Tíminn - 16.05.1991, Side 13
Fimmtudagur 16. maí 1991
Tíminn 13
DAGBÓK
Vísnavinir
hafa nú endurvakið félag sitt eftir nokk-
urt hlé.
Þriðjudaginn 21. maí kl. 20.30 aetla
þeir að hittast í kaffistofu Norræna húss-
ins og taka þar í gítar og jafnvel fleiri
hljóðfæri.
Allir þeir sem áhuga hafa á vísnasöng
og tónlist og hafa jafnvel eitthvað í poka-
hominu sem þeir vilja koma á framfæri
eru eindregið hvattir til að láta sjá sig.
Stjóm Vísnavina
Félag eldri borgara í Kópavogi
Spilakvöld verður að Auðbrekku 25
föstudaginn 17. maí 1991 og hefst kl.
20.30. Dans á eftir að venju. Jón Ingi og
félagar sjá um fjörið. Aðgangur kr. 450.
Allir velkomnir!
Félag eldri borgara
Dansleikur í Risinu í kvöld kl. 20.30.
Gönguhrólfar verða með myndakvöld
nk. laugardag kl. 20.
Hallgrímskirkja — starf aidraóra
Miðvikudaginn 29. maí verður farið í
Þjóðleikhúsið að sjá söngleikinn
Söngvaseiður. Nokkrir miðar eftir hjá
Dómhildi Jónsdóttur, sími 39965 á
kvöldin.
Nýlistasafnió
Laugardaginn 18. maí opna Ian Aniill og
Christoph Riitimann sýningu í Nýlista-
safninu, Vatnsstíg 3b.
Sýningin verður opnuð kl. 16. Hún
stendur til 2. júní og er opin alla daga kl.
14-18.
Málverkasýning
Ingvar Þorvaldsson opnar 21. einkasýningu sína í vatnslita- og olíumálverkum í safn-
aðarheimili Árbæjarkirkju við Rofabæ laugardaginn 18. maí kl. 16. Sýningin verður
opin alla virka daga kl. 16-19 (lokað fimmtudaginn 23. maí) og um helgar kl. 14-19.
Henni lýkur sunnudaginn 26. maí.
Breióholtskirkja
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð hafa
opið hús í Breiðholtskirkju í Mjóddinni í
kvöld kl. 20.30.
Laugarneskirkja
Kyrrðarstund f hádeginu í dag. Orgel-
leikur, lyrirbænir, altarisganga. Léttur
hádegisverður eftir stundina.
Slunkaríki á ísafiröi
Þann 18. maí hefst sýning á verkum
Guðjóns Bjamasonar í Slunkaríki á ísa-
firði. Á sýningunni eru málverk og
skúlptúr unnin í tré og stál.
Guðjón er fæddur 1. febrúar 1959 í
Reykjavík. Hann varð stúdent frá
Menntaskóla Reykjavíkur árið 1979 og
lagði síðan stund á nám við Háskóla ís-
lands 1979-81. Árið 1981 hélt hann til
Bandaríkjanna til náms í byggingar- og
myndlist við Rhode Isl. School of Design
og lauk BFA gráðu árið 1982 og B.Arts
ári seinna. Guðjón hlaut meistaragráðu í
myndlist og skúlptúr við School of Visu-
al Art árið 1987 og meistaragráðu í bygg-
ingarlist við Columbia háskóla í New
York árið 1989.
Guðjón býr og starfar á íslandi og New
York borg og er þetta sjöunda einkasýn-
ing hans.
Sýningunni lýkur þann 9. júní.
Málvísindastofnun
Háskóla íslands
hefur nýverið gefið út ritið Papers from
the TWelfth Scandinavian Conference of
Linguistics og ásamt Stofnun í erlendum
tungumálum ritið Beygingartákn ís-
lenskra orða. Nafnorð, eftir Helga Har-
aldsson dósent
Hið fyrra birtir fyrirlestra um almenn
málvísindi sem fluttir voru á ráðstefnu
sem stofnunin stóð fyrir í júní á síðasta
ári. Má þar m.a. nefna fyrirlestra um
setningafræði, hljóðkerfisfræði, beyg-
ingarfræði, merkingarfræði og málstol
(aphasia) og eru höfundar víðs vegar að
úr heiminum, en þó aðallega frá Norður-
löndunum. Ritstjóri er Halldór Ármann
Sigurðsson dósent.
Ýmsir aðilar studdu útgáfu þessa rits
og má þar m.a. nefna Búnaðarbanka fs-
lands, íslandsbanka, íslenska aðalverk-
taka, Landsbanka íslands, Orðabók Há-
skólans, Reykjavíkurborg, Seðlabanka
íslands, Sjóvá-Almennar, Stofnun Sig-
urðar Nordals og Visa-ísland.
í seinna ritinu setur höfundur, Helgi
Haraldsson dósent, fram hugmyndir sín-
ar um kerfi beygingartákna til notkunar
í orðabókum og orðalistum. Tilgangur-
inn er að spara rými, þannig að einföld
tákn komi í stað rúmfrekra skýringa, þar
sem beygingarendingar og í sumum til-
fellum einnig hljóðvörp eru tíunduð við
hvert orð. Markmiðið er að táknin séu
Árnaó heilla
Gullbrúðkaup áttu í gær hjónin Áslaug S. Jensdóttir og Valdimar Kristinsson, Núpi í
Dýrafirði.
MINNING
Þórunn Sigurðardóttir
Fædd 9. september 1899
Dáin 9. maí 1991
Mín indæla móðursystir, Þórunn
Sigurðardóttir, lést á Hrafnistu,
dvalarheimili aldraðra, Hafnarfirði,
9. maí sl. á 92. aldursári. Þar hefur
hún notið ágætrar aðhlynningar um
nokkurra ára skeið sem vistmaður.
Þórunn var dóttir Sigríðar Stein-
grímsdóttur og Sigurðar Pétursson-
ar, landpósts og bónda á Hörgslandi
á Síðu. Eftir nokkurra ára búsetu á
Hörgslandi fluttist fjölskyldan það-
an þegar Sigurður keypti jörðina
Ámanes nálægt Höfn í Hornafirði,
þar sem hann bjó til dauðadags. Sig-
ríður var dóttir Steingríms Jónsson-
ar, silfur- og söðlasmiðs á Fossi á
Síðu, og konu hans Þórunnar Ei-
ríksdóttur, bónda og hreppstjóra að
Hlíð f Skaftártungu. Kona Eiríks var
Sigríður Sveinsdóttir Iæknis Páls-
sonar í Vík. Kona Sveins var Þór-
unn, dóttir Bjarna Pálssonar land-
læknis og konu hans Rannveigar,
dóttur Skúla Magnússonar landfóg-
eta. Sigurður, faðir Þórunnar, var
sonur Péturs Jónssonar og Sigríðar
Steingrímsdóttur konu hans sem
bjuggu á Fossi á Síðu. Pétur var son-
ur Jóns hospítalhaldara og Þor-
bjargar sem bjuggu á Hörgslandi á
Síðu. Þorbjörg var dóttir sr. Bergs á
Hörgslandi og Katrínar, dóttur sr.
Jóns Steingrímssonar eldprests.
Sigríður Steingrímsdóttir og Sig-
urður Pétursson á Hörgslandi eign-
uðust 3 syni og 5 dætur, en tvær
þeirra létust í æsku. Sigurður átti
áður dóttur, Sigurlínu, og giftist
hún Eyjólfi Eyjólfssyni, hreppstjóra
á Hnausum, og eignuðust þau einn
son, Vilhjálm, sem lifir foreldra sína.
Eftirlifandi systkini Þórunnar eru:
Jústa, giftist Ólafi heitnum Pálssyni
sundkennara, og eignuðust þau þrjú
börn. Steingrímur, kaupmaður og
fyrrv. kartöflubóndi á Höfn í Horna-
firði, giftur Vilborgu Ólafsdóttur og
eiga þau eina dóttur. Systkini Þór-
unnar sem eru látin: Pétur, fulltrúi,
giftist Kristínu heitinni Gísladóttur
og eignuðust þau 5 börn Geir, var
lögregluþjónn í Reykjavík, en hann
drukknaði í Reykjavíkurhöfn við
skyldustörf árið 1937. Eiginkona
hans var Kristín heitin Björnsdóttir
og eignuðust þau einn son en hann
lést af slysförum árið 1958, og Sig-
ríður, giftist Erlingi heitnum Páls-
syni yfirlögregluþjóni og eignuðust
þau 10 börn.
Eiginmaður Þórunnar var Jón heit-
inn Pálsson sundkennari og eignuð-
ust þau 3 börn: Pál afgreiðslumann,
ókvæntur, Sigurð Kná sem lést af
slysförum um aldur fram og Amalíu
Svölu hjúkrunarfræðing, gift Sig-
urði Karli Sigurkarlssyni fjármála-
stjóra og eiga þau 3 börn: Sindra
Karl, Þórunni og Önnu Sigríði.
Þórunn var einstaklega fríð kona,
hafði dökk djúpblá augu og skipti fal-
lega litum. Hún var ljúf í viðmóti,
viðræðugóð og skemmtileg, og
reyndi alltaf að sjá björtu hliðarnar ef
á móti blés. Og ekki veitti af því, en
við fæðingu elsta sonarins fékk hún
barnsfararsótt og stífluðust æðar á
öðrum fæti hennar sem leiddi til þess
að eftir það gekk hún aldrei heil til
skógar. Meira að segja kom til álita að
taka af henni fótinn, en Þórunn gat
ekki hugsað sér það, þrátt fyrir að
hún hafi oft þurft að gangast undir
skurðaðgerðir vegna veika fótarins.
Eitt af því sem Þórunn og Jón heit-
inn áttu sameiginlegt var að þau
voru bæði gestrisin og góð heim að
sækja og einstaklega hjálpsöm ef
eríiðleikar steðjuðu að hjá skyldfólki
eða vandalausum. Þau voru sérstak-
lega barngóðar manneskjur og
minnist ég þeirra með hlýhug og
þakklæti frá æskuárum mínum. Við
Ulfar gleymum ekki hvað Þórunn
reyndist okkur vel. Hún passaði um
tíma börnin okkar þegar þau voru
lítil og þá var gott fyrir mig að koma
heim úr vinnunni. Einnig reyndist
hún ídu, móður Úlfars, einstaklega
vel með heimsóknum og upphring-
ingum. Ef við skruppum í ferðalag
þá gættu þær bús og barna á meðan
og kom það sér dásamlega vel.
Segja má að Þórunn hafi upplifað
nýtt æviskeið og það í betra lagi þeg-
ar þau eignuðust barnabörnin.
Sindri Karl, fyrsta barnabarnið, var
svo hraustlegur og kröftugur í vögg-
unni, og síðan var Sindri Karl farinn
að ganga og afi kunni margar sögur.
Og auðvitað kom að því að Sindri
Karl átti að læra að synda hjá afa.
Síðan fæddist Þórunn, alnafna
ömmu sinnar, augasteinninn henn-
ar og kom þeim nöfnunum ætíð
mjög vel saman. Enn fjölgaði í fjöl-
skyldunni og þriðja barnabarnið
fæddist, Anna Sigríður, og fékk hún
gælunafnið Körfublómið.
En það má segja að bæði Jón heit-
inn og Þórunn voru lánsöm að hafa
eignast slíkan tengdason sem Sig-
urð Karl, en hann reyndist þeim
báðum einstaklega vel, eins og að-
eins bestu synir og dætur geta
reynst foreldrum sínum eða tengda-
foreldrum. Svala hefur umvafið
móður sína og hlúð að henni af
elsku og kærleika öll þessi ár í löng-
um veikindum.
Elsku Palli minn, Svala, Siggi,
Sindri, Þórunn og Anna Sigga. Við
Úlfar og fjölskylda vottum ykkur
innilega samúð, og þó að hvfldar
virtist þörf þá er söknuðurinn hinn
sami.
Ég enda þessar línu með einu af
þeim versum er Ásta heitin systir
orti.
Þitt nafh er nöfnum æðra,
ég nýt þess Jesú minn.
Urguðlegri gefandi elsku
er gjörður vegur þinn.
Asdís Erlingsdóttir
sem „ræðust", þ.e. að mönnum lærist
fljótlega að lesa rétt úr þeim án þess að
þurfa að fietta upp í töfium. Kerfið nær
einnig til lýsingarorða og sagna, en sá
hluti er ekki með í þessari útgáfu.
Bæði þessi rit fást í Bóksölu stúdenta,
en einnig er hægt að panta þau hjá Mál-
vísindastofnun í síma 694408.
Vorsýning
Myndlista- og handíðaskóla fslands í
Listaháskólahúsinu í Laugamesi. Ein-
stakur viðburður í íslenskri myndlistar-
sögu.
Sextíu útskriftamemendur sýna verk
sín. Opið um hvítasunnuhelgina frá
klukkan 14 til 19.
Sumarsýning
á verkum úr safni Hafnarborgar, menn-
ingar- og listastofnun Hafnarfjarðar,
verður haldin dagana 18. maí til 9. júní.
í kaffistofu stendur yfir sýning á verk-
um 12 hafnfirskra listamanna. Opið frá
kl. 11-19 virka daga og 14-19 um helgar.
Sýningarsalir em opnir daglega kl. 14-
19, lokað á þriðjudögum.
6272.
Lárétt
1) Hluttekning. 6) Krot. 8) Land-
námsmaður. 10) Ándi. 12) Féll. 13)
Tínn. 14) Handa. 16) Ennfremur. 17)
Skólakennslutímabil. 19) Undna.
Lóðrétt
2) Dýr. 3) Eyða. 4) Klukku. 5) Aldin-
mauk. 7) Svipuð. 9) Komist. 11)
T\mnu. 15) Sáta. 16) Elska. 18) Strax.
Ráðning á gátu no. 6271
Lárétt
1) Hafur. 6) Rán. 8) Láð. 10) Gær. 12)
At. 13) La. 14) Stó. 16) Tin. 17) Slá.
19) Skært.
Lóðrétt
2) Arð. 3) Fá. 4) Uns. 5) Hlass. 7)
Grand. 9) Átt. 11) Æli. 15) Ósk. 16)
Tár. 18) Læ.
Ef bilar rafmagn, hitaveita eða vatnsveita
má hringja í þessi simanúmer:
Rafmagn: I Reykjavlk, Kópavogi og Seltjarn-
amesi er slmi 686230. Akureyri 24414, Kefla-
vlk 12039, Hafnarfjöröur 51336, Vestmanna-
eyjar 11321.
Hitavelta: Reykjavik simi 82400, Seltjamar-
nes simi 621180, Kópavogur 41580, en eftir
kl. 18.00 og um helgar I slma 41575, Akureyri
23206, Keflavik 11515, en eftir lokun 11552.
Vestmannaeyjar slmi 11088 og 11533, Hafn-
arfjörður 53445.
Sími: Reykjavlk, Kópavogi, Seltjarnamesi,
Akureyri, Keflavfk og Vestmannaeyjum til-
kynnist (slma 05.
Bifanavakt hjá borgarstofnunum (vatn,
hitaveita o.fl.) er I slma 27311 alla virka daga
frá kl. 17.00 til kl. 08.00 og á helgum dögum
er svaraö allan sólarhringinn. Tekið er þar viö
tilkynningum á veitukerfum borgarinnar og I
öörum tilfellum, þar sem borgarbúar telja sig
þurfa aö fá aöstoö borgarstofnana.
15. maM991 kl. 9.15
°
Kaup Sala
...59,810 59,970
.104,458 104,738
...51,984 52,123
...9,2321 9,2568
...9,0594 9,0836
...9,8130 9,8392
.14,9994 15,0395
.10,3963 10,4241
...1,7152 1,7198
.41,7959 41,9078
.31,3068 31,3905
.35,2861 35,3805
.0,04746 0,04759
...5,0103 5,0237
...0,4041 0,4052
...0,5693 0,5709
.0,43396 0,43512
...94,455 94,708
..80,7955 81,0117
.72,5166 72,7106