Tíminn - 14.06.1991, Side 12
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 & 686300
RÍKISSKgP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Halnorhusinu v Tryggvagolu.
S 28822
.. 1 ♦
Ókeypis auglýsingar
fyn^einstaklinga^
POSTFAX
91-68-76-91
HOGG-
DEYFAR
Verslið hjá fagmönnum
varahlutir
Hanursböfóa 1 - s. 67-6744 . '
Tí niinn
FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ1991
I
Útifundur námsmanna á Lækjartorgi í gær óhress með nýjar úthlutunarreglur LÍN:
N lán nsi mi n m M lí< ta u ind lirn nis-
itri m IS í ■ Ji 91 rn in nál la mi 9nn um
Námsmenn héldu fjölmennan útifund á Lækjartorgi í gær þar
sem þeir mótmæitu fyrirhuguðum breytingum á úthlutunarregl-
um Lánasjóðs ísienshra námsmanna. í upphafí fundarins tók Sig-
uijón Þ. Arnason, formaður stúdentaráðs, fram að Ólafi G. Ein-
arssyni menntamálaráðherra hefði verið boðið að ávarpa fundinn
og skýra út hvað hann væri að gera. Hann hefði afþakkað.
r, AF MÍNU mensanngjai almenn 1 ■/ jf
onrmu>\j r-npRtTEKJUM menntun ■ ^
MPARAl ^
ÁSAIBGU
Námsmenn fjölmenntu á útifund í gær til þess að mótmæla breytingum á úthlutunarreglum LÍN.
Margir báru mótmæiaspjöld og hvatt var til þess að námsmenn hringdu í ráðamenn þjóðarinnar
til þess að mótmæla skerðingum námslána Tfmamynd: Pjetur
Á fundinum fluttu fulltrúar
námsmanna ávörp. Arnór Sigfus-
son, fulltrúi SÍNE í LÍN, sagði að
þær kjaraskerðingar, sem eru yfir-
vofandi, væru það versta sem gæti
komið fyrir námsmenn. Fulltrúar
námsmanna hefðu á sínum tíma
gengið á fund menntamálaráð-
herra til að inna hann eftir hug-
myndum hans um LÍN og til að
kynna honum sínar eigin hug-
myndir. Á þeim fundi sagði
menntamálaráðherra að hann
hygði ekki á neinar kollsteypur í
málefnum lánasjóðsins, en nú hef-
ur annað komið í ljós. Arnór sagði
að nú væri vegið gróflega að
grundvallartilgangi iaga um Lána-
sjóðinn — að tryggja öllum jafn-
rétti til náms, óháð efnahag. Hin
nýja regla um hámarkslán vegna
skólagjalda við erlenda skóla þýddi
að möguleikar námsmanna til
náms væru verulega skertir, og
lýsti þessi regla ótrúlegri skamm-
sýni ráðamanna á þeim tímum
sem vel menntað fólk væri nauð-
synlegt landi og þjóð. Hann skor-
aði á námsmenn að láta skerðing-
arnar ekki gleymast og hvatti þá
til að koma með tillögur um að-
gerðir. Jafnframt hvatti hann alla
námsmenn til þess að hringja í þá
ráðherra, sem standa að baki
skerðingunum, ræða við þá um
þær og mótmæla þeim. Það væri
réttur allra námsmanna að fá að
tala við ráðamenn þjóðarinnar.
Huldís Frankelsdóttir, nemi í
Þroskaþjálfaskóla íslands, sagði að
skerðingin, sem menntamáiaráð-
herra hefði þegar samþykkt, væri
ósanngjörn og bæri hún með sér
fljótfærnishátt og rangindi. Huldís
segir að í yfirlýsingu hans, um að
með breyttum reglum á LÍN gæf-
ist námsmönnum kostur á að afla
sér meiri tekna, komi fljótfærnis-
hátturinn glögglega f Ijós. Með
skerðingunum væri verið að auka
á misrétti í sjóðnum og beindist
það einkum gegn þeim sem hefðu
minnstu möguleika á að afla sér
tekna. Hún sagði að meginþorri
námsmanna gæti ekki bætt sér
upp þessa kjaraskerðingu, því laun
einstaklings þyrftu að hljóða upp á
600 þúsund ef hann ætlaði að
bæta sér upp skerðinguna.
Pétur Óskarsson, nemi í heim-
speki, tók síðastur til máls og
sagði hann að það væri erfitt fyrir
námsmenn að vera stétt án samn-
ingsréttar, því námsmenn hefðu
ekki það vopn að fara í verkfall
þegar kjör þeirra væru skert. „Við
erum háð duttlungum misviturra
stjórnmálamanna," sagði hann.
Ríkissjóður hefði stundað aö taka
lán með okurvöxtum upp á millj-
ónir króna til þess að lána féð aft-
ur út og þá án vaxta. Námsmenn
hefðu oft bent á fáránleika þessara
lántakna, en nú ættu þeir að
blæða fyrir mistökin. Hann sagði
jafnframt að barátta námsmanna
væri barátta alls launafólks í land-
inu og nú þyrftu námsmenn á
stuðningi að halda.
Fundinum bárust kveðjur og
stuðningsyfirlýsingar frá BSRB,
námsmönnum í Skotlandi, Full-
trúaráði Framsóknarflokksins,
Sambandi ungra framsóknar-
manna, Starfsmannafélagi ríkis-
stofnana, Alþýðubandalaginu og
Kvennalistanum.
—UÝJ
Gunnar Árnason
Árnaö heilla:
mar Árnason búfræðikand-
er 90 ára á morgun, iaugar-
inn 15. júní. Hann tekur á
tl gestum í Templarahöllinni
ykjavík á milli kl. 15-18 áaf-
illsdaginn.
Geðsjúkur maður í Hallgrímskirkju:
Braut líkneski
af Jesú Kristi
Maður fór inn í Hailgrímskirkju um
fjögurleytið í gær og braut um
þriggja metra hátt líkneski af Jesú
Kristi, sem þar stóð. Maðurinn
mun hafa hlaupið á líkneskið, velt
því þannig um koll og brotið það.
Lögreglan gómaði manninn spöi-
korn frá kirkjunni. Hann er veikur á
geði og hefur oft komið við sögu
lögreglu áður.
Líkneskið Kristsmynd er eftir Ein-
ar Jónsson myndhöggvara. Hann gaf
kirkjunni verkið þegar fyrsti hluti
hennar var vígður árið 1948. Að
sögn Karls Sigurbjörnssonar, sókn-
arprests í Hallgrímsprestakalli, er
líkneskið brotið í marga mola, en
það stendur til að lagfæra það.
„Það er sjúkur maður sem vinnur
þetta verk og mér finnst alvarlegast
og sorglegast við atburðinn í dag
hvað hann minnir okkur á þær að-
stæður sem geðsjúkum eru búnar í
okkar þjóðfélagi, hvað við erum í
rauninni ráðalaus gagnvart þessu,"
segir Karl. „Þessi maður á bágt og er
dæmi um það, að það er til fólk í
þessum aðstæðum, sem við gerum
afskaplega lítið fyrir."
GS.
stela í Færeyjum
13
hnupli í Færeyjum. Krakkarnir voru þar í skólaferðalagi.
Eftir að færeyska lögreglan hafði skorist í leikinn skiluðu
krakkarair þýfínu aftur. Lögreglan í Pæreyjum telnr grun leika
á að allmargir ungiingar, sem ekki náðist til, hafí komist um
borð í Norrænu með ránsfenginn.
Eftir yfírheyrslur var krökkunum sleppt og komu þau með
Norrænu til Seyðisfjarðar í morgun.
-SIS
Uppboöi slegiö á frest
Landsbankinn og aðrir kröfuhafar í
Ólafsvíkurtogarann Má ákváðu í
gær að fresta uppboði á togaranum
til hausts. Heimamenn í Ólafsvík
bíða nú eftir svari við tilboði þeirra
í rekstur þrotabúsins.
Búið er að ganga frá stjórn Norður-
garðs, hlutafélagsins sem ætlað er
að endurreisa rekstur hraðfrysti-
hússins. Þar á bæjarsjóður tvo
menn, verkalýðsfélagið Jökull einn
og útgerðarfélögin Utver og Tungu-
fell eiga sinn hvorn manninn.
Framkvæmdastjóri Norðurgarðs er
Ingólfur Aðalbjörnsson.
„Nú tekur bið við hjá okkur," sagði
Stefán Garðarsson bæjarstjóri í
samtali við Tímann. „Við bíðum eft-
ir svari við tilboði okkar í rekstur
þrotabúsins og vonum að bústjór-
inn, Jóhann Níelsson, verði fljótur
að taka afstöðu. Við heimamenn
höfum lokið allri þeirri vinnu sem
við getum lokið á þessu stigi máls-
ins.“
-sbs.