Tíminn - 17.07.1991, Síða 13

Tíminn - 17.07.1991, Síða 13
Miðvikudaaur 17. júlí 1991 REVKJAUIK Sumarferð framsoknarmanna Fjadabaksleið nyrðri - Landmannalauöar - Eldsíá Sumarferð framsóknarmanna í Revkjavík verður farin lausardasinn 27. iúlí n.k. Lasf verður af sfað frá BSÍ kl. 8.00. áæflaðerað koma fii ReyfUavíkur aftur kl. 22.00. FarfiiakJ er kr. 2600 fvrir fullorðna en kr. I4oo fyrir bðm ynsri en 12 ára. Nánari ferðatilhösun auglýsf Allar nánari uppíýsinfíar á |||l skrifsfofu flokksins í sima 1111 624480. Fulltrúaráóið Steingrímur Guðmundur Valgerður Jóhannes Geir Fundarferðir formanns Fram- sóknarflokksins Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, verð- ur ásamt þingmönnum Norðurlandskjördaemis eystra á ferð (kjör- dæminu dagana 17.-19. júlí. Haldnir verða fundir með trúnaðar- mönnum flokksins á Húsavík miðvikudaginn 17. júlí kl. 21.00 og á Akureyri föstudaginn 19. júlí kl. 17.00. Allar frekari upplýsingar veitirflokksskrifstofan, sími 624480. Fundarferðirformanns í önnur kjördæmi verða auglýstar síðar. Framsóknarflokkurinn Sumarhappdrætti Framsókn- arflokksins 1991 Dregið var í Sumarhappdrætti Framsóknarflokksins 12. júlí si., en númerin eru í innsigli hjá Borgarfógeta til 5. ágúst 1991. Vel- unnararfiokksins, sem ekki hafa greitt heimsendan gíróseðil, eru hvattir til að gera skil eigi síðar en 5. ágúst. Það er enn tækifæri til að vera með. Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokks- ins, Hafnarstræti 20, III. hæð, eða í síma 91-624480. Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjórnarfundur SUF verður haldinn fimmtudaginn 18. júlí kl. 20.00 að Hafnarstræti 20. Formaður SUF Suðurland Skrifstofa Kjördæmissambands framsóknarfélaganna á Suður- landi, Eyrarvegi 15, Selfossi, verður opin á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 15-17. Sími 98-22547. Félagar hvattir til að líta inn. KSFS Héraðsmót framsóknarmanna, Vestur-Skaftafellssýslu verður haldið í Tunguseli laugardaginn 27. júlí og hefst kl. 23,00. Hljómsveitin Upplyfting leikur fyrir dansi. Sljómin. Tíminn 13 Raquel Welch orðin fimmtug, en virðist frekar yngjast með árun- um en hitt. Dóttir hennar, Tahnee, gerir það gott í kvikmyndum: Mæðgurnar báðar ástfangnar upp fyrir haus! Það er hægara sagt en gert fyrir Raquel Welch að forðast sviðs- Ijósið. Ekki hefur það heldur reynst auðveldara fýrir dóttur hennar, Tkhnee. Raquel, sem nú stendur á fimm- tugu en lítur ekki út fyrir að vera degi eldri en 27 ára, var í fylgd með kærastanum sínum á góð- gerðarsamkomu í síðustu viku. Hann heitir Robert Moore og er búningahönnuður. Þau eru sögð afar ástfangin og gengur ekki hnífurinn á milli þeirra. Auk þeirra voru m.a. Helen Windsor og Jackie Collins einnig gestir á þessari góðgerðarsam- komu, sem boðað var til vegna útkomu bókarinnar „Lífsstfll okkar daga“ eftir Susan Sontag. Ágóðanum verður varið til rann- sókna á alnæmi. Raquel lítur betur út í dag en hún gerði í frægustu mynd sinni, „One Million Years BC“, sem er frá árinu 1966. Hún þarf ekki að þakka lýtalækningum útlit sitt heldur hollu mataræði og mikilli hreyfingu. Tahnee, dóttir hennar, var hins vegar fjarri góðu gamni og sást til hennar í Róm á Ítalíu. Hún var ekki ein á ferð þar heldur skemmti sér vel með leikaranum Victor Matthews. Þau kynntust við tökur sjónvarpsþáttanna Baby Watch. Þau hafa ekkert viljað segja um sambandið sín á milli, en vinir þeirra segja að þau séu ástfangin upp fyrir haus. Tahnee hefur t.a.m. leikið í Fal- con Crest þáttunum og kvik- myndinni Cocoon. Eins og stend- ur er hún að leika í kvikmynd í Róm sem ber nafnið Angel Face. Leikstjóri myndarinnar er ítalsk- ur og heitir Damiano Damiani. Raquel Welsh þarf svo sannarlega ekki að skammast sín fyrir sinn fagra vöxt, sem eflaust margar konur um heim allan öf- unda hana af. Hér er hún í fylgd með kærastanum sínum sem ku heita Robert Moore. Tahnee hefur nælt sér I leik- arann Victor Matthews og þau eru sögð mjög ástfangin.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.