Tíminn - 11.07.1991, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 11. júlí 1991
Tíminn 5
Norðurlönd með töluvert mismunandi reglur um greiðslu lyfjakostnaðar:
Viö áleiðis úr sænska
yfir í danska kerfið?
Reglur um þaö hvemig lyfjakostnaður skiptist milli notendanna
sjálfra og hins opinbera eru töluvert mismunandi á Norðurlöndun-
um. Beinar greiðslur einstaklinga virðast hvað mestar í Danmörku
og Finnlandi. Fram undir þetta virðist íslendingurinn hafa sloppið
ódýrast. íslensku reglunum virðist mest hafa svipað til þeirra
sænsku á undanfömum árum, en nýlegar breytingar hins vegar vera
í átt að danska fyrirkomulaginu.
Þar sem okkur er tamt að bera okkur
saman við hin Norðurlöndin í flestu er
að velferðarmálum lýtur, er fróðlegt að
sjá hvaða form þau hafa valið á
greiðslu lyfjakostnaðar. Heilbrigðis-
skýrslur Norðurlanda 1966-1991, sem
eru nýkomnar út, lýsa í grófum drátt-
um hvemig þessum málum er hagað í
hverju landi.
Föst 720 íkr. upphæð í
Svíþjóð...
í Svíþjóð er meginreglan sú, að fyrir
lyf út á lyfseðil greiðir einstaklingur
hveiju sinni að hámarki 75 skr. (um
720 ísl. kr.) beint úr eigin vasa. Þegar
síðan lyfja- og lækniskostnaður hefur
náð 8.700 til 14.500 fsl. kr. (mismun-
andi eftir héruðum) innan 12 mánaða
tímabils á viðkomandi sjúklingur kost
á fríkorti það sem eftir er tímabilsins.
Sem sjá má svipar þessum sænsku
reglum verulega til þeirra sem hér
giltu um langt árbil, eða til nýlegra
stjómarskipta. Nema hvað lífeyrisþeg-
ar hafa samt sloppið mun betur á Is-
landi (230 kr. fyrir hvert lyf) en í Sví-
þjóð.
... 25% til 100% af
verði í Danmörku
Nýjum lyfjagreiðslureglum, sem við
fengum með nýrri ríkisstióm, svipar
nokkuð til þeirra dönsku. I Danmörku
er lyfjum skipt í þrjá meginflokka hvað
varðar beinar greiðslur sjúklingæ Lyf í
fyrsta flokki verður fólk almennt að
greiða að fullu sjálft Þó er mögulegt
fyrir lækna að sækja um 50% eða 75%
niðurgreiðslu fyrir einstaka sjúklinga.
FVrir lyf í öðrum flokki þarf fólk að
greiða 50% afverði. í þennan flokk em
sett viðurkennd og ömgg lyf, þ.e. svo
fremi að ekki sé talin hætta á að þau
verði ofnotuð.
FVrir lyf í þriðja flokki þarf sjúklingur
að greiða 25% af heildarverði. í þenn-
an flokk komast aðeins lyf við sérstök-
um og oft lífshættulegum sjúkdóm-
um. Auk þess er krafa um að viðkom-
andi lyf verði ekki með auðveldum
hætti notað við minniháttar krank-
Gunnlaugur Júlíusson, hjá Stéttarsambandi bænda, segir:
ÓRÁÐ AÐ FLYTJA
NÚ ÚT ÓUNNA ULL
Landsbankinn hefur tekið rekstur Alafoss á leigu næstu 6 mánuðina. Á
þeim tíma á að endurskipuleggja reksturinn, vinna upp í gerða samninga og
treysta viðskiptasambönd. Eins og staðan er í dag er ekki líklegt að ullar-
þvottastöð fyrirtækisins í Hveragerði verði opnuð, eða tekið verði við ull frá
bændum. Hvað svo tekur við veit enginn. En staðan er óþægileg fyrir
marga, meðal annarra bændur.
Gunnlaugur Júlíusson hjá Stéttar-
sambandi bænda:
„Við höfúm engin sérstök áform enn
varðandi framtíðina. Nú vinnum við
að þessum formlegu atriðum varðandi
gjaldþrotið, að tryggja rétt þeirra
bænda sem hafa lagt inn ull hjá Ála-
fossi.
Svo höfum við náttúrlega miklar og
vaxandi áhyggjur af framtíðinni.
Hvemig þessi mál þróast. Þau skipta
vitaskuld bændur miklu máli bæði f
bráð og lengd. Ullin hefúr vaxið svona
tæp 10% í verðlagsgrundvellinum. En
það er náttúrlega misjafnt eftir bænd-
um og hversu ullin frá þeim er góð.
En þeir hjá ullarmóttöku Álafoss segja
að ullin hafi gjörbreyst nú á síðustu
tveimur til þremur árum, hún sé orð-
in miklu betri og meira til hennar
vandað. Þannig að hún skiptir ýmsa
bændur mjög miklu. Á þessum kvóta-
og samdráttartímum hefur enda verið
hvatt til þess að menn vönduðu sem
mest til ullarinnar. Þannig að þetta er
stóralvarlegt mál. Ef Landsbankinn
ætlar sér bara að vinna úr birgðum og
upp í gerða samninga, þá þarf hann
ekkert að opna ullarþvottastöðina í
Hveragerði eða taka við ull af bænd-
um.
Heimsmarkaðsverð á ull hefur fallið
gríðarlega og sett bændur í Ástralíu
og á Nýja-Sjálandi í mikinn vanda. í
Álafossi hafa menn vitaskuld verið að
vinna verðmæti úr ullinni og það má
segja að framtíðin sé undir þvf komin
að menn komist þar að niðurstöðu
sem allir geta sætt sig við. Útflutning-
ur á óunninni ull er enginn kostur að
mínu mati og ég miða þá bara við
hvemig gengið hefur hjá þeim þjóð-
um, Áströlum og Nýsjálendingum, þar
sem þetta er miklu stærri atvinnuveg-
ur en hér. En við vinnum í þessu
rnáli," segir Gunnlaugur Júlíusson,
hagfræðingur Stéttarsamb. bænda
-aá.
leika.
Insúlín er eini lyfjaflokkurinn sem
danskar sjúkratryggingar greiða
100%, segir í skýrslunni.
Búast má við að íslenskum reglum
um greiðslu lyfja muni innan tíðar
svipa ennþá meira til hinna dönsku.
Samkvæmt yfirlýsingum núverandi
heilbrigðisráðherra í útvarpi nýlega
líst honum nokkuð vel á það fyrir-
komulag að sjúklingur greiði ákveðið
hlutfall af verði lyfjanna.
Um 44 þús. íkr. árshá-
mark í Finnlandi
Finnsku reglunum svipar líka að
nokkru til þeirra dönsku. Lyf án lyfseð-
ils borgar sjúklingur að fullu. Af lyfseð-
ilsskyldum lyfjum virðist algengast að
sjúklingur greiði sjálfur 50% af því
sem verð lyfs fer umfram 500 íkr. (FIM
35).
Sum lyf gegn 36 sérstaklega tilgreind-
um sjúkdómum greiða flnnskar
sjúkratryggingar að fullu og fyrir 15 lyf
til viðbótar þarf sjúklingurínn aðeins
að greiða 10% af verði.
Þá er sú meginregla, að sjúklingur
þurfi ekki sjálfur að borga meira en
3.051 finnsk mörk, eða í kringum 44
þús. íslenskar krónur fyrir lyf á hverju
almanaksárí.
Hámark um 1.560 íkr. í
Noregi
Nýjar reglur f Noregi gera ráð fyrir að
sjúklingar borgi sjálfir ákveðna pró-
sentu af verði lyfja, en þó ekki yfir
ákveðið hámark. Lyf fyrir böm undir 7
ára aldri greiða sjúkratryggingar að
fullu. Fyrir lyf handa lífeyrisþegum og
7-16 ára bömum á sjúklingurinn að
borga 10% af verði, en þó ekki yfir 670
íkr. (75 nkr.) hverju sinni. Aðrir skulu
borga 20% af lyfjaverði, en þó að há-
marki um 1.560 kr. íslenskar (175
nkr.) fyrir hvert lyf. Meginreglur þess-
ar em svo misjafnar milli landa að
töluverðum erfiðleikum er háð að
segja til um hver þessara þjóða sleppur
ódýrast út úr apótekum sínum. Að
ætla íslendingum stað er enn erfiðara,
þar sem sjálfri Hagstofunni „hefur ekki
tekist að afla haldgóðra upplýsinga um
verðáhrif af breytingum á þátttöku al-
mennings í lyfjakostnaði", eins og seg-
ir í tilkynningu ffá Hagstofunni.
-HE
JEPPA
HJÓLBARÐ-
ARNIR
VINSÆLU
*THANK00K
Jeppahjólbarðar
frá Suður-Kóreu:
215/75 R15, kr. 6.320.
235/75 R15, kr. 6.950.
30- 9,5 R15, kr. 6.950.
31- 10,5 R15, kr. 7.950.
31-11,5 R15, kr. 9.470.
33-12,5 R15, kr. 9.950.
Hröð og örugg
þjónusta.
BARÐINN hf.
Skútuvogi 2, Reykjavík
Síman 91-30501 og 91-84844
Sumar-
tijólbarðar
þiágæða hjólbarðar
HANKOOK frá KÓREU
Á lágu verðl.
Mjög mjúklr
ogsterkir.
Hraðar
hjólbarða-
skiptíngar.
BARÐINN hf.
Skútuvogi 2, Reykjavfk
Sfmar: 91-30501 og 84844
■O •{fH* Mt*
íamut (r&rn 1
BILALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM
LANDIÐ.
MUNID ÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar
SEKTIR
fyrir nokkur
umferöarlagabrot:
Umferöarraö
vekur athygli á nokkrum
neöangreindum sektarfjárhæöum,
sem eru samkvæmt leiöbeiningum
rikissaksóknara til lögreglustjóra
trá 22. februar 1991.
Akstur gegn rauöu Ijósi
Biöskylda ekki virt
Ekiö gegn einstefnu
Ekiö hraöar en leylilegt er
Framúrakstur viö gangbraut
Framúrakstur þar sem bannaö er
„Hægri reglan" ekki virt
Logboöin ókuljós ekki kveikt
-alllaö 7000 kr.
“ 7000 kr.
Slöövunarskyldubrot
Vanrækt aö fara meö ókutæki
til skoöunar
Öryggisbelli ekki notuö
-alltaö 7000 kr.
4500 kr.
3000 kr.
MJOG ALVARLEG OG ITREKUÐ BROT
SÆTA DÓMSMEÐFERÐ.
FYLGJUM REGLUM -
FORÐUMST SLYS!
yUMFERÐAR
RÁÐ
:^WSS»^SWi*SSftft«SSSSflíS
TIMANS
kemur út á föstudögum
I Tíminn
\'