Tíminn - 14.06.1991, Side 2
2 Tíminn
Föstudagur 14. juní 1991
Vöruskipti við útlönd:
Innflutningur á
neysluvörum eykst
Innflutningur á vélum, tækjum til atvinnurekstrar, unnum málm-
vörum og bflum hefur aukist mikið það sem af er þessu ári. Frá ára-
mótum til maí var vöruskiptajöfnuður óhagstæður um 1,1 milljarð.
í fyrra var hann hagsæður um 3,2 milljarða. Heildarverðmæti vöru-
útflutnings var 2.8% meiri í ár en í fyrra. Útflutningur á sjávaraf-
urðum var 6% meiri í fyrra en í ár.
unnum málmvörum og bflum, bæði
til atvinnurekstrar og einkanota.
Þessa fyrstu fjóra mánuði ársins
voru fluttar út vörur fyrir röska 28,6
milljarða króna en inn fyrir tæpa
29,8 milljarða krónna. Þetta þýðir
að vöruskiptajöfriuðurinn var óhag-
stæður um 1,1 milljarð króna en á
sama tíma í fyrra var hann hagstæð-
ur um 3,2 milljarða króna.
Á fyrrgreindu tímabili var verð-
Þetta kemur fram í fréttatilkynn-
ingu frá Hagstofu íslands. Þar segir
að verðmæti vöruinnflutningsins
frá áramótum sé 21% meira en á
sama tíma í fyrra. Þá segir einnig að
almennur innflutningur hafí aukist
verulega, eða um 28% og um 30%
að olíuvörum undanskildum. Þá
segir að aukning almenna innflutn-
ingsins sé mest í vélum og tækjum
til atvinnurekstrar en ennfremur
mæti vöruútflutnings 2,8% meira
en á sama tíma í fyrra. Þar er því
kominn hinn umtalaði viðskiptakj-
arabati. Hann kemur líklega til
vegna aukins útflutnings á sjávaraf-
urðum. Ekki er sömu sögu að segja
með útflutning á kísiljárni sem var
54% minni en í fyrra segir í fréttatil-
kynningunni.
Aprflmánuður virðist skera sig tals-
vert úr sé miðað við allt tímabilið. í
þeim mánuði var vöruskiptajöfnuð-
urinn óhagstææður um 3,3 millj-
arða króna en í aprfl í fyrra var hann
hagstæður um 0,6 milljarða króna,
segir og í fréttatilkynningu Hag-
stofu íslands.
-HÞ
Landslið fslands í bridge sem þátt tekur í Evrópumótinu.
Tfmamynd: Aml Bjama
Heimsmeistaramótið í bridge mögulega haldið á íslandi 1995 eða 1997:
EVRÓPUMÓT-
IÐ Á ÍRLANDI
Evrópumótið í bridge yerður haldið í
40. sinn í Killamey á íriandi dagana
16.-29. júní nk. ísland sendir þang-
að lið í opnum flokki. Það er skipað
Emi Amþórssyni, Cuðlaugi R. Jó-
hannssyni, Jóni Baldurssyni, Aðal-
steini Jörgensen og Guðmundi Páli
Amarsyni. Fyrirliði spilaranna án
spilamennsku er Björa Eysteinsson.
Besti árangur okkar manna á Evr-
ópumóti var 3. sætið árið 1950. Einu
parinu úr sveitinni, þeim Gunnari
Guðmundssyni og Einari Þorfins-
syni, var í framhaldi af því boðið til
heimsmeistarakeppninnar. Árið 1987
náðu íslendingar 4. sætinu. Af þeim
sex sem skipuðu það lið eru fjórir
með í liðinu núna, þeir Guðlaugur,
Örn, Jón og Aðalsteinn. Að þessu
sinni taka 27 þjóðir þátt í mótinu, en
það er mesta þátttaka frá upphafi.
Allar þjóðir mætast, en það þýðir að
hver þjóð þarf að spila 26 leiki. Hver
leikur er 32 spil með hléi eftir hver
16 spil. Á meðan á mótinu stendur
verður haldið þing Evrópusambands-
ins, þar sem koma mun til umræðu
umsókn íslands að halda Heims-
meistaramót árið 1995 eða 1997.
Helgi Jóhannsson, forseti Bridge-
sambands íslands, og Magnús Ólafs-
son, stjómarformaður sambandsins,
sitja þingið og kynna okkar mál. -js
Svínareglugerð Steingrfms
J. Sígfússonar:
Óviðkomandi
aðbúnaði á
ritstjóm DV
Tímanum hefur borist eftírfarandi
fréttatllkynniag frá Steingrími J.
Sigfússyni, fv, landbúnaöarráö-
berra:
„Vegna þess miMa áhuga sem
blaiatnenn og dálkahöfundar DV
hafa sýnt að undanfornu á reglu-
gerð um aðbúnað svína, sem sett
var af landbúmðarráðuneytinu og
undirrltuð af mér { apríímánuði
sl., skal eftirfarandi tekið ftam til
að fbrðast attan misskttntng:
Vmrœdd reglugerð tekur aðeins
tit dýrategundarínnar svína (Sus
scrofa) og er ekki á nokkum hátt
attíað að hafa áhríf á aðbúnað og
starfsumhverfí þehra sem skrifa
Dagblaðið-Vísi.
Rcykjavík, l'd.júni 1991
Steingrímur J. Sigfússon,
fv. iandbúnaðarráðherra."
„Á fáki fraum“, listaverk Sverris Ólafssonar sem sett var upp í tilefni
starfsafmælis sjúkrahússins.
Haltfið upp á 85 ára starf
Sjúkrahúss Skagfirðinga
Stjómendur Sjúkrahúss Skagfirðinga stóðu fyrir opnu húsi 8. júní sl. í til-
efni af 85 ára samfelldu starfi sjúkrahússins. Saga sjúkrahússins var sýnd
í myndum svo og tækjabúnaður til lækninga sem notaður var fyrr á ámm.
Einnig vom sýnd þau tæki sem notuð em til lækninga nú á dögum.
Sex deildir eru nú starfræktar á sjúkrahúsinu og heimilaðar stöður við
sjúkrahúsið eru 121.
í tilefni þess langa tíma sem sjúkrahúsið hefur starfað var útilistaverk eft-
ir Sverri Ólafsson sett upp. Innanhúss var sett upp málverk eftir Sigurð Ör-
lygsson en það verk fékk viðurkenningu samnorræns samstarf um að hætta
að reykja.
Johns Manville Corp. selur Celite Corp. sem á 49% í Kísiliðjunni hf. Alleghany Corp. kaupir:
Kísiliöjan tengist
nú kísilheimsveldi
Þann 6. júní 1991 skrifuðu Manville Corporation í Denver og Alleg-
hany Corporation í New York undir viljayflrlýsingu þess efnis, að
Manville seldi Celite Corporation til Alleghany. Celite er deild innan
Manville sem hefur aðallega með kísilgúr og perlustein að gera.
Celite Corporation rekur kísilgúr-
námur í Bandaríkjunum, Fakklandi,
Mexíkó og á Spáni, auk þess að eiga
49% eignarhlut í Kísiliðjunni hf. Ce-
lite rekur einnig perlusteinsnámur í
Bandaríkjunum og perlusteinsverk-
smiðju í Englandi. Nettó söluverð-
mæti framangreindrar framleiðslu á
árinu 1990 var 7,6 milljarðar ísl.
króna eða 5% af heildarveltu Man-
ville. Heildarvelta Manville Corpor-
ation á árinu 1990 var hins vegar
150 milljarðar ísl. króna.
F.M. Kirby, stjórnarformaður og
forstjóri Alleghany, sagði í tilefni af
væntanlegum kaupum félagsins á
Celite Corporation, að þetta væri
mikilvægt skref í þeirri viðleitni Al-
leghany, sem hófst 1984, að fjárfesta
í vænlegri starfsemi. Með kaupum á
Celite Corporation verður Alleghany
stærsti söíuaðili kísilgúrs í heimin-
um.
Viljayfirlýsingin um kaup og sölu
var gefin með fýrirvara um sam-
þykki stjórna félaganna og samþykki
ýmissa ríkisstjórna. Áætlað er að
ganga frá endanlegum samningi í
sumar.
-js
Guðmundur Halldórsson rithöfundur látinn
Fimm milljón kr. styrkir til
íslenskra námsmanna
Cuðmundur Halldórsson, rithöf-
undur frá Bergsstöðum í Svartár-
dal, Iést á Sauðárkróki í fyrradag.
Guðmundur fæddist árið 1926.
Hann stundaði nám við Héraðsskól-
ann að Reykjum í Hrútafirði og síð-
ar almenn sveitastörf og verka-
mannavinnu. Hann tók mikinn þátt
í félagsstörfum, sat m.a. í stjórn Fé-
lags ungra framsóknarmanna í
Austur- Húnavatnssýslu.
Guðmundur er höfundur margra
bóka. Af þeim má nefna „Undir Ijás-
ins egg“, „Haustheimar" og „Þar
sem bændurnir brugga í friði".
Eftirlifandi kona Guðmundar er
Þóranna Kristjánsdóttir. Þau eiga
eina dóttur, Sigrúnu. -aá.
Breska sendiráðið hefur tilkynnt að
íslenskum námsmönnum gefist
kostur á að sækja um styrkveitingu
breskra stjóravalda fyrir skólaárið
1991 til 1992. Styririmir koma úr
sjóði sem er í vörslu breska utan-
rfldsráðuneytsins og heildarupp-
hæð þeirra er um fimm milljónir ís-
lenskra króna.
Styrkirnir eru til greiðslu á skóla-
gjöldum nemenda, ýmist hluta
þeirra eða að fullu. Auk þess geta
þeir sem eru í framhaldsnámi sótt
um svonefndan ORS-rannsóknar-
styrk en hann veitir Ráð breskra há-
skólarektora. Allar nánari upplýs-
ingar um styrkina fást í breska
sendiráðinu við Laufásveg.
Tveir Islend-
wmm
i
norska vís
indafélagiö
Hinn 14. mars sL voru tveir ís-
lendingar kallaðir til veru í hugvís-
indadefld Vísindafélags Norð-
manna, JDet norske Videnskaps
Akademi“. Annar þeinra er Bjöm
S. Stefánsson. Hann tekur sætl f
flokki þjóöhagfræði, félagsfræði
og stjómmálafræfti. Þar sitja 12
Norðmenn og 8 útiendingar. Hinn
er llörður Ágústsson. Hann tekur
sætí f flokki listfræða, listasögu,
tónmenntasögu og leikHstarsögu.
Þar sifia 8 Norðmenn og 9 útlend-
ingar.
Tiliögumenn um kosningu
BjÖms telja hann merkilegan foll-
trúa íslenskra þjóðíélagsrann-
sókna. Hann bafi af þrautseigju
fylgt nokkrum grundvaJlarfaug-
myndum með þeim árangri, að nú
sé tekið tfllittíi þeirra. Er þargetíð
fágaðra og skarplegra skoðana-
skipta hans við Arrow, Nóbelsverð-
taunahafa í hagfræði árið 1972.
BjÖm heldur því fram að Arrow
haldi fram grundvallanökvillu.
Rit Harðar um íslenska bygging-
ariist eru þjóðkunn. Nú síðast
„Dómsdagur og helgfa- menn á
Hólum“ frá 1989 og JSkálhoits-
idrkjur1' frá fyrra ári. Fyrir hana
hlaut höfundur bókmenntaverð-
taun Félags bókaútgefenda í vetur
leið. Með kalli norskra vísinda-
manna fær Hörður enn eina viður-
kenningu góðra verka. -aá.