Tíminn - 14.06.1991, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Föstudagur 14. júní 1991
Sumartími skrífstofu
Framsóknarflokksins
Frá 15. ma( verður skrifstofa okkar I Hafnarstræti 20, III hæð, opin frá kl. 8:00-16:00
mánudaga-föstudaga.
Verið velkómin.
Framsóknarflokkurinn
Suðurland
Skrifstofa Kjördæmissambands framsóknarfélaganna á Suðuriandi, Eyrarvegi 15,
Selfossi, verður opin á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 15-17. Sími 98-22547.
Fétagar hvattir til að lita inn.
KSFS
lj Vr\ Ut\ samtúk áhugafólks
tALLTLiJ UM ÁFENGISVANDAMÁUÐ
Auglýsing um aðalfund
Aðalfundur SÁÁ (Samtök áhugafólks um áfeng-
isvandamálið) verður haldinn 21. júní nk. kl.
20.00 að Síðumúla 3-5, 108 Reykjavík.
Dagskrá
1. Skýrsla stjórnar um framkvæmdir og starfsemi
Samtakanna á liðnu starfsári.
2. Gjaldkeri leggurfram endurskoðaða reikninga
til umræðu og samþykktar.
3. Lagabreytingar.
4. Kosning stjórnar, varastjórnar, endurskoðenda
og varaendurskoðenda.
5. Ákvörðun um félagsgjöld.
6. Önnur mál.
Stjórn SÁÁ
Samtaka áhugafólks um áfengisvandamálið.
Hefur þú áhuga á atvinnu erlendis?
Mikill fjöldi fjöldbreytilegra starfa í boði um víða
veröld, þar með talin Norðurlöndin, Bandaríkin,
Evrópa, Austurlönd, Ástralía og í Miðjarðarhafs-
löndunum. Tímabundin og ótímabundin störf í
boði. Sums staðar er starfsreynslu krafist, en
annars staðar ekki. Vinsamlegast sendið nafn og
heimilisfang og fáið ókeypis nánari upplýsingar.
JOB SERVICE INTERNATIONAL
P.O. Box 2104 Hana
N-4301 Sandnes
Norway
---------------------------------------------------------\
Eiginmaður minn
Yngvi Markússon
Oddsparti
sem lést 5. júni sl. verður jarðsunginn frá Þykkvabæjarkirkju laugardag-
inn 15. júní kl. 14.00.
Sigriöur Magnúsdóttir
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem auðsýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför móður okkar, ömmu og langömmu
Guðmundu Guðjónsdóttur
HjálmhoW
Ágústa Margrét Ólafsdóttir Bjöm Slgurðsson
Kolbeinn Ólafsson
Kristinn Ólafsson Guðbjörg Siguröardóttir
Kristín Lára Ólafsdóttir Guðmundur Kr. Jónsson
Þormóður Ólafsson Valdís Bjamþórsdóttir
Siguröur Ólafsson
Bergur Ingi Ólafsson
bamaböm og bamabamaböm
Róttækir umbótasinnar vinna mikla kosningasigra í Rússlandi:
Boris Jeltsin
fær meirihluta
í fyrstu umferð
Hinn róttæki umbótasinni og nú-
verandi forseti Rússlands, Boris
Jeltsin, virðist ætla að vinna örugg-
an sigur í fyrstu beinu forsetakosn-
ingunum í Rússlandi, sem fram fóru
á miðvikudag. Lokaniðurstöður
verða ekki ljósar fyrr en eftir nokkra
daga, en formælandi kosninga-
nefndarinnar sagði í gær að bráða-
birgðatölur bentu til þess að Jeltsin
fengi 55- 58% greiddra atkvæða.
Jeltsin þarf að fá meirihluta atkvæða
ef ekki á að koma til annarrar um-
ferðar, en rétt fyrir kosningarnar var
búist við að svo gæti farið að halda
yrði aðra umferð. Helsti keppinaut-
ur Jeltsins, Nikolai Ryzhkov, fyrrum
forsætisráðherra Sovétríkjanna og
fulltrúi íhaldsmanna, virðist fá mun
minna fylgi en búist hafði verið við.
Þá virðast bandamenn Jeltsins ætla
að vinna borgarstjórakosningarnar í
tveimur stærstu borgum Rússlands,
Moskvu og Leníngrad. Gavril Saik-
in, forseti borgarstjórnar Moskvu og
stuðningsmaður Jeltsins, fær sam-
kvæmt fyrstu tölum 65% fylgi og
Anatoly Sobchak virðist ætla að
sigra frambjóðanda kommúnista í
Leníngrad með svipuðu fylgi. Á mið-
vikudag kusu borgarbúar Leníngrad
einnig um hvort taka ætti upp upp-
haflegt nafn borgarinnar, Sankti
Pétursborg, sem Pétur mikli Rússa-
keisari gaf henni, eða halda núver-
andi nafni. Gorbatsjov Sovétforseti
hvatti íbúa borgarinnar til að halda
Blóðbað á Sri Lanka:
A.m.k.
150 borg-
arar strá-
felldir
Að minnsta kosti 150 óbreyttir
borgarar voru drepnir í héraðinu
Batticaloa á austurhluta Sri Lanka
á miðvikudag. Þetta var haft eftir
þingmanni úr héraöinu á þinginu á
Sri Lanka í gær. Hann hefur sent
forseta landsins bréf um atburðinn
og krafíst opinberrar rannsóknar.
Liðsforingi í stjómarhemum sagði
staðfest að 52 hefðu verið drepnir
og nokkrir særðir.
Þingmaðurinn sagði að 20 manns
hefðu særst og kveikt hefði verið í
þrjú hundruð húsum. Atburðurinn
mun eiga upphaf sitt að rekja til
átaka stjórnarhersins og skæruliða
tamíla, sem berjast fyrir sjálfstæði
tamíla á norð-austurhluta eyjunnar.
Fyrir nokkrum dögum létust sex
stjórnarhermenn þegar jarð-
sprengja, sem tamílar höfðu komið
fyrir, sprakk undir fótum þeirra. Í
kjölfarið var liðsstyrkur sendur til
svæðisins og kom til mikilla skot-
bardaga milli skæruliða og stjórnar-
hersins. Svo virðist sem árásirnar á
þorpin í Batticaloa- héraðinu séu
hefndaraðgerðir stjórnarhersins, en
þorpsbúar veita skæruliðum mikinn
stuðning.
Reuter-SÞJ
Boris Jeltsin virðist ætla að fá
meirihluta í fyrstu umferð for-
setakosninganna í Rússlandi.
núverandi nafni til minningar um
hetjulega vörn íbúa borgarinnar,
þegar Þjóðverjar sátu um hana í níu
hundruð daga í seinni heimsstyrj-
öldinni. Fyrstu tölur úr þeirri kosn-
ingu benda til þess að 55% kjósenda
hafi valið Sankti Pétursborg. Kosn-
ingin um borgarnafnið er ekki bind-
andi og þarf samþykki rússneska
þingsins til að breyta nafninu.
Kommúnistar segja að samþykki
sovéska þingsins sé einnig nauðsyn-
legt, en þar eru þeir mjög sterkir.
Jeltsin virðist hafa sigrað í öllum
helstu borgum lýðveldisins og fær
þar yfirleitt 60-70% atkvæða, en í
sveitunum fær hann ekki eins mikið
fylgi, en þar hafa kommúnistar enn
töluverð áhrif. Með sigri mun Jelts-
in styrkja mjög stöðu sína gagnvart
Gorbatsjov og þrýsta á hann um að
hraða efnahagsumbótum og slaka á
miðstjórnarvaldinu.
Eduard Shevardnadze, fyrrverandi
utanríkisráðherra Sovétríkjanna,
sagðist í gær fagna úrslitum forseta-
kosninganna í Rússlandi og þegar
hann var spurður hvaða áhrif þau
mundu hafa fyrir Sovétríkin og ut-
anríkisstefnu þeirra sagði hann að
þau mundu aðeins hafa jákvæð
áhrif. Formælandi Bandaríkja-
stjórnar, Marlin Fitzwater, fagnaði
einnig kosningasigri Jeltsins og
sagði hann undirstrika þær breyt-
ingar sem ættu sér stað í Sovétríkj-
unum. Jeltsin mun eiga viðræður
við George Bush Bandaríkjaforseta í
næstu viku.
Reuter-SÞJ
Fréttayfirlit
LONDON - John Major, forsætis-
ráðherra Bretlands, skýrði breska
þinginu frá því í gær að hann hefði í
gær, að höfðu samráði við leiðtoga
hinna sex iönaðarstórveldanna,
boðiö Gorbatsjov Sovétforseta til
London til að rasða við leiðtoga sjö-
veldanna strax að loknum áriegum
fundi þeirra, sem fram fer I London
dagana 15. tii 17. júlí. Gorbatsjov
mun leita eftir efnahagsaðstoö frá
sjöveldunum, sem eru auk Bret-
lands, Bandarfkin, Þýskaland,
Frakkland, Japan, (taila og Kanada.
BBÚSSEL - Svíar hafa ákveðið að
sækja um fonmlega aðild að Evr-
ópubandafaginu þann 1. júlf, að
sögn embættismanna hjá EB i gær.
Sænska rikisstjómin mun halda
fund í dag þar sem umsóknin verð-
ur afgreidd og forsætlsráöhenrann,
Ingvar Carisson, mun síðan gera
grein fyrir umsókninni á þinginu.
Carisson segir stefnubreytinguna
mikilvægustu stefnubreytingu Svra f
utanrikismálum I meira en öld.
BONN - Alexander Bessmertnykh,
utanrfkisráðherra Sovétrlkjanna,
sagði á fréttamannafundi, sem
hann hélt eftir vlðræður við þýska
kollega sinn í Bonn í gær, að Sovét-
menn væru enn með kjamoricueld-
flaugar f herstöðvum sfnum f Aust-
ur-Þýskalandi. Sovésk yfirvöld
höfðu áöur neitað að svo væri.
Bessmertnykh sagði að verlð væri
að flytja kjamavopnin til Sovétrikj-
anna, en Rauði herinn á að vera far-
inn frá Austur-Þýskalandi fyrir árið
1994.
ANKARA - Utanrikisráðherra Tyrk-
lands, Alptemocin, hafnaði beiðni
aðstoöarforsætisráöhenra (raks,
Tareqs Aziz, um að opna fyrir olfu
leiöslu, sem iiggur um Tyrkland fná
írösku borginni Klrkuk tll Miðjarðar-
hafsins. Áður en Persafióastrfðið
hófst fór rúmlega helmingur ailrar
útflutningsolíu fraka um þessa
leiöslu og skapaðí hún rúmlega
helming gjaldeyristekna íraks. Alpt-
emocin gerði Aziz grein fyrir því að
ekki yrði opnað fyrir leiðsluna fyn en
Sameinuöu þjóöirnar aflóttu efna-
hagsþvingununum sem þær settu á
frak f kjölfar Persaflóastrfðsins.
TEHERAN - Að sögn vestrænna
diplómata I Teheran hafa (rönsk yfir-
völd miklar áhyggjur af fröskum trú-
bræðrum sfnum, sjítamúslimum, f
suðurhluta íraks og óttast að fraskl
stjómarherinn eigi eftir að þurrka þá
út, þrátt fyrir litfar áhyggjur vest-
rænna rfkja. Wáttsettur embættis-
maður hjá Sameinuðu þjóöunum f
Genf sagði í gær að samtökin væru
reiðubúin til að setja upp fiótta-
mannabúðir sjítamúslimanna i Suð-
ur-lrak.
ANGELES - Mikiar sprengingar
hétdu áfram i gær f efdfjallinu Pin-
atubo á Filippseyjum annan daginn
I röð. Risaský myndaðist þegar
steinefni þeyttust með gffuriegum
krafti mörg hundntð metra upp i loft-
ið.
BÚKAREST - Rúmenska stjómar-
andstaðan boðaði f gær þriggja
daga mótmæil frá og með deginum
í gær, til að minnast þess að eitt ár
er liðið síðan námamenn brutu mót-
mæli stjómarandstöðunnar á bak
aftur með grimmdariegum hætti.
LONDON - Um það bil 2,25 mitij-
ónir vom atvinnulausar f Bretlandi f
mal, en það er aukning frá mánuð-
inum á undan. Þetta er fjórtándi
mánuðurinn f röð sem atvinnuleys!
eykst f Bretlandi, en efnahags-
ástandið f landinu er í mikilli lægð
og mikitl þrýstingur á stjómvöldum
um að lækka vextina
Reuter-SÞJ