Tíminn - 16.05.1991, Síða 16
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 & 686300
RÍKISSKIP
NOTÍMA FLUTNINGAR
Halnarhusinu v Tryggvagotu.
S 28822
1 1 / HÖGG- ^ - DEYFAR': / Verslið hjá fagmönnum I
Ókeypis auglýsingar fyrir einstaklinga
POSTFAX 91-68-76-91 GSyarahlutir
TVÖFALDUR1. vinningur
Tíminn
FIMMTUDAGUR 16. MAÍ1991
Margra milljaröa króna skattaskuldir í vanskilum:
Meira en milljarður
tapaðist árið 1990
í ljósi frægra innheimtuherferða „skattmanns" kemur nokkuð á
óvart að ríkissjóður skuli eiga marga milljarða króna útistandandi
í skattaskuldum. „Er hér um mjög alvarlega þróun að ræða strax
á fyrsta ári virðisaukaskattsins,“ segir m.a. í greinargerö Ríkis-
endurskoðunar, um 1,8 milljarða vanskil á þessum nýja skatti —
sem kemur viðbót við 3,2 milljarða eldri söluskattsskuldir. Af
þinggjöldum eru 30-40% í vanskilum. Og í þriggja ára stað-
greiðslukerfi hafa safnast upp 2,5 milljarða vanskil.
í því sambandi bendir Ríkisendur-
skoðun á, að möguleg innheimtu-
úrræði séu mjög virk og því hægt
að grípa strax til aðgerða skili
launagreiðendur ekki staðgreiðslu-
fénu. „Engu að síður eru dæmi um
fyrirtæki í fullum rekstri sem kom-
ast upp með að skulda tugmilljónir
í staðgreiðslu um lengri eða
skemmri tíma án þess að gripið sé
til aðgerða," segir Ríkisendurskoð-
un. Skuldugasta fyrirtækið um s.l.
áramót hafi skuldað 45 milljónir í
staðgreiðslu, hvar af 28 milljónir
eru frá árinu 1989. Einnig er nefnt
dæmi um fyrirtæki sem skuldað
hafi staðgreiðslu vegna síðustu
þriggja ára þegar það nýlega var úr-
skurðað gjaldþrota.
Taka staðgreiðsluna
að „láni“?
„{ sambandi við staðgreiðsluna
gagnrýnum við fyrst og fremst, að
launagreiðendur skuli hafa fengið
að skila inn yfirlitum um aftekna
staðgreiðslu af launþegum, án þess
að skila þeim peningum inn í ríkis-
sjóð um leið. Þetta tel ég af hinu
slæma,“ sagði Sigurður Þórðarson
vararíkisendurskoðandi í samtali
við Tímann. Enda sagði hann inn-
heimtuúrræði svo virk að vanskil
ættu ekki að þurfa að vera nema
sáralítil í staðgreiðslu.
Að mati Ríkisendurskoðunar þarf
að herða eftirlitið með skilum á
staðgreiðslu, þannig að gripið verði
strax til innheimtuaðgerða þegar
launagreiðendur skila ekki því fé
sem þeim er skylt að halda eftir af
launum starfsmanna. Á þann hátt
sé jafnræði aðila einnig tryggt.
Áf um 2,5 milljarða vanskilum í
staðgreiðslu er rúmlega helming-
urinn frá síðasta ári, en hitt eldra.
Af heildarskuldinni eru dráttarvext-
ir og viðurlög um 800 m.kr., en
höfuðstóllinn er um 1.700 m.kr.,
hvar af um 70% eru til komin
vegna áætlana á framteljendur sem
ekki hafa skilað skattframtali.
Af greinargerð Ríkisendurskoðun-
ar verður raunar ekki betur séð en
að drjúgur hluti þessara stað-
greiðsluskulda sé ríkissjóði þegar
tapað fé. Bráðabirgðatölur um
skuldir þeirra fyrirtækja og ein-
staklinga, sem voru í gjaldþrota-
skiptum um áramót eða skiptum
var lokið hjá, sýna að þær voru um
5,4 milljarðar kr. í árslok 1990. Þar
af var meira en milljarður vanskila
staðgreiðsluskattar.
Á 2. milljarð tapast í
fyrra?
„Miðað við þær forsendur, sem
Iagðar eru til grundvallar niður-
færslu f ríkisreikningi, gæti hún í
lok ársins 1990 verið orðin um 4
milljarðar kr. á móti 3 milljörðum í
árslok 1989. Viðbótartap ríkissjóðs
á árinu 1990, vegna gjaldþrota fyr-
irtækja og einstaklinga, yrði því um
1 milljarður króna og er þá ekki
tekið tillit til þeirra krafna í virðis-
aukaskatti sem hugsanlega eru tap-
aðar,“ segir Ríkisendurskoðun.
Þessar skuldir skiptast þannig,
talið í milljónum kr.:
Staðgreiðsla 1.065
Þinggjöld einstaklinga 479
Þinggjöld félaga 1.395
Söluskattur 1.806
Launaskattur 517
Vörugjald 104
Samtals miiljónir kr. 5.367
Höfuðstóll skuldarinnar er í
kringum 3 milljarðar, hitt dráttar-
vextir. Svo vinsælt viðmiðunar-
dæmi sé tekið, þá svara þessi van-
skil gjaldþrotaaðila til 84.000 kr. á
hverja 4ra manna fjölskyldu á ís-
landi. Og drjúgur hluti upphæðar-
innar eru skattar sem almenningur
er búinn að borga (t.d. söluskattur
og afdregin staðgreiðsla), en síðan
hefur ekki verið skilað í ríkissjóð.
Sem áður segir eru enn ógreidd-
ar eftirstöðvar söluskatts af seldum
vörum og þjónustu 1989 og fyrr
alls um 3,2 milljarðar kr. Sá meira
en helmingur skuldarinnar, sem er
hjá gjaldþrotaaðilum, er talinn
glatað fé.
Árið 1990 innheimtust um 550
millj. kr. upp í vanskil söluskatts frá
fyrri árum.
Niður í 50%
innheimtuhlutfall...
Innheimtuhlutfall opinberra
gjalda (þinggjalda) einstaklinga og
félaga (til ríkis og sveitarsjóða) seg-
ir Ríkisendurskoðun sífellt hafa far-
ið lækkandi síðan staðgreiðslukerf-
ið var tekið upp 1988.
Bráðabirgðatölur bendi til þess að
á árinu hafi innheimtuhlutfall höf-
uðstóls og dráttarvaxta aðeins verið
um 50% hjá einstaklingum og um
55% hjá féíögum.
Af áíagningu ársins innheimtist
um 62% hjá einstaklingum og 72%
hjá félögum.
„Hvert prósentustig í bættri inn-
heimtu er talið skila 180 til 200
milljónum króna í hærri greiðslum
til ríkissjóðs. Þess vegna er mikil-
vægt að herða enn frekar á inn-
heimtuaðgerðum,“ segir Ríkisend-
urskoðun.
Hvað varðar eldri skuldir þing-
gjalda sagði Sigurður það m.a.
áhyggjuefni, að þær fymast á
ákveðnum árafjölda. „Það hefur
leitt til þess að ríkissjóður hefúr
tapað nokkrum fjárhæðum," sagði
Sigurður Þórðarson vararíkisend-
urskoðandi.
- HEI
Eykon lagði
Björn
Þingflokkur sjálfstæðismanna tók
ákvörðun um það í gær að tilnefna
Eyjólf Konráð Jónsson sem for-
mann utanríkismálanefndar. Björn
Bjamason sótti einnig fast að fá
þetta embætti, en hann varð að láta
í minni pokann fyrir Eyjólfi Konráð.
Eyjólfur Konráð hefur áður verið
formaður nefndarinnar og er núver-
andi varaformaður hennar.
Fulltrúi Framsóknarflokksins í
nefndinni verður Steingrímur Her-
mannsson. Aðrir fulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins í nefndinni verða Björn
Bjarnason og Geir H. Haarde. -EÓ
Kemur Pele
til íslands?
Hugsanlegt er að knattspymusnill-
ingurinn Pele komi hingað til lands
í sumar, í lok júlí eða byrjun ágúst.
Heimsóknin yrði í tengslum við al-
þjóðlegt átak FIFA „Fair play“ —
Höfum rétt við. Pele vinnur að þessu
átaki. Þaö eru KSÍ og VISA ísland,
sem standa að átakinu hérlendis.
Heimsókn Pele yrði þá á vegum
þeirra. -PS/aá.
Nýtt skip frá
nni á Akureyri:
í gær var sjósett hjá Slippstöðinni á
Akureyri nýsmíðað skip, sem koma
mun í stað afiaskipsins Þórunnar
Sveinsdóttur frá Vestmannaeyjum.
Nýja skipið er um 250 rúmlestir og
eigandi þess er Ós h.f. í Vestmanna-
eyjum, Óskar Matthíasson útgerð-
armaður og sonur hans, Sigurjón
óskarsson, sem jafnframt verður
skipstjóri. Dóttir útgeröarmanns-
ins, Þórunn Óskarsdóttir, gaf skip-
inu nafnið Þórunn Sveinsdóttir VE
401.
Nýja skipið er þó ekki fullfrágeng-
ið, en stefnt er að því að það verði
formlega afhent eigendum sínum í
lok júli. Eftir er að setja brúna á
gkipiö, ganga endankga frá botni og
koma stjómtækjum fyrir.
Hin nýja Þórunn Sveinsdóttir er
250 rúmlestir að stærð, 37 metra
löng og 8 metra breiö, og útbúin
bæði tfi togvelða og netaveiða. Skip-
ið er búið nýjustu og fullkomnustu
sigllnga- og fiskileitartækjum, auk
þess sem allur vélbúnaður skipsins
er af fúDkomnustu gerð. Vistarver-
ur eru fyrir fjórtán menn í fjórum
eins manns klefum og fimm
tveggja manna klefum.
í máU Sigurðar Ringsted, fram-
kvæmdastjóra SDppstöðvarinnar,
kom ou fram að þessi sjósetning
væri stór stund fyrir þá Slippstöðv-
armenn, því Dðin væru rúm sjö ár
síðan skip var síðast sjósett hjá
SUppstöðhmi að viðstöddum eig-
endum. Að vísu hefðu þrjú skip:
Oddeyrin, Nökkvi og B 70 verið sjó-
sett á þessu fa'mabUi, en þau hefðu
verið óseld, og reyndar væri B 70
óseldur ennþá. Sigurður sagði að í
tengslum viö smíði skipsins hefði
verið unnið að hagræðingarátaki í
samvinnu við Félag dráttarbrauta og
skipasmiðja og Iðnaðarráðuneytíð,
sem jafnframt sfyrkir átakið fjár-
hagslega. Markmið átaksins er að
auka samkeppnishæfni íslenskra
skipasmíðastöðva, með því að fækka
vinnustundum, sfytta verktíma og
lækka þar með kostnaö við fram-
kværnd einstakra verkefna, jafnt ný-
smíða sem viðgerða. Smíðl Þórunn-
ar Svcinsdóttur tíyggði næga at-
vinnu í Slippstöðínni s.I. vetur, svo
ekki þurftí að grfpa tíl uppsagna eins
og veturinn á undan. Önnur ný-
smíði er ekki f sjónmáli eins og er,
en verkefnastaða SUppstöðvarinnar
Hin rtýja Þórunn Sveinsdóttir VE 401 eftlr sjósetningu á Akureyri
gær. Skyldi hún verða sama happafleyta og fyrirrennari hennar?
Tlmamynd: «A
er samt sem áður góð næstu mán-
uðf vegna hefðbundinna sumarverk-
efna. Má þar nefna endurnýjun á
vinnslusal o.fl. í Ásbimi RE 50, um-
fangsmiklar viðgerðir á Framnesi
ÍS 708 og endumýjun á vinnslu-
búnaði, togþilfari, stýrishúsi o.fi. í
Kaldbald EA 301. Á næstunni verð-
ur unnið að því að tryggja verirefni
fyrir næsta vetur. Nú vinna um 180
manns hjá SDppstöðmni, en fyrir
nokkrum ánun, þegar hvað mest at-
vinna var, vom starfsmenn fiðlega
300. hiá-akureyrL