Tíminn - 11.07.1991, Qupperneq 9
Fimmtudagur 11. júli 1991
I iminn 9
Úrvinda slökkvimenn.
Þarna eru líka skógarhöggv-
ararisar og gamlir olíujaxlar.
Elstur er Ray Wadley, 65 ára,
sem hefur eytt helmingi ævi
sinnar sem slökkvistjóri við
Flóann og hafði eiginlega ætl-
að sér að flytjast til Seattle til
að setjast í helgan stein. Nú
hefur slökkvifysnin aftur náð
tökum á honum þrátt fyrir að
hann hafi brennt á sér þumal-
inn á heitum málmi og tær
hans séu sem stiknaðar. En
hann segist hvergi annars
staðar á jörðinni vilja vera.
„Ég byrjaði að vinna við þetta
15 ára gamall og hef aldrei
viljað gera neitt annað.“
Milljónamæringar
að tveim árum liðn-
um
Mennirnir í búðunum vona
innra með sér að enn haldi
eldar áfram að brenna í Kúveit
í tvö ár. Þar, sem þeir fá greitt
fyrir hvern dag, myndu þeir þá
fá eina milljón dollara í vas-
ann, og að sjálfsögðu skatt-
frjálst í Kúveit. En fyrir þau
laun verða þeir að púia í 28
daga linnulaust í lífsfjandsam-
legasta andrúmslofti jarðar-
innar, áður en þeir mega taka
sér hressingarleyfi, sem líka
stendur í 28 daga.
Að fríinu loknu verða þeir að
halda aftur til baka til búð-
anna, þar sem loftið er allt að
því áþreifanlegt og gefur sig til
kynna eins og olíugegnsósa
baðmull. Það er ekki fyrr en að
kvöldi dags sem skola má olíu-
bragðinu niður með bjór eða
viský í mötuneytinu, eina
staðnum í Kúveit þar sem
áfengisneysla er leyfð.
Eldslökkvivatnið og matvæl-
in eru flutt flugleiðis frá Dub-
ai, þar sem enginn treystir
matnum í Kúveit. Á grænmet-
ið, sem kaupmenn frá vestur-
hluta írans flytja inn í landið,
hefur fallið svart regn úr reyk-
skýjunum yfir Flóanum og
einnig er álitið að kjötið sé
mengað. Bedúínarnir verða
skelfingu lostnir þegar þeir
slátra fé sínu og finna svört
lungu, gegnsýrð sótögnum og
klístruð af olíuhúð.
Hættulegasta svæð-
ið er eftir
Enn eiga slökkvimennirnir eftir
erfiðasta hluta verks síns. Til
þessa hafa mennirnir aðeins unn-
ið í útjaðri Burkan-olíusvæðisins
og þétt þar yfir eitt hundrað af
auðveldlega aðgengilegum olíu-
lindum. í sumar verða þeir að
hætta sér inn að miðhluta olíu-
svæðisins þar sem drynjandi eld-
stormar ríkja og margar lindirnar
bráðnaðar í svokallaða „hring-
elda“.
Risastórar lindirnar brenna ekki
upp lóðrétt, heldur senda frá sér
óútreiknanlega eldsloga í allar
áttir. Badr el-Chaschti, yfirmaður
öryggismála hjá Kúveiska olíufyr-
irtækinu, undirbýr Bandaríkja-
mennina fyrir elda, sem aldrei
fyrr hefur orðið að fást við nokk-
urs staðar. Hættulegastar eru þær
lindir sem eru klæddar steypu-
kápu og írakar hafa sprengt djúpt
í jörðu. Við það mynduðust trekt-
ir, sem eru fullar af Iogandi olíu.
Milli borstaðanna bylgist olíu-
sjór, sem þegar hefur fest við jörð
á nokkrum stöðum vegna hitans.
Undir honum liggja íraskar jarð-
sprengjur og sprengihausar am-
erískra dreifisprengja sem
springa ekki í sandi.
E.t.v. hjálpar í baráttunni gegn
risaeldunum neðanjarðar slökkvi-
aðferð, sem nýlega hefur verið
reynd í fyrsta sinn og gaf góða
raun. Samkvæmt henni voru bor-
uð göt á hlið uppstreymispípanna
og röri komið þar fyrir. Um það
var dælt teygjanlegri blöndu úr
köfnunarefni og gerviefni. Það
safnaðist í klumpa, myndaði
tappa og stýrði eldsúlunni í upp-
streymispípunum.
En þrátt fyrir fréttir af góðum
árangri hefur jafnvel Larry Flak
ískyggilega tilfinningu. Hann
segir: „Við hættum lífi manna
okkar við að slökkva þessa elda.
Við gætum ekki gert það hraðar,
jafnvel þó að við vildum."
Essomót KA:
HEIMAMENN
SIGURSÆLIR
Essomót KA fór fram á svæði fé-
lagsins um síðustu helgi. Þetta er í
fimmta sinn sem mótið er haldið,
og er það ætlað krökkum í 5. flokki,
eða á aldrinum 11-12 ára. Mótið
nýtur mikilla vinsælda, og að þessu
sinni tóku 64 lið frá 23 félögum þátt
í mótinu, fleiri en nokkru sinni fyrr.
Að vísu skyggði það nokkuð á gleð-
ina að vísa varð a.m.k. 8 liðum frá,
þar sem ekki var hægt að taka við
fleiri liðum til keppni. Keppendur á
mótinu voru um 800, en alls munu
um 1000 manns hafa komið til Ak-
ureyrar í tengslum við mótið. Auk
knattspymunnar var keppt í bandí
bæði á fimmtudags- og fóstudags-
kvöld, og á laugardagskvöldið var
haldið lokahóf í íþróttahöllinni þar
sem verðlaun voru afhent og kepp-
endum boðið uppá ýmis skemmti-
atriði.
Keppt var f fjórum flokkum á mót-
inu, og var keppnin alls staðar æsi-
spennandi. Gestgjafamir voru sig-
ursælir á mótinu, sigmðu bæði í A-
og D-flokkum, urðu í 3. sæti í flokki
B-liða og í 4. sæti í flokki C-liða. A-
lið KA sigraði sigraði A- lið Víkings
með einu marki gegn engu í hörku-
spennandi leik. í keppni B- liða
sigraði Fylkir lið Þórs frá Akureyri
með einu marki gegn engu. f
keppni C-liða sigraði Austri lið Vík-
ings með tveimur mörkum gegn
einu. í flokki D-liða var keppt í ein-
um riðli, og þar stóðu KA-menn
efstir með 7 stig.
Lokastaðan í mótinu varð þessi:
A-lið C-lið
1. KA l.Austri
2. Víkingur 2. Víkingur
3. Þór 3. FH
4. Stjarnan 4. KA
5. Fylkir . 5. Þór
6. ÍA 6. KR
7. Haukar 7. Haukar
8. ÍR 8. ÍR
9. Breiðablik 9. ÍA
10. KR 10. Valur
B-Iið D-lið
1. Fylkir 1. KA
2. Þór 2. Þór
3. KA 3. Víkingur
4. Víkingur 4. FH
5. Valur 5. Fylkir
6. ÍBK
7. KR
8. ÍA
9. Stjarnan
10. Þróttur hiá-akureyri.
Mjólkurbikarkeppnin í knattspyrnu:
HASPENNTAR
LOKAMÍNÚTUR
FRAMLENGINGAR
í VESTURBÆNUM
— KR komst áfram ásamt Stjörnunni,
Breiðabliki og Þór
Leikur KR og Skagamanna á KR-
vellinum í gærkvöld var æsispenn-
andi. Skagamenn, sem eru í efsta
sæti 2. deildar, gáfu toppliði 1.
deildarliðs KR ekkert eftir og voru
betri aðilinn í leiknum. Mörkin létu
þó á sér standa, en KR-ingar fundu
leiðina í markið eftir 115 mín. leik.
Bjöm Rafnsson fékk fyrsta hættu-
lega færi leiksins fyrir KR, en varn-
armaður komst fyrir þrumuskot
hans af stuttu færi. Stuttu síðar
skaut Haraldur Ingólfsson framhjá í
sannkölluðu dauðafæri. Haraldur
var aftur á ferðinni stuttu fyrir hlé,
en þá rann boltinn naumlega fram-
hjá stönginni utanverðri.
í síðari hálfleik skiptust liðin á um
að sækja. Ólafur Adolfsson, varnar-
maður ÍA bjargaði á síðustu stundu
snemma í síðari hálfleik, nánast á
marklínu og skömm'u síðar var mik-
ið pat í vítateig KR og meðal annars
small knötturinn í markstönginni.
KR-ingar tóku völdin á miðjunni
þegar líða tók á síðari hálfleik og á
75. mín. var Gunnar Oddsson mikill
klaufi að skora ekki fyrir opnu
marki.
í fyrri hálfleik framlengingar átti
Arnar Gunnlaugsson hættulegt skot
framhjá og rétt fyrir hléið skaut Karl
Þórðarson í samskeytin á KR-mark-
inu.
í síðari hálfleik framlengingarinnar
fékk Sigurður Björgvinsson ákjós-
anlegt tækifæri, en skaut framhjá af
markteig þegar auðveldara virtist að
skora. Það var síðan á 115. mín. að
Gunnar Skúlason kom KR yfir og á
119. mín. bætti Heimir Guðjónsson
öðru marki við, er hann komst einn
í gegnum vörn ÍA, lék á Kristján
markvörð og skoraði. Þar með
komst KR í 8-liða úrslit keppninnar,
en Skagamenn eru úr leik eftir góða
baráttu.
Blikar áfram
Breiðabliksmenn unnu öruggan
sigur á Víkingum í Kópavogi 2-0.
Grétar Einarsson skoraði á 8. mín.
og Arnar Grétarsson bætti öðru
marki við á 24. mín. og þar við sat.
Stjaman í stuði
Stjörnumenn skora mikið um
þessar mundir. í gærkvöld slógu
þeir KA- menn út úr bikarkeppninni
með 3-0 sigri. Valdimar Kristófers-
son skoraði fyrsta markið á 75. mín.
og Ingólfur Ingólfsson bætti síðan
tveimur mörkum við.
Vítaspymukeppni á Akureyri
Á Akureyri áttu Þórsarar í höggi við
Keflvíkinga. Júlíus Tryggvason mis-
notaði vítaspyrnu fyrir Þór í fyrri
hálfleik. Síðan var það Ásmundur
Arnarson sem kom Þór yfir, en Júgó-
slavinn Marko Tcinsic jafnaði fyrir
ÍBK úr vítaspyrnu, 1-1. Hvorugu lið-
inu tókst að skora í framlenging-
unni og því varð að grípa til víta-
spyrnukeppni. í henni reyndust
Þórsarar sterkari 5-3.
Leiftur áfram
í fyrrakvöld komst Leiftur í 8-liða
úrslit keppninnar með 5-3 sigri
Þrótti Nes. í vítaspymukeppni.
BL
Akureyrarmótið í golfi:
Björgvin og Jónína
sigruðu með yfirburðum
Björgvin Þorsteinsson átti glæsi-
legt „comeback** á Akureyrarmót-
inu í golfi sem fram fór um síð-
ustu helgi. Björgvin lék 72 holur
á 295 höggum og tryggði sér Ak-
ureyrarmeistaratitilinn í níunda
sinn. Þórleifur Karlsson varð í
öðru sæti, lék á 304 höggum.
Jónína Pálsdóttir sigraði örugg-
lega í kvennaflokki á 352 höggum,
og er þetta í annað sinn sem Jón-
ína hlýtur Akureyrarmeistaratitil-
inn. Jónína tók forystu strax á
fyrsta degi, og dró heldur í sundur
er leið á mótið. Af öðrum flokkum
má nefna geysilega harða keppni í
fyrsta flokki karla milli Ríkharðs
Ríkharðssonar og Jóns Steindórs
Árnasonar. Leikar fóru þannig aö
Ríkharður sigraði á 318 höggum,
en Jón Steindór lék á 320 höggum.
Reyndar sögðu gárungarnir á golf-
vellinum, að Ríkharður yrði Akur-
eyrarmeistari á næsta ári, því fyrir
tveimur árum vann hann þriðja
flokkinn, í fyrra vann hann annan
flokkinn, fyrsta flokkinn í ár, og því 3. Ragnar Steinbergsson 151
sjálfgefið að hann ynni meistara- 1. flokkur karla:
flokkinn á næsta ári. 1. Ríkharður Ríkharðsson 318
Úrslit í einstökum flokkum urðu 2. Jón Steindór Árnason 320
þessi: 3. Kjartan Bragason 324
Meistaraflokkur karla: högg 1. flokkur kvenna:
1. Björgvin Þorsteinsson 295 1. Bergljót Borg 377
2. Þórleifur Karlsson 304 2. Patricia Ann Jónsson 396
3. Örn Arnarson 312 3. Guðný Óskarsdóttir 399
4. Viðar Þorsteinsson 315 2. flokkur karia:
Meistaraflokkur kvenna: 1. Kristófer A. Einarsson 332
1. Jónína Pálsdóttir 352 2. Guðbjörn Garðarsson 347
2. Halla B. Arnardóttir 381 3. Sævar Jónatansson 350
3. Erla Adolfsdóttir 384 2. flokkur kvenna:
4. Áslaug Ó. Stefánsdóttir 395 1. Ingibjörg H. Stefánsdóttir 422
Unglingaflokkun 2. Rósa Gunnarsdóttir 428
1. Birgir Haraldsson 390 3. Aðalheiður Guðmundsd. 436
3. flokkur karla:
2. Ómar Halldórsson 359 1. Pétur H. Sigurðsson 347
öldungaflokkur án forgjafar: 2. Hörður Þórleifsson 365
1. Guðjón E. Jónsson 354 3. Arnar Birgisson 372
2. Ragnar Steinbergsson 372 4. flokkur karla:
3. Árni Björn Árnason 379 1. Friðrik E. Sigþórsson 378
Öldungaflokkur með forgjöf: 2. Stefán M. Jónsson 380
1. Árni Björn Árnason 147 3. Einar Jóhannsson 386
2. Guðjón E. Jónsson 149 hiá-akureyri.