Tíminn - 16.05.1991, Blaðsíða 4

Tíminn - 16.05.1991, Blaðsíða 4
4 Tíminn Fimmtudagur 16. maí 1991 Kennarar Lausar eru til umsóknar nokkrar kennarastöður við grunnskólann á ísafirði. Meðal kennslugreina: Raungreinar, danska, enska, handmennt, sérkennsla, kennsla yngri barna, tónmennt. Einnig vantar skólasafnskennara. Upplýsingar veitir skólastjóri í síma 94-3044. Skólanefnd Rafstöövar OG dælur FRÁ 5UBARU BENSÍN EÐA DIESEL Mjög gott verð Rafst.: 600-5000 w Dælur: 130-1800 l/mín Ingvar Helgason hf. Sævarhöfða 2 Sími 91-674000 Leggjum ekki af stað í ferðaiag i lélegum bil eða illa útbúnum. Nýsmurður bíll meöhreinniolíuog yfirfarinn t.d. á smurstöð er lík- legur til þess aö komast heill á leiöarenda. BILALEIGA AKUREYRAR MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM LANDIÐ. MUNIt) ÓDÝRU HELGARPAKKANA OKKAR REYKJAVÍK 91-686915 AKUREYRI 96-21715 PÖNTUM BÍLA ERLENDIS interRent Europcar ^Suma^^ hjólbarðar Hágæða hjólbarðar HANKOOK frá KÓREU Á lágu verði. Mjög mjúkir og sterkir. Hraðar hjólbarða- skiptingar. BARÐINN hf. Skútuvogi 2, Reykjavík Símar: 91-30501 og 84844 GARÐSLATTU R Tökum að okkur að slá garða. Kantklippum og fjarlægjum heyið. Komum, skoðum og gerum verðtilboð. Upplýsingar í síma 41224, eftir ki. 18.00. Bændur Stúlka, sem er að verða 12 ára, óskar eftir að komast í sveit sem matvinnungur. Upplýsingar í síma 91-79072. Faðir okkar Sigurður Ágústsson Birtingahottí lést á Sjúkrahúsi Suðurlands 12. maí sl. Útförin fer fram frá Hrepphólakirkju föstudaginn 17. maí kl. 14.00. Sætaferðir verða frá B.S.I. kl. 11.30. Bömin Forsætisráóherra- skipti í Frakklandi Michel Rocard sagöi af sér forsæt- isráðherradómi í gær og Francois Mitterrand, forseti Frakklands, skipaöi Edith Cresson, fyrrum Evr- ópumálaráðherra í ríkisstjóm Ro- cards, í hans stað. Búist hafði verið við afsögn Ro- cards, en hann hefur verið undir miklum þrýstingi. Hann hefur ekki haft þingmeirihluta og þurft að stjórna með neyðarlögum. Stjórnar- andstaðan hefur ítrekað hvatt hann til að segja af sér. Þá hafði Mitterr- and lýst yfir óánægju sinni með Ro- card og sagt hann hafa litla tilfinn- ingu fyrir hinum mjúku málum. Að- stoðarmenn Rocards sögðu í gær að hann hefði sagt af sér að beiðni Mitt- errands. Edith Cresson er talin vera mun vinstrisinnaðri og róttækari en Ro- card. Hún þykir vera mjög harður stjórnmálamaður og er mjög fræg í frönskum stjórnmálum fyrir skap- hita og vinnusemi. Hún er fyrsta konan sem verður forsætisráðherra Frakklands. Hún var fyrst landbún- Michel Rocard, fyrrverandi for- sætisráðherra Frakklands. aðarráðherra í ríkisstjórn Mitterr- ands árið 1981. Hún var síðan gerð að utanríkisviðskiptaráðherra og háði harða baráttu gegn japönskum innflutningi og lenti oft í útistöðum við samráðherra sína í Evrópu- bandalaginu. Til að leggja áherslu á að franskar skellinöðrur væru sam- keppnishæfar við japanskar ók hún um á einni slíkri. Árið 1988 varð hún svo Evrópumálaráðherra í rík- isstjórn Rocards, en sagði af sér vegna deilna við Rocard um efna- hagsmál. Þótt Rocard hafi nú verið knúinn til að segja af sér forsætisráðherra- dómi, telja stjórnmálasérfræðingar hann engan veginn útbrunninn stjórnmálamann. Rocard er 60 ára gamall. Líklegt þykir að hann muni bjóða sig fram í forsetakosningunum sem haldnar verða árið 1995. Skoðana- kannanir sýna að hann mundi sigra alla líklega frambjóðendur íhalds- flokksins. Reuter-SÞJ Samningaviðræður milli Kúrda og íraskra stjórnvalda: Deiltum lýðræðisumbætur Leiðtogi Þjóðemissambands Kúrd- istans (PUK), Jalal Talabani, segir að deilur viðræðuaðila um lýðræðis- umbætur hindri að samningar séu gerðir. Talabani, sem fór fyrir samn- ingahóp Kúrda í fyrri hluta við- James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, átti langar og stífar viðræður við ísraelska ráðamenn í gær. Ekkert benti til þess að líkum- ar á fríðarráðstefnu um Palestínu- málið hefðu aukist. Baker hitti Yitzhak Shamir, forsætisráðherra ísraels, og vamarmálaráðherrann, Moshe Arens, um morguninn og átti tveggja klukkustunda viðræður við þá. Eftir hádegið bættist svo David Levy, utanríkisráðherra ísra- els, í hópinn á öðmm tveggja klukkustunda fundi. Þríðji fundur- inn var svo um kvöldið. Baker hefur verið að reyna að koma á friðarráðstefnu ísraelsmanna, Pal- estínumanna og Araba. Allir hafa fallist á að halda beri siíka ráðstefnu, en menn greinir á um hvernig fram- ræðnanna, sagði að viðræðumar snemst um mikið meira en sjálf- stæði Kúrda. Þær snemst m.a. um nýja stjómarskrá, almennar þing- kosningar og hugsanlega aðild Kúrda að ríkisstjóminni. kvæmdin eigi að vera, hverjir eigi að taka þátt í henni o.s.frv. Sérstaklega er ágreiningurinn mikill milli ísra- elsmanna og Sýrlendinga. Þetta er fjórða för Bakers til Mið- austurlanda síðan Persaflóastríðinu lauk. Áður en ferðin hófst sögðu emb- ættismenn að þetta yrði síðasta ferð- in ef hún markaði engin þáttaskil. Eftir að Baker mistókst á sunnudag- inn að sannfæra Assad Sýrlandsfor- seta um að gefa eftir af kröfum sín- um, sögðu bandarískir embættis- menn að það væri eingöngu forms- atriði að ljúka ferðinni. Þeir sögðu að Baker mundi klára ferðina, því það væri ekki við hæfi að afboða þá fundi sem hann ætti eftir. Reuter-SÞJ Deilumar felast í því að írösk stjómvöld hafa gert uppkast að nýrri stjómarskrá og vilja þau að tekin verði afstaða til hennar í þjóðarat- kvæðagreiðslu, en Kúrdar vilja hins vegar að þing, sem valið sé í almenn- um kosningum, semji nýja stjómar- skrá sem lögð verði fyrir þjóðina. Viðræður Talabanis og íraskra emb- ættismanna í síðasta mánuði byggðu m.a. á sjálfstæðissamningnum sem Kúrdar gerðu við Bagdad árið 1970. Sá samningur kom aldrei til fram- kvæmdar. Nú er verið að fara í saum- ana á þessum samningi og er Massoud Barzani, leiðtogi Lýðræðis- flokks Kúrdistans (KDP), nú í for- svari fyrir kúrdísku samninganefnd- inni. Sjálfstæðissamningurinn frá 1970 gerir m.a. ráð fyrir að Kúrdar stjómi sjálfir sínum málum og að þeir fái einhverju áorkað um lands- stjómina. Talabani sagðist vera viss um að hægt sé að komast að samkomulagi um Kirkuk sem allir gætu sætt sig við. Hann sagði einnig að alþjóðleg trygging fyrir framkvæmd hvers konar samkomulags væri óþarft, ef verulegar lýðræðisumbætur verða samþykktar. Talabani sagðist vera í sambandi við kúrdísku samninganefndina í Bagd- ad og honum hefði verið tjáð að við- ræðurnar gengju ágætlega. Barzani sagði á sunnudag að ákveðinn árang- ur hefði náðst, en talaði ekkert um hvenær von væri á að samningar yrðu undirritaðir. Reuter-SÞJ Miðausturlönd: Baker á stífum fundum í ísrael Fréttayfirlit BELGRAD - Samstaöa náöist ekki í forsetaráði Júgóslavíu i gær um nýjan forseta Júgó- slavlu. Stipe Mesic, fulltrúi Króatfu I forsetaráðinu, átti aö taka við af Borisav Jovic, full- trúa Serbiu, en fulltrúar lýö- veldanna og sjálfsstjómarhér- aðanna í forsetaráðinu skipt- ast á að vera forsetar rlkja- bandaiagsins, hver í eitt ár i senn. MOSKVA - Leiðtogi komm- únistaflokksins i K(na, Jiang Zemin, kom í opinbera heim- sókn til Sovétríkjanna f gær. Jafn háttsettur kínverskur embættismaður hefur ekki komið til Sovétríkjanna i 34 ár. JÓHANNESARBORG - Afr- iska þjóðarráðið (ANC) birti i gær eigin áætlun um hvernig megi stöðva kynþáttaóeirðirn- ar í iandinu. Ráðið hafði gefið ríkisstjóm hvíta minnihlutans frest til dagsins í dag til að binda enda á óeirðimar. SEOUL - Ágreinlngur innan stjórnarflokksins í Suður-Kór- eu magnaðíst í gær þegar hóg- væri armur flokksins þrýsti á Roh Tae-woo, forseta lands- ins, um að koma til móts við stúdenta og reka forsætísráð- herra landsins. WASHINGTON - Nýlegar skoðanakannanir sýna að hershöföinginn Norman Schwarzkopf ætti góða mögu- leika á að verða öldungadeild- arþingmaður ef hann kærði sig um. Hann hefur hins vegar lít- inn áhuga á aö reyna slíkt. ÓSLÓ - Norsk sjónvarpsyfir- völd bönnuðu f gær banda- rísku sjónvarpsstöðina CNN, vegna þess að hún auglýsir áfengi, en það er bannað i Noregi. Reuter-SÞJ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.