Tíminn - 25.05.1991, Page 8
16
HELGIN
Laugardagur 25. maí 1991
f '1 Íí TÍMANS RÁS ■
ATLI MAGNÚSSON:
Hvar var framsýnin?
Ekki blæs byrlega fyrir fram-
skriði lýðræðisafla í veröldinni
um þessar mundir. Lifum við þó
einmitt þá tíma nú er menn
töldu fyrir svo skömmu að guðs-
ríki sáttar og hagsældar (eða svo
gott sem) ætti að vera í
uppsiglingu á þessari
marghrjáðu jörð. Æ bet-
ur kemur í ljós að
mönnum hefur vaxið sú
blessun í augun, sem
stafa mundi af aflagn-
ingu kommúnisma og
lausn þjóða í A-Evrópu
úr viðjum. Bræðralag
manna á meðal virðist ef
eitthvað er enn fjarlæg-
ari og fjarstæðari hug-
sýn en áður var. Helsta
afrek ráðstjórnarskipu-
lagsins virðist hafa verið
(eftir á að hyggja) að
halda niðri ótölulegum
grúa vandkvæða, sem
nú gjósa upp hvert af
öðru er þetta skipulag
hefur riðlast (Má hugsa
til þess með skelfingu ef
stórveldið Kína tæki
upp á að stefna til lýðræðis einn
daginn — nóg er nú samt!). í
stað áhuga á settlegri lýðræðis-
þróun virðast þjóðimar um þess-
ar mundir haldnar óróa- og upp-
reisnaranda og eiga óuppgerðar
sakir í öllum áttum, sem komið
hafa Vesturlöndum alveg í opna
skjöldu, þótt flest séu vandræðin
hundgömul. Líklega verða menn
að kannast við að bjartsýnialdan
vegna falls Berlínarmúrsins og
„perestrojkunnar" var borin uppi
af skammsýni er sýnast mun
hlægileg í augum síðari kyn-
slóða.
Morðið á Gandhi minnir oss
hressilega á hve takmarkað
skynbragð Vesturlandamenn
bera á málefni annarra heims-
hluta og að geta þeirra vest-
rænnu þjóða, sem mestar eru
fyrir sér til að sjá út og koma
skikk á þau málefni, er sem
„krækiber í helvíti" — og biðjum
vér afsökunar á orðbragðinu.
Þetta kom líka fram í afleiðing-
um Persaflóastríðsins. Menn sáu
ekki fyrir þá helför meðal Kúrda,
sem þær aðgerðir leiddu af sér.
En hví þá ekki — svo risavaxinn
sem sá harmleikur er? Hvar var
framsýnin? Ástæðan er þó varla
sú að menn hafi verið of blindir
eða heimskir til að vera við slíku
búnir, hvað þá illgjamir. En sam-
safnað hugvit og menntun bestu
fræðinga virðist ekki ná lengra
en þetta. Ódæmin virðast alltaf
koma mönnum í opna skjöldu.
Er hvergi til pólitísk framsýni
sem gagn er í þegar allt kemur til
alls?
Það er öllum vitanlegt að með
hmni ráðstjómarskipulagsins
hafa margir talið víst að lausnin
mundi liggja um braut markaðs-
hyggjunnar. En nú hljóta menn
að taka að efast um að hún reyn-
ist það þing sem predikað hefur
verið. Efalaust á hún sitt blóma-
skeið í vændum innan
Evrópu á næstu ámm
með fæðingu hins mikla
markaðsbandalags sem í
smíðum er. En hve langt
út fyrir landamæri Evr-
ópu mun hún megna að
teygja blessun sína? Utan
Evrópu og Bandaríkj-
anna mun hún varla
hjálpa meir en hunds-
múll mundi duga til þess
að tjóðra ólman uxa.
Markaðshyggjan mun
enn aðeins brúkhæf
„innansveitar" í Evrópu
og Ameríku og mun að
líkindum reynast tíma-
skekkja um sinn hvað
langmestum hluta
heimsbyggðarinnar við-
kemur. Að minnsta kosti
munu helstu formerki
hennar vera orðin öll
önnur ef sá tími rennur upp, að
sá svonefndi þriðji heimur hygg-
ist hagnýta sér hana — í alvöru,
en ekki af fikti í ráðleysi sínu og
örvæntingu.
Við lifum undarlega byltingar-
tíma og eigum eftir að verða
vitni að miklum firnum á næstu
árum. Og ótrúlegum dæmum
um hlálega skammsýni og sjálf-
birgingshátt.
Gettu nú
Myndin af Horn-
ströndum, sem síð-
ast var spurt um, var
úr Skjaldabjarnar-
vík.
Enn erum við stödd
á Ströndum. Hvað
heitir fjallið og víkin
er við sjáum hér, en
hún er kennd við
fjallið?
KROSSGÁTA
! ÞK —, -7—1 looo FWNrtt 70 m ww r r IS - ftSKUft SEGL rm F/JN/V L/£tí) mjHhi Árr • SÖKIN & 4
Mf\l~ sefa
c: ( » 7 % i
^5= 7 t A Q h
\ 1 ! óa/Yg- FLETiq HCSTÁR HRf Ð 5 3
ÁWku Lfihin ÖFUG, KÖÐ
V.., VCty* ÁTT táhUb ftV l'Pua, H
Ö -L r\ r: • L SÆ - 0 R03ÚR, ItSfí
i ð Arj S 7?oT>D • FOR PEFJU/I S£S t TVHKK SEIN- flSTUR 5
\ /asi K0A/A j-ukkA BÁL
V. ...... -* — - KflLL Y~ /E//V ToG { S/tMOi' T/& N HElTf 4 tangi i
& GUiH »nÆ>!
KVlk- INDl H músrfi TÚKifJfJ •Ro Ð F irfiN 7
STJ?>< KSTtS.
KURT- EIS.T Bfíu. BoRG. ~vy F&stu' GfEGO- ■RÝfíl 8
Þ ?ÁS VoGG- i/e r/s/ / MöN Könast T£ K ftf • ••• UTfl N 9
T&ni- JN<S/>
LlYfíST Starp HfíR
HAQilH Y? ÚTV. LftSU fiNDl V/ lo
scrA/- ftsruR, £rfíjs WAPUK GOKT
r ToJJfU 40 GiKoP4 TrYRlN ■ vv //
ruc, L SftR 6£RA K6KU
fUGi, íK«l ÚT UGl ÍSL- STftFUR. (X
flr- GERV! GYHTU miFLt
á£R/f5T
DKVI1' lETPtíti }Vft6 e srofd *■■■ RFl ► n /3
mw KEVXT Vöv
ÍRG'POK stV - fíu T. ► ■ h /Y
S£M£5TER
vnrU •
FOGL m /5 ttm- T£KL ÚTl- BÚlhl /s