Tíminn - 17.05.1991, Síða 3
Föstudagur 17. maí 1991 Tíminn 3
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra á Sauðárkróki:
Tilboð í bók-
námshús opnuð
Frá Guttoimi Óskarssyni, fréttarítara Tfm-
ans á Sauðárkróki.
Tilboö í fyrri áfanga bóknámshúss
Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
voru opnuð á fundi Héraðsráðs
Skagafjarðar þriðjudaginn 14. maí.
Fjögur tilboð bárust og reyndist
það lægsta vera frá Byggingafélag-
inu Hlyn hf. á Sauðárkróki og
hljóöaði það uppá 234.9 milljónir
króna.
Annað tilboðið var frá Friðrik Jóns-
syni sf. uppá 245.1 millj. kr„ það
þriðja frá Trésmiðjunni Borg á 246,5
millj. kr. og það fjórða og síðasta frá
S.H. verktökum og hljóðaði það
uppá 288,6 millj. kr.
Kostnaðaráætlun hönnuða bygg-
ingarinnar var uppá 267.1 millj.
króna. Tilboð Hlyns var því um 12%,
eða rúmum 32 millj. fyrir neðan
kostnaðaráætlun.
Héraðsnefnd og byggingarnefnd
Fjölbrautaskólans mun nú yfirfara
tilboðin og taka ákvörðun um
hverju þeirra verður tekið. Bygging-
arframkvæmdir munu síðan vænt-
anlega hefjast í sumar.
Nemendur mættu í skólabolunum og helguðu umhverfinu smá tíma.
Breiðholtsskóli:
Skólabolir og
umhverfisvernd
Nemendur í Breiðholtsskóla í
Reykjavík hafa látið gera boli með
merid skólans. Bolimir hafa selst
vel og nýlega færðu nemendumir
skólanum að gjöf Macintosh
Classic tölvu, sem keypt er fyrir
söluandvirði bolanna
Að morgni föstudagsins 3. maí
mættu nemendumir í bolum sín-
um og helguðu umhverfinu smá
tíma. Þá fóru allir bekkir barna-
deilda út með kennurum sínum
og tíndu upp msl á skólalóð og í
næsta nágrenni. Að því búnu
komu nemendurnir síðan saman í
anddyri skólans þar sem Elín Ein-
arsdóttir, nemandi í 7. bekk, flutti
ávarp helgað umhverfi okkar. Síð-
an afhenti Kristinn Jóhannsson,
formaður nemendaráðs, skóla-
stjóra og bókaverði Macintosh
Classic tölvu sem keypt hafði ver-
ið fyrir ágóða af sölu bolanna.
Hugmyndin er að hafa tölvu þessa
á bókasafni skólans til afnota fyrir
nemendur. -sbs.
Nokkrir af aðstandendum „Forms og frumvinnu". Benedikt Gunnarsson, Þórarinn Þórarinsson, Sigríður Ás-
geirsdóttir, Steinunn Þórarinsdóttir, Leifur BreiðQörð og Gunnsteinn Gíslason. Mynd: Róbert
Margt merkilegra dagskrárliða á Kirkjulistahátíð 1991:
„Paulus“ Mendejssohns
frumfluttur á íslandi
Þriðja Kirkjulistahátíðin í Reykja-
vík hefst nú á laugardaginn. Hún
stendur til 1. júní. Aðstandendur
eru Listvinafélag Hallgrímskirkju
og prófastsdæmin í Reykjavík.
Af mörgum merkilegum dagskrár-
liðum ber hæst flutning óratoríunn-
ar „Paulus", Páll postuli, eftir Felix
Mendelssohn.
Kirkjulistahátíðin verður sett með
viðhöfn í Hallgrímskirkju kl. 14:00.
Mótettukór Hallgrímskirkju, Dóm-
kórinn, kór Langholtskirkju og
Camerata Vocale frá Freiburg
syngja. Helga Bachmann og Helgi
Skúlason ffumflytja hátíðarljóð eftir
Matthías Johannessen. Sama dag kl.
17:00 verða Mozarttónleikar í Laug-
arneskirkju. Einsöngvarar, kamm-
ersveit og kór Laugarneskirkju
flytja. Konsertmeistari er Hlíf Sigur-
jónsdóttir. Stjórnandi Roland Turn-
er. Fram til 1. júní verða svo fjöl-
margir dagskrárliðir dag hvern út
um allan bæ.
Hæst ber flutning á óratoríunni
„Paulus", Páll postuli, eftir Felix
Mendelssohn föstudaginn 24. maí
kl. 20:00. Hún er að sönnu eitthvert
frægasta tónverk 19. aldar. Flytjend-
ur eru Sigrún Hjálmtýsdóttir, Alina
Dubik, Frieder Lang, Andreas
Schmidt, Mótettukór Hallgríms-
kirkju og Sinfóníuhljómsveit ís-
lands. Konsertmeistari er Guðný
Guðmundsdóttir. Stjórnandi Hörð-
ur Áskelsson.
Rétt er að vekja athygli á tveimur
sýningum. Fimmtudaginn 16. maí
kl. 16:00 verður opnuð í Ásmundar-
sal og í Hallgrímskirkju sýningin
„Form og frumvinna — skapandi
samstarf arkitekta og listamanna í
kirkjum landsins". Þar á að beina
sjónum fólks að samstarfi lista-
manna og arkitekta. Sýnd verða
frumdrög, vinnuteikningar, módel
af kirkjum, tillögur að listaverkum
fyrir kirkjur hérlendis og erlendis og
ljósmyndir af þeim. Sýningin stend-
ur aðeins til 24. maí.
Dómkirkjan efnir til sýningar á
verkum Sigrúnar Jónsdóttur. Þau
prýða fjölmargar kirkjur landsins.
Sýningin verður í Safnaðarheimili
Dómkirkjunnar, gamla Iðnskólan-
um Lækjargötu 14a. Hún er opin
daglega frá 19. maí til 2. júní, kl. 10-
13 og 16-19.
Aðrir liðir Kirkjulistahátíðar eru
kynntir í dagbók blaðsins í dag. Bent
skal á að upplýsingar og miðar fást í
símum 11416,11417,11418.
-aá.
Menningarhátíð hjá Rangæingum
Sannkölluð hátíðardagskrá verður í
Rangárvallasýslu á Hvolsvelli um
hvítasunnuhelgina undir merkjum
M- hátíðar á Suðurlandi. Fjölbreytt
dagskrá verður á vegum heima-
manna.
Á morgun laugardag hefst kl.
13:30 hátíðardagskrá með leik
Lúðrasveitar verkalýðsins. Fulltrúi
héraðsnefndar og menntamálaráð-
herra ávarpa samkomuna. Meðal
skemmtiatriða má nefna ljóðalestur,
kórsöng, upplestur, frumsamin Ijóð
og fleira.
Um kvöldið kl. 20:30 verður síðan
dagskrá í Hvoli þar sem verður boð-
ið uppá létta sveiflu og kráar-
stemmningu. Þar verður flutt jass-,
Vínar-, dixieland- og blásturstónlist
auk einsöngs, írskra þjóðlaga og
laga úr sígildum söngleikjum.
Flytjendur eru Jóhanna Linnet,
Jónas Þ. Jónasson, Stefán G. Stef-
ánsson, Friðrik Guðni Þórleifsson,
Hólmfríður Þöll Friðriksdóttir,
Helgi Hermanns og Sigurður G.
Karlsson.
Á annan f hvítasunnu verður sam-
eiginleg messa Rangárvallaprófasts-
dæmis í Hábæjarkirkju í Þykkvabæ
kl. 14. Séra Jónas Gíslason vígslu-
biskup predikar og prestar prófasts-
dæmisins munu þjóna sameiginlega
fyrir altari og annast aðra liði mess-
unnar.
í tengslum við hátíðina verða tvær
málverkasýningar. Myndlistarfélag
Rangæinga verður með samsýningu
í Hlíðarenda og Jón Kristinsson í
Lambey verður með sýningu í
Kirkjuhvoli, dvalarheimili aldraðra
á Hvolsvelli, þar sem hann mun
sýna um 70 myndverk.
-sbs.
FYRSTA FERÐA-
HELGI SUMARSINS:
Búast má vlð talsvcrðri umferð
nú um hvítasunnuhelglna,
fyrstu verulegu ferðahelgi árs-
ins. Starfsfólk BSÍ bjóst einna
helst við að straumur unglinga
lægi að Logalandi í Borgarfirði,
en þar leika vinsælar hljóm-
sveitir.
Á föstudagskvöld leikur Ný
dönsk í Logalandi en Stjómln á
sunnudagskvöld. Ef aðstæður
leyfa verða leyfð tjaldstæði í
Reykholti. Almennt eru tjald-
sbeði bönnuð, t.d. á Laugar-
vatni. Búist er við að suðlæg átt
verði ríkjandi um helgina. Skúr-
ir, eða rigning, verða um sunn-
an- og vestanvert landið, en
þurrt fyrir norðan. Hitastig
verður á bilinu 5 til 10 stig.
-sbs.