og því
mikið um að vera í fjárhúsinu. Lagt verður af stað frá inngangi
Húsdýragarðsins í Laugardal kl. 13.30 og komið aftur í bæinn
um kl. 18.
Ferðin er liður í kynningu á ís-
lensku húsdýrunum sem Nátt-
úruverndarfélag Suðvesturlands
gengst fýrir í sumar í samvinnu
við Upplýsingaþjónustu landbún-
aðarins, og nefnist Húsdýrin okk-
ar. Á hálfsmánaðar fresti verður
sérstök kynning á einu íslensku
húsdýranna. Kynningarferðir,
svonefndar búferðir, verða farnar
frá Húsdýragarðinum og dýrin
sótt heim í sitt eðlilega umhverfi.
Búferðirnar eru fjölskylduferðir
þar sem yngstu kynslóðinni gefst
tækifæri til að kynnast húsdýrun-
um og afkvæmum þeirra í heima-
högum dýranna.
Næstu ferðir verða sem hér seg-
ír:
Sauðfé 18. maí
Nautgripir 1. júní
Geitur 15. júní
Svín 29. júní
Hundurinn 13. júlí
Hænsn, alífuglar 27. júlí
Eins og sjá má eru ferðirnar
farnar annan hvern laugardag.
Alltaf verður lagt af stað frá inn-
gangi Húsdýragarðsins í Laugar-
dal kl. 13.30 og komið aftur til
baka um kl.18. Fargjald er 600
krónur á mann.
—SE
Umskipti hjá Kaupfélagi Rangæinga:
Frá halla til hagnaðar
Góð afkoma varð af rekstri Kaupfé-
lags Rangæinga á síðasta ári.
Rekstarhagnaður, með tilliti til taps
af eignasölu og skatta, var 3,4
milljónir á móti 5,6 milljón króna
halla árið áður. Stjómendur kaup-
félagsins þakka aðhaldi og stöðug-
leika í rekstri þann bata sem orðið
hefur í rekstrinum.
Heildarvelta var 600 milljónir
króna og jókst hún um 8% á milli
ára. Veltufé frá eigin rekstri var 19,2
milljónir en árið 1989 var þessi tala
neikvæð um tæpar 10 milljónir.
Eigið fé í árslok 1990 var eigið fé
80,6 milljónir eða 21,44%. í lok árs-
ins 1989 var hlutfall þessa fjár
17,65%.
Fastir starfsmenn í árslok 1990
voru 72 og námu greiðslur launa og
launatengdra gjalda 87,6 milljón-
um. Félagsmenn í Kaupfélagi Ran-
gæinga eru 979 og fjölgaði þeim
talsvert á síðasta ári. Úr stjórn fé-
lagsins áttu að ganga Élínborg
Sváfnisdótir, Agnes Antonsdóttir og
Karl Sigurjónsson. Þau voru öll
endurkjörin. Stjórnarformaður
Kaupfélags Rangæinga er Sigurður
Jónsson bóndi í Kastalabrekku og
kaupfélagsstjóri Ágúst Ingi Jónsson.
-sbs.
Þrír sækja
um eina rás
Útvarpsréttamefnd hafa borist
þrjár umsóknir um Ieyfi til
sjónvarpsrekstrar. Það veitir
hún að höfðu samráði við Póst
og síma. Hann metur hvort ein-
hverjar rásir séu lausar til út-
sendingar. Talið er að nú sé ein
VHF-rás ónýtt. Um hana berj-
ast þrír aðilar. Sýn hf., sem
hafði leyfið til skamms tíma,
íslenska fjarskiptafélagið og
Ferskur miðill, sem rekur út-
varpsstöðina FM. Ekki er vitað
hverjir standa á bak við Is-
lenska fjarskiptafélagið, nema
hvað lögmaður þess er Gísli
Baldur Garðarsson og ráðgjafi
Jón Óttar Ragnarsson.
Þorbjöm Broddason, formað-
ur Útvarpsréttaraefndar, segir
að nefndin hafi þegar rætt við
forsvarsmenn Sýnar hf. og
hitti forsvarsmenn hinna félag-
anna í næstu viku. Úr því fer að
draga til tíðinda.
-aá.