Tíminn - 17.07.1991, Page 4

Tíminn - 17.07.1991, Page 4
4 Tíminn Miðvikudagur 17. júlí 1991 |£ .1 ÚTLÖND Fundur sjö helstu iðnríkja heims í Lundúnum: Sovétmenn fá aðild að A þjóða gjaldeyrissjóðnum Leiðtogar sjö helstu iðnríkja heims, sem nú funda í Lundúnum, samþykktu í gær að Sovétmenn skyldu fá sérstaka aðild að Alþjóða gjaldeyríssjóðnum (IMF). Leiðtogamir samþykktu einnig að auka tækni- og ráðgjafaaðstoð við Sovétríkin. Þá samþykktu leiðtogamir einnig í grundvallaratriðum að IMF, Alþjóðabankanum, OECD, og Viðreisnar- og þróunarbanka Evrópu verði beitt til þess að kanna hver sé hentugasta leiðin tii að hjálpa Sovétmönnum við að breyta efnahagskerfi sínu. Leiðtogarair vom ekki sammála um hveraig beri að haga aðstoð við Sovétríkin. í dag munu leiðtogarnir ræða við Gorbatsjov Sovétforseta um um- bótaáætlanir hans. í bréfi, sem Gor- batsjov sendi leiðtogunum þar sem hann skýrir markmið sín, sagðist hann vonast eftir því að leiðtogarnir styðji hann í að gera róttækar breyt- ingar á sovéska efnahagskerfinu. Haft var eftir þýskum embættis- mönnum í gær að það sé vilji Þjóð- verja að myndaður verði samstarfs- hópur innan OECD, sem hefði að- setur í París og hefði því hlutverki að gegna að samræma alla aðstoð við Sovétmenn. Þjóðverjar telja að slíkt fyrirkomulag geti orðið til þess að fleiri þjóðir taki þátt í aðstoðinni, en 24 þjóðir eru í OECD. Talið er að þessar tillögur Þjóðverja njóti víð- tæks stuðnings í herbúðum Frakka, ítala og Kanadamanna, en Banda- ríkjamenn hafa lýst sig andsnúna þessum tillögum. Þýsku embættismennirnir sögðu einnig að ágreiningur væri um það hvernig aðild Sovétmanna að Al- þjóða gjaldeyrissjóðnum verði hátt- að. Þjóðverjar vilja að Sovétmenn fái fulla aðild að samtökunum, þannig að þeir hafi aðgang að fjármagni en ekki ráðgjafaraðstoð eingöngu. Þá er einnig ágreiningur um hvort létta eigi takmörkunum á lántökum Sov- étmanna hjá Viðreisnar- og þróun- arbanka Evrópu. Þjóðverjar og hinar Evrópuþjóðirnar eru fylgjandi því. Leiðtogarnir sendu frá sér fréttatil- kynningu í gær þar sem farið er mjög almennum orðum um að stuðla eigi að friði, stöðugleika og lýðræðislegum umbótum í heimin- um. Er þar helst að nefna að þeir vilja efla hlutverk Sameinuðu þjóð- anna. Reuter-SÞJ Gorbatsjov Sovétforseti ræðir við leiðtogana sjö í dag. A.m.k. 2 féllu og 11 særðust í Króatíu í gær: EFTIRLITSMENN EB EIGA EKKI AÐ FYLGJAST MEÐ ÁTÖKUNUM Friðareftirlitsmenn Evrópubandalagsins hafa fyrírmæli um að starfa í Króatíu og Slóveníu, en ekki að fylgjast með bardögum kró- atískra varaarsveita við serbneska þjóðeraissinna í Króatíu, að sögn formælanda hollenska utanrikisráðuneytisins í gær, en Holland fer nú með forystu innan EB. Hann sagði að aðalverkefni hinna 50 eftirlitsmanna væri, sam- kvæmt því samkomulaginu sem gert var á Adríahafseyjunni Brioni þann 7. júlí síðastliðinn, að styrkja vopnahléið í Króatíu og Slóveníu í sessi. „Verkefni eftirlitsmannanna er samkvæmt Brioni-samkomulag- inu að styrkja vopnahléið í sessi og tryggja að lýðveldin tvö (Króa- tía og Slóvenía) fresti í þrjá mán- uði öllum sjálfstæðisaðgerðum sínum," sagði formælandi hol- lenska utanríkisráðuneytisins. „Það, að Brioni-samkomulagið taki ekki til þjóðernisátaka í lýð- veldunum, segir okkur að þau komi ekki til kasta eftirlitsmann- anna,“ bætti hann við. Yfirlýsing hollenska utanrfkis- ráðuneytisins kom í kjölfar yfir- lýsingar yfirmanns friðareftirlits- mannanna á mánudag þess efnis, að umboð friðareftirlitshópsins fæli ekki í sér að fylgjast með átökum Króata og Serba. Króa- tískir embættismenn eru óhressir með þessa afstöðu og Branko Salaj, ráðgjafi forseta Króatíu, sagði að það væri þeirra skilning- ur að svo hefði átt að vera. Átökin í Króatíu héldu áfram í gær. A.m.k. 2 menn létust og 11 særðust. Serbneskir þjóðernis- sinnar gerðu árásir á lögreglu- stöðvar í nokkrum þorpum í Glína, um 50 kflómetra suður af Zagreb, höfuðborg Króatíu. Einn lögreglumaður lést og níu særð- ust. Þá var annar lögreglumaður skotinn til bana og tveir særðir í bænum Lipik, um 150 kílómetr- um norðvestur af Belgrad, höfuð- borg Serbíu og Júgóslavíu. Króatar, sem eru kaþólskir, lýstu yfir sjálfstæði 25. júní og hefur það valdið óróa meðal rétttrúaðra Serba sem eru í minnihluta í lýð- veldinu. Serbneski minnihlutinn er á móti því að lýðveldið kljúfi sig úr júgóslavneska ríkjasambandinu og nýtur stuðnings stærsta lýð- veldisins, Serbíu. Auk þess er sam- bandsherinn á móti sambandsslit- um. Um 65% hermanna júgóslav- neska hersins eru Serbar, og er hlutfallstalan enn hærri hvað varðar yfirmenn. Reuter-SÞJ Reynt að myrða tyrkneska ræðismanninn í Aþenu: Bush fer til borg- arinnar á morgun Reynt var að myrða tyrkneska ræð- ismanninn í Grikklandi í gær, að- eins tveimur dögum áður en von var á George Bush Bandaríkjafor- seta til landsins til viðræðna við Constantine Misotakis, forsætis- ráðherra Grikklands. Aðalumræðu- efnið verður ágreiningsmál Grikkja og TVrkja, en þar ber hæst ágrein- ingurinn um norðurhluta Kýpur. Bush fer til Tyrklands á laugardag. Báðar þjóðimar em í Atlantshafs- bandalaginu (NATO). Sendiherra Tyrklands í Grikklandi var í sumarfríi og leysti ræðismað- urinn hann af. Að sögn lögreglunnar hafði öflugri sprengju verið komið fyrir í bíl um 40 metrum frá heimili ræðismannsins. Þegar bfll ræðis- mannsins ók framhjá var sprengjan sprengd með fjarstýringu. Þrennt var í bflnum, ræðismaðurinn, ritari hans og bflstjóri. Ræðismaðurinn hlaut slæm meiðsli. Tálsverðar skemmdir urðu, rúður í nálægum húsum brotnuðu, og nokkrir bflar eyðilögðust. Formælandi utanríkisráðuneytis Tyrklands sagði að ræðismaðurinn hafi fótbrotnað á báðum fótum. Hann sagði að bíllinn hafi verið brynvarinn og að það hafi bjargað lífi þeirra. Engin hafði lýst yfir ábyrgð sinni á sprengjutilræðinu, en ekki þótti ólíklegt að öfgafúll vinstrisinnuð hryðjuverkasamtök, 17. nóvember, hafi staðið á bak við það, en aðferðin í gær er ekki ósvipuð þeim aðferðum sem samtökin hafa haft við í sprer.gjutilræðum sínum. Frá árinu 1975 hafa samtökin drepið 16 Grikki og Bandaríkjamenn. Reuter-SÞJ Fréttayfirlit KÚVEIT - Stjórnvöld í Sádí- Arabíu sögðu í gær að Araba- rikin við Persaflóa, Sýriand og Egyptaland hafi komist að samkomulagi um myndun ör- yggissveita, sem ætlað veröur að verja Kúvett fyrir hugsan- legum árásum íraka. JÓHANNESARBORG Hæstíréttur Suður- Afríku vettti f gær Winnie Mandela heimild til að skjóta málí sínu til áfrýj- unardómstóls, en hún var dæmd til 6 ára fangelsisvistar fýrir mannrán og aðild að lík- amsmeiðingum. Lögfræðingur hennar segir að allt að 18 mán- uöir getl liðlð þangað til málið verður tekið fyrir áfrýjunar- dómstólinn. MOSKVA - Rússneska þing- inu gengur erflðlega að velja sór nýjan þingforseta. Atkvæði voru greidd í fimmta sinn í gær og fékk harðlínukommúnistinn Sergei Baburin 458 atkvæði, en umbótasínnínn Ruslan Khas- bulatov 414 atkvæðí, en meiri- htuta þarf til að niðurstaða fá- ist. Khasbulatov var varafor- seti þingsins þegar Boris Jelts- in var forseti þess, en eins og sumum er kunnugt hefur Jelts- In tekið við nýju embætti, emb- ætti forseta Rússlands. Emb- verður unnið í samvinnu við flögur önnur NATO-ríki, Banda- ríkín, Belgfu, Holland og Dan- mörk, og samtais kostar verkið þjóöimar fimm 14 milljarða n.kr. (125 milijarða ísl.kr.). BERLÍN - Endi var bundinn á 46 ára veru sovéska flotans f Austur- Þýskalandi á mánu- dag. Sfðustu sovésku hersklp- In sigldu út úr höfninni f Sassn- ttz f fylgd þýskra tundurdufla- slæðara og þyrina, eftir að efht hafði verið til hátíðlegrar at- hafnar f hafnarborginni. Sam- kvæmt samningi mliii sovéskra og þýskra stjómvalda á sov- éski herinn að vera farinn frá Austur-Þýskalandi fyrir árið 1994.380 þúsund sovéskir her- menn voru i Austur-Þýska- landi, en nú hafa yfir 50 þúsund yfirgefið landtð. Fioti Sovót- manna í Austur- Þýskalandi var mjög líflll miðaö við land- og flugherinn. RÓM - Adolf Hitler ætlaðl aö ræna páfanum og kardínálun- um i Vatfkaninu f seinni heims- styrjöldinni og flytja þá til Þýskalands. Þetta segir Rudoif Rahn, sem var sendiherra Hitl- ers í Róm í seinni heimsstyrj- öldinni, í júliheffl kaþóisks tfmarits á Italfu. Rahn segir að hartn og einn hershöfðingja hans hafl fengið hann ofan af þessum áformum. ætti forseta þingsins er nokkuð vafdamikiö, en forsetinn er m.a. einráöur um val á þeim sem koma tíl greina í stjóm- lagadómstól lýðveldisins. ÓSLÓ - Norðmenn hafa ákveðið að vetja tveimur millj- örðum n.kr. (átján milljörðum fsl.kr.) tii að byggja upp banda- rísku F-16 orrustuþotur sfnar, að sögn norska varnarmála- ráðuneytisins í gær. Verkefnið SAARBRUCKEN - Þýska læknafélagið segir að feitt fólk eigi aö borga meira f sjúkra- tryggingar en fólk sem sé f eðlf- legum hoidum. Ástæðan er sú að feitu fólki sé hættara tii aö veikjast Formaður læknafé- lagslrts segir að fólk, sem fltí sig með ofáti, eigi að taka þátt i þeim kostnaðarauka sem ofát- ið hefur fyrir þjóðfólagið. Reuter-SÞJ

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.