Tíminn - 17.07.1991, Qupperneq 16

Tíminn - 17.07.1991, Qupperneq 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300 RÍKiSSKIP NUTIMA FLUTNINGAR Hatnarhusinu v Tryggvagotu 3 28822 ,[iárniálen^okkarfag! lrtBBBR£fftWBSKH>n SAMVINNUBANKANS SUÐURLANDSBRAUT 18. SlMI: 688568 Ókeypis auglýsingar fyrir einstaklinga |91 SIMI -676-444 Uppsögn embættismanns kemur yfirvöldum í opna skjöldu: YFIRVERKFRÆÐINGI Tí niimi MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ1991 Dræm laxveiði það sem af er sumars. Fram- kvæmdastjóri SVFR: ur vildi hann fá að vita hvernig að ákvörðuninni væri staðið. Sigrún Magnúsdóttir, borgarfull- trúi Framsóknarflokksins, situr í stjórn veitustofnana. Hún segir að fregnir um uppsögnina hafi komið sér í opna skjöldu. „Ég held að fyr- irspurn Árna hafi komið öllum á óvart. Ég get engu við bætt nema Á fundi borgarráðs í gær kom fram fyrirspum frá Áma Sigfússyni borgarfulltrúa, vegna fyrirvaralausrar uppsagnar yfirverkfræðings Hitaveitu Reykjavíkur. Gunnar Eydal, skrifstofustjóri á Borgarskrifstofunum, sagði að það væri rétt að yfirverkfræðingi Hita- veitunnar hefði verið sagt upp í fyrradag. Hann sagðist ekkert geta sagt meira um þetta mál, en svars við fyrirspurn Árna væri að vænta á næsta borgarráðsfundi. Samkvæmt heimildum Tímans mun ástæðan vera samstarfsörðugleikar yfirverk- fræðingsins og hitaveitustjóra. í samtali við Tímann sagði Árni Sigfússon að með fyrirspurn sinni væri hann fyrst og fremst að spyrja um forsendur fyrir þessari ákvörð- un hitaveitustjóra og hvernig þessi ákvörðun hafi verið tekin. Aðspurð- ur um það hvort hitaveitustjóra væri heimilt að segja upp starfs- mönnum eða hvort það væri hlut- verk stjórnar veitustofnana, sagðist Árni ekki vera viss um hvort stjórn veitustofnana hefði ráðið í stöðuna eða hvort það hafi verið hitaveitu- stjóri. Hann sagðist halda að fyrr- verandi yfirverkfræðingur Hitaveit- unnar hefði í upphafi verið ráðinn í annað embætti, embætti deildar- verkfræðings, af fyrrverandi hita- veitustjóra. Þegar hann var svo gerður að yfirverkfræöingi hafi það verið samþykkt í stjórn veitustofn- ana. Árni sagði að með fyrirspurn sinni væri hann ekki að efast um heimild þessarar ákvörðunar, held- hvað þetta sýnir að stjórnkerfi borgarinnar er í molum og allar boðleiðir þar milli manna ófærar. Ef stjórn veitustofnana ræður yfir- verkfræðinga Hitaveitunnar, er augljóst að hún ætti líka að segja þeim upp. Um þetta hef ég verið að tala, þó það hafi kannski ekki alltaf skilist, þegar ég bað um skipurit yfir borg- ina. Það er ekki augljóst að hita- veitustjóri hafi brotið af sér, því það segir ekkert um það í samþykktum fyrir Hitaveituna að stjórn veitu- stofnana eigi að ráða yfirmenn hennar. En stjórn veitustofnana átti vitaskuld að vita af þessu og einnig borgarráð. Hér er eitthvað að, í starfi mínu sem borgarfulltrúi hef ég hvað eftir annað rekist á það.“ Stjórnarformaður stjórnar veitu- stofnana er staddur erlendis og hvorki náðist í hitaveitustjóra né fyrrverandi yfirverkfræðing Hita- veitunnar vegna þessa máls. -UÝJ/-aá. Velðin hefur ekkl varið mikil I laxveiðiám landsins í sumar og vatnið í þaim ekki heidur. I Laxá í Kjós sátu menn á berum klöppum, sem alia jafna eru huldar vatni, og renndu fyrir lax. Timamynd: pjetur „Það virðist sem stærri ár spjari sig ágætiega. Ea minnstu ámar virðast fara verr út úr þessu tíðarfari," sagði Jón Gunnar Baldvins- son, framkvæmdastjóri Stangaveiðiféiags Reykjavíkur, í samtaii við Tímann í gær um laxveiðina í ám SVFR. Jón seg- ir veiðina hafa gengiö vel í Norðurá. Þar eru yfír 600 lax- ar komnir á land. Þessa dagana er lítið vatn í ánni, en mikill flskur. En hann er bins vegar tregur tii að taka, sökum vatnsleysisins og birtunnar sem rikt hefur. GS. SAGT UPP STÖRFUM Stjórnarandstaðan gagnrýnir aukna skatta á sjúka. Finnur Ingólfsson: Heilsubrestur á ekki að vera tekjulind ríkissjóðs Hugmyndir heilbrigðisráðherra um gjaldtöku af sjúklingum, sem leggjast inn á sjúkrahús, sem leið til að draga úr kostnaði ríkisins í heilbrígðismálum hafa vakið upp sterk viðbrögð, enda um breyt- ingu að ræða sera ýmsir forystumenn launafólks hafa kallað grundvallarbreytingu á velferðarkerfinu. Finnur Ingólfsson, alþingismaður og aðstoðarmaður heilbrigðisráð- herra í síðustu ríkisstjórn, segir þær hugmyndir, sem nú eru uppi, dæmi um ótrúlega skattagleði rík- isstjórnarinnar, þar sem gera eigi heiísubrest þegnanna að tekjulind og auk þess lýsa algerri uppgjöf við að spara í heilbrigðiskerfinu. Sighvatur Björgvinsson heilbrigð- isráðherra segir ekki lengur mögu- legt að reka heilbrigðiskerfið án þess að til komi eitt þriggja: hlut- fallsleg þátttaka sjúklinga í kostn- aði þeirrar þjónustu sem þeim er veitt, hækkun á sköttum, eða að draga úr þjónustunni. Að sögn Finns Ingólfssonar er at- hyglisvert hversu lítinn gaum ráð- herrann gefur þeim möguleika að draga úr kostnaði í heilbrigðiskerf- inu. „í stað þess að leita leiða til að hagræða og spara í rekstri sjúkra- húsanna í Reykjavík með auknu samstarfi, markvissari verkaskipt- ingu og tilflutningi á verkefnum milli sjúkrahúsanna, t.d. að hafa bráðaþjónustusjúkrahúsin tvö í stað þriggja og ýmsu fleira sem gæti sparað hundruð milljóna, þá velur ráöherrann illa dulbúnar skattaálögur á fólk sem ekki er að vinna fyrir tekjum. Við vildum á sínum tíma fara hina leiðina og auka verkaskiptinguna, en það strandaði á samstarfi við borgaryf- irvöld vegna Borgarspítalans, en Davíð Oddsson, þáverandi borgar- stjóri og núverandi forsætisráð- herra, stóð í vegi fyrir því að hægt væri aö koma þessu á,“ sagði Finn- ur Ingólfsson. Finnur sagði ennfremur að raun- ar væru þær hugmyndir að láta sjúkt fólk borga fyrir mat og gist- ingu á sjúkrahúsum ekki nýjar af nálinni og sjálfstæðismenn hafi verið með þær á lofti þegar þeir fóru með málefni heilbrigðismála á sínum tíma, en framsóknarmenn náð að stöðva þær, enda töldu þeir þær ekki koma til greina. Sjúkra- hús eru ekki hótel, segir Finnur, og við lítum svo á að heilsubrestur einstakra þjóðfélagsþegna eigi ekki að vera tekjulind fyrir ríkissjóð. Þvert á móti er það skylda samfé- lagsins að veita sjúkum lækningu, óháð því hver hinn sjúki er. Þingflokkur Alþýðubandalagsins sendi í gær frá sér ályktun um lyfja- kostnað og sjúkragjöld þar sem mótmælt var auknum skattaálög- um á aldraða, öryrkja og bamaljöl- skyldur með sérstökum lyfjagjöld- um og áformum um gjaldtöku vegna sjúkrahúsvistar. í ályktun AI- þýðubandalagsins segir að ríkis- stjórnin hafi ótvírætt valið leið hægrihyggjunnar og stefni inn á braut ójafnaðar og misréttis. Síðan segir í ályktuninni: „Ef þessi stefna ríkisstjómarinnar festist í sessi em það mikil tímamót í áratuga sögu uppbyggingar velferðarþjónustu hér á landi. Um það hefur verið samstaða þar til nú að allir ættu að vera jafnir gagnvart undirstöðu- þáttum velferðarþjónustunnar án tillits til efnahags." - BG

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.