Tíminn - 17.09.1991, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Þriðjudagur 17. september 1991
Nýir fulltrúar í bæjarstjórnum skera niður styrki til Kvennaathvarfsins um 100%:
Námskeið á vegum
Kvennaathvarfsins
í Tilveru, nýjasta fréttabréfí Samtaka um kvennaathvarf, kemur
fram að fjárhagsstaða athvarfsins er bágborin, enda hefur dvalar-
dögum kvenna Qölgað um 150% og barna um 200% á milli áranna
1990-1991. Þessa fjölgun var ekki hægt að sjá fyrir og þess vegna
ekki gert ráð fyrir henni í fjárhagsáætlun fyrir árið 1991.
Aðrar ástæður eru, að nýir full-
trúar í bæjarstjórnum landsins hafa
skert styrki til Kvennaathvarfsins
um allt að 100%. Auk þess hefur
þjónusta og aðstoð við dvalargesti
athvarfsins verið aukin.
Samtökin standa fyrir námskeiði
dagana 28.-30. nóvember nk., frá kl.
19-22 tvo íyrri dagana og kl. 10-17 á
laugardeginum.
Efni námskeiðsins verður m.a.:
- Starfsemi Kvennaathvarfsins.
- Hvað er heimilisofbeldi?
- Lögin.
- Hvers vegna láta konur bjóða
sér ofbeldi?
- Að alast upp á heimili þar sem
pabbi lemur mömmu.
- Nauðgunarmál.
- Á hvaða hátt má styðja konur,
sem búa við ofbeldi á heimilum eða
hafa orðið fyrir nauðgun?
- Viðtalstækni.
- Stuðningsnet Kvennaathvarfs-
ins, sjálfboðaliðar.
Fundurinn er ætlaður öllum sem
áhuga hafa á að kynna sér starfsemi
Kvennaathvarfsins og málefni þess.
Námskeiðið verður haldið í Hlað-
varpanum, Vesturgötu 3, Reykjavík.
Þátttökugjald er 3.000 krónur. Inn-
ritanir fara fram í síma 613720.
í fréttabréfinu kemur einnig
fram að það hefur lengi verið
draumur þeirra, sem starfa við
Kvennaathvarfið, að fá til samstarfs
konur af landsbyggðinni, konur sem
tækju að sér að vera eins konar full-
trúar Kvennaathvarfsins í heima-
byggð sinni. Landsbyggðarfulltrú-
arnir gætu m.a. tekið að sér dreif-
ingu kynningar- og fræðsluefnis,
séð um samskipti við sveitarstjórnir
og félagsmálanefndir. Einnig verið
konum, sem þyrftu á aðstoð
Kvennaathvarfsins að halda, til
stuðnings og ráðgjafar og verið
milliliðir í einstökum málum. Það
Alþingi:
FORSETAR
í JAPAN
Forsætisnefnd Alþingis skipuð Sal-
ome Þorkelsdóttur, forseta Alþing-
is, og varaforsetunum Jóni Helga-
syni, Cunnlaugi Stefánssyni, Hjör-
leifi Cuttormssyni og Kristínu Ein-
arsdóttur, er nýkomin heim úr
opinberri heimsókn til Japan sem
farin var í boöi japanska þingsins.
Með í for voru starfsmenn Alþingis,
Friðrik Ólafsson og Vigdís Jóns-
dóttir.
Fyrir boðinu stóð Yoshihiko Tsuc-
hyia, forseti efri deildar japanska
þingsins, House of Councillors.
Hann er mikill íslandsvinur og hef-
ur beitt sér fyrir því á margan hátt
að efla samskipti landanna.
Forsætisneftidin ræddi við ýmsa
frammámenn í japönsku þjóðlífi:
forsætisráðherrann Toshiki Kaifu,
utanríkisráðherrann Taro Nakay-
ama, ráðherra landbúnaðar-, sjávar-
útvegs- og skógræktarmála Motoji
Kondo, forseta beggja deilda jap-
anska þingsins, fyrrnefndan Tsuchy-
ia og Yoshio Sakurauchi, forseta
Salomc Þorkels-
dóttir, forseti
Alþingis.
neðri deildar,
House of Repre-
sentatives, og ut-
anríkismálanefnd
efri deildar
þingsins.
Fram kom að
íslendingar og
Japanir eiga víða
samleið um hinn
alþjóðlega vett-
vang. Menn voru
sammála um að efla bæri samskipti
þjóðanna á sviði menningar og við-
skipta. Má geta þess að í japanska
þinginu er starfandi sérstök vin-
náttunefnd Japans og íslands, sem
Tsuchyia kom á, og gegnir for-
mennsku fyrir.
Þá kynnti sendinefndin sér starf-
semi ýmissa opinberra stofnana í To-
kyo og ræddi við forstöðumenn
þeirra. Loks gafst henni tækifæri á
að heimsækja skrifstofu Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna í Tokyo,
sem Helgi Þórhallsson stýrir. -aá.
er staðreynd að a.m.k. 30% dvalar-
kvenna Kvennaathvarfsins koma ut-
an af landi og fjölmargir einstak-
lingar hringja þaðan til að ræða
vandamál sín eða annarra.
Starfskonur Kvennaathvarfsins
hvetja konur til að láta heyra frá sér
varðandi þessa hugmynd.
Kvennaathvarfið hefur fengið nýtt
símanúmer: 91-611205. Einnig er
komið nýtt símanúmer á skrifstof-
unni 91-613720.
-js
Súluhlaup í
sólarhring
Jökulhlaup hófst í Súlu síóastliö-
inn sunnudag. Árni Snorrason
bjá Orkustofnun segir í samtali
við Tímann að Uaupið hafi verið
mjög skarpt og það sé í rauninni
gengið yfír. Vatnið kemur úr
Grænalóni í Vestur- Skaftafells-
sýslu, norðvestan undir Skeiðar-
árjökli. Lónið nær að lyfta jöklin-
um og búa sér til farveg undir
hann. Yfirieitt kemur hlaupið
mjög skyndilega, þ.e. á meðan
iónið er að tæmast, en síðan
dregur jafn skyndilega úr því.
Hlaupið núna hefur varað í um
sólarhring, en eftir því sem ég
best veit var hlaupið ekkert frá-
brugðið mörgum öðrum hlaup-
um þama, segir Árni.
Aóspuröur segirÁmi Súluhlaup
yfirieitt vera áriegan viðburð; þó
komi fyrir að tvö ár líði á milli og
þá verði Uaupin stærri, enda
Uaðlst meira vatn upp í brúnina.
Hann segir að hlaupið hafi farið
af stað í sumar, en hætt við að
Uaupa þá, sennilega vegna ís-
stfflu. Ljóst er að það er eldd
margt sem stöðvar SúluUaup
eftir að það byijar, en það gerðist
þó í sumar. Þannig að hlaupið
núna kom ekki á óvart, við áttum
von á því, segir Ámi.
-js
Úr stóðrétt í Skrapatungu.
Ferðamálafélag Austur-Húnvetninga:
Hrossasmölun og stóð'
réttir í Skrapatungu
Sunnudaginn 22. september verður
stóð réttað í Skrapatungu. Réttin er
við Laxá í Refasveit, á mótum Lax-
árdals og Norðurárdals í Austur-
Húnavatnssýslu.
Hrossin, sem réttuð eru, koma af
svæðinu milli Húnavatnssýslu og
Skagafjarðar, afrétti Engihlíðar- og
Vindhælishreppa. Til réttar koma
mörg hundruð hross. Smalað verð-
ur laugardaginn 21. september og
fyrri hluta sunnudagsins á eftir.
Réttarstörf hefjast svo um klukkan
13 og standa fram eftir degi.
Á sunnudaginn geta menn átt
hrossakaup. Söluhrossum verður
komið fyrir í auðum dilk og þau sett
á söluskrá, sem afhent verður við
innganginn.
Áhugasömum stendur og til boða
að kynna sér hvernig hrossum er
smalað. Þeir eiga þess kost að taka
þátt í því er Laxárdalur verður smal-
aður laugardaginn 21. september,
undir leiðsögn. Þeir hinir sömu
skulu hafa samband við Hótel
Blönduós sem fyrst. Sérstakt tilboð
verður á gistingu.
Það eru Ferðamálafélag Austur-
Húnvetninga, Engihlíðarhreppur,
Hagsmunafélag hrossabænda og að-
ilar í ferðaþjónustu nyrðra sem
standa að þessari nýbreytni. -aá.
NÝ HERFERÐ UNDIR KJÖRORÐINU „VÖRN FYRIR BÖRN“:
STÖÐUMAT Á HAUSTFUNDUM HJÁ SVFÍ
Stjómarmenn og starfsmenn Sfysavamafélags íslands hyggjast nú
leggja land undhr fót og halda fundi með hinum ýmsu félögum. Á
dagskrá verður m.a. eins konar stöðumat hjá SVFÍ þar sem rædd
verða ýmls mál, sem tengjast starfi félagsins í nútíð og framtíð.
í landmu eru nú 94 björgunarsveit-
ir og 114 slysavamadeildir, sem
vinna gífuriega mikið sjálfboða-
vinnustarf. Nú er hafin könnun á
umfangi þessa starfs með það að
leiðarijósi að meta það fjár, og rætt
er um að meta eignlr félagsíns um
land allt, en telja má víst að þær
nemi einhverium milljörðum.
Á fundaferðinnl um landið veröur
m.a. rætt um fjármál SVFÍ, ftæðshi-
starfið, Slysavamaskóla sjómanna,
björgunarmiöstöðina í Slysavama-
húsinu, samskipti við aðra björgun-
araðila, ný verkefni og síðast en ektó
síst slysavamir bama.
Stjóro Slysavamafélagsins hefur
einmitt ákveðið að hefja umfangs-
mikla herferð undir heitinu „Vöm
fyrir böra“, þar sem reynt verður að
draga athygli landsmanna að siys-
förum barna á öihun sviðum. Einn
liðurinn í þessari herferð nefnist
„Gerum bæinn betri fyrir böm“ og
verður unninn í samráði við sveitar-
félög. Felst hann ma. í því að gerö
veröur könnun á slysagildrum fyrir
böm og leitað eftir úrbótum. Herdís
Storgaard hjúkrunarfræðingur hef-
ur verið táðin til að annast annan
þátt í þessu víðtæka verkefni, en hún
mun á næstunni halda ftmdi \>íðs
vegar um land, vinna að útgáfu
ftæðslubækbngs og væntanlega
gera könnun á slysagildrum á leik-
skólum. Áriega koma á siysadeild
Borgarspítalans um 11.000 böm
innan við 14 ára aldur, og era þá
ótalin þau böra, sem leita til heilsu-
gæslustöðva eða annarra sjúkrahúsa
í höftiðstaðnum og úti um land.
Haustfúndimir hefiast á laugar-
dag, standa fram á sunnudag og
veröa sem hér segin Vesturland, í
veiðihúsinu við Laxá kl. 13:30 á
laugardag og á sama tíma í Varma-
landi á sunnudag. Vestfirðir, í Fé-
lagsheimili Patreksfiarðar tó. 13:30
á laugardag og í Sigurðarbúð á ísa-
firði á sama tíma á sunnudag. Norð-
uriand, í Jónínubúð á Dahnk á laug-
ardag U. 13:00 og í Skúlagarði á
sunnudag kl. 14:00. Ansturiand, í
Sfysavamahúsinu, Höfn, á laugar-
dag ld. 14:00 og í Valaskjálf, Eglls-
stöðum, á sama tíina á sunnudag.
Suöuriand, í Brydebúð í Vík kl.
13:30 og í Aratungu á sama túna á
sunnudag. Reykjavík/Reykjanes, í
Sanágerði kL 13:30.