Tíminn - 17.07.1991, Síða 14

Tíminn - 17.07.1991, Síða 14
14 Tíminn LESENDUR SKRIFA Perlan skipulagsleysi? Reykjavík, 22. júní 1991 Til: Dagblaðsins Tímans, Reykjavík. Tilefni þess að ég rita bréf þetta er nýi útsýnis- og veitingastaðurinn á Öskjuhlíð. Ég var þar núna fyrr í dag, að skoða mannvirkið. Hita- veitustjóri sagði í fréttum á Stöð 2 nú í gær, föstudag, að kostnaðurinn við húsið næmi um 1300 millj. kr., sem er svimandi há upphæð. FVrir þetta háa fjárupphæð er hægt að framkvæma mikið. Tel ég þetta gróft dæmi um bruðl og fjáraustur. Tökum fyrst veitingastaðinn á 5. hæð. Hann er mun minni en ég gerði ráð fyrir, er fyrir um 80-100 manns. Aðeins mjó rönd í ysta hluta hæðarinnar er undir veitingastað- inn. Er það eini hluti kúluhússins sem snýst. Finnst mér plássið þar illa nýtt. Á 4. hæð er kaffitería, sem er heldur stærri en 5. hæðin, svo útisvalir. En komum nú að því sem hvað merkilegast er. Engin 2. eða 3. hæð er í byggingunni. Þar hefði mátt hafa t.d. bar og diskótek. En þar er sem sagt ekkert nema stigar upp á efri hæðimar. Þetta er hreint skipu- lagshneyksli. Plássið er þarna van- nýtt, svo furðu sætir. Jarðhæð húss- ins er síðan ekkert nema einhver að- staða til ýmiskonar listasýninga, sem lítið er. í kjallara er tjörn og gosbrunnur, auk salerna. Hér er, með þessari byggingu, fráfarandi borgarstjóri að reisa sér hálfeilífan minnisvarða um sig og nafn sitt. Að auki má svo nefna um- deildar framkvæmdir við Ráðhús Reykjavíkurborgar. Þennan mann kusu 62.5% Reykvíkinga yfir sig. Enn má tína til söluna á Granda hf. 1300 millj. eru óneitanlega tals- vert fjármagn, og hægt að verja á margan hátt. Fyrir þessa peninga mætti byggja um 250, 2-4 her- bergja, félagslegar íbúðir. Nýlega hafa 110 Reykvíkingar fengið nei- kvætt svar frá Húsnæðisnefnd Reykjavíkur, við umsóknum um verkamannabústaðaíbúðir. Þessum peningum hefði mátt verja í þágu dagvistunar- og öldrunarmála. Framkvæmdir og kostnaðurinn við útsýnis- og veitingastaðinn á Öskju- hlíð minna mig einna helst á Kröfluvirkjunarævintýrið. Gegndar- laust bruðl og sóun á almannafé. Fyrir þetta eru síðan almennir borg- arar látnir greiða, með of háum hitaveitugjöldum. Auk þessa hefur Hitaveita Reykjavíkur staðið í stór- framkvæmdum á Nesjavöllum. Hver er það síðan sem á að greiða þetta nema hinn almenni borgari. Þá má benda á að óþarfi var, og spara hefði mátt, með því að sleppa rándýrri klæðningu á hitaveitutankana sjálfa, að utan jafnt sem innan. En sem sé, þá tel ég fram- kvæmdir við mannvirki þetta vera hið mesta hneyksli, eða svokallaður skandall. Það hlýtur að vera krafa Reykvíkinga, að ítarleg endurskoð- un fari fram á reikningum og kostn- aðarliðum við allar þessar fram- kvæmdir, og málið verði skoðað of- an í kjölinn. Hér tel ég að um hrap- alleg mistök hafi verið að ræða, og óþarfur fjáraustur verið viðhafður. Virðingaríyllst, Gunnar Freyr Gunnarsson Höfundur er stúdent af náttúrusviði M.H. og stýrímaður frá farmannadeild Stýrímanna- skólans i Reykjavík. Hann er nú öryiki. Feigðarstefna flatjörðunga Jón B. Hannibalsson utanríkis- ráðherra, sem stundum mætti ætla að væri sendimaður Efnahagsbanda- lagsins á íslandi, talaði viðstöðulaust við sjálfan sig í meira en hálftíma í Kastljósi sjónvarpsins 9. júlí kl. 22- 22.40, og munu aðrir verða til að segja sitt álit á þeirri ræðu. En lang- athyglisverðast af öllu því, sem ég heyrði til hans, var eitt orð, sem hann tók reyndar upp eftir öðrum, og þau geðbrigði sem virtust liggja á bak við hjá honum, en það var orðið hnattrænt, hnattrænn. Það væri ekki ofsagt, að hann hafi hreytt út úr sér því orði. Hann þoldi það hreint og beint ekki. Jón B. Hannibalsson hugsar ekki hnattrænt, og kemur þá til athugunar, hvers eðlis hugsun hans er: flatjörðungur er orðið sem mér kemur fyrst í hug, en það er um hugarástand Evrópumanna eins og það var fyrir 1500, áður en þeim varð ljóst að jörðin er hnöttur. Jón B. Hannibalsson er greinilega flatjörð- ungur. Honum er illa við allt, sem truflar þá værukæru hugsun, sem hann hefur reyndar sótt í skáldið Hannes Pétursson, en sá telur, að allt hafi verið svo notalegt fyrir 1500. Mun ekki fjarri því, að slík hugsun sé til hjá þeim Efnahags- bandalagsskrifræðismönnum einn- *g- Annað, sem vakti að vísu ekki jafn sterk viðbrögð hjá hinum flug- mælska manni, en varð þó á athygl- isverðan hátt til að taka vindinn undan málflugi hans, var það þegar andmælandi hans nefndi (á þeim fáu mínútum eða sekúndum sem hann fékk til umráða) þjóð og þjóðerni. Það var alveg greinilegt, hvernig dofnaði yfir utanríkisráðherranum, þegar sagt var, að það væri heilög skylda hans að verja sjálfstæði ís- lands. Bendir þetta ekki til þess að undir niðri viti hann, hvert gíapræði það er að gefa sig þessu ríkjabanda- lagi á vald — með öllum þess fjár- magns- og fólkmagnsstraumum — og að samviskan sé ekki sem allra best? Þorsteinn Guðjónsson Lánasjóðurinn er ekkert slor Lánasjóður íslenskra náms- manna hefur nú sem oftar verið til umraeðu og oft verið kvartað undan því hve seint námslán væru afgreidd eða hve illa gengi að fá þá þjónustu sem slík stofn- un ætti að veita. Ég vl) bara fyrir hönd margra, sem ég þekki, koma á framfæri kæru þakklæti fyrir frábæra þjón- ustu og nauðsynlega aðstoð á margan hátt síðastliðín ár. Alltaf hefur verið staðið við það sem lofað hafði verið. ÍN er því á margan hátt vel reldð þjónustufyrirtæki sem um margt mætt) taka til fyrirmyndar. Lán hafa alla tíð verið afgreidd á réttum tíma og á alian hátt ver- ið vel unnið að þeirri fyrir- greiðslu. f dag er það líka hreint og beint gaman að koma á skrif- stofu LfN og sjá hve allt er þar vel skipulagt, opnunartímar vel skil- greí ndir, öll pappírs vinna og skjöl, sem útfylla þarf, hafa verið einfölduð og gerð auðveldari við- fangs. Reki menn samt í vörð- umar er auðvelt að spyrja. Hin mörgu þúsund námsmanna, sem það þurfa að gcra, fá samstundis greinargóð svör. Eftir að undirritaður og mjög margir aðrir hafa notið góðrar og sldlvirkrar þjónustu LÍN í nokkur ár, þá verður maður að líta á allt tal um hlutverk LÍN, aðallega af hálfu þeirra sem ekkert þekkja til þeirrar stofnunar, sem vott um þekkingarleysi á svo mikilvægri stofnun eins og LÍN er fyrir mörg þúsund íslenska námsmenn bæði hérlendis sem eriendis. -311265-3189 Land á förum? Blíðviðrið hefur leikið við lands- menn síðustu vikur. En það er ein- mitt þegar þurrkur stendur lengi sem menn sjá hversu illa landið okkar er farið. Sums staðar er svo komið að varla sést lengur á milli bæja ef vind hreyfir að ráði. Jarðveg- ur ofan af hálendinu fyllir þá loftið, moldin sest í nefgöngin og sandur- inn situr á milli tanna. Því er sorglegt til þess að vita að bændur séu að flytja fé upp á þetta gróðurlitla land. Það verður seint sátt um haldbæra landbúnaðar- stefnu, ef svo heldur fram. Bændur eiga í vök að verjast og þurfa á stuðningi almennings að halda. Flestir íslendingar vilja neyta íslenskra landbúnaðarafurða og þeir vilja að sveitir landsins haldist í byggð. En bændur verða að gæta þess að vekja ekki andúð almenn- ings með ofangreindum hætti. í raun ætti ekki að þurfa að halda búpeningi annars staðar en í afgirt- um hólfum á láglendi, því nógu stórir eru úthagar og ónytjuð tún á íslandi. Sauðfé ætti aðeins að beita á land með samfelldri gróðurþekju. Þegar fylgst er með fé á fjalli uppgötva menn fljótlega að sumar kindur halda sig í kafgrasi á torfum og lækj- arbökkum, en aðrar leita hinsvegar í nýgræðing og kroppa hvert strá sem teygir sig upp úr melum. Þær valsa á mörkum gróðurs og örfoka lands og valda verulegum spjöllum. Og hálfu verri eru hrossin með sínu traðki þar sem þau ganga laus í ofbeittu landi. Á láglendi má líka sjá gróð- ureyðandi beit. Undir Hafnarfjalli gengur fé t.d. á landi sem er eins og stagbætt treyja. Samt nýta menn varla úthaga í næstu sveit og kveikja í sinu á hverju vori svo reykurinn minnir helst á olíueld- ana í Kúvæt. Sinubrennsla telst varla góð búvísindi og eykur nú heldur á mengun. Náttúruvernd á sér stöðugt fleiri fylgjendur. Þar ættu bændur að skipa sér fremstir í flokki, enda eiga þeir mestra hagsmuna að gæta. Flestir bændur eru landverndar- menn, þó enn séu eftir agnúar sem þeir þurfa í sameiningu að sneiða af. Grænn er litur framtíðarinnar! Jón Hálfdanarson, eðlisfræðingur á Akranesi Miðvikudagur 17. júlí 1991 r IÞROTTIR Körfuknattleikur — Unglinga: Landslið valið fyrir þátt- töku í Evrópukeppni í Portúgal Torfí Magnússon, landsliðsþjálf- ari í körfuknattleik, sem einnig þjálfar unglingalandsliðið, hefur valið þá 12 leikmenn sem leika munu fyrir íslands hönd í Evrópu- keppni unglinga í Portúgal 7.-11. ágúst nk. Torfi valdi eftirtalda leikmenn: Bergur Eðvarðsson Grindavík Bergur Hinriksson Grindavík Bragi Magnússon Haukum Brynjar Olafsson Haukum Brynjar Karl Sigurðsson Val Björgvin Reynisson Tindastól Gísli Hallsson ÍR Halldór Kristmannsson ÍR Jón B. Stefánsson Keflavík Kristján Guðlaugsson Keflavík Pétur Vopni Sigurðsson Tinda- stól Sigfús Gizurarson Haukum ísland leikur í riðli með Portú- gal, Svíþjóð, Englandi, Hollandi og Wales. BL Golf: Jóhann og Agnes urðu Austuriandsmeistarar Austurlandsmótið í golfi var hald- ið á Byggðarholtsvelli á Eskifirði um síðustu helgi. Úrslit í karlaflokki án forgjafar urðu þau að Jóhann Kjærbo GN sigraði á 150 höggum. í öðru sæti varð Gunnar Einarsson GFH á 156 höggum og þriðji varð Pétur Jónsson GE á 158 höggum. f kvennaflokki án forgjafar sigr- aði Agnes Sigurþórs GE á 178 högg- um, önnur varð Laufey Oddsdóttir GE á 200 höggum og í þriðja sæti varö Erla Charlesdóttir á 207 högg- um. í keppni með forgjöf sigraði Pét- ur Jónsson GE á 132 höggum, annar varð Viðar Jónsson á 133 höggum og þriðji varð Ragnar Sverrisson á 133 höggum. í kvennaflokki með forgjöf sigr- aði Agnes einnig á 132 höggum, Lauf- ey varð önnur á 142 og Erla varð þriðja á 149 höggum. í unglingaflokki varð Ríkharður Brynjólfsson GFH Austurlandsmeist- ari á 164 höggum. í öðru sæti varð Einar Svavarsson GFH á 199 höggum og í þriðja sæti varð Sindri Óskarsson GN á 228 höggum. BL Knattspyrna: Góöur sigur hjá Brasilíumönnum Brasilía vann Ecuador 3-1 í S- Am- eríkumóti landsliða í knattspymu í fyrrinótt Uruguay vann Kólombíu 1- 0, en báðir þessir leikir voru í B-riðli. Staðan í riðlinum að loknum fjórum leikjum er sú að Kóiombía, Brasilía og Uruguay hafa öll 5 stig, Ecuador hefur 3 stig og Bólivía hefúr 2 stig. I A-riðli hefúr Argentína fúllt hús stiga, eða 8 stig, eftir 3-2 sigur á Perú á sunnudag. Chile kemur næst með 6 stig, en Chile vann stóran sigur, 4-0, á Paraguay á sunnudag. Paraguay hefúr 4 stig í riðlinum, Perú 2, en Venezuela hefur enn ekkert stig hlotið. BL David Platt til Bari ítalska knattspymuliðið Bari er til- búið að greiða 12 milljónir dala fyrir enska landsliðsmanninn David Platt. Búist er við að skrifað verði undir samning við Aston Vdla innan viku. Aston Villa vildi upphaflega fa 6 millj- ónir dala fyrir kappann, en tvöfaldaði síðan verðið. Ekki varð það til að fæla ítalska liðið frá. Liverpool keypti um síðustu helgi þá Mark Wright og Dean Saunders frá Derby County. Kaupverðið fyrir þá kappa, sem báðir em landsliðsmenn, fyrir England og Wales, var 5,1 milljón punda. Kaupverðið á Saunders var 2,9 milljónir punda, sem er metverð á Englandi. BL

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.